Morgunblaðið - 01.10.1995, Blaðsíða 4
4 C SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Opinn Willys
HALLDÓR Klemensson á þennan opna Willys ’82. Vélin er 360 in er Range Rover-gormar allan hringinn. Bensíntankurinn
kúbiktommur, sjálfskiptingin er Turbo 400 og millikassinn tekur 250 lítra. Hestöflin eru 230. Eigandinn er ný búinn að
Dana 300. Bíllinn er loftlæstur að framan og aftan og fjöðrun- gera bílinn upp eftir veltu en venjulega er hann með plasthúsi.
13 þús-
und
manns
á jeppa-
sýningu
Á MILLI tólf til þrettán þúsund
manns komu á árlega jeppasýn-
ingu Ferðaklúbbsins 4x4 í
Laugardalshöll um síðustu helgi.
Það eru öllu færri sýningargest-
ir en var í fyrra. Hátt í 50 mik-
ið breyttir jeppar voru þar sýnd-
ir en auk þess ýmiss konar bún-
aður til ferðalaga og útivistar.
Hér segir frá nokkrum jeppanna
í máli og myndum.
Blazer ’94
AXEL Gíslason á þennan Chevrolet Blazer framan og aftan. Olíutankurinn tekur 300 lítra.
árgerð 1994. Undir vélarhlífinni er 6,2 lítra Hann er með loftpúðafjöðrun að fráman og
dísilvél með Turbo 400 sjálfskiptingu og upp- aftan og loftdælu til þess að dæla í hjólbarð-
haflegum millikassa og hann er loftlæstur að ana og olíumiðstöð fyrir bíl og vél.
lOY'Vr
OUWflcy
'irnlilliíT<
’o'
- f! |
Lengdur Double Cab
VILHJÁLMUR Freyr Jónsson á þennan lengda Toyota Double með tvo millikassa frá Toyota. Raflæsingar eru í hjól framan
Cab árgerð 1993. Hann er með 2,4 Iítra dísilvél með forþjöppu og aftan og hann er á 44 tommu dekkjum. Dísiltankurinn tekur
og millikæli. Gírkassinn er upprunalegur og auk þess er hann 2151ítraogbíllinnerbúinnöllumhugsanlegumfjarskiptatækjum.
800.000
manns
í Frankfurt
ALÞJÓÐLEGA bílasýningin í Frank-
furt, sem lauk um síðustu helgi, dró
til sín 15% fleiri gesti en þegar hún
var haldin síðast, árið 1993. Alls
sóttu um 800 þúsund manns sýning-
una sem stóð í tíu daga. Það eru þó
mun færri gestir en sóttu sýninguna
1991, skömmu eftir sameiningu
þýsku ríkjanna, en þá var aðsóknin
935 þúsund manns. Sýningin er hald-
in annað hvert ár í París og verður
næst í Frankfurt 1997.
Chrysler
í Austurríki
FRAMLEIÐSLA á nýjum Chrysler
Voyager III fjölnotabfl hófst í lok
september í Eurostar verksmiðjunni
í borginni Graz í Austurríki. Um er
að ræða samvinnuverkefni Chrysler
og Steyr Daimler Puch Fahrzeug-
technik. Unnið verður á tveimur
vöktum í verksmiðjunni og frám-
leiðslan innan tíðar verður 231 bíll
á dag. Heyrst hefur að Chrysler
hyggist smíða 50 þúsund Voyager
III á næsta ári i Graz.
Xuntiu bíll
fjölskyld-
unnar
CITROÉN Xantia Tentation með dísil-
vél og forþjöppu var kjörinn „Fjöl-
skyldubfll ársins" af bílablaðamönn-
um í Belgíu nýlega. Xantia varð fyrir
valinu vegna þæginda í akstri, akst-
urseiginleika oghagstæðs verðs með
tilliti til gæða. í öðru sæti hafnaði
splunkunýr Mitsubishi Carisma 1,8
GLS og í þriðja sæti varð Renault
Laguna Wagon en Laguna stallbakur-
inn sigraði í þessu kjöri í fyrra.
20% minni
útflutningur
f rúJapan
JAPANSKUR bílaútflutningur dróst
saman um 20,3% í ágúst miðað við
sama í fyrra. Alls voru fluttir út
259.176 bílar í mánuðinum. Sam-
dráttur í fólksbílaútflutningi varð
17,2%, vörubílaútfiutningur dróst
saman um 24,3% og rútubílaútflutn-
ingur um 70,2%.
Suzuki smíóar
Subaru
FUJI Heavy Industries og Suzuki
hófu samstarf í síðustu viku um
smíði á Suzuki bílum með Subaru
nafninu í Ungveijalandi. Magyar
Suzuki, sem Suzuki á 65,2% hlut í,
ráðgerir að smíða allt að 10 þúsund
Suzuki Swift hlaðbaka sem þó munu
heita Subaru Justy. Talið er að sala
á Subaru í Vestur-Evrópu verði að-
eins um 34.000 bílar á þessu ári en
37.000 bílar á því næsta og 46.000
bflar 1997, ekki síst vegna samnings-
ins um Subaru Justy/Suzuki Swift í
Ungveijalandi.
Ford í metum
hjú hönnuöum
TÍMARITIÐ Design News hefur á
hveiju ári í 16 ár gert skoðanakönn-
un meðal nærri 300 þúsund áskrif-
enda sinna um hvaða bíl þeir myndu
helst kaupa með tilliti til gæða og
góðrar hönnunar. Um 17% af lesend-
unum starfa í tengslum við bílaiðnað-
inn. Tiunda árið í röð kusu lesendur
Design News Ford Taurus „Bílinn
sem þeir myndu kaupa í dag“. Ford
Explorer varð í 3.-4. sæti, Ford pall-
bíll af lengri gerð í 6.-7. sæti, og
Ford Crown Victoria í 10.-11. sæti.
Í kjörinu „Besti bíllinn undir 15.000
dollurum" varð Saturn í 1. sæti og
Neon í 2. sæti. ■