Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 16.11.1995, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLDÓR VALDIMARSSON, Kjartansgötu 7, Borgarnesi, er lést 9. nóvember sl., verður jarðsung- inn frá Borgarneskirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast af- þakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir. Maria Ingólfsdóttir, Helga Halldórsdóttir, Lilja Guðrún Halldórsdóttir, Guðmundur Jónsson, Garðar Halldórsson, Guðlaug S. Guðlaugsdóttir, Ingólfur Halldórsson, Oddný O. Sigurðardóttir, Ólöf Halldórsdóttir, Sveinn Guðnason, afa- og iangafabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVANFRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR frá Hellissandi, sem andaðist 14. nóvember, verður jarðsungin frá Ingjaldshólskirkju laugar- daginn 18. nóvember kl. 14.00. Saetaferðir verða frá BSÍ kl. 10.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Minningarsjóð slysavarnadeildar Helgu Bárðardóttur, Hellissandi. Friðjón Jónsson, Bylgja Halldórsdóttir, Þyri Jónsdóttir, Haukur Sigurðsson, Sigurður Jónsson, Metta Guðmundsdóttir, Kristján Jónsson, Arnheiður Matthíasdóttir, Baldur Jónsson, Albína Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför ástkærrar móður minnar, tengda- móður og ömmu ELÍNAR BRYNJÓLFSDÓTTUR, vistheimilinu Seljahli'ð, áður Látraseli 7, verður gerð frá Fossvogskirkju föstu- daginn 17. nóvember kl. 15.00. Anna Lfna Karlsdóttir, Jónas Hermannsson, Hermann Jónasson, Guðrún Sigtryggsdóttir, Karl Friðrik Jónasson, Ragnar Jónasson, Jónas Valur Jónasson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SNORRI JÓNSSON, Grundargarði 1, verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 18. nóvember kl. 14.00. Inga Filippía Sigurðardóttir, Inga Lilja Snorradóttir, Snorri Snorrason, Herdfs Snorradóttir, Heimir Aðalsteinsson, Bergljót Snorradóttir, Hermann S. Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, REYNIR VILBERGS verslunarmaður, Hringbraut 88, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 10.30. Blóm vinsamlega afþökkuð. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á krabbameinsdeild Landspítalans. Minningarkort fást í síma 560 1300. Steinunn Þorsteinsdóttir, Pálmi Þór Reynisson, Jóna Helgadóttir, Stella María Reynisdóttir, Friðgeir Indriðason, Þorsteinn V. Reynisson, Hjördfs Hjörleifsdóttir, barnabörn og langafabörn. HARALDUR EGGERTSSON OG SVANHILDUR HLÖÐ VERSDÓTTIR •+■ Haraldur Eggertsson fædd- ' ist á Flateyri 18. janúar 1965. Eiginkona hans, Svan- hildur Hlöðversdóttir, fæddist í Reykjavík 23. mars 1965. Þau létust ásamt börnum sínum þremur í snjóflóðinu á Flateyri 26. október síðastliðinn og fór útför þeirra fram frá Hall- grímskirkju 7. nóvember. VEGIR guðs eru órannsakanlegir, sjaldan hefur það verið staðfest með jafn óyggjandi hætti og hinn 26. október síðastliðinn. Þá féll snjóflóð á Flateyri og hreif með sér líf tuttugu manna, barna og kvenna. Hver skildi vilja guðs þá nótt? Hver þekkti vegi hans þá? Andspænis þessum spurningum er trúin og traust á kærleika hans okkar eina svar: Verði þinn vilji. Margar góðar sálir kallaði Drott- inn til sín þessa nótt. Þar á meðal var frændi minn og vinur Haraldur Eggertsson, kona hans Svanhildur Hlöðversdóttir og börn þeirra þijú, Haraldur Jón, Ástrós Bima og Reb- ekka Rut. Ég og Haraldur vorum systkina- böm pg ólumst upp saman í þorpinu við Önundarfjörð. Öllum okkar stundum eyddum við saman og vorum við nánast eins og tvíburar. Ef öðmm okkar datt eitthvað í hug var hinn ætíð með. Það var líka fátt sem við létum ógert á okkar yngri árum enda var þorpið okkar staður þar sem draumar urðu að vemleika og veruleikinn að draumi. Það væri of langt mál að telja upp allt það sem við tókum okkur fyrir hendur á þeim árum, en allra okkar stunda hvort sem var í íjárhúsunum með ömmu, dorgveiði við höfnina, Héraðsskólanum á Núpi eða heim- sóknirnar í Stýrimannaskólann, minnist ég með gleði og þakklæti. Þegar lífið tók að kalla dró held- ur í sundur með okkur, sjómennsk- an heillaði Halla, það hafði ég að vísu vitað löngu áður en hann komst til manns. Leið hans lá í Stýri- mannaskólann og þaðan á sjóinn. Hann bjó í Reykjavík um tíma og kynntist þar Svanhildi konu sinni og flutti með henni vestur á Flat- eyri þar sem hann varð síðar skip- stjóri á línubátnum Gylli. Þá loks eftir að við vorum báðir orðnir ráð- settir menn tók samband okkar að styrkjast að nýju. Það var ætíð gott að hitta þau Svanhildi og Halla. Hún var ein- staklega lífsglöð og geislandi per- sóna, sem manni leið vel að vera nálægt. Börn þeirra hitti ég þó sjaldnar, en þess varð ég þó áskynja í heimsóknum mínum til þeirra hjóna að þar færu börn sem hefðu alist upp við mikinn kærleika og réttlæti. Haralds minnist ég sem góðs vin- ar, hann var einstaklega dagfars- prúður maður og yfirvegaður bæði til orðs og æðis. Hann bjó yfir heil- brigðum metnaði, var ábyrgðarfull- ur og traustur, en umfram allt var hann vinur vina sinna. Nú við leiðarlok virðast sporin okkar saman vera örstutt, en eins og segir í ljóði Halldórs Laxness: „Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér.“ Hvíl í friði, elsku vinur. Guðmundur Konráðsson. Reynsla Flateyringa er engu lík. Náttúran tók, en náttúran gaf líka. Það er kannski örlítil huggun þeim sem kynnst hafa náttúruöflunum í öllu sínu veldi, þótt okkur finnist stundum lítið réttlæti til í því. Haraldur Eggertsson var frá Flateyri. Frá fyrstu minningu með Halla í barnaskóla til dagsins í dag lifír hann alltaf sem hinn skemmti- legi og heilsteypti strákur í hópnum. Það var ævinlega eitthvað við hann sem gerði hann traustan og góðan vin, hægan með lúmskan húmor. Ótal ferðir okkar Flateyringanna sem seinna fórum að „hlaupa af okkur hornin“ - yfir fjöll á næstu staði - og góðar stundir á eyrinni, eru ógleymanlegar. Eftir að Halli hafði verið á sjó flest unglingsárin fór hann í Stýri- mannaskólann og lauk þar góðu prófi. Hann fór fljótlega aftur heim á Flateyri með stoppi í Reykjavík þar sem við „gömlu“ hittumst á ný með Magga bróður hans. Þeir bræð- ur voru alltaf örlátastir allra og skemmtilegt að kynnast brýnunum aftur. Halli var rétt rúmlega tvítugur þegar hann var sestur í stól skip- stjóra og það vissu allir að hann var einn af þeim útvöldu. Þeir túrar sem ég fór með honum eru minnis- stæðir vegna þess að það voru auð- veldir róðrar, ekki vegna þess að það væri ekkert fiskerí - þvert á móti - heldur vegna þess að það var þægilegt andrúmsloft og ekkert stress. Útsjónarsemi, yfirvegun og öryggi. Nú er hann farinn með konu sinni Svanhildi Hlöðversdóttur og lífs- glöðum_ börnunum þeirra, Haraldi Jóni, Ástrós Birnu og Rebekku Rut. Og þótt hjartað sé ekki vél, sem hægt er að stoppa á meðan tíminn græðir sár þeirra sem eftir lifa, þá munu þau örugglega gróa og mennirnir vaxa og styrkjast á ný við minninguna um þau. Innileg- ustu samúðarkveðjur til allra að- standenda. Einar Þór. Það er ógleymanleg minning að hafa orðið vitni að því á ónefndu kaffihúsi höfuðborgarinnar þegar ást Halla og Svanhildar var að kvikna. Aðeins skömmu síðar að hitta Svanhildi í Kaupfélaginu heima. „Þú hér?“ spurði ég. „Hvað heldur þú, maður, ég náði í hann Halla,“ sagði Svanhildur og skelli- hló. „Það var gott hjá þér, það er sko góður strákur hann Halli.“ Tvær heilsteyptar manneskjur lent- ar á sama báti. Eftir eitt leiklistarævintýrið aust- ur á Fáskrúðsfirði flúði ég vestur í von um pláss og spurði Halla hvort ekki væri kominn tími til þess að ég fengi að læra eitthvað af honum. „Við skulum reyna það,“ sagði hann og brosti kankvíst, brosti sínu blíð- asta. Þó steinbítsvertíðin sú gerði hvorugan okkar ríkari á bleðla tóku þau Svanhildur til við að verða rík- ari. Eignuðust þijú börn sér og sinni stóru familíu til hamingjuauka í harðri lífsbaráttunni vestur við haf- ið bláa hafið. Nú ekki fyrir löngu hitti ég þau á Vagninum ásamt Begga hans Bubba og Áslaugar. Það var glatt á hjalla og aðspurður af Svanhildi um kvennamálin mín svaraði ég með vísubrotum sem urðu til á landstími út af Barðanum þegar bátsvélin var svo væn að mala fram laglínuna sem sönglað var við út í hött á sjómannavísu: Ástin mín situr á Suðureyri sér bara þorskana glansa. En ég er á sjónum og heillaður heyri hörpustrengina dansa. En svo þegar vikan og verkirnir dvina ég vonglaður hoppa í land. Og þá fara írsku augun að skína og allt kemst í lukkunnar stand. Ferðabænin í land var það kall- að. Og undirspilið skyldi vera á SIGURÐUR ÞORSTEINSSON ÞORSTEINN SIGURÐSSON + Sigurður Þorsteinsson fæddist 18. janúar 1956. Þorsteinn Sigurðsson fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1977. Þeir fórust í snjóflóðinu á Flateyri 26. október síðastliðinn. Útför Sigurðar og Þorsteins fór fram 6. nóvember. FEÐGAR er létust á Flateyri 26. október sl. Er hægt að gleðjast aft- ur á Eyrinni? spyrja margir Önfirð- ingar sig. Er í dagrenningu hægt að gleðjast yfir komandi degi, að lokinni þeirri líkn sem dásemdir næturinnar fela í sér í gegnum tím- ans rás? Mitt hjarta og öll mín sál gladdist þegar ég sá að þið lifðuð. Atli Már, Sigrún, Berglind Ósk, Borgrún Álda. Ekki bara fyrir okk- ur hin heldur fyrst og fremst fyrir hvert annað og hvert fyrir sig. Það var nótt Og ég gekk eftir götunni, því það var nott. Ég gekk föstum ákveðnum skrefum og sagði við sjálfan mig Sjá ég er farinn á brott. Ég kem aldrei aftur. Og engum skal takast að finna felustað minn. Þá heyrði ég snögglega fótatak einhvers á eftir mér Og ég sneri mér við, því ég vildi sjá hvort ég þekkti hann En það var ekki neinn. Það var aðeins skóhljóð sem elti mig. Og ég hrópaði skjálfandi röddu: Hvað hef ég þá gert? Mér var svarað með lævísum hlátri lengst úti í myrkrinu. Ég er lífið sjálft. Og þú kemst ekki undan. Ég elti þig. (St.St.) Siggi og Steini tengdust óijúfan- legum böndum. „Ég læt það ekki henda, Finnur minn,“ sagði pabbi þinn við mig í sumar þegar vangaveltur um lífs- háska tilverunnar bar á góma og útheimtu þá hreinskilni sem ríkti á milli okkar. Það var vegna Steina og við ræddum dugnað hans. Strák- ana okkar. Um þig Atli og hvað það er gott að eignast hlutdeild í lífi „svona góðra stráka, svona sterkar og fallegar stelpur". Svo skildu leiðir um sinn. í október tók við þessi heljar- hrammur skilningsleysis og van- máttar. Ég fór vestur að öskra á gilið sem við, Atli, gengum saman fyrir nokkrum árum í smala- mennskunni. Kölluðumst á, á milli I klettabeltanna til þess að vita hvernig hvorum um sig reiddi af. Með staf í hönd að styðja sig við. Nú gekkst þetta gil dauðanum á hönd og hreif með sér Steina bróð- ur ykkar og besta ástvininn hennar mömmu ykkar. I stað gleðinnar yfir góðum göngum, sem Steini hafði vissulega líka fundið fyrir; góðum heimtum, hefur nú sorgin þrengt sér að. „Þér munuð sjá mig, því ég lifi og þér munuð lifa“ sagði Jesús hinn smurði. í gamla „vill- ingabekkinn" minn er nú höggvið skarð. 1 hóp þeirra manneskja sem æ síðan hafa byggt upp gagnkvæm- an trúnað við „gamla“ kennarann sinn. I þeirri uppbyggingu átti Steini frumkvæði að öllum öðrum ólöstuðum. Manneskjan mun styðja þig, Sigrún. Það veit Guð. Ykkur öll. Það veit fólkið. Far vel yfir móðuna miklu, Siggi og Steini. Finnur Magnús Gunnlaugsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.