Morgunblaðið - 19.11.1995, Blaðsíða 4
4 B SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
________________________ FRETTIR___________
Tungrimála lögum Slóvakíu
harðlega mótmælt
Bratislava, Búdapest. Reuter.
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
ftttrgiiiiiMjiMb
-kjarni málsins!
ÞING Slóvakíu setti á miðvikudag
lög sem kveða á um að opinberir
starfsmenn verði að kunna slóvak-
ísku og megi ekki tala önnur tungu-
mál í starfi. Lögin voru sett þrátt
fyrir hörð mótmæli ungverska minni-
hlutans' í landinu og stjórnar Ung-
verjalands.
Frumvarpið kveður einnig á um
að aðeins megi nota slóvakísku við
kirkjuathafnir, svo sem brúðkaup.
Tali einhver annað tungumál en sló-
vakísku í opinberu starfi varði það
sektum. Afnumin voru lög sem veittu
minnihlutahópunum, sem eru um
15% landsmanna, rétt til að nota
móðurmá! sín í opinberum störfum.
„Næstum 600.000 Ungverjar búa
í Slóvakíu og í þeirra augum era
lögin um opinbert tungumál landsins
óviðunandi skref aftur á bak,“ sagði
í bréfi frá Gyula Horn, forsætisráð-
herra Ungveijalands, til Vladímírs
Meciars, forsætisráðherra Slóvakíu.
Ungveijar eru tæp 11% íbúa Slóvak-
íu, sem eru 5,8 milljónir.
Hom sagði að frumvarpið gengi í
berhögg við Mannréttindasáttmála
Evrópu og samning ríkjanna um
stöðu minnihlutahópa sem slóvakíska
þingið hefur ekki enn staðfest. í
samningnum iofa ríkin að leysa deilu-
mál varðandi réttindi minnihluta-
hópa, sem er skilyrði fyrir aðild að
Evrópusambandinu og Atlantshafs-
bandalaginu. Ungveijar ætla að
skjóta málinu til Evrópuráðsins, en
slóvakíska stjórnin segist hafa breytt
frumvarpinu samkvæmt tillögum
ráðsins. Hún segir frumvarpið svipað
lögum annarra ríkja í Evrópu um
opinber tungumál þeirra.
Rescue 911 fcvðmpfyK erna af sögimt þessarar békat og
bjargað við Bretlandsstrendur
Drukknandi manni bjargaö
úr Hvítá
innilokuöu fólki bjargað úr
brennandi fjöIbýiishúsi
Ótrúlegir atburðir í
Re>kjavíkurh>ofn
Atlantis
tengist Mir
í geimnum
Kanaveralhöfða. Reuter.
ÁHÖFN bandarísku geimfeijunn-
ar Atlantis tengdi farkost sinn við
rússnesku geimstöðina Mir á mið-
vikudag og heilsaði upp á geimfar-
ana þijá sem hafst hafa þar við,
tvo_ Rússa og Þjóðveija.
Áhöfn Atlantis færði skipveij-
um á Mir blóm og súkkulaði að
rússneskum sið. Til þess að stytta
þeim stundir fengu þeir einnig
samanbijótanlegan gítar að gjöf.
Áhöfnin á Mir hefur verið um
borð í geimstöðinni frá í septem-
ber og á ekki að snúa til jarðar
fyrr en í febrúar. Til viðbótar gjöf-
um flutti Atlantis vistir, drykkjar-
vatn, föt og tilraunaverkefni til
Mir. Vegna fjárskorts hafa Rússar
ekki getað sent geimförunum
nauðsynlegar aukabirgðir og
hlupu þá Bandaríkjamenn undir
bagga.
Geimförin verða tengd saman í
þrjá daga og meðan á því stendur
munu geimfaramir snæða eina
sameiginlega risamáltíð sem sam-
anstendur af rækjukokteil, steik
og kartöflum, súpu, hnetum ásamt
kirsubeijarböku og ijómaís.
Atlantis flutti sérstakan við-
legubúnað og festi hann við Mir.
Verður hann notaður við stefnu-
mót af þessu tagi í framtíðinni.
Þetta er í annað sinn á árinu
sem bandarísk geimfeija er tengd
við Mir.
Lindab
þakrennur
Allir fylgihlutir
Þakrennukerfið frá okkur er heildar-
lausn. Níösterkt og falleg hönnun.
Þakrennukerfi sem endist og end-
ist. Verðiö kemur skemmtilega á
óvart. Gott litaúrval.
Umboðsmenn um land allt.
TÆKNtDEtLD
Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík
Sími 587 5699 • Fax 567 4699
*l■■l■l■■■■■a■■*
♦ ■ ■ ■ ■
Lindab
■ ■ ■
ÞAKSTAL
Þak- og veggklæðning í
mörgum útfærslum, t.d.: bárað,
kantað, þaksteinamynstur ofl.
Plastisol yfirborðsvörn klæðn-
ingarinnar gefur margfalda
endingu.
Fjölbreytt litaúrval.
Umboðsmenn um land allt.
ci.nji'injjL'itiii.TU
TÆKNIDEILO OJtk
Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík
Sími 587 5699 • Fax 567 4699
* 11 ■ I 11 1111 111 ■*