Morgunblaðið - 26.11.1995, Blaðsíða 28
28 B SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIMNUAUGírSINGAR
Beitningamenn
óskast á 105 tonna línubát sem er gerður
út frá Flateyri.
Upplýsingar í síma 4567700 eða 4567822.
Auglýsingasöfnun
Knattspyrnudeild Aftureldingar óskar eftir
áhugasömum aðila til að safna auglýsingum
fyrir næsta sumar. Góðir tekjumöguleikar.
Upplýsingar síma 566 8633 (Valdimar).
KÁ, Selfossi
Næturáfylling
Óskum eftir að ráða verktaka í næturáfyllingu
í matvörudeild verslunar okkar á Selfossi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi nokkra
reynslu af vinnu í matvöruverslun og metnað
til að skila vandaðri vinnu.
Allar nánari upplýsingar gefur Árni Bene-
diktsson í síma 482 1000 og á staðnum.
Tilboðum í verkið skal skila fyrir mánudaginn
4. desember.
KÁ,
Selfossi.
Fiskifræðingur
Hafrannsóknastofnunin óskar að ráða fiski-
fræðing við útibú stofnunarinnar á Akureyri.
Hluti starfsins felst í kennslu í fiskifræði við
sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Steingrím-
ur Jónsson, útibússtjóri, í síma 463 0948.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun,
fyrri störf og ritstörf, sendist útibúi Hafrann-
sóknastofnunarinnar á Akureyri fyrir 15. des-
ember næstkomandi.
Hafrannsóknastofnunin,
útibú Akureyri,
pósthólf875,
602 Akureyri.
Bókhald
- endurskoðun
Endurskoðunarskrifstofa óskar að ráða
tvo starfsmenn:
1. Viðskiptafræðing af endurskoðunarsviði
eða mann, með sambærilega menntun
og/eða starfsreynslu, til uppgjörsstarfa.
2. Bókara. Starfsreynsla og tölvukunnátta
nauðsynleg.
Reyklaus vinnustaður.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
3. desember, merktar: „B - 17634.“
Starfsfólk
Óskum eftir starfsfólki við aðhlynningu.
Einnig til ræstingarstarfa og í eldhús.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri á staðn-
um milli kl. 13 og 15 mánudag, þriðjudag
og miðvikudag.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Viðskiptafræðingur
Embætti ríkisskattstjóra auglýsir lausa til
umsóknar stöðu viðskiptafræðings. í boði
eru krefjandi störf sem tengjast skattamálum
almennt.
Umsóknir, þar sem fram komi upplýsingar
um menntun og fyrri störf, sendist embætt-
inu að Laugavegi 166, 150 Reykjvík, fyrir 11.
desember nk.
Heilsugæslustöð
Ólafsvíkurlæknishéraðs
Heilsugæslulæknir
Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslu-
stöðina í Ólafsvíkurlæknishéraði er laus til
umsóknar. Um er að ræða stöðu í 1 ár.
Æskilegt er að umsækjandi sé sérfræðingur
í heimilislækningum. Staðan er laus frá
1. febrúar 1996, eða eftir nánara
samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 1996.
Umsóknum skal skilað til formanns stjórnar.
Nánari upplýsingar gefur yfirlæknir í síma
436 1000 vs. og 436 1455 hs.
Snyrtivöruverslun
Starfskraftur óskast strax til framtíðarstarfa
Þarf að vera vanur störfum í sérverslun
Æskilegur aldur umsækjanda 22-35 ár.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl. fyrir
30. nóv., merktar: „Heilsdagsstarf - 10“.
Þvottahús
Staða verkstjóra við þvottahús hjá öldrunar-
stofnun á stór-Reykavíkursvæðinu er laus
til umsóknar.
Áhugavert starf fyrir aðila með góða stjórn-
unarhæfileika.
Umsóknir, er tilgreini aldur og fyrri störf,
sendist afgreiðslu Mbl., merktar: „J - 1005“,
fyrir 1. desember 1995.
Bakarí
Óskum að ráða nú þegar starfskraft í
afgreiðslu o.fl. Um hlutastarf er að ræða.
Lágmarksaldur er 20 ár og viðkomandi þarf
að vera áhugasamur og hæfur sölumaður.
Upplýsingar gefa Áslaug eða Ragnar.
Mosfellsbakari,
Urðarholti 2,
sími 566 6145.
Stjórn Heilsugælsustöðvar
Olafsvíkurlæknishéraðs.
Tvo lögreglumenn
vantar til afleysingastarfa við embætti sýslu-
mannsins á Isafirði á meðan lögreglumenn
þaðan stunda nám við Lögregluskólann.
Leitað er að mönnum með menntun frá
Lögregluskólanum.
Tímabil það sem um ræðir er frá 7. janúar
fram til 15. maí 1996. Til athugunar er að
fleiri en einn lögreglumaður skipti með sér
hvorri stöðu. Þetta er kjörið tækifæri fyrir
lögreglumenn að breyta til og koma til starfa
við líflegt og skemmtilegt lögreglulið svo og
að starfa við öðruvísi aðstæður en gengur
og gerist.
Allar frekari upplýsingar veitir yfirlögreglu-
þjónn í síma 456 4100.
Sýslumaðurinn á ísafirði,
Ólafur Helgi Kjartansson.
Endurskoðun
- viðskiptafræðingur
Stór endurskoðunarskrifstofa í Reykjavík
óskar eftir að ráða viðskiptafræðing til starfa.
Helstu verkefni: Endurskoðun, reikningsskil,
skattaskil, skýrslugerð o.fl.
Við leitum að viðskiptafræðingi, helst af
endurskoðunarsviði. Reynsla af störfum við
endurskoðun eða störf við bókhald og reikn-
ingsskil nauðsynleg.
Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt.
Starfið krefst töluverðra ferðalaga. Næg
verkefni framundan.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Viðskiptafræðingur 485“ fyrir 2. desember nk.
Hagva ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík Sími 581 3666 Róöningarþjónusta Rekstrarróögjöf Skoðanakannanir
Leikskólar
Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra við nýjan leikskóla,
Laufskála við Laufrima, er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 17. des. nk.
Leikskólakennaramenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson,
framkvæmdastjóri og Margrét Vallý Jóhanns-
dóttir, deildarstjóri í síma 552 7277.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími552-7277.
Skíðadeild KR
Skíðaþjálfari
Skíðadeild KR óskar eftir að ráða þjálfara
fyrir aldurshópinn 13 ára og eldri.
Leitað er eftir þjálfara með menntun og
reynslu.
Umsóknir skulu berast fyrir 4. desember nk.
Frekari upplýsingar veita:
Guðjón Þór Mathiesen s. 551 2119 og
Sigurður Hauksson s. 567 1628.
Skíðadeild KR
b/t Guðjón Þór Mathiesen
Hverfisgata 64 A
101 Reykjavík.
Framkvæmdastjóri
ICEPRO-nefndin og EDI-félagið, samtök um
pappírslaus viðskipti; (skjalaskipti á milli
tölva) auglýsa eftir framkvæmdastjóra.
Starfið felst í umsjón með starfsemi samtak-
anna og vinnuhópa þeira, kynningar- og út-
gáfustarfsemi sem og rekstri á kynningar-
skrifstofu samtakanna, Viðskiptavakanum.
Æskilegt er að framkvæmdastjórinn geti
hafið störf frá og með áramótum.
Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu
Viðskiptavakans í síma 588 6666.
Umsóknir, merktar: „Starfsumsókn", sendist
til skrifstofu Viðskiptavakans, Húsi verslun-
arinnar, 103 Reykjavík, fyrir 10. desember.