Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.01.1996, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 23. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ MENNTUN Samnorrænt verkefni skólanema verður á haustmánuðum sett upp í Kaupmannahöfn Búa til menn- ingarborg Ljósm./Ásthildur NEMENDUR í verkefnahópnum Tölvuheimur og samskipti ásamt einum leiðbeinanda sínum, Braga Halldórssyni myndlistarmanni. Hér er byggð tölvuborg UM 90 íslenskir grunn- og fram- haldsskólanemar munu fara til Kaupmannahafnar í haust ásamt nemendum frá öðrum Norðurlöndum og reisa þar Borg unga fólksins. Um er að ræða samnorrænt verk- efni sem nefnist Framtíðarsýn fyrir nýtt árþúsund og er unnið undir leið- sögn kennara og listamanna. Það var Norræna ráðherranefndin sem ákvað í maí 1994 að veita fjármun- um í verkefnið og er Reykjavík ein af fimm þátttökuborgum. Hinar eru Malmö, Tammerfors, Þrándheimur og Kaupmannahöfn. í hveiju landi eru fjögur til sex verkstæði, þar sem nemendur hafa frá því í haust unnið að því hvernig þau vilja tjá hugmyndir sínar um framtíðina. Er það gert ýmist í tón- um, dansi, hreyfingu, arkitektúr, myndlist, tölvuvinnu og myndbanda- gerð. A Islandi nefnast verkefnin Manngert umhverfí og Myndrænir miðlar, sem hvort tveggja er stað- sett í Menntaskólanum við Sund, Myndlistarverkstæði í Hólabrekku- skóla, Hljóðmyndir og Dans og hreyfing, sem hvort tveggja er í Æfingaskóla KHÍ, og Tölvuheimur og samskipti þar sem þátttakendur eru nemendur úr Hlíðaskóla. Sýning í Listasafni íslands Afrakstur vinnunnar verður sýnd- ur samtímis í sýningarsölum og lista- söfnum hverrar borgar fyrir sig í byijun mars. í Reykjavík verður sýningin opnuð 2. mars í Listasafni íslands og stendur yfir í tvær vikur. Markmiðið með verkefninu er að ungt fólk fái tækifæri til að gera hugmyndir sínar eða væntingar um framtíðina sýnilegar. „Unga fólkið verður stundum afskipt, því hinir fullorðnu hlusta kannski ekki nægi- lega á það,“ sagði Rakel Pétursdótt- ir deildarstjóri Fræðsludeildar Lista- safns íslands. „Því finnst mér svo áhugavert að hér fá nemendur að vinna með lista- og fagfólki tií að koma hugmyndum sínum á fram- færi og tel það vera einn mikilvæg- asta þáttinn í verkefninu." Með ferð sinni til Kaupmanna- hafnar í haust gefst nemendum tækifæri á að byggja upp borg fram- tíðarinnar. „Sú sýning verður vænt- anlega sett upp í sýningarhúsnæði sem yerið er að endurbyggja og nefnist Oksnehallen. Vonumst við til að allir nemendurnir hafi tæki- færi til að vera með þá,“ sagði Rakel. HÓPURINN sem stendur að verkefninu Tölvuheimur og samskipti eru þrettán nemend- ur úr 10. bekk Hliðaskóla. Kennslan fer fram í Kennarahá- skóla íslands undir leiðsögn Ásthildar Jónsdóttur nemanda í Myndmenntavali KHÍ, sem tek- ur fram að tölvukostur Hlíða- skóla sé mjög lélegur. „Mér finnst einna skemmtilegast við verkefnið að nemendur urðu ekki að hafa ákveðna undir- stöðukunnáttu á tölvum áður en þeir komu hingað. Hins veg- ar eru þeir allir í tölvuvali og færri komust að en vildu,“ sagði hún. Ásthildur segir að þó að verk- stæðin sex vinni á mismunandi stöðum með mismunandi miðla stefni þau að því sama, þ.e. birta framtíðarsýn unga fólksins. „Hér gefst því gullið tækifæri til að sýna ráðherranefndinni hvers konar framtíð ungt fólk vill. Ungmennin geta miðlað væntingum sinum og draumum og hugsanlega fengið einhverju breytt um framtíðina.“ Ekki er allskostar ljóst af hálfu stjórn- enda hvernig staðið verður að uppbyggingu Borgar unga fólksins í Kaupmannahöfn í haust. Miðast verkefnin því í fyrstu að sýningunni sem verð- ur í Listasafninu í mars. Innan tölvuhópsins vinna nemendur tveir og tveir saman að ákveðnum þáttum tölvuborg- arinnar (Cybercity) og mynda þannig eina heild. I upphafi völdu nemendur sér verkefni eftir áhugasviði og hafa aðal- lega unnið í tölvugrafík, þar sem þeir hafa verið að mynd- gera hugmyndir sínar með að- stoð listamanna. Eru sumir nemendanna að skipuleggja löggæslu, önnur íþróttamann- virki, tómstundir, íbúðahverfi eða samgöngur, svo dæmi séu tekin. „Verkefnin á öllum verk- stæðunum skarast, þannig að í tónlistarhópnum geta til dæmis einhverjir verið að vinna að samgöngum eins og í tölvuhópn- um. Þegar öllum verkefnum hefur verið safnað saman í mars verður ákveðið hvernig framhaldið verður,“ sagði Ást- hildur. Lært af reynslunni í haust héldu allir íslensku þátttakendurnir ráðstefnu í Hinu húsinu þar sem fyrirlesar- ar komu úr ýmsum áttum. Sem dæmi má nefna dansara, guð- fræðing og líffræðing. „Við vildum ekki að krakkarnir byggðu framtíð sína á því sem þau hafa kynnst í bíómyndum heldur horfðu til hennar með raunsæjum augum. Við leggjum mikla áherslu á að um leið og þau vinna verkefnin felist í þeim lærdómur.“ Ásthildur nefnir leyfilegan aldur til áfengiskaupa sem dæmi um breytt hugarfar nem- enda þegar þeir höfðu hugleitt málin til enda. „í fyrstu vildu þeir færa aldurinn niður í 15 ár. Þegar við höfðum rætt þessi mál af raunsæi með framtíðina í huga sættust þau á að hann miðaðist við giftingaraldurinn," sagði hún. Endurtekningarpróf hjá viðskiptafræðinemum EITT hundrað og tuttugu fyrsta árs nemar í viðskiptafræðideild Háskóla íslands, eða tæplega helmingur nema, kusu að endur- taka próf í reikningshaldi sl. laug- ardag. Fall í þessari grein er alla jafna 60-70% og önnur aðalsían í viðskiptafræðinni. Ágreiningur reis í jólaprófum um tímalengd, því jafnan hafa þau staðið yfir í fimm tíma, en að þessu sinni var ákveðið að hafa þau í fjóra tíma. „Mikil óánægja varð með fyrirkomulag- ið þar sem ekki var öllum nem- endum tímalengdin ljós og því var þessi ákvörðun tekin í kjölfar- ið,“ sagði Árni Finnsson próf- stjóri HÍ. skólar/námskeið handavinna ■ Ódýr saumanámskeið Samvinna vió Burda. Sparið og saumið fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp. Faglærður kennari. Sigrfður Pétursd., s. 5517356. ■ Virku námskeiðin byrja 5. febrúar Bútasaumur, byrjendur (teppagerð 4x3 tímar). Framhaldsnámskeið (4 teppamynstur 4x3 tímar). Dúkkugerð (2x3 tímar). Eldhúshlutir, tehetta servíettubox, mynd, pottaleppar o.fl. (4x3 tímar). Baðherbergishlutir (4x3 tímar), tissuebox, seta, ilmdúkka o.fl. Veggteppanámskeið <3x3 tímar). Kennt 3 miðvikudagskvöld ki. 19-22. Mörkinni 3, sími 568 7477 myndmennt ■ MYND-MÁL Myndlistarnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Undirstöðuatriði og tækni. Málað með vatns- og olíulitum. Uppl. og innritun eftir kl. 13 alla daga. Rúna Gísladóttir, listmálari, sími 561 1525. ■ Námskeið í keramik Keramiknámskeiðin á Hulduhólum hefj- ast 19. febrúar. Byrjendanámskeið, framhaldsnámskeið. Upplýsingar í síma 566 6194. Steinunn Marteinsdóttir. ■ Listmálun - leirlist Nýtt námskeið að byrja í listmálun og leirlist. Morgun- og kvöldtimar. Innritun í símum 552 3218 og 562 3218. Ríkey Ingimundardóttir, myndhöggvari. ■ Bréfaskólanámskeið f myndmennt Á nýársönn, janúar-maí, eru kennd eftir- farandi námskeið: Grunnteikning. Líkamsteikning. Lita- meðferð. Listmálun með myndbandi. Skrautskrift. Innanhússarkitektúr. Híbýlafræði. Teikning og föndur fyrir börn. Fáðu sent kynningarrit skólans með því að hringja eða senda okkur línu. Sími 562 7644, pósthólf 1464, 121 Reykjavík. tónlist ■ Pfanókennsla Einkakennsla á píanó og í tónfræði. Upplýsingar og innritun í s. 553 1507. Anna Ingólfsdóttir. tölvur ■ Öll tölvunámskeið á Macintosh og PC. Hringið og fáið upplýsingar. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, s. 568 8090. ■ Tölvunámskeið Windows, Word og Excel, 5.-9. febrúar kl. 16-19. Internetið, 31. janúar - 1. febrúar kl. 16-19 eða 7.-8. febrúar kl. 16-19. Word, 5.-8. febrúar kl. 13-16. Excel, 5.-9. febrúar kl. 13-16. Macintosh og Claris Works, 5.-9. febrú- ar kl. 9-12 eða 6.-20. febrúar kl. 19.30-22.30. FileMaker, 29. janúar-2.febrúar kl. 9-12. Visual Basic, 29. janúar-2. febrúar kL 16-19. Quark Xpress, 5.-9. febrúar kl. 13-16. PowerPoint, 29.-30. janúar kl. 13-16. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, s. 568 8090. ■ Töivuvetrarskólinn fyrir 10-16 ára: Grunnnámskeið, forritunarnámskeið og Intemet. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, s. 568 8090. ■ Nútíma forritun: Frábært 54 kennslustunda námskeið um nútíma forritun meö Visual Basic. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, s. 568 8090. ■ Tölvuumsjón f núti'marekstri: 145 kennslustunda námskeið fyrir þá, sem sjá um tölvur í fyrirtækjum, skólum og stofnunum. Netumsjón, Word, Acc- ess, Excel, PowerPoint, fjölvar, Visual- Basic og Internetið. Tölvu- og verkfræðiþjónustan, Grensásvegi 16, s. 568 8090. hellsurækt ■ Grænmetisréttir - námskeiðin eru byrjuð aftur Viltu læra að elda ódýran mat úr græn- meti og ávöxtum? Námskeið 1: Indverskir réttir mán. Námskeið 2: Mexíkóskir réttir þri. Námskeið 3: Blandað alþjóðlegt mið. Tími: Kl. 18-21.30. Verð á kvöld 2.500. 6-8 manns í hóp. Tvö brauð og fimm laukar, si'mi 587 2899, Steinunn. tungumál ■ Enskunám í Englandi Við bjóðum enskunám við einn virtasta málaskóla Englands. Skólinn sér þér fyr- ir fæði og húsnæði hjá enskri fjölskyldu. Um er að ræða alhliða ensku, 18 ára og eldri, 2ja-4ra vikna annir; unglinga- skóla, júlí og ágúst, 13-17 ára, 4ra vikna annir; viðskipðtaensku, 2ja og 4ra vikna annir. Allar nánari upplýsignar gefur Jóna María Júlíusdóttir eftir kl. 18 í síma 4652-3625. VIRKA ■ Dönskuskólinn, Stórhöfða 17 Kennsla hefst mánudaginn 15. janúar. Danska kennd í litlum samtalshópum. Einnig ungíinganámskeið. Upplýsingar og skráning i' símum 567 7770 og 567 6794. ýmisiegt ■ Ættfræðinámskeið Lærið sjálf að leita uppruna ykkar og frændgarðs. Frábær rannsóknaaðstaða. Ættfræðiþjónustan, s. 552 7100. ■ Frá Félagi íslenskra hugvitsmanna Grunnnámskeið fyrir hugmyndasmiði og frumkvöðla: Lítstefna þín, vinna með hugmyndir, styrkleikar, veikleikar, tæki- færi og hættur byrjenda. Násta námskeið verður 24. og 31. janúar kl. 20-23. Upplýsingar í símum 552 0218 og 565 1476. 557IIS.S ■ Grunnnám og framhaldsskóla- áfangar, tungumálanámskeið Ens., þýs., spæ., fra., dan., sæn., nor., stæ., eðl., efn., ísl., ICELANDIC: 102, 202 og grunnnámsk. Námsaðstoð. Morg- un-, síðd.-, kvöld- og helgartímar allt áriö. fulforíJinsfræjðslan Gcrðuberg 1, 3 haHJ ®
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.