Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 30.01.1996, Blaðsíða 12
IÞRDniR pl®rgiw»Maliil< TENNIS Wilander og Novacek sakaðir um neyslu fíkniefna Kæra alþjóða sambandið TVEIR frægir tenniskappar eru grunaðir um að hafa neytt ólög- legs fíkniefnis, að því er fram kom í enska blaðinu News of the World um helgina. Þetta eru Svíinn Mats Wilander og Tékkinn Karel Novacek. Brian Tobin, for- seti Alþjóðatennissambandsins, neitaði að segja af eða á um grunsemdir þessar á blaða- mannafundi við lok Opna ástr- alska meistaramótsins á sunnu- daginn, en hvorki Wilander né Novacek voru meðal keppenda þar. Þeir voni raunar báðir skráð- ir en hættu við og sögðust vera meiddir, en bresk blöð segja þá hafa flogið til Lundúna til að ræða við lögfræðinga sína. Brian Tobin sagði þó: „Við tókum rúmlega þúsund handa- hófskennd sýni á síðasta ári og ef engin hefðu verið jákvæð þá væru lögfræðingar örugglega ekki að tala við einhverja, eða hvað?“ „Við segjum ekkert um ein- stakar prufur sem voru teknar og það er ekki að vænta neinnar yfirlýsingar frá okkur nema það þurfi að grípa til einhverrar refs- ingar gegn einhverjum," sagði Tobin en samkvæmt breskum fjölmiðlum eiga þeir félagar að hafa neytt kókaíns, en efnið er á bannlista alþjóða ólympíu- nefndarinnar. Bill Ryan, umboðsmaður Mats Wilanders, sagði á mánudag við sænska fjölmiðla að tenniskapp- inn væri saklaus af ásökununum og hefði ákveðið að kæra Alþjóða tennissambandið fyrir samnings- brot. „Mats hefur ekki fengið leyfi til að sjá 'niðurstöður úr lyíjaprófinu eða annað því tengt. Þetta eru aðeins þeirra orð. Hann hefur verið ranglega ásakaður," sagði Ryan. Lögfræðingar þeirra segjast hafa niðurstöður úr lyga- prófi sem sanni að þeir eru sak- lausir. AMERISKI FOTBOLTINN Steinarfrá í þrjá mánuði STEINAR Guðgeirsson, fyrir- liði Framliðsins í knattspyrnu, verður frá æfingum í minnst þijá mánuði. Steinar ristar- brotnaði á æfingu á sunnu- daginn og er kominn í gifs, sem hann verður að vera með í sex til sjö vikur. Kristinn dæm- ir í Örebro KRISTINN Albertsson, körfu- knattleiksdómari úr Breiða- bliki, mun dæma leik Svía og Belga í undanúrslitum Evr- ópumóts landsliða, en liðin mætast í Örebro 28. febrúar. Þess má geta að þetta er sjö- undi leikur Kristins í vetur á vegum Alþjóðakörfuknatt- leikssambandsins (FIBA) þannig að hann virðist vera kominn hátt á hæfnislista þeirra. FIBA hefur einnig út- nefnt Kristin sem dómara fyr- ir hönd íslands í riðli Evrópu- keppni landsliða sem fram fer hér á landi í maí. Aronfer til Noregs Dallas meistari Dallas Cowboys fagnaði sigri í úrslitaleik NHL-deildarinnar í ameríska fótboltanum í fyrrinótt og var þetta í þriðja sinn á fjórum árum sem liðið verður meistari og í fimmta sinn í sögunni. Að þessu sinni mátti Pittsburgh Steelers sætta sig við að tapa 27:17 en lið úr Landsdeildinni hefur haft betur í úrslitaleiknum undanfarin 12 ár. Staðan í hálfleik var 13:7. „Við vildum sigra, fyrst og fremst fyrir Barry Switzer, sem er frábær þjálfari en vanmetinn hjá mörgum,“ sagði varnarmaðurinn Larry Brown, sem komst inn í tvær sendingar mótheijanna og snertimörk Dallas fylgdu í kjölfarið. Fyrir vikið var hann kjörinn besti maður úrslita- leiksins en þetta er í annað sinn sem vamarmaður verður fyrir valinu og í fyrsta sinn á liðnum 10 ámm. „Ef til vill verður þetta til þess að fólk sýnir honum tilhlýðilega virðingu," bætti Brown við. Switzer hefur verið þjálfari Dall- as í tvö ár - tók við af hinum vin- sæla Jimmy Johnson sem stýrði lið- inu til meistaratitils tvö ár í röð en var látinn fara vegna deilu við eigandann - og honum hefur nán- ast verið kennt um allt sem ekki hefur gengið upp. Sett hefur verið út á þjálfunina, leikskipulagið og fleira en hann hefur haldið sínu striki. Eftir verðlaunaafhendingu snéri hann sér að Jerry Jones, eig- anda félagsins og öskraði: „Erum við byijaðir að skemmta okkur? Við gerðum það á okkar hátt, væni. Við gerðum það. Við gerðum það.“ Michael Irvin sagði að þetta væri sætasti sigurinn vegna þess sem á undan hefði gengið og aðrir tóku í sama streng „Þetta var ekki besti leikur sem við höfum sýnt en vörnin stóð fyrir sínu og gerði það sem skiþti máli,“ sagði Troy Aik- man, leikstjórnandi Dallas. Switzer sagði að álaginu væri ekki aflétt þrátt fyrir að meistara- titillinn væri í höfn. „Álagið er ávallt til staðar og gagnrýnin er alltaf fyrir hendi. En við lentum þar sem við vildum. Leiðin var ekki eins og til stóð og það voru hindran- ir en við komumst alla leið.“ Reuter ÞRÍR þekktir hjá Dallas fagna snertimarkl Emmitt Smiths (nr. 22) í fjórða leikhluta. Lelkstjórn- andinn Troy Aikmann er í miðjunni og sóknarmaðurinn Michael Irvln til vinstri. ARON Kristjánsson úr Hauk- um fer með íslenska landslið- inu í handknattleik til Noregs árla í dag vegna Lottó-keppn- innar sem hefst á morgun og lýkur um helgina. Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, valdi Aron í staðinn fyrir Ein- ar Gunnar Sigurðsson, sem sá sér ekki fært að fara. Jason Ólafsson féll einnig úr hópn- um en Brixen, sem hann leik- ur með á Ítalíu, tilkynnti HSÍ í kjölfar jafnteflisleiks um helgina að það mætti ekki við því að missa hann. Bryan Rob- son sektaður BRYAN Robson, knattspymu- stjóri Middlesbrough, var sektaður um 75 þús. ísl. kr. í gær fyrir að þrasa í dómara í leik íiðsins gegn Blackburn 16. desember. Tveir leikmenn liðsins - Neil Cox og Nigel Pearson fengu 50 þús. kr. sekt fyrir þras við sama dóm- ara, Paul Danson, þegar Middlesbrough tapaði 1:0. FRJÁLSÍÞRÓTTIR Fjögur íslandsmet í Svíþjóö Vala bætti Norðurlandametið enn einu sinni: fóryfirfjóra metra VALA Flosadóttir úr ÍR bætti íslands- og Norðurlandamet sitt f stangarstökki innanhúss enn um helgina er hún fór yfir 4 metra á móti í Svíþjóð. Þá setti Geirlaug Geirlaugs- dóttir úr ÍR tvö íslandsmet og Jón Arnar Magnússon úr Tindastóli eitt. Geirlaug bætti fyrst íslands- metið í 60 metra hlaupi á laugardag í Gautaborg er hún hljóp á 7,55 sek. í undanúrslitum. Þar með náði hún jafnframt lág- marki fyrir Evrópumeistaramótið innanhúss í þeirri grein, en mótið fer fram í Stokkhólmi í byijun mars. í úrslitahlaupinu á mótinu á laugardag varð Geirlaug í þriðja sæti á 7,58 sek. Gamla metið átti hún sjálf, 7,63 sek. frá því í fyrra. Á sunnudag bætti Geirlaug svo níu ára gamalt met Svanhildar Kristjónsdóttur í 200 m hlaupi. Hljóp á 24,85 sek. og sigraði á mótinu en gamla metið var 24,97 sek. Vala Flosadóttir, hin 17 ára, stórefnilega stúlka sem búsett er í Svíþjóð, fór í fyrsta sinn yfir 3,90 metra um fyrri helgi og bætti sig enn á laugardaginn er hún sveif yfir 4 metra á móti í Malmö. Þess má geta að heimsmetið í greininni var bætt bæði innan- og utanhúss um helgina eins og greint er frá hér til hliðar. Vala keppti aftur á sunnudag en fór þá yfir 3,60. Jón Arnar Magnússon varð í þriðja sæti í 60 m grindahlaupi á mótinu í Gautaborg. Þar hljóp hann á 7,99 sek. sem er íslands- met, en hann átti sjálfur gamla metið sem var 8,17 sek. Þá varð hann í 2. sæti í 60 m hlaupi á 6,82 sek. íslandsmet Einars Þórs Einarssonar í þeirri grein er 6,80 sek. þannig að Jón Arnar er ekki langt frá því. Þess má geta að Jóhannes Már Marteinsson úr ÍR varð þriðji í því hlaupi. í undanúr- slitunum hljóp hann á 6,93 en á 6,97 í úrslitahlaupinu. Lágmarkið fyrir Evrópumótið í mars er 6,90 sek. Fimm náð EM-lágmarki Fimm íslendingar hafa nú náð lágmörkum fyrir Evrópumeistara- mótið; Geirlaug var sú fímmta til að ná því en áður höfðu Jón Arn- ar, Vala, Guðrún Arnardóttir og Pétur Guðmundsson unnið sér þátttökurétt. Keppendur frá ís- landi verða þó varla nema þrír því Pétur og Guðrún, sem búsett eru í Bandaríkjunum, verða ekki með. Hann hyggst ekki keppa á innan- hússmótum í vetur og Guðrún tek- ur þátt í stórmóti vestanhafs helg- ina sem EM verður svo og helgina á undan. ENGLAND: 2X1 X 2 X 22X 122X ITALIA: X 1 2 X11 11X 111X

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.