Morgunblaðið - 25.04.1996, Side 45

Morgunblaðið - 25.04.1996, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 1996 45 AÐSENDAR GREINAR “ Hér er á kjarnyrtan hátt lýst sársauka þeirra sem mega sín einskis; barnanna sem eftir lifa. B.arnanna sem þurfa mikið og sterkt byggingarefni að framtíð, sem verður kannski ekki einu sinni þeirra. Hinir nýju frændur okkar knýja dyra og það er sárt til þess að vita að Norðurlandaráð og stofn- anir þess skuli ekki hafa séð sér fært að veita Eystrasaltsríkjum fullan og óskoraðan aðgang að samstarfi sínu. Mun þar hafa komið tvennt til: annars vegar fjarskyld tungumál, en eistneska er líkt og finnska af úgrískum stofni; lettneska og litá- íska er hins vegar ævaforn og afar þróuð baltnesk tungumál, skyld tokkaísku sem nú er, illu heilli, útdautt mál. Þá má einnig vera að okkur norrænum hafi vax- ið í augum fátækt þessara lang- kúguðu þjóða; því hefði mátt gera skóna, a.m.k. í öndverðu að þau hefðu í fjárhagslegu tilliti fremur verið þiggjendur en veitendur. Hitt rennur okkur til rifja sem til menningar þessara þjóða þekkj- um að sú ríka auðlegð hafi hvorki þá né síðar verið lögð á einhverjar þær vogarskálar sem þeirri nátt- úru eru gæddar að vega og meta óefnisleg gæði. Óréttmætt væri þó að segja að Böltum hafi verið úthýst: Þeir koma að norrænu samstarfi með þátttöku í einstökum verkefnum. í raun er margt líkt með óskyld- um - og ólíkt með skyldum. Málsöguleg og málvísindaleg fjarlægð ríkir milli móðurmála þessara nýju frændþjóða; við norðanmenn getum hreykt okkur af langri og glæstri bókmennta- og ritmálshefð, byggðri á norræn- um og germönskum tungum, hefð sem er girt skjólbelti virðuleikans, hefð menningarlegra þjóðgarða, sem okkar þjóða menn sýna með réttmætu stolti. Frændurnir handan Eystrasalts geta gumað af ævafornu talmáli sem enn, við lok tuttugustu aldar, á marga órannsakaða snertifleti við hið forna mál sanskrít. Form- gerð litáískunnar minnir nefnilega um margt á þann grunlausa fugl geirfuglinn, sem bar svo skilyrðis- laust traust til mannanna að hann þurfti um síðir að gjalda fyrir það með lífi sínu. Fuglinn sá var eins og menning- in. Hann treysti uns hann var fót- um troðinn. Enskum glugga lokað Er nú komið að formlegu tilefni þessarar greinar. Og lendingunni mjúku. Í bakhöfði okkar klingir sögum af ótímabæru hruni klassískra mennta í kjölfar ár- hundruða heimsvaldastefnu sem einnegin skildi fátt eftir að efnis- legum verðmætum í jaðarbyggð- um, örnefni, landaheiti, manna- nöfn finnum við þó víðast. Litáar bjuggu lengi og búa enn við bjöllu- hljóm rússneskrar tungu í hlust- um, þýska hefur þar einnig verið talsvert notað samskiptamál, einkum meðal menntamanna. Hið ótvíræða keppikefli nú um stundir er þó enskan; hald og traust hins siðmenntaða heims; málið sem opnar glugga . . . Það er þó kynd- ugt til þess að hugsa að hið ís- lenska nafn landsins, Litháen og tungu þess litháísku skuli einmitt vera úr ensku komið, en á því annars fagra og göfuga máli heit- ir landið Lithuania og sá sem það- an kemur er nefndur Lithuanian. Á frummálinu heitir landið sjálft hins vegar Lietuva (ekkert h í stofni) og öll lýsingarorð af því dregin, svo sem lietuvos, lietuviu, lietuvoje, o.fl. eru öll án h. I sænskri og danskri tungu heitir landið Litauen og sá sem þaðan kemur er nefndur litauer (no) og litausk (lo). Þýsk tunga nefnir landið Litauen og þann er þaðan kemur Litauer. Fer því vart á milli mála að enskra áhrifa gætir í þeirri nafngift er við höfum val- ið þessu ágæta landi og íbúum þess. Slík áhrif eiga stundum, jafnvel iðulega, talsverðan rétt á sér, en virðast hér með öllu óþörf, enda orðin öll mun þjálli án bók- stafsins h. Ekki satt... ? Höfundur er rithöfundur. Ghð'éml övrnoi AKZONOBEl sikkEns $ SUZUKI NI55AN □PEL SUBARU L 1 10 ara Fagmennska í fyrirúmi BÍLARÉTTINGAR & SPRAUTUN SÆVARS Skeifunni 17 • Sími: 568 9620 • 568 5391 no r tram þrlsvan t vtnnlng. ___ Nú er upplagt að fá sér miða og vera með á föstudag Skafðu jyr^ nci hOTfSU SV Mundu... ...að skila afrifunni af Happ í Hendi miðanum á næsta sölustað ef þú færð þrjú merki Sjónvarpsins. Þá áttu möguleika á fjölda vinninga í þættinum hjá Hemma og hver veit nema þú takir þátt í risaskafinu og vinnir milljón króna. SamviiiiiulBPllir Landsýu m JAPISS lUpp I Mtfiull í tjoppil oíj a hcminnlnðvMtti utti laiui nlM. SkAfðu fyrst og horfðu svo!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.