Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 2
2 D MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ' MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1996 ANDRÉSAR ANDAR - LEIKARNIR ANDRÉSAR ANDAR - LEIKARNIR Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson ARNA Arnardóttir frá Akureyri og Bragi Sigurður Óskarsson frá Ólafsfirði urðu tvöfaldir Andrésar-meistarar. Olafsfirðmgurinn Bragi Sig- urður Óskarsson og Arnar Anardóttir voru sigursæl og unnu tvöfalt í flokki 12 ára -og fengu vegleg verðlaun frá Skátabúð- inni. Hann sigraði í svigi og stórsvigi drengja og fékk að launum skíði, bindingar og stafi sem voru veitt fyrir besta árangurinn í báðum greinum í elsta flokknum. „Ég bjóst ekki við því að sigra hér því ég hef ekki getað æft nægilega vel í vetur. Lyfturnar voru aldrei opnaðar í vetur og það þurfti að draga okkur upp á snjó- troðara þegar við æfðum frammi á Dal. Við höfum einnig æft tölu- vert hér á Akureyri og á Dalvík.“ Bragi varð þrefaldur Andrésar- meistari í fyrr og hefur oft verið á verðlaunapalli áður. „Þetta er toppurinn hjá mér. Það er frábært að fá skíði í verðlaun og nú þarf ég ekki að kaupa mér skíði fyrir næsta vetur,“ sagði Bragi sem segir Kristin Bjömsson vera í miklu uppáhaldi hjá sér. Frábærir leikar Arna Arnardóttir frá Akureyri sigraði í báðum greinum í flokki 12 ára stúlkna. Hún var að keppa í sjötta sinn á leikunum og vann stórsvigið líka í fyrra. „Þetta hafa verið frábærir leik- ar, en það hefði verið enn skemmtilegra að hafa yngstu krakkana með. Ég ætla að halda áfram að æfa næstu ár og reyna að komast út í skíðamenntaskóla í Noregi eða Svíþjóð. Það verður erfiðara að keppa næsta vetur því þá verð ég á yngra ári í unglinga- flokki. Ég hefði aldrei viljað missa af Andrésar andar-leikunum því ljörið er svo mikið,“ sagði þessi efnilega skíðakona. Áslaug Eva. Fór fyrst á skíði tveggja ára Aslaug Eva Björnsdóttir frá Akureyri sigraði bæði í svigi og stórsvigi í flokki 10 ára stúlkna og hafði töluverða yfirburði. Hún sagðist tvisvar áður hafa unnið á leikunum, í svigi 1993 og 1994. En bjóst hún við svona góðum árangri? „Nei, eiginlega ekki. Ann- ars hefur gengið mjög vel hjá mér á mótum hér á Akureyri í vetur. Við æfðum fimm sinnum í viku og það hafa fáar skíðaæfingar fallið úr yegna veðurs. Áslaug Eva á ekki langt að sækja hæfileika sína því faðir hennar, Björn Víkingsson, var góður skíða- maður hér á áram áður og varð m.a. íslandsmeistari í svigi og alpa- tvíkeppni 1982. Skemmtilegasti tíminn Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson FANNAR Gíslason æfir ekki aðeins skíðaíþróttina. Hann æfir einnig í handbolta og frjálsíþróttum. Fjölhæfur íþrótta- maður Fannar Gíslason úr Haukum sigraði í svigi 10 ára drengja með nokkrum yfirburðum. Hann notaði aðra tækni en hinir því hann keyrði beint á stangirnar [eins og Alberto Tomba]. Hann datt hins vegar í fyrri umferðinni í stórsviginu en náði næst besta tímanum í síðari umferð og endaði í 7. sæti. „Ég átti ekki von á því að sigra. Þetta var líka í fyrsta sinn sem ég verð Andrésarmeistari í þau fimm ár sem ég hef keppt. Ég hafði áður náð best öðru sæti,“ sagðí Fannar og bætti við að Al- berto Tomba væri uppáhalds skíðamaðurinn. Fannar æfir ekki aðeins skíða- íþróttina því hann er einnig í hand- bolta og fijálsíþróttum með FH. Þar hefur hann náð góðum ár- angri. „Þetta er allt jafn skemmti- legt og erfitt að gera upp á milli íþróttagreina," sagði þessi 10 ára íþróttamaður sem segist æfa alla daga vikunnar. „Þetta eru skemmtilegustu Andésar-leikarnir því ég náði loks að sigra.“ Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson GÖNGUSTÚLKURNAR Edda Rún Aradóttir, Elín Nlarín Kjartansdóttir og Freydís Heba Konráðs- dóttir voru ánægðar með veruna í Hlíðarfjalli. Hressar göngu- stúlkur Göngustúlkurnar Edda Rún Ara- dóttir frá Ólafsfírði, Elín Mar- ín Kjartansdóttir frá Siglufírði og Freydís Heba Konráðsdóttir frá Ól- afsfirði voru ánægðar með lífið í Hlíðarfjalli og voru að keppa í þriðja sinn. Þær sögðu að erfitt hafi verið að æfa göngu í vetur vegna snjóleys- is. „Við höfum lítið farið á skíði, en æft hlaup í staðinn. Þetta eru skemmtilegustu Andrésar andar- leikarnir vegna þess að litlu krakk- arnir, átta ára og yngri, eru ekki með,“ sögðu þær með stríðnisglott í andlitinu og greinilegt að þær meintu það ekki. Stúlkurnar eru allar 11 ára. Frey- dís sigraði í báðum göngugreinun- um, Elín varð í þriðja og ijórða sæti og Edda Rún í fimmta sæti í annarri göngunni en gat ekki keppt í hinni vegna meiðsla. Þær voru allar staðráðnar í að koma aftur á leikana næsta vetur. Morgunblaðið/Kristján FREYR Steinar Gunniaugsson frá Siglufirði hafðf nokkra yfirburði í göngu 11 ára drengja og varð tvöfaldur Andrésar-meistari. í sól og snjó ÞESSI ungi skíðamaður fækkaði fötum og kældi sig eftir keppnina. Síðustu leikamir hjá Jóni Víði og Jens Jón Víðir Þorsteinsson frá Akureyri og Jens Jónsson úr Víkingi kepptu í flokki 12 ára drengja. Þeir þekktust vel og voru að bera saman bækur sínar eft- ir stórsvigið er blaðamaður hitti þá. Þeir voru ánægðir með árangurinn. Jón Víðir sagði að sér hefði gengið mjög vel á mótinu. „Ég varð þriðji í svig- inu og er með þriðja tímann í stórsvig- inu, en það eiga nokkrir góðir eftir að koma niður. Ég er mjög ánægður. Ég bytjaði að æfa þegar ég var fjögurra ára og hef æft vel síðan. Þetta er í áttunda sinn sem ég keppi á Andrési og því mið- ur fæ ég ekki að vera með næsta vetur því þá verð ég kominn upp í unglinga- flokk,“ sagði Jón Víðir. Jens Jónsson segist hafa byijað að æfa af krafti þegar hann var átta ára, en fór fyrst á skíði tveggja ára. „Ég er nokkuð ánægður með árangurinn í vetur. Ég varð Reykjavíkurmeistari og það stendur upp úr. Ég var svolítið óheppinn í sviginu hér því ég krækti fyrir hlið í fyrri ferðinni en náði næst- besta tímanum í síðari umferð. Ég von- ast til að komast á pall í stórsviginu," sagði Jens. Hann keppti fyrst á leikunum er hann var þriggja ára gamall og var þá yngsti keppandinn. Jens sagði að annað sætið í sviginu í fyrra hafi verið besti árangurinn frá því hann byijaði að keppa á leikunum. „Ég hef komist á pall undanfarin fjögur ár. Ég stefni að því að æfa áfram og ætla að reyna að komst í unglingalandsliðið," sagði Jens. Áskíðum skemmti Frábært að fá skíði Andri Þór Kjartansson úr Breiðabliki og Guðjón Arn- grímsson frá Eskifirði kepptu í flokki 11 ára drengja og voru nýkomnir í mark eftir svigið er blaðamaður hitti þá félaga. Andri Þór sigraði bæði í svigi og stórsvigi eins og í fyrra. „Eg hef æft vel í vetur en bjóst þó ekki við sigri núna. Ég ætla að halda áfram að æfa svo ég komist aftur á leikana næsta vetur. Þetta er skemmtilegasti tíminn á vetrin- um,“ sagði Andri Þór. Guðjón sagðist ánægður með árangurinn en það skipti kannski ekki öllu máli því aðalatriðið væri að vera með. „Það hefur ekki verið gott að æfa í Oddskarði í vetur því það hefur verið svo lít- ill snjór. Við komum tvisvar í vetur hingað til Akureyrar til að æfa. Ég byijaði að æfa sjö ára og þetta er í fjórða skipti sem ég keppi hér. Þetta er alltaf jafn gaman,“ sagði Guðjón sem fór Morgunblaðið/Valur B. Jónatansson JÓN Víðir og Jens voru að keppa á Andrésar andarleikunum i síðasta sinn. ATLI Rúnar Eysteinsson frá Neskaupstað sigraði í stórs- vigi 10 ára drengja og varð annar í sviginu. „Ég bjóst ekki við svona góðum árangri því ég hef ekki getað æft mikið vegna snjóleys- is fyrir austan í vetur,“ sagði Atli Rúnar sem byijaði að æfa sjö ára gainall og var að keppa á leikunum í fjórða sinn. „Ég hef tvisvar áður ' komist á pall á leikunum og var þá í áttunda sæti. Ég ætla að halda áfram að æfa skíði, alla vega þang- að til ég verð 16 ára. Það er alltaf jafn gaman að keppa hér og skíða- færið var mjög gott,“ sagði Norð- firðingurinn sem æfir einnig fót- bolta og blak með Þrótti. KEPPNI á Andrésar andar-leikunum lauk í Hiíðarfjalli sl. iaug- ardag. Mótið var sett miðvikudaginn 24. apríl og stóð yfir ífjóra daga. Keppendur voru færri en undanfarin ár því ekki var keppt í yngstu flokkunum, 8 ára ojg yngri, að þessu sinni vegna þess hve lítill snjór var ífjallinu. I fyrra var metþátttaka, um 850 börn, en nú voru keppendur 450 talsins. Veður lék við keppendur og gesti og mótshaldið tókst vei enda kann Andrésar andar-nefnd- in vel til verka eftir tuttugu og eins árs starf. VaturB. Jónatansson skrífar Andrésar andarleikarnir eru há- punktur í lífi þeirra barna sem stunda skíðaíþróttina á íslandi. „Ég er viss um að það er þjóðarsorg hjá öllum krökkum átta ára og yngri sem æfa skíði á Islandi," sagði níu ára drengur aðspurður um hvort það hefði ekki verið enn skemmtilegra að hafa yngstu börn- in með líka. Þessi orð drengsins segja allt um það hvé leikarnir hafa öðlast stóran sess í skíðaiðkun barna hér á landi. Stemmning var mikil á meðal þátttakenda og anægjan skein úr hveiju andliti. Áhersla er lögð á að allir keppendur skemmti sér vel og það gerðu þeir svo sannarlega þó svo að snjór hafi ekki verið með mesta móti í Hlíðarfjalli. Aðstæður til keppni voru hins vegar eins og best verður á kosið í brekkunum fyrir ofan Strýtu. Mótið var með svolítið öðru sniði en undanfarin ár. Börnin dvöldu aðeins í fjallinu meðan á keppni stóð vegna þess hve lítið pláss var í brekkunum til að renna sér fijálst. Frekari dagskrá var í bænum fyrir þá sem höfðu lokið keppni. Þar var m.a. keppni í körfubolta (street ball) og hinum ýmsu leikjum við íþróttahöllina. Haldin var grillveisla og skemmtun í sundlauginni á föstudagskvöld og þótti takast mjög vel. Börnin dönsuðu eftir tónlist á laugarbakkanum og kældu sig í lauginni þess á milli. Oðinn Árnason, formaður Skíða- ráðs Akureyrar sem hefur verið starfsmaður Andrésar andarleik- anna frá upphafi sagðist hafa sakn- að yngstu krakkanna nú. „Ég hef alltaf haft mestu ánægjuna af því Beðið eftir leikun- um allan veturinn lfar Bjarni Guð- mundsson úr Víkingi var með föður sínum, Guð- mundi Torfason, er blaðamaður hitti þá á Andrésar andar- leikunum. Elfar Bjarni, sem var að keppa á leikunum í annað sinn, sagðist hafa æft vel í vetur. „Við byijuðum að vísu frekar seint að æfa vegna snjóleysis í Sleggjubeins- skarði og við þurftum líka að fara í Bláfjöllin á æfingar síðustu vik- urnar fyrir leikana," sagði Elfar sem byijaði að æfa fyrir tveimur árum. Víkingar voru með 15 keppendur á leikunum. „Það er gaman að keppa á, Andrésar andar- leikunum." Elfar sagði að uppáhalds skíðamaðurinn væri Jens Jónsson, félagi hans úr Víkingi sem einnig keppir á leik- unum. Guðmundur sagði að það væri toppurinn á vetrinum að koma á leikana. „Það er beðið eftir þessu allan veturinn. Það var leiðinlegt að yngstu krakkarnir gátu ekki verið með. Þetta er uppákoma sem enginn vill missa af,“ sagði hann. Guðmundurog Elfar að vera í kringum þau yngstu, átta ára og yngri. Þau eru svo glöð og jákvæð. Annars gekk mótið mjög vel og það er alltaf jafn skemmti- legt að vinna með börnunum. Þau gefa manni svo mikið og það er kannski þess vegna sem ég er enn að starfa við þetta mót,“ sagði Óðinn. Eftir hvern keppnisdag komu allir krakkarnir saman í íþrótta- höllinni þar sem árangur dagsins var gerður upp. Allt að 12 fyrstu í hveijum flokki í alpagreinum fengu verðlaun. Auk þess sem aukaverðlaun voru veitt þeim börn- um sem dregin voru af handhófi úr þópi keppenda. Ólafsfirðingar voru sigursælastir allra á mótinu að þessu sinni; hlutu 10 gullverðlaun, fern silfurverðlaun og ein bronsverðlaun. Akureyringar komu næstir með sex gullverðlaun, sjö silfui-verðlaun og 9 bronsverð- laun. ogstafi í verðlaun Morgunblaðið/Valur Jónatansson GUÐJÓN og Andri Þór voru ánægðir með lífið í Hlíðarfjalli. Morgunblaðið/Kristján VIGDÍS Björt Ómarsdóttir úr Haukum keppti í flokki 11 ára stúlkna. Hér rennir hún sér niður svigbrautina einbeitt á svip. Berglind Jónasardóttir beinustu leið upp í Strýtu til að skila númerinu sínu. Bjóst ekki við þessu Morgunblaðið/V alur BERGLIND Jónasardóttir frá Akur- eyri sigraði í svigi 9 ára. Rosalega gaman að keppa Berglind Jónasardóttir, 9 ára frá Akureyri, sigraði í svigi og varð fjórða í stórsvigi, Hún var að keppa á leikunum í fjórða sinn. „Það er rosalega gaman að keppa á leikunum. Við kynnumst líka krökkum frá öðrum stöðum. Það hefur gengið ágætlega að æfa í vetur en það hefði verið betra að hafa aðeins meiri snjó í Hlíðarfjalli því við höfum æft við stólalyft- una og þar er lítill snjór,“ sagði Berglind. Hún sagðist ætla að halda áfram að æfa skíða- íþróttina næsta vetur svo hún geti keppt aftur á leik- unum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.