Morgunblaðið - 10.05.1996, Síða 1
mngnttlrlsifrft
C
1996
FOSTUDAGUR 10. MAÍ
BLAÐ
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Kristinn
Deildarbikarmeistarar Breiðabliks
Blikastúlkur fyrstar
til að fagna tKlinum
Breiðabliksstúlkur urðu fyrstar til að
verða meistarar í deildarbikarkeppni
KSÍ, en þær unnu Val 4:2 í úrslitaleik í
strekkingsvindi _ á gervi-
grasinu að Asvöllum í
Stefánsson Hafnarfírði í gærkvöldi. ís-
skníar landsmeistararnir úr Kópa-
vogi voru betri og áttu skil-
ið að sigra en bikarmeistaramir frá Hlíðar-
enda héldu ágætlega í við mótherjana allan
leikinn. Þótt veðurguðirnir hafi haft sín
áhrif var leikurinn ágætlega leikinn, enda
mátti gera ráð fyrir því þar sem 13 stúlkur
liðanna eru í landsliðshópnum, sem var
valinn vegna leiks um helgina.
Blikastúlkur byijuðu gegn vindi og eftir
sjö mínútur gaf Asthildur Helgadóttir bolt-
ann fyrir markið á Stojönku Nikolic, sem
gerði fyrsta markið. Valsstúlkur lögðu ekki
árar í bát og aðeins fímm mínútum síðar
jafnaði Bergþóra Laxdal. Skömmu síðar
gaf Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki, inná
Helgu Ósk Hannesdóttur sem vippaði yfir
Birnu Maríu Björnsdóttur í marki Vals,
boltinn hrökk í slá og fyrir markið þar sem
Stojanka kom í annað sinn og skoraði í
autt markið. Á átjándu mínútu síðari hálf-
leiks skoraði Ásthildur þriðja mark Breiða-
bliks og átta mínútum síðar kom fjórða
markið þegar Inga Dóra Magnúsdóttir
hamraði í mark af 25 metra færi. En Vals-
stúlkur sóttu í sig veðrið og rétt fyrir leiks-
lok minnkaði Írís Andrésdóttir muninn í 4:2.
Blikastúlkur spiluðu oft og tíðum mjög
vel og eru til alls líklegar í sumar. Vanda
Sigurgeirsdóttir og Kristrún L. Daðadóttir
náðu vel saman í vörninni og á miðjunni
höfðu Ásthildur, Margrét og Inga Dóra
undirtökin. Valsstúlkur virtust ekki í eins
góðu leikformi og fengu ekki mikinn frið
til að spila á sínum hraða. Guðrún Sæ-
mundsdóttir lék vel í vöminni ásamt Erlu
Sigurbjartsdóttur og Birna María í markinu
var ágæt.
„Við stefndum alltaf að því að verða
deildarbikarmeistarar enda erum við með
sterkt lið,“ sagði Ásthildur, sem átti tví-
tugsafmæli í gær. „Mér líst vel á sumarið
og þessi keppni _er skref í rétta átt til að
íjölga leikjum. Ég geri ráð fyrir að við í
Breiðabliki, Valur og KR eigi eftir að vera
á toppnum í sumar þó að önnur lið geti
auðveldlega blandað sér í baráttuna, en
aðallega vona ég að keppnin verði jöfn og
skemmtileg í sumar. Það er mikið að ger-
ast hjá landsliðinu og nóg framundan,"
bætti hún við.
Átta Blikastúlkur
í landsliðinu
í knattspyrnu
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir
sænska iandsliðinu skipað stúlkum 20 ára og yngri
í æfingaleik á Sandgerðisvelli kl. 16 á sunnudag.
Átta stúlkur 116 manna hópi eru úr Breiðabliki,
fimm frá Val, tvær í KR og ein frá í A en eftirtald-
ar stúlkur skipa hópinn:
Markverðir: Sigfríður Sophusdóttir, Breiða-
bliki, og Birna M. Björnsdóttir, Val. Aðrir leik-
menn: Vanda Sigurgeirsdóttir, fyrirliði, Margrét
Ólafsdóttir, Ásthildur Helgadóttir, Helga Ósk
Hannesdóttir, Katrín Jónsdóttir, Erla Hendriks-
dóttir og Sigrún Óttarsdóttir úr Breiðabliki, Vals-
stúlkurnar Guðrún Sæmundsdóttir, Ragna Lóa
Stefánsdóttir, Ásgerður H. Ingibergsdóttir og
Kristbjörg H. Ingadóttir, KR-ingamir Guðlaug
Jónsdóttir og Olga Færseth og Ingibjörg H. Ólafs-
dóttir frá í A.
Þrír frá Bulls í
varnarlið ársins
SCOTTIE Pippen, Michael Jordan og Dennis Rod-
man, leikmenn Chicago Bulls, vom valdir í NBA-
vamarlið ársins. Hinir í liðinu em David Robin-
son, San Antonio, og Gary Payton, Seattle, sem
var útnefndur besti varnarmaður deildarinnar.
Þetta er í fyrsta sinn í 13 ára sem þremur leik-
mönnum úr sama Uði hlotnast þessi heiður eða
síðan Philadelpiu leikmennirnir Maurice Cheeks,
Bobby Jones og Moses Malon vom valdir í liðið
1983. Það eru þjálfarar NBA-Iiðanna sem velja
liðið og vora úrslitin kunngerð í gær.
Pippen fékk flest atkvæði í kjörinu, eða alls 56.
Jordan kom næstur með 53, Payton 48, Robinson
42 og Rodman 30. Pippen, Jordan og Payton vora
þeir einu sem voru á öllum seðlunum 28.
Þeir sem næstir komu í kjörinu voru; Hakeem
Olíguwon, Houston (27 stig), Horace Grant, Orl-
ando (25), Mookie Blaylock, Atlanta (22), Derrick
McKey, Indiana (15) og Bobby Phills, Cleveland
(12).
Leikið um
úrslitasæti
í deildarbikar karla
SÍÐUSTU leikirnir í úrslitariðlum deildarbikar-
keppni karla verða í kvöld og þá ræðst hvaða lið
leika til úrslita. Fram tekur á móti íA á Valbjarn-
arveUi kl. 19 og Breiðablik og Grindavík leika á
Kópavogsvelli kl. 19.30.
IA og IBV gerðu 1:1 jafntefli en ÍBV vann Fram
2:0. SigriFram í kvöld, verði jafntefU eða fari
1:0 fyrir ÍA fer ÍBV í úrslit. Ef ÍA vinnur 2:0
ræður hlutkesti hvort ÍA eða ÍBV haldi áfram en
önnur úrslit en framan sögð koma Skagamönnum
í úrslit.
Grindavík vann Fylki 3:2 en Fylkir vann Breiða-
blik 1:0 og því eru allir möguleikar fyrir hendi
en tvö lið geta samt aldrei orðið jöfn að stigum
og markatölu.
Aldrei einsjafnt
hjá veðbönkum
VEÐB ANKAR í London telja möguleika Liverpool
og Manchester United á bikarmcistaratitlinum
jafna, átta á móti 13, og hefur slíkt jafnræði ekki
ríkt síðan þeir hófu starfsemi 1961. Möguieikar á
jafntefli era fimm á móti níu.
BikarúrsUtaleikminn á Wembley er hápunktur
enska knattspyrnutímabilsins og komast mun
færri að en vilja en leikurinn verður á morgun.
Jafntefli hjá Brann
BRANN náði aðeins 1:1 jafntefli gegn Moss i
norsku 1. deildinni i knattspyrnu í gærkvöldi, en
Moss er í næstneðsta sæti. Birkir Kristinsson og
Ágúst Gylfason ásamt félögum i Brann máttu
þola 10:0 tap gegn Rosenborg um helgina, en Uð-
ið er um miðja deild.
KORFUBOLTI: SHAQ OG HARDAWAY MEÐ SAMTALS 73 STIG FYRIR ORLANDO / C4