Morgunblaðið - 18.05.1996, Page 6
6 LAUGARDAGUR 18. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
StJ ór nsýsluendur skoðun Ríkisendurskoðunar á utanríkisráðuneytinu
Festu
mál skaða starfshæfni
FESTU skortir í ýmsum innri málum
utanríkisráðuneytisins og er fram-
kvæmd flutningsskyldu starfsmanna
utanríkisþjónustunnar veigamesta
atriðið í því sambandi, að mati Ríkis-
endurskoðunar. Stofnunin hefur nú
skilað stjómsýsluendurskoðun á ut-
anríkisráðuneytinu, sem fyrrverandi
utanríkisráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, fór fram á að yrði
gerð.
í skýrslu Ríkisendurskoðunar
kemur fram að á það hafí skort að
utanríkisráðuneytið hafi gert með
formlegum hætti starfsáætlanir fyrir
ráðuneytið, sem taki mið af stefnu-
mörkun ríkisstjórnar og utanríkis-
ráðherra á hveijum tíma. Slíka
áætlanagerð telur stofnunin bezt til
þess fallna að tryggja hámarksár-
angur af starfi ráðuneytisins til
skemmri og lengri tíma litið.
Misbrestur á formfestu
Ríkisendurskoðun telur mikilvægt
að skipulag og festa ríki í samskipt-
um ráðherra og embættismanna og
þessi samskipti eigi að fara fram
formlega í gegnum yfirstjórn ráðu-
neytisins, þ.e. skrifstofustjóra eða
ráðuneytisstjóra. Einnig þurfí stjórn-
sýsluleg staða ráðuneytisstjórans að
vera skýr og öllum ljós. „Ríkisendur-
skoðun telur að nokkrir misbrestir
hafi orðið á þessu í utanríkisráðu-
neytinu síðustu árin. Undanfarna
mánuði hefur þó virzt sem formfesta
hafi aukizt bæði að þessu leyti og í
almennri stjórnsýslu ráðuneytisins,"
segir í skýrslunni.
Stofnunin telur að ráðuneytið
þurfi að styrkja forystuhlutverk sitt
gagnvart sendiráðunum og veita
þeim skýrari fyrirmæli og aðhald en
nú er gert varðandi verkefnaval.
Ríkisendurskoðun segir verkefnin í
of miklum mæli ráðast af persónu-
legum áherzlum hvers sendiherra
um sig.
Aftur á móti telur stofnunin að
auka þurfi rekstrarlegt sjálfstæði
sendiskrifstofanna. Eins og málum
sé nú háttað, sé miðstýring ráðu-
neytisins mikil og sendiherrunum sé
því þrengri stakkur skorinn en for-
stöðumönnum flestra annarra ríkis-
stofnana. Aukið rekstrarlegt sjálf-
stæði .skapi forsendur fyrir bættum
rekstrí sendiráðanna, auk þess sem
ætla megi að aðalskrifstofa ráðu-
neytisins fái með slíku aukið svigrúm
til að sinna betur en nú er gert
stefnumótun og áætlanagerð. Ríkis-
endurskoðun telur hins vegar grund-
vallaratriði að samhliða þessum
breytingum verði sendiherrar gerðir
ábyrgari fyrir rekstrarlegri afkomu
sendiskrifstofa.
Efla þarf fagskrifstofur
Ríkisendurskoðun lítur svo á að
efla þurfí tvær fagskrifstofur ráðu-
neytisins, viðskiptaskrif- _________
stofu og aiþjóðaskrifstofu,
með því að fjölga um einn
fastan embættismann á.
hvorri skrifstofu. Stofn-
unin bendir á að á við- ■
skiptaskrifstofu hafí verið
fækkað um þtjá embættismenn frá
því haustið 1994, en á síðustu mán-
uðum hafi verkefni skrifstofunnar
aukizt mjög. Á alþjóðaskrifstofunni
hafi þungi í stórum málaflokkum á
borð við Evrópumál, mannréttinda-
mál og afvopnunar- og öryggismál
aukizt.
Bent er á að eðlilegt verði að telja
að sendiherrar, sem séu reynslu-
mestu starfsmenn utanríkisþjón-
ustunnar, gegni stöðum skrifstofu-
stjóra í ráðuneytinu, en nú gegni
sendifulltrúar þessum stöðum. Dæmi
séu þess að sendiherrar hafi verið
kallaðir heim í ráðuneytið án þess
að nokkuð lægi fyrir um þau verk-
Ríkisendurskoðun telur að festu og skipulag
hafí skort í ýmsum innri málum utanríkis-
ráðuneytisins og að kjaramál starfsmanna
komi niður á starfshæfni ráðuneytisins.
Stjórnsýslu-
leg staða þarf
að vera skýr
efni, sem þeim hafi verið ætlað að
sinna.
Ómarkvissir
starfsmannaflutningar
„Ríkisendurskoðun telur að nægj-
anlegrar festu hafi ekki gætt að öllu
leyti hjá utanríkisráðuneytinu hvað
varðar framkvæmd ýmissa. atriða
sem snerta innri málefni ráðunéytis-
ins. Frarrlkvæmd flutningsskyldunn-
ar er án efa veigamesta atriðið í því
sambandi," segir í skýrslurini.
Stofnunin telur að framkvæmd
flutninga starfsmanna ., utánríkis-
þjónustunnar milli starfsstöðva hafí
ekki verið nægilega markviss á síð-
ustu árum. Ráðuneytið bendir á að
reglur um flutningsskylduna, sem
settar voru í ráðherratíð Jóns Bald-
vins Hannibalssonar árið 1989, hafi
ekki verið staðfestar með formlegum
hætti. Þessum viðmiðunum hafi
heldur ekki verið fylgt að öllu leyti.
„Ríkisendurskoðun telur með öllu
óviðunandi að sendiherrar starfi
langtímum og jafnvel nær allan sinn
embættisferil erlendis vegna skorts
á „hæfilegum" stöðum fyrir þá í
ráðuneytinu eins og nefnt hefur ver-
ið,“ segir Ríkisendurskoðun.
Ríkisendurskoðun leggur til að
utanríkisráðuneytið geri formlegar
áætlanir um tilflutninga starfs-
manna og endurmeti þær með reglu-
bundnum hætti. Þá er mælt með því
að nýjar reglur um starfsmanna-
flutninga, sem kynntar hafí verið
með umburðarbréfi í marz á þessu
ári, verði staðfestar með formlegum
_________ og afdráttarlausum hætti
í Fyrirmæla- og leiðbein-
ingabók utanríkisþjón-
ustunnar.
Ríkisendurskoðun telur
„að núverandi tilhögun
kjaramála í utanríkisþjón-
ustunni komi niður á starfshæfni
ráðuneytisins." Stofnunin telur veig-
amikla galla á fyrirkomulagi við
ákvörðun staðaruppbóta vegna
starfsmanna utanríkisþjónustunnar
erlendis. Nú séu uppbæturnar
ákvarðaðar þannig að ráðuneytið
geri tillögu um heildarfjárveitingu
til þessa liðar við fjárlagagerð. Er
ljóst sé hversu miklir íjármunir hafí
fengizt, sé staðaruppbótum, ásamt
fjárveitingu vegna grunnlauna, skipt
upp á starfsmenn erlendis í samræmi
við starfsstöð og stöðu eftir ákveðnu
einingakerfi. „Þannig ráðast greiðsl-
ur til starfsmanna á sendiskrifstof-
unum í kjarnanum af því hversu
miklum fjármunum utanríkisráðu-
neytinu tekst að afla til erlenda
launaliðarins í fjárlögum ár hvert.
Að mati Ríkisendurskoðunar getur
þessi vinnugangur hvorki talizt rök-
réttur né eðlilegur enda auðséð' í
hvaða óefni launamál ríkisina værú
ef greiðslur til starfsmanna ráðú-
neyta og stofnana ríkisins væru al-
mennt ákvarðaðar með þessum
hætti,“ segir stofnunin.
Berit er á að raunveruleg laun
starfsmanna erlendis geti verið
breytileg frá einum tíma til annars,
að launahækkun vaidi því að ráðstöf-
unartekjur lækki vegna þess að laun-
in séu skattskyld en staðaruppbótin
ekki og að barneignir tiltekinna
starfsmanna geti lækkað greiðslur
til annarra.
Stofnunin segir að færa megi rök
fyrir því að mikill munur á starfs-
kjörum valdi því að menn vilji síður
starfa heima í ráðuneyti en erlendis.
Þetta sé ekki raunin nú og breyta
þurfí reglum af þessum sökum, t.d.
með því að taka upp sérstakt
heimaálag. „Ríkisendurskoðun telur
mjög óhepppilegt fyrir það samhæf-
ingar- og stjórnunarhlutverk sem
ráðuneytið gegnir fyrir utanríkis-
þjónustuna að starfsmenn vilji af
kjaralegum ástæðum siður vinna í
ráðuneytinu sjálfu en á sendiskrif-
stofunum," segir í skýrslunni.
Lækka má risnukostnað
Rikisendurskoðun fjallar um
kostnað við starfsemi utanrikisþjón-
ustunnar. Hún kemst m.a. að því
að átta af tíu sendiráðum _________
séu rekin með lágmarks-
mannafla og ekki séu rök
fyrir því að fækka þar
starfsfólki. Hins vegar
megi endurmeta mann- "
aflaþörf í sendiráðunum í
Moskvu og Washington.
Stofnunin telur að sendiherrabú-
staðir íslenzka ríkisins séu í mörgum
tilvikum of stórir og dýrir í rekstri.
Ekki sé hægt að meta að svo stöddu
hvort hagkvæmara sé að eiga eða
leigja sendiherrabústaði og skrif-
stofuhúsnæði fyrr en heildarúttekt
á húsnæði utanríkisþjónustunnar,
sem nú stendur yfír, sé lokið.
Ríkisendurskoðun gagnrýnir
notkun á fastri risnu diplómata er-
lendis. í skýrslu stofnunarinnar seg-
ir að ráðuneytið rökstyðji hana með
nauðsyn þess að rækta samband við
erlenda áhrifamenn og kollega til
að skapa íslandi og íslenzkum hags-
munum brautargengi. „Athugun á
risnuútgjöldum sendiráðanna gefur
til kynna að umtalsverður hluti
þeirra tengist heimsóknum íslend-
inga, s.s. stjórnmálamanna og emb-
ættismanna, í sendiráðin. I ljósi
þessa virðist mega lækka risnu-
kostnað sendiskrifstofanna að'
nokkru marki án þess að það komi
niður á hagsmunum íslands," segir
Ríkisendurskoðun.
Stofnunin átelur einnig að; ekki
sé nægilega vel tryggt að forrrilegar
staðfestingar á' risnuútgjoldum
starfsmanna erlendis berist ráðu-
neytinu eins og reglur þess kvéði á
um. „Athugun á risnuútgjöldum gef-
ur til kynna að full ástæða sé til að
endurskoða fasta risnu eipstakra
: sendiherra m.a. með hliðsjón af út-
gjölduni í fortíð og staðsetningar
sendiherranna," segir Ríkisend-
urskoðún.
Dæmi um ráðningar án
hæfnisflokkunar
Tilefni þess, áð Ríkisendurskoðun
réðst í stjórnsýsluendurskoðun á ut-
anríkisráðunéytinu var beiðni fyrr-
verandi utanríkisráðherra, Jóns
Baldvins Hannibalssonar, um að
stofnunin kannaði réttmæti blaða-
skrifa um að mannaráðningar í ráð-
herratíð hans hefðu komið niður á
starfshæfni ráðuneytisins. Stofnunin
fjallar í skýrslu sinni sérstaklega um
ráðningar og embættistilfærslur þau
sjö ár, sem Jón Baldvin var utanrík-
isráðherrá.
, Fram kemur að á þessu tímabili
háfi íjórtán embættismenn verið
skipaðir til starfa í, utanríkisþjón-
ustunni. Af þeim ihafi sex verið
stjórnmálafræðingar með æðri
menntup eða dipiómaskírteini í Evr-
ópufræðum, þrír viðskiþtafræðingar,
tveir með æðri menntun í rekstr-
arfræðum, einn með BA-próf í ensku
og einn án háskólaprófs. Átta hafí
verið ráðnir að frumkvæði yfirstjórn-
ar ráðuneytisins, þ.e. embættis-
mannakerfisins, og sex að frum-
kvæði ráðherrans. „Ráðningar á
framangreindu tímabili voru í flest-
um tilfellum grundvallaðar á hæfnis-
mati sem yfirstjórn utanríkisráðu-
neytisins framkvæmdi. Þó voru
dæmi þess að kröfur um sérstaka
hæfni eða menntun breyttust m.v.
hæfnislista í meðförum yfirstjórnar
og ráðherra. í fáeinum tilfellum voru
valdir einstaklingar til starfa með
sérstaka menntun eða reynslu án
formlegrar hæfnisflokkunar,“ segir
Ríkisendurskoðun.
Stofnunin segir að flestar stöðu-
hækkanir sendiráðunauta og sendi-
fulltrúa hafi verið framkvæmdar að
tillögu embættismanna ráðuneytis-
ins á grundvelli þess að starfsmönn-
um hafi verið falin ábyrgðarmeiri
verkefni. Sendiherrar hafi í flestum
verið skipaðir eftir starfs-
tíma í utanríkisþjón-
ustunni, en þrír sendiherr-
ar hafi verið skipaðir án
þess að eiga þar starfsfer-
...... il og einn settur tímabund-
ið.
Ríkisskoðun segir að nú sé unnið
að gerð starfsmats innan veggja
utanríkisráðuneytisins og eigi það
að verða grunnur að formlegri
vinnubrögðum við skipun nýrra
starfsmanna og „starfsferilsupp-
byggingu“ þeirra eldri. Stofnunin
telur þetta af hinu góða.
Utanríkisráðuneytið er undanþeg-
ið þeirri lagaskyldu að auglýsa ný
störf. Engu að síður voru störf aug-
lýst þrisvar í ráðherratíð Jóns Bald-
vins, að sögn Rikisendurskoðunar.
Stofnunin telur eðlilegt og sjálfsagt
að ráðuneytið auglýsi störf og það
hljóti ávallt að þjóna hagsmunum
þess bezt.
Taka þyrfti
upp sérstakt
heimaálag
Fylg-i Sjálf-
stæðis-
flokksins
eykst
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
nýtur fylgis 46% kjósenda í nýrri
könnun Gallups sem Útvarpið
greindi frá í gær. Könnunin var
gerð um síðustu mánaðamót og
samkvæmt henni hefur fylgi
flokksins aukist um 7% frá síðustu
könnun, sem gerð var í mars.
Fylgi Framsóknar minnkar
Könnunin var gerð frá 26. apríl
til 4. maí, meðal 1.200 manna, sem
valdir voru af handahófi úr þjóð-
skrá. Fram kemur að Framsóknar-
flokkurinn hefur minna fylgi nú
en áður á kjörtímabilinu, eða 19%.
Fylgi Alþýðuflokks og Alþýðu-
bandalags er 2-3% lægra en við
síðustu könnun en Kvennalisti
heldur sínu, það er stuðningi 5%.
Þjóðvaki mælist með 0,4% fylgi
og 13% aðspurðra voru í hópi
óákveðinna.
Fylgi við ríkisstjórnina eykst
Þá kemur fram að fylgi við ríkis-
stjórnina hefur aukist úr 52% í
mars í 62% nú.
---------------
Um rétt
sjúklinga
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi athugasemd frá land-
lækni, Ólafi Ólafssyni:
„Nú virðist vera nokkur þytur
á Alþingi um rétt sjúklinga til
þess að lesa eða fá afrit af skráð-
um eigin sjúkdómsferli (journal).
Landlæknisembættið hefur allt
frá árinu 1972 talið það vera ský-
lausan rétt sjúklinga með örfáum
undantekningum, s.s. varðandi
umsögn þriðja aðila nema leyfi
hans komi til. í góðri samvinnu
við lækna hefur þetta gengið vel,
þó að í upphafi hafi um nýmæli
verið að ræða miðað við nágranna-
lönd. Fyrir nokkrum árum kvikn-
aði nokkur umræða um þennan
rétt sjúklinga í nágrannalöndun-
um. Nokkrir eldri læknar reyndust
þess mótfallnir' og töldu hættu á
að læknar tækju upp „tvöfalt jo-
urnala kerfi“ þ.e. að læknar héldu
eigin „dagbókaijournal“ og annan
fyrir sjúklinga!
Á allra síðustu árum hefur
framangreindur réttur sjúklinga
verið tryggður i flestum nágranna-
löndum án slíkra aðgerða eða fylg-
ikvilla.
Ymsir telja að læknar valdi bet-
ur til sjúkraskráa en áður, en eng-
ar sannanir eru fyí'ír þeirri tilgátu.
Vissulega geta komið upp viss
vandamál, t.d. í sambandi við skrá
geðlækna, en við læknar eigum
að vera menn til þess að leysa
þann vanda.
Gott samband læknis og sjúkl-
ings byggir á trúnaði og sam-
vinnu. Það er reynsla starfsfólks
Landlæknisembættisins að traust
vitneskja sjúklings um eigin sjúk-
dómsferil og meðferð tryggi best
gott samstarf læknis og sjúklings
og þar af leiðandi árangur með-
ferðar. Það má vera að fyrr á tím-
um hafi læknar talað og sjúklingur
hlustað, en sá tími er liðinn og
nú leitast læknar við að leysa
vandamálin í sem bestu samráði
við sjúklinga sína. >
Landlæknir telur að sjúklingar
eigi að öllu jöfnu skýlausan rétt á
að kynna sér skráða sjúkrsaögu
(eigin) eldri sem nýja og er að
fullu samþykkur dómi er nýlega
féll í Hæstarétti um slík mál.“