Morgunblaðið - 19.07.1996, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ
22 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ1996
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
FRAMTAK OG
FRUMKVÆÐI
FRAMTAK húnvetnskra sauðfjárbænda, sem hafa byrjað
samstarf við Hagkaup hf. um að bjóða ferskt dilka-
kjöt mun lengri tíma ársins en tíðkazt hefur, er enn eitt
dæmið um að bændur víða um land og í ýmsum búgreinum
eru að reyna að brjótast úr viðjum miðstýrðs og úrelts
fyrirkomulags í landbúnaði.
í viðtali við Eyjólf Gunnarsson, formann Félags sauðfjár-
bænda í Vestur-Húnavatnssýslu, kemur fram að í stað
þess að láta dilkakjötið safnast upp í frystigeymslum til
að bíða útsölu, hafi bændur ákveðið að gera eitthvað til
að auka söluna á kjötinu og leitað til Hagkaups. Nú er
ætlunin að lengja sláturtíðina um allt að fjóra mánuði;
byrja í upphafi júlí og ljúka henni ekki fyrr en í annarri
viku desember.
Bændurnir fara framhjá hefðbundnum milliliðum í land-
búnaðarkerfinu og selja beint til Hagkaups. „Við komumst
framhjá þeim óþarfa milliliðum sem hafa verið í ferli kjöts-
ins og bóndinn fær meira i sinn vasa en ella,“ segir Eyjólfur.
Hann bendir á að Hagkaup sé í samkeppni við aðrar
verzlanir — í Morgunblaðinu í dag er frétt um að Nóatún
bjóði nú nýtt dilkakjöt frá Hvanneyri — og geti því ekki
selt kjötið á hærra verði en ella. Með því að minnka milli-
liðakostnaðinn sé hins vegar hægt að umbuna bændum
fyrir þá fyrirhöfn, sem fylgir því að lengja sláturtímabilið.
Hér fara hagsmunir bænda og neytenda saman, enda
segir Eyjólfur: „Ég lít svo á að við höfum ekki leyfi til
að vera í einhverju gömlu fari ... Það er skylda okkar að
fara að óskum neytenda. Ef þeir vilja ferskt kjöt þá eigum
við að haga rekstri okkar þannig að hægt sé að bjóða upp
á það.“
Húnvetnskir bændur sýna hér lofsvert frumkvæði og
framtak, sem ætti að geta orðið öðrum til eftirbreytni,
ekki sízt ef samstarfið við Hagkaup gengur vel og neytend-
ur verða ánægðir. Bein sala afurða bænda til kaupmanna
er án efa það, sem koma skal. Það má jafnvel búast við
að einstök býli eða byggðarlög geti skapað framleiðslu
sinni nafn vegna ferskleika og annarra gæða. Einstaklings-
framtakið gæti umbreytt íslenzkum búvörumarkaði á
skemmri tíma en margur heldur.
ÚTBOÐ Á GSM-
SÍMAKERFI
IVIÐSKIPTABLAÐI Morgunblaðsins í gær var skýrt frá
því, að leyfi til reksturs annars GSM-símakerfis yrði
væntanlega boðið út í haust. Samkvæmt fyrri yfirlýsingum
samgönguráðherra má búast við að nýtt GSM-kerfi taki
til starfa í ársbyrjun 1998 í samkeppni við Póst og síma.
Nú þegar liggja fyrir í samgönguráðuneytinu nokkrar
umsóknir um rekstur slíks kerfis.
Ummæli Sigurgeirs Sigurgeirssonar, deildarstjóra í sam-
gönguráðuneytinu benda til þess að ríkisvaldið hyggist
bjóða leyfi til reksturs annars GSM-kerfis út og úthluta
því hæstbjóðanda. Því ber að fagna. Það er nánast óhugs-
andi að samgönguráðuneytið geti tekið að sér að velja
einn aðila úr hópi umsækjenda. Þegar um takmarkaða
auðlind er að ræða eins og leyfi til reksturs annars GSM-
símakerfis í landinu er eðlilegt að valið á milli nokkurra
umsækjenda fari fram með útboði.
Slíkt útboð skapar einnig mikilvægt fordæmi í sam-
bandi við úthlutun á öðrum gæðum eins og t.d. sjónvarps-
rásum. Morgunblaðið hefur ítrekað bent á, að það er nán-
ast fáránlegt að ríkisvaldið, sem umsjónaraðili almanna-
hagsmuna úthluti slíkum rásum endurgjaldslaust. Með ein-
um eða öðrum hætti er eðlilegt að þeir sem fá úthlutað
þeim takmörkuðu gæðum, sem sjónvarpsrásir eru greiði
fyrir afnot af þeim í almannasjóð. Vonandi verður útboðið
á GSM-leyfinu til þess að opna augu manna almennt fyrir
þessari augljósu staðreynd.
Þar fyrir utan er löngu tímabært að Póstur og simi standi
frammi fyrir samkeppni á þessu sviði. Það er lofsvert hvað
þessi opinbera stofnun er fljót til að taka upp og byggja
upp nýja fjarskiptatækni hér á landi. Sá kostnaður, sem
lagður er á neytendur í þessu sambandi er hins vegar
mikill eins og notendur GSM-síma þekkja. Samkeppni á
þessu sviði mun áreiðanlega leiða í ljós, að þessa þjónustu
er hægt að veita á lægra verði.
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ1996 23
FLUGSLYSIÐIINIEW YORK
Mikil sprenging og
þotan steyptist í hafið
New York. Reuter.
FLUGSLYSIÐ í BANDARIKJUMUM
Enginn virðist hafa komist lífs af þegar farþegaþota bandaríska
flugfélagsins TWA, á leið frá New York til Parísar, fórst skömmu eftir
flugtak í fyrrinótt. Um borð voru 229 manns.
@ 17. júlí Aiiariimaselmgarmiðási ife. 4
Flugvéiin kom
til New York frá
Aþenu í Grikklandi
118. júlí
Skömmu fyrir klukkan
eitt að íslenskum tíma
virðist hafa orðið
sprenging um borð,
skömmu eftir flugtak
frá Kennedy-flugvelli
í New York.
TWA, Flug 800
Boeing 747, í notkun frá 1971
New York —
Kennedy flugvöllurinn
Flugvélin virtist brotna í
tvennt og falla logandi
í Atlantshafið.
Bátar strandgæslunnar, þyrlur
og fiskibátar taka þátt i leit að
þeim er kynnu að hafa komist
af, og braki úr vélinni.
Dýpi á slysstað er rúmir 36 metrar.
Reuter
Clinton á fréttamannafundi
í Hvíta húsinu í gær.
Ekki verði
flanað að
niðurstöðum
Washington. Reuter.
BILL CUNTON, forseti Banda-
ríkjanna, sagði á fréttamanna-
fundi í gær að orsakir þess, að
Boeing 747-100 þota Trans World
Airways fórst skömmu eftir flug-
tak í New York í fyrrinótt, væru
ókunnar og varaði forsetinn við
því að ályktanir yrðu dregnar af
ófullnægjandi forsendum.
Vangaveltur voru uppi um að
sprengja hefði grandað flugvél-
inni, en forsetinn hvatti til þess,
að beðið yrði eftir því að raunveru-
legar vísbendingar fengjust, og
að aðstandendum þeirra er fórust
yrði sýnd tillitsemi.
Clinton sagði að komist yrði að
því hvað hefði valdið slysinu, en
jjóst væri, að það myndi taka lang-
an tíma og ekki mætti rasa um
ráð fram. Hann minnti ennfremur
á, að þegar sprengja rústaði
stjórnsýslubyggingunni í Okla-
homa-borg á síðasta ári, hefðu
margir verið of fljótir á sér og
fullyrt að þar hefðu „erlend öfl“
verið að verki. Því væri ráðlegast
að bíða þess að í ljós kæmu vís-
bendingar um hvað valdið hefði
flugslysinu í fyrrinótt.
Reuter
Rekstur Sjúkrahúss Patreksfjarðar endurskoðaður
Aðhald með rekstrinum
aukið á öllum sviðum
BOEING 747 þota banda-
ríska flugfélagsins Trans
World Airlines (TWA)
fórst skömmu eftir flug-
tak frá Kennedy-flugvelli í New
York í Bandaríkjunum rétt fyrir
klukkan eitt í fyrrinótt að íslenskum
tíma. Vélin var á leið til Parísar.
Um borð í vélinni voru 229 manns
og síðdegis í gær hafði enginn
þeirra fundist á lífi.
Að sögn sjónarvotta varð mikil
sprenging í vélinni og síðan steypt-
ist hún í hafið á innan við mínútu.
Samkvæmt upplýsingum banda-
rísku strandgæslunnar kom brak
vélarinnar niður 112 km austur af
New-York borg. Fulltrúar alríkis-
lögreglunnar í Bandaríkjunum
(FBI) sögðu í gærmorgun að of
snemmt væri að segja til um hver
orsök slyssins hefði verið, og ekk-
ert benti til að um hermdarverk
hefði verið að ræða.
Bilun ekki talin
koma til greina
Háttsettur lögreglumaður hjá
hafnaryfirvöldum í New York og
New Jersey, sem hafa umsjón með
Kennedy-flugvelli, tjáði fréttastofu
bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar
CBS að embættismenn hefðu grun
um að skemmdarverk hefði verið
unnið, og teldu ekki koma til greina
að bilun hefði orðið í vélinni.
Talsmaður Öryggisráðs sam-
göngumála í Bandaríkjunum
(NTSB) nefndi í viðtali við sjón-
varpsstöðina CNN í gærmorgun,
að þegar þotur hafi farist með þess-
BOEING 747-100 þota Trans World
Airlines, sem fórst skömmu eftir
miðnætti í fyrrinótt, var skoðuð í
Aþenu í Grikklandi áður en hún kom
til Kennedy-flugvallar, en þar lenti
hún þrem tímum áður en hún hóf
ferðina sem fara átti til Parísar. Ný
áhöfn tók við vélinni í New York.
Að sögn fulltrúa gríska loftferða-
eftirlitsins hafði þotan fimm tíma
viðdvöl á Aþenuflugvelli, og hafði
verið skoðuð gaumgæfilega í örygg-
isskyni áður en hún fór þaðan.
Bandarískir sérfræðingar athug-
uðu aðstæður á flugvellinum í Aþenu
í apríl síðastliðnum, og að því loknu
felidu þeir úr gildi aðvörun til far-
þega um að öryggisráðstafanir á
vellinum stæðust ekki alþjóðlegar
kröfur.
Vélin var knúin fjórum hreyflum
af gerðinni Pratt & Whitney. Hún
um hætti hafi yfirleitt verið um
skemmdarverk að ræða.
Rannsóknarmenn frá FBI og lög-
reglunni í New York-borg, sérþjálf-
aðir í baráttu við hermdarverka-
menn, auk liðsmanna Öryggisráðs
samgöngumála og annarra sér-
sveitamanna hófust handa við rann-
sókn á orsökum slyssins í gær.
í tilkynningu frá TWA sagði að
um borð í vélinni hefðu verið 212
farþegar og 17 manna áhöfn. Að
sögn bandaríska flugmálaeftirlits-
ins (FAA) hvarf þotan af ratsjá
flugumferðarstjóra þegar klukkuna
vantaði 12 mínútur í eitt (að ís-
lenskum tíma) aðfaranótt gærdags-
ins.
Eins og tvær
halastjörnur
Sjónaivottar lýstu því hvernig
flugvélin hafi virst brotna í tvennt
og springa í eldhnetti. „Ég sá tvo
stóra, appelsínugula eldhnetti. Þeir
voru eins og halastjörnur sem fóru
beina leið í [hafið],“ sagði starfs-
maður Flugferðaeftirlits New York,
sem var á flugi og sá sprenginguna
úr um 16 km fjarlægð.
Leitað var á um 12 ferkílómetra
svaeði í sjónum, sem er 36 metra
djúpur þar sem þotan kom niður. í
gærmorgun höfðu leitarmenn fund-
ið 73 lík, sum hver illa brunnin, auk
líkamsleifa og braks úr flugvélinni,
fljótandi í sjónum. Eldur logaði í
eldsneyti og braki í sjónum. Veður
og sjólag var gott á slysstað í gær-
morgun, en lítil von var talin um
að nokkur fynaist á lífi.
var fyrst í eigu bandanska flugfé-
lagsins Eastern Airlines, en komst í
eigu Trans World Airlines (TWA)
þegar rekstri Eastem var hætt og
var rekin af því félagi þar til hún
fórst.
Þotan var smíðuð árið 1971 og var
ein elsta flugvél þessarar tegundar
sem enn var í notkun í farþegaflugi,
að sögn fuiltrúa Boeing-verksmiðj-
anna í Seattle í Bandaríkjunum.
Verkfræðingar frá Boeing og Pratt
& Whitney em meðal þeirra sem
vinna að rannsókn á orsökum slyss-
ins.
747-100 tekur um 360 farþega,
og var fyrsta gerðin sem framleidd
var af þessari breiðþotu, sem er
stærsta farþegaflugvél sem notuð er
í heiminum. Hún var fyrst tekin í
notkun 1970 og hafa alls 1082 Bo-
eing 747 þotur verið afhentar.
AÐSTANDENDUR farþega, sem
voru með þotunni sem fórst í
fyrrinótt, komu á Charles de
Gaulle-flugvöll í París, til þess
að leita fregna af slysinu. Voru
margir grátandi og voru þeir
fluttir afsíðis þar sem læknar
komu þeim til aðstoðar. Útvarps-
stöð I París greindi frá því, að á
meðal þeirra sem komu á flug-
völlinn hefðu verið asísk hjón sem
höfðu átt von á börnum sínum
tveim með flugvélinni. Flug-
vallarstarfsmenn fylgdu hjónun-
Aðstandend-
ur í París
um á brott og vernduðu þau fyr-
ir fjölmiðlafólki. Breskur leið-
sögumaður tjáði fréttamönnum
að hann hefði verið að bíða eftir
rúmlega tuttugu manna hópi frá
Pennsylvaníu, flestum bandarísk-
um unglingum á skólaferðalagi.
Hópar af læknum og hjúkr-
unarfræðingum voru komnir til
flugvallarins til þess að veita að-
standendum farþeganna áfalla-
hjálp. Framkvæmdastjóri læknis-
hjálpar á flugvellinum tjáði
fréttafólki að einnig hefði verið
óskað aðstoðar geðlækna og sál-
fræðinga. Síðdegis í gær höfðu
litlar fregnir borist um þjóðerni
farþeganna, en starfsmenn Char-
les de Gaulle-flugvallar sögðu,
að á þessum tíma árs væri líklegt
að flestir hefðu verið bandarískir
ferðamenn.
Áformað er að gera
verulegar breytingar
á rekstri Sjúkrahúss
Patreksíjarðar, en
viðvarandi halli hefur
verið á rekstrinum
undanfarin tvö ár.
* Agreiningur er innan
stjómar um leiðir til
að taka á vandanum,
en að mati heilbrigðis-
ráðuneytisins hefur
nokkuð skort á eðli-
legt aðhald með
rekstrinum. Egill
Ólafsson fjallar um
málið.
TALSVERT þykir hafa skort
á eðlilegt aðhald í rekstri
Sjúkrahúss Patreksfjarðar
á undanförnum árum.
Heilbrigðisráðuneytið gerir nú kröfu
um að tekið verði á rekstrarvanda
stofnunarinnar og aðhald í útgjöldum
verði aukið. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins telur ráðuneytið að
dæmi séu um atriði í rekstrinum sem
séu á mörkum þeirra reglna sem
gilda um greiðslur úr ríkissjóði.
Vandi Sjúkrahúss Patreksfjarðar
er tvíþættur. Annars vegar hefur
stofnunin verið rekin með halla und-
anfarin ár. Útlit er fyrir að hann
verði 10-11 milljónir á þessu ári og
hallinn var einnig umtalsverður í'
fyrra. Hins vegar er vandinn stjórn-
unarlegs eðlis. Mikill ágreiningur er
milli nýráðins framkvæmdastjóra og
stjórnarformanns og svo virðist sem
ekki sé samstaða innan stjórnar um
hvernig eigi að taka á rekstrarvand-
anum.
Hallinn 10-11 milljónir
Sjúkrahús Patreksfjarðar og
heilsugæslustöðin fá á fjárlögum
90,6 milljónir á þessu ári. Áætlaðar
sértekjur stofnananna eru 8-9 millj-
ónir. Útlit er hins vegar fyrir að
útgjöld þeirra verði um
110 milljónir.
Að tillögu nýráðins
framkvæmdastjóra sam-
þykkti stjórn sjúkrahússins
í vor að ráða Sigfús Jóns-
son til að fara yfir reksturinn og
koma með tillögur um hvernig taka
ætti á hallarekstrinum. Stjórnar-
formaðurinn var andsnúinn tillög-
unni. Sigfús kynnti tillögur sínar
fyrir stjórninni sl. mánudag og dag-
inn eftir var starfsmönnum gerð
grein fyrir því að til stæði að gera
breytingar á rekstrinum. Enn ríkir
trúnaður um efni tillagnanna, en
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins miða þær að því að ná jafnvægi
milli tekna og gjalda sjúkrahússins
með því að taka á útgjöldum á öllum
sviðum.
Laun eru yfír 70% útgjaldanna og
því gefur augaleið að tillögunar miða
ekki síst að því að lækka launa-
útgjöld. Heimildarmenn Morgun-
blaðsins segja að mikið hafi skort á
eðlilegt aðhald með ýmsum auka-
greiðslum til starfsfólks og þá ekki
síst lækna og annars hjúkrunarfólks.
Greiðslur fyrir útköll, bakvaktir og
álagsgreiðslur séu á mörkum þeirra
reglna sem gilda um slíkar greiðslur.
Háar greiðslur til yf irlæknis
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur yfirlæknirinn haft
fast að einni milljón á mánuði í laun
þegar allt er talið, þ.e. föst laun,
álag, bakvaktir, dagpeninga og
fleira. Dagpeningagreiðslurnar hafa
reyndar verið teknar af honum. Full-
yrt er að dæmi séu um yfirvinnu-
greiðslur í einum mánuði sem sam-
svari því að hann hafi unnið -yfir-
vinnu allan sólarhringinn aila daga
mánaðarins.
Jón B. Jónsson yfirlæknir sagði í
samtali við Morgunblaðið að þessar
fullyrðingar væru rangar. Heildar-
laun sín á árinu 1995 næmu rúmlega
750 þúsund krónum á mánuði. Hann
sagði að vissulega væru þetta góð
laun, en hafa bæri í huga að hann
væri á bakvakt annan hvern dag allt
árið og um tíma hefði hann verið
eini læknirinn á sjúkrahúsinu.
Þessar háu greiðslur til læknisins
eru ekki eingöngu tilkomnar vegna
skorts á aðhaldi. Á það hefur verið
bent að heilbrigðisráðuneytið hefur
ráðið hann í fullt starf á
sjúkrahúsinu og hálft starf
á heilsugæslustöðinni og
hann gegni því 150% stöðu.
Jón sagði að hægt væri að
leysa þetta vandamál með
því að ráða fleiri lækna til starfa.
Því fylgdi mikil binding að vera á
bakvakt annan hvern dag og hann
styddi það eindregið ef ráðuneytið
stuðlaði að því að dregið yrði úr
vinnuálagi lækna við litlar heilbrigð-
isstofnanir á landsbyggðinni. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
miða tillögur Sigfúsar Jónssonar að
því að sjúkrahúsið og heilsugæslan
verði sameinuð undir einni stjóm.
Störf ljósmóður og
meinatæknis breytist
Á sjúkrahúsinu eru starfandi ljós-
móðir og meinatæknir í fullu starfi.
í reynd eru verkefni þeirra ekki það
mikil á Patreksfirði að þörf sé á ljós-
móður og meinatækni í fullt starf.
Ljósmóðirin hefur tekið á móti um
20 börnum á ári og annast ungbarna-
eftirlit á milli 40 og 50 barna. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
leggur Sigfús til í tillögum sínum að
starf ljósmóður verði breytt og henni
verði gert að sinna fleiri störfum en
fæðingum og ungbarnaeftirliti. Sama
á við um meinatækninn. Tillögurnar
ganga út á að hún starfi við fleira
en sem snertir nákvæmlega starfs-
svið meinatæknis.
Sigfús Jónsson mun leggja fram
tillögur sínar í endanlegri mynd nk.
mánudag. Stjórnarformaður segir að
fundur verði í stjórn sjúkrahússins á
þriðjudag. Viðmælendur Morgun-
blaðsins gefa ólík svör um hvort til-
lögurnar verði afgreiddar á fund-
inum. Af hálfu heilbrigðisráðuneytis-
ins hefur verið lögð áhersla á að til-
lögurnar verði afgreiddar á fupd-
inum, en Steindór Ögmundsson,
stjórnarformaður, og Jón B. Jónsson
yfirlæknir segja að það verði ekki
gert. Jón sagði að tillögurnar gerðu
ráð fyrir það miklum grundvallar-
breytingum á rekstri sjúkrahússins
að taka yrði lengri tíma til að ræða
þær.
Trúnaðarbrestur
Hrefna Sigurðardóttir, deildarstjóri
í heilbrigðisráðuneytinu, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið á þriðjudag að
ráðuneytið gerði þá kröfu til stjómar
og framkvæmdastjóra að tekið yrði á
hallarekstri sjúkrahússins, annað
hvort með því að samþykkja tillögur
Sigfúsar eða aðrar sem stjórnin légði
fram. Mikill ágreiningur er milli
stjórnenda spítalans um leiðir til
lausnar vandans og þess vegna virðist
ekki líklegt að stjórnin nái samstöðu
um aðrar tillögur ef tillögum Sigfúsar
verður hafnað. Hafni stjómin tillögun-
um er talið líklegt að tilsjónarmaður
verði skipaður með rekstri sjúkrahúss-
ins, en það þýðir að valdsvið stjórnar
og framkvæmdastjóra til að taka
ákvarðanir um reksturinn verður
skert.
Mikill ágreiningur er milli fram-
kvæmdastjórans, Helgu Maríu
Bragadóttur, og Steindórs Ögmunds-
sonar stjómarformanns. Steindór
sagði við Morgunblaðið á þriðjudag
að trúnaðarbrestur hefði orðið milli
sfn og Helgu Maríu. Helga María
vildi ekkert tjá sig um málið, en ljóst
virðist að ekki verði komist hjá því
að taka á þessum stjómunarvanda
samhliða rekstrarvandanum.
fksfe
BOEING 747 flugvél Trans World Airways á flugvellinum í Aþenu
í gær, áður en flogið var til New York. Samskonar flugvél félags-
ins fórst eftir flugtak frá Kennedy-flugvelli í fyrrinótt.
Yélin skoðuð skömmu
áður en hún fórst
Aþenu, Seattle, París, New York. Reuter.
Ekki sam-
staða innan
stjórnar