Morgunblaðið - 30.10.1996, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Smáfólk
there's no wm we
CAN U)IN THIS LAST
6AME WITH LUCN'OUT
THEREIN RI6HT FIELD,.
I TOLP HER
SHE SHOULD 60
OUTTHEREAND
WARM UP..
U)HAT S SHE
DOING?
Það eru engir möguleik-
ar á því að við vinnum
þennan síðasta leik með
Gunnu þarna á hægri
vallarhelmingnum...
Eg sagði henni Hvað er hún að
að hún ætti að gera?
fara þangað og
hita upp ...
pókí“!
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Efla þarf
forvarnir
Frá Árna Helgasyni:
ÞAÐ líður varla sá dagur, að ekki
berist fréttir af slysum og alls kon-
ar óáran í sambandi við neyslu
áfengis og annarra fíkniefna og er
þá fátt eitt tíundað af neyslunni.
Samt er haldið áfram neyslu þess-
ara fíkniefna en talað um að efla
þurfi vímuefnavarnir. Varnirnar eru
ekki skilgreindar meir, en ég og
aðrir hafa bent á ódýrustu og bestu
Ieiðina gegn þessari vá, sem sé að
nota þessa hluti ekki, enda komist
þjóðin af án þeirra.
Það er undrunarefni hversu alltaf
vekjast upp menn sem mæla þess-
um fíkniefnum bót og jafnvel kom-
ið svo að talað sé um þessi efni sem
nauðsynjavöru, áfengið hafi fylgt
manninum frá örófi alda og sé ekki
hægt að breyta því. Það er talað
um að þetta eigi jafnvel að seljast
i matvörubúðum, a.m.k. bjór og
léttvín. Þetta væri gert í öllum þró-
unarlöndum. Jafnvel blaðið mitt,
Morgunblaðið, telur léttvín nauð-
synleg með öllum mat. En skyldi
þá ekki sterkari fljóta með væri
farið að selja á annað borð þessa
vöru sem matvæli í þeim búðum.
Vatnið er best
Eg veit ekki betur en þegar er-
lendir gestir koma hingað að þeir
dáist að vatninu okkar og biðji um
það með matnum. Þjóðin býr nú
að þeirri reynslu sem hlotist hefir
af því að flytja inn áfengan bjór,
sem talið var að myndi minnka
neyslu sterkra drykkja. Ég hefi hitt
marga á liðnum árum sem hafa séð
eftir að hafa veitt bjórnum brautar-
gengi. Skáldið Jón Trausti segir í
áhrifaríku kvæði um þá sem greiði
götu vímuefna: Oft er það með
ákefð varið, eymd og neyð sem staf-
ar frá. Fram hið logna blákalt bor-
ið, blindir þeir sem eiga að sjá.
Eru þessi orð táknræn í dag,
þegar sú eymd sem áfengið veldur
hefir aldrei verið meiri en nú. I dag
er alltaf verið að rýmka um hömlur
á áfengissölu. Hvar sem eru stofn-
settar veitingasölur er alltaf reynt
að koma á áfengissölu því annars
beri þessi rekstur sig ekki. Þá er
ekki hugað að afleiðingum drykkj-
unnar. Hvað skyldi ríkissjóður blæða
af völdum vímunnar? Allar stofnanir
sem settar hafa verið á fót til að
líkna þeim sem hafa orðið bráð
Bakkusar, fyrir utan allt annað,
bæði glatað líf, heilsutjón, eyðilegg-
ingu heimila og svik sem af þessu
leiða? Það er ekki spurt um slíkt
þegar áfengi og annað vímuefni sit-
ur í fýrirrúmi. Jafnvel þegar svo er
komið að íþróttahreyfingin er hætt
að tala um að íþróttir og áfengi eigi
enga samleið. Hvað skyldu frum-
heijar íþróttahreyfingarinnar segja
í dag gætu þeir fýlgst með.
Hæpin forvörn
Ég var á landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins fyrir skömmu. Það var
góður og athyglisverður fundur. Þar
var samþykkt að efla með öllu
móti vímuvarnir og vernda æsku-
lýðinn, en mér fannst skjóta nokkuð
skökku við þegar flutt var tillaga
um neytendamál og þar stóð m.a.
ATVR verði lögð niður og sala
áfengis gefin frjáls, skv. reglum
sem hið opinbera setur. Er þetta
byijunin á vímuvörnunum? Mér og
fleirum sem fundinn sátu fannst
þetta ekki góð byijun og einn af
reyndustu mönnum á fundinum
fannst þetta hæpin forvörn og vildi
beina þessu til miðstjórnar flokks-
ins. En það hlaut nú ekki samþykki
og ótal hendur á lofti til að fella
tillöguna og það var ömurlegt
hversu unga fólkið léði þessu stuðn-
ing, já og hið eldra ekki síður. Það
er alls staðar verið að leggja gildrur
fyrir unglingana.
í Biblíunni segir Amos spámað-
ur: Kemur fuglinn í gildruna á jörð-
inni ef engin snara er þar fyrir
hann og hrekkur gildran upp af
jörðinni nema eitthvað hafi í hana
fengist. Það er alls staðar verið að
egna fyrir fólk, með áfengi og öðr-
um fíkniefnum. Ekkert hugsað um
afleiðingar. Gróðinn!!! fyrir öllu.
Þetta sjá þeir sem reka veitingahús-
in, þegar unga fólkið er komið á
bragðið. Þessi ægilegu fíkniefni eru
bara afleiðingar bjórs og áfengis-
neyslu, það fer ekki á milli mála.
Þjóðinni er gjarnara að reika
oftar á rangri leið, sú rétta virðist
aldrei greið. Og landsfeður halda
áfram veisluhöldum með glaum og
áfengispúkann við hlið sér og með-
an það þykir fínt er ekki að vænta
neinna breytinga, því það sem höfð-
ingjarnir hafast að, hinir ætla sér
leyfist það og hvernig hið háa Al-
þingi bregst við þeim 10 þúsund
undirskriftum sem borist hafa frá
hræddu fólki og hugsunarsömu
verður fróðlegt að vita. En ég vil í
lokin spyija þessar 10 þúsundir um
leið og alla aðra landsmenn, hvort
þeir vilji ekki fórna áfengisdrykkj-
unni fyrir almenningsheill? Það
væri meira vit heldur enn allt annað
sem bent hefir verið á. Kannski
myndu einhveijir tapa spæni úr
askinum sínum, en er ekki allt til
vinnandi fyrir blessun lýðs og lands?
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Hvað skal segja? 51
Væri rétt að segja: Búðin á horninu opnar klukkan níu.
Svar: Sögnin að opna er áhrifssögn (að opna eitthvað). Því
væri rétt að segja: Búðin er opnuð klukkan níu, eða: Kaupmaður-
inn á horninu opnar klukkan níu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.