Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1996 23 List gegn vímu Á ANNAÐ hundrað listaverk, sem um hundrað listamenn hafa gefið til fjáröflunarátaks Krisu- vikursamtakanna „List gegn vímu“, eru nú til sýnis í sýningar- sal Hins hússins Aðalstræti 2. Fjáröflunarátakið hófst 23. nóv- ember, þegar Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkur- borgar, opnaði sýninguna í Hinu húsinu og tók við fyrsta eintaki sögu Krísuvíkursamtakanna í tíu ár, sem Ragnar Ingi Aðalsteins- son hefur skráð undir heitinu „Víst var það hægt“. Fjáröflun- arátakið List gegn vímu stendur til 7. desember, en þá mun kór Islensku óperunnar halda tón- leika til styrktar Krisuvíkursam- tökunum. Morgunblaðið/Golli GUÐNÝ Magnúsdóttir. Lokasýning í Galleríi Umbru GALLERÍ Úmbra hefur verið rekið af Guðnýju Magnúsdóttur sem sýn- ingar- og sölugallerí í Tumhúsinu á Bernhöftstorfunni síðastliðin fimm ár en um áramótin verður það lagt niður. Aðalmarkmið gallerísins þennan tíma hefur verið að bjóða gestum upp á fjölbreyttar sýningar. Leirlistmunum Guðnýjar hefur einnig verið hægt að ganga að í hluta gallerísins; þeir hafa því verið hinn fasti punktur í galleríinu en sýningar í forsal hið síkvika andlit þess. Að sögn Guðnýjar er megin- ástæða þess að hún hyggst hætta rekstri gallerísins sú að hann er mjög óarðbær þótt hann hafi verið skemmtilegur. „Það er einfaldlega mjög erfitt að hafa vandaða list- munagerð að atvinnu. Þetta hefur ekki verið nein fjöldaframleiðsla hjá mér heldur hef ég lagt upp úr því að hver hlutur hefði fagurfræðilegt og listrænt gildi. Rekstur á slíkri vinnustofu er dýr vegna þess að það er gerður svo lítill greinarmun- ur á basar og galleríi. Hið opinbera gerir líka fátt til að auðvelda okkur reksturinn sem höfum staðið í þessu. Sýningarhaldið er líka dýrt og auk þess mikill tímaþjófur. Sá hluti þessarar vinnu hefur verið geysilega skemmtilegur en ég vil fara að snúa mér meira að eigin listsköpun.“ í tilefni af þessum tímamótum verða nokkrir af fyrri sýnendum gallerísins ásamt Guðnýju með verk sín til sýnis og sölu til áramóta. -----♦ ♦ ♦ Samstæðar andstæður í Skotinu SÝNINGU Dóslu í Skotinu í list- munagalleríinu Skruggusteinn, Hamraborg í Kópavogi lýkur í dag, sunnudag. Á sýningunni eru 17 smámyndir unnar með bleki og vatnslitum. Myndirnar eru allar unnar á þessu ári. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nákvæmir eyrnahitamælar hafa hingað tilaðeins verið fáaniegir til nota fyrir sjúkrahús og stofnanir, en eru nú einnig fáanlegir til heimilisnota. Á aðeins einni sekúndu geturþú mælt barnið þitt og án allra óþæginda fyrirþig og barnið. Nú er kominn nýr hitamælir, Braun ThermoScan eyrnahitamælir, sem gerir þér mögulegt að mæla börn þín með einföldum og nákvæmum hætti, og það á aðeins einni sekúndu. Braun ThermoScan mælir innrauða hitaútgeislun frá hljóðhimnunni og vefjum þar í kring, og því fæst eldsnöggt mjög nákvæm hitamæling. Helsta aöferöin viö mælingu á hita ungbarna hefur hingaö til verið mæling í endaþarm. Sú mæling og mælingar í munni eða holhönd eru ekki mjög áreiðanlegar. Raunverulegan líkamshita, innra hitastig, er aö finna í brjóstholslíffærum og því getur liðið langur tími þar til hita- breytingar mælast á öörum stööum líkamans. Það getur því veriö mjög bagalegt, sérstaklega með lítil börn, en þeim hættir oft til aö fá miklar hitasveiflur. Braun ThermoScan mælir Hitamæling íeyra -fljótleg, jnnrauða hitaútgeislun frá hljóö- þægileg og mjög nákvæm. himnunni og vefjum þar í kring, og því fæst eldsnöggt mjög nákvæm hitamæling. Innra hitastiginu er stjórnaö af hitastöð „hypothalamus“ í heilanum, en hún ertengd sama blóðflæði og hljóöhimnan. Þú getur mælt barnið þítt meðan það sefur Braun ThermoScan er ótrúlega þægilegur í notkun - svo þægilegur að þú getur t.d. mælt barniö þitt meöan þaö sefur. Til að gæta hreinlætis er sett plasthlíf á enda mælisins og hann síðan settur inn í eyrnagöngin þar sem hann les innrauða útgeislun af hljóðhimnu og sýnir hitann strax. Þekkir þú eðiilegan hita hjá barninu þínu? Meö Braun ThermoScan getur þú auðveldlega fundið út hver < er eðlilegur hiti barns þíns, og þannig geturðu verið viss um « hvenær það er með hita. Eðlilegur líkamshiti er mismunandi - milli fólks og veltur á mörgum þáttum, t.d. á hvaða ttma dags mælingin fer fram. Börn eru oftast heitari en fullorönir, og ef þau hafa veriö að hamast og leika sér getur hitinn auöveldlega og eölilega aukist. Braun ThermoScan er kærkominn fyrir litlu og stóru börnin í fjölskyldunni. Braun ThermoScan fæst nú í apótekum og fjölmörgum verslunum um land allt. Dreifing: Donna ehf. BRfiun Hafnarfiröi Simi 555 3100 • Fax 565 3455
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.