Morgunblaðið - 08.12.1996, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 08.12.1996, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 25 Þad hefur alltaf verið ríkur sjálfstæðisandi í mér og ég einsetti mér ad láta ekki aðra ráða yfir mér. Við höfðum í huga að fólk ruglar stundum saman verslunamöfnum og götuheitum. Þá stakk dóttir mín upp á því að verslunin héti einfaldlega Smiðsbúð, enda er hún smiðsbúð. Þá væri ekki hægt að rugla neinu saman. Mér fannst þetta helv. sniðugt hjá henni og það þurfti ekki að hugsa meira út í það.“ Smiðsbúð er bæði alhliða bygg- ingavömverslun og trésmíðaverk- stæði. Sigurður flytur sjálfur inn sitt timbur og viðskiptalönd hans hafa verið Noregur, Finnland, Sví- þjóð, Kanada, Eistland og Lett- land. Eystrasaltslöndin hafa léleg- an vélakost, ganga ört á skóga sína og seija mikið tijáboli til Norð- manna sem fullvinna timbrið. Norðmenn og aðrar Norðurlanda- þjóðir eru með betri tækni, en minni skóga aflögu, auk þess sem timburframleiðendum er gert að gróðursetjaf nokkrar tijáplöntur fyrir hveijl sem íhöggvin er. Sig- urður flytjar bæði inn heflað og óheflað tiinbur .uHann segir að timburver^ fari hækkandi þessi misserin vegna efnahagsuppsveiflu í ýmsum londum.' Dalíuklúbburinn Sigurður hefur alltaf gætt þess að gefa sér tima til að lifa lífinu ef þannig mætti að orði komast. Að koðna ekki niður í endalausri vinnu og striti. Hann segist vera sólardýrkandi og reyna að komast til sólarlanda eins oft og færi gefst. Þá hefur hann frá því hann man eftir sér verið mikill áhugamaður um blómarækt. „Ég var í Dalíuklúbbnum," segir hann og brosir eina ferðina enn. Snar þáttur í tilveru Sigurðar hef- ur verið garðskálinn sem hefur verið umvafinn dalíum, rósum og fleiri æðri skrautblómum og geng- ið undir nafninu Majorka eftir að blaðakona frá Vísi heimsótti hann fyrir allmörgum árum, skrifaði um garðinn og skálann og notaði fyrir- sögnina: „Erum við komin til Maj- orka?“ „Eftir þetta fórum við hjónin að kalla skálann Majorka og síðan hefur verið lítið mál að skreppa til Majorka. Þangað hef ég alltai leitað ef ég hef verið þreyttur eða leiður. Blóminn hafa góð áhrif á mig og ég hef alltaf komið endur- nærður frá þeim,“ segir Sigurður. Hann hefur einnig sótt endurnær- ingu og kraft í stangaveiðiíþrótt- ina og veitt í mörgum af bestu laxveiðiám landsins og urriða i Laxá í Mývatnssveit í 22 ár sam- fleytt. Hann reiknar þó með þvi að fara að draga úr veiðiskap næstu árin, en það er önnur saga. Hann er sáttur við það og segist hafa átt „langan og happaríkan feril“ Lokaorð Sigurðar eru: „Ég ei ánægður með að geta litið um öx, og sagt að ég hafi alltaf getac staðið við mitt.“ ÞJOÐSAGNADYR kirsuberjatréð vesturgötu 4 Staðgreiðsluverð: 9.800 kr. - húsgögn Ármúla 44 • sími 553 2035 Kt’vkj.ivikurvfgi 60 • s S55 2887 fHjÞtgiMIiiftifcí - kjarni málsins! um//msAa/ í/ S^xiiH/mÁa/l Sérhönnuð páskaferð tii DOMINÍKANA 23.mars - 2. apríl 1997 11 dagar (aðeins 5 vinnudagar) Eftir áramót: Sérskipulagðar ferðir með fararstjóra: Dominíkana — PUERTO PLATA: Allt innifalið — allur matur, allir drykkir, skemmtanir, íslensk fararstjórn. Ótrúlegt kjör! Berið saman við Kanaríeyjar: VEÐUR, VERÐ, UMHVERFI, GÆÐI Dóminíkana hefur alls staðar vinninginn! Snúið vetrarhörkum í sælusumar. Fáein sæti 12. jan., 9. feb. og 9. mars. Kostir þessarar ferðar eru margir: Hún er mátulega löng, 11 dagar á fegurstu eyju Karíbahafs, býður upp á mikla fjölbreytni og dásamlegt veður, þar sem hitinn er oftast um 25 stig celsíus. Höfuðborgin Santo Domingo er stórborg með 3 milljónir íbúa, fagra garða og frægt skemmtanalíf. Til þessa er hún íslendingum nær ókunn. Ferðalagið í rútu þvert yfir eyjuna norður til Puerto Plata gefur góða hugmynd um fegurð landsins, þar sem skiptast á um 3000 metra há fjöll og gróðursælir dalir, þaulræktaðir með tóbaks- ekrum, sykurreyr, kakó- og fíkjutrjám að ógleymdum bananaekrum og kókóspálmum. Litadýrð náttúrunnar er augum manns sífellt undrunar- og aðdáunarefni. Þarna blasir líka þjóðlífið við í nekt sinni en jafnframt glaðværð og áhyggjuleysi. Fólk, sem kynnist slíku sýnishorni af hitabeltinu og litadýrð þess, verður margs vísara. Síðan tekur við sæluvika við sjóinn í Puerto Plata Village, þar sem andvarinn gælir við hörundið og blómailmur fyllir vitin. Til að full- komna áhyggjuleysið þarf ekki að hugsa um neitt annað en að njóta fegurðar, útivistar í umhverfi, sem heillar og veitir sérstaka vel- líðan, sem aðeins finnst í nánum tengslum við lifandi, ósnortna náttúru. Það fullkomnar slökunina að þurfa ekki að taka upp peninga allan tímann, því að á Puerto Plata Village er allt innifalið frá komu til brottfarar, allir drykkir, áfengir sem óáfengir (innlendir) og fullt fæði, sem er bæði fjölbreytt og girnilegt. Að lokum finnst mörgum það höfuðkostur hvað ferðin er ótrúlega ódýr með öllu þessu inniföldu, og það kostar raunar miklu minna en almennt skráð flugfargjald eitt sér. (Ummæli farþega um síðustu páska) „BESTA FERÐIN Á ÆVI OKKAR“ Páskasiglingar: Hið nýja stórglæsilega Imagination 41 þús. tonn. 22. mars — UPPSELT Nýtt tilboð Glæsisigling á hinu nýja FASCINATION um sunnanvert Karíbahaf Puerto Rico, Jómfrúreyjar, Guadeloupe, Grenada, Caracas, Aruba. 6 dagar í Orlando/Miami á undan. Heimflug frá Miami Brottför 23. mars, heim 6. apríl. 15 dagar (aðeins 7 vinnudagar). 'msælustu skemmtisiglingar heimsins, Imagination, Sensation, Destin) Fegursta eyjan - DOMINICANA - allt innifalið. Öruggasta vetrarfríið - Jarðnesk paradís fyrir þig og vini þína - klúbbinn - félagið þitt. Verð frá kr. 100 þús. ÞÚ GERIR EKKI BETRIKAUP! BROTT- FARIR VIKULEGA í VETUR ÍSLENSK FARARSTJÓRN Fáið nýja spennandi áætlun 6 valdir staðir á Dominicana r CARNIVAL UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI FERÐASKRIFSTOFAN FLUGLEIDIRf ’™ PBJMAi HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS Austurstræti 17, 4. hæð 101 Reykjavík, sími 56 20 400, fax 562 6564

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.