Morgunblaðið - 11.04.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.1997, Blaðsíða 2
2 C FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT ÍÞRÓTTIR UMFA-KA 26:29 íþróttahúsið að Varmá í Mosfellsbæ, 3. leik- ur í úrslitum um Islandsmeistaratitil karla í handknattleik, fimmtudaginn 10. apríl 1997. Gangur leiksins: 0:1, 5:1, 5:2, 6:2, 6:7, 9:7,10:8,10:10,11:10,11:13,12:13,12:15, 12:17, 13:17, 14:19, 17:19, 19:20, 20:21, 21:22, 21:24, 23:24, 24:25, 25:26, 25:29, 26:29. Mörk Aftureldingar: Páll Þórólfsson 7, Ingimundur Helgason 7/6, Gunnar Andrés- son 3, Bjarki Sigurðsson 2, Siguijón Bjama- son 2, Jón Andri Finnsson 2, Sigurður Sveinsson 1, Einar Gunnar Sigurðsson 1, Þorkell Guðbrandsson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 21/1 (þar af 10 til mótheija). Utan vallar: 4 mínútur. Mörk KA: Sergei Ziza 9/4, Róbert Julian Duranona 7, Jóhann G. Jóhannsson 5, Jak- ob Jónsson 4, Björgvin Þór Björgvinsson 2, Leó Örn Þorleifsson 1, Alfreð Gíslason 1. Varin skot: Guðmundur Amar Jónsson 20 (þar af 9 til mótheija). Utan vallar: 6 mfnútur. Dómarar: Egill Már og Öm Markússynir. Áhorfendur: 1.050. Knattspyrna UEFA-bikarkeopnin Fyrri leikir í 8-liða úrslitum: París, Frakklandi: París St Germain - Liverpool......3:0 Leonardo (10.), Benoit Cauet (42.), Jerome Leroy (83.). Ahorfendur: 35.142. París: Bernard Lama - Laurent Fournier, Bruno N’Gotty, Paul Le Guen, Jerome Leroy (Bemard Allou 84.) - Benoit Cauet, Vincent Guerin, Leonardo, Didier Domi (Jimmy Al- gerino 32.), Rai, Patrice Loko (Cyrille Pou- get 81.). Liverpool: David James - Dominic Matteo, Jason McAteer, Mark Wright, Stig Björnebye - Steve Harkness, Steve McManaman, Stan Collymore (Michael Thomas 46.), John Bames, Robbie Fowler, Jamie Redknapp. Barceiona, Spáni: Barcelona - Fiorentina............1:1 Miguel Ange} Nadal (42.) - Gabriel Bati- stuta (62.). Áhorfendur: 110.000. Barcelona: Vitor Baia, Albert Ferrer, Ghe- orghe Popescu, Luis Figo, Hristo Stoichkov (Juan Pizzi 75.), Ronaldo, Giovanni, Guill- ermo Amor, Miguel Angel Nadal, Roger Garcia, Femando Couto. Fiorentina: Francesco Toldo, Giulio Falc- one, Michele Serena, Sandro Cois, Lorenzo Amoruso, Pasquale Padalino, Pusceddu, Anselmo Robbiati, Gabriel Batistuta, Rui Costa, Oliveira. Körfuknattleikur Evrópumót unglingalandsliða: Portúgal: ísland - Svíþjóð................75:63 ■Sævar Sigurmundsson og Morten Þór Szniedowicz vora stigahæstir með 16 stig hvor. ísland - Spánn..................59:93 ■Sævar var stigahæstur með 16 stig, Logi Gunnarsson kom næstur með 11 stig. Önnur úrslit: írland - Pólland................69:62 Portúgal - Svíþjóð..............61:70 Evrópukeppni félagsliða kvenna Leikur um 3. sætið Larissa, Grikklandi: Ruzomberok (SIóv.) - Como (ítal.).... 74:58 Elena Jirko 21, Iveta Bielikova 15 - Bridgette Gordon 12, Andrea Congreaves 12. 1.000. Úrslitaleikur Bourges (Frakkl.) - Wuppertal...71:52 Izabelle Fijalkouski 24, Kathy Melain 18 - - Marlies Áskamp 14, Michelle Timms 12. 1.800. NBA-deildin Charlotte - Boston..............136:111 ■ Boston hefur tapað 10 leikjum i röð og 31 af siðustu 33 leikjum. Charlotter er með 65,8% vinningshlutfall en þetta var 50. sig- ur liðsins og var þjálfarinn Dave Cowens ánægður með það. „Ég bauð þá velkomna í 50 sigra klúbbinn en tímabilið hefur verið mjög gott þegar hægt er að segja þetta.“ Indiana - Chicago..................80:86 ■ Chicago jafnar met sitt frá liðnu ári - 72 sigrar - með því að sigra i síðustu fimm leikjunum. Möguleikar Indiana á úrslita- keppninni dvínuðu til muna. Philadelphia - Atlanta...........101:116 Utah - LA Lakers...................101:89 ■ Utah tryggði sér titilinn í miðvesturriðli og heimaleikjarétt í úrslitakeppni Vestur- deildar. Golf Augsta í Gerorgíufylki: Bandaríska meistaramótið Staðan eftir fyrstu umferð sem lauk í seint i gærkvöldi: 67 John Huston (Bandar.) 68 Paul Stankowski (Bandar.) 69 Paul Azinger (Bandar.) 70 Tiger Woods (Bandar.) 71 Costantino Rocca (Ítalíu), Jose Maria Olazabal (Spáni), Nick Price (Zimbabwe) 72 Lee Janzen (Bandar.), Stuart Appleby (Ástralíu), David Berganio (Bandar.), Fred Couples (Bandar.), Colin Montgo- merie (Bretlandi), Davis Love (Bandar.), Tommy Tolles (Bandar.), Per-Ulrik Jo- hansson (Sviþjóð), Bernhard Langer (Þýskalandi), Willie Wood (Bandar.) 73 Clarence Rose (Bandar.), Jesper Parne- vik (Svíþjóð), Kenny Perry (Bandar.), Sandy Lyle (Bretlandi), Tom Lehman (Bandar.), Emie Els (S-Afríku), Fred Funk (Bandar.) 74 Dan Forsman (Bandar.), Jeff Sluman (Bandar.), Dudley Hart (Bandar.), Duffy Waldorf (Bandar.), David Frost (S-Afríku), Jim Furyk (Bandar.), Mark Calcavecchia (Bandar.), Jumbo Ozaki (Japan) 75 Stewart Cink (Bandar.), Sam Torrance (Bretlandi), Fuzzy Zöller (Bandar.), Vijay Singh (Fiji), Corey Pavin (Bandar.), Ben Crenshaw, (Bandar.) Tom Watson (Bandar.), Nick Faldo (Bretlandi), Mark Ö’Meara (Bandar.) 76 Justin Leonard (Bandar.), Frank Nobilo (N-Sjálandi), Steve Elkington (Ástralíu), Phil Mickelson (Bandar.), Gary Player (S-Afríku) 77 Tommy Aaron (Bandar.), John Cook (Bandar.), Lee Westwood (Bretlandi), Scott McCarron (Bandar.), David Ogrin (Bandar.), Mark Brooks (Bandar.), John Morse (Bandar.), Jeff Maggert (Bandar.), Craig Stadler (Bandar.), Tom Kite (Bandar.), Brad Faxon (Bandar.), Jack Nicklaus (Bandar.), Yoshinori Kaneko (Japan), Greg Norman (Ástral- íu), Steve Stricker (Bandar.), Ian Woos- nam (Bretlandi) í kvöld Knattspyrna Deildarbikarkeppni KSÍ Sanavöllur: KA - Leiftur 18 Konukvöld Hauka KVENNARÁÐ Hauka gengst fyrir konu- kvöldi í Álfafelli við Strandgötu i Hafnar- firði í kvöld og opnar húsið kl. 19.30. Val- gerður M. Guðmundsdóttir verður veislu- stjóri og Hjálmar Jónsson alþingismaður verður ræðumaður kvöldsins. ISFVGLSHLAVPIÐ í MOSFELLSBÆ 1997 Fer fram sunnudaginn 13. apríl. Hægt er að velia um 2 vegalengdir. Annars vegar 3 km skemmtiskokk (án tímatöku) sem hefst kl. 13.00 og hins vegar 8 km hlaup (með tímatöku) sem hefst kl. 12.45. Hlaupið verður frá íþróttahúsinu að Varmá. t,vet\a _______________ Yiljuin. vio 11 v j ^ (3ja og 5 manna blandaðar sveitir) allaað ★ Allir keppendur fá verðlaunapening og drykk að hlaupi loknu. ★ Fyrsta konan og fyrsti karlinn fá sérstök verðlaun í 8 km hlaupi. Keppnisnúmer gilda sem happadrætti. cróða s^o skapið ^Kskóna. Verð: Fullorðnír 500 kr. Börn yngri en 16 ára 250 kr. Foreldrar meö börn greiða að hámarki v 1000 kr. Skráning í síma: 566 7737 11. og 12. apríl kl. 20-22 og í íþróttahúsinu 13. apríl kl. 9-12.00 sÆr eða Rakó selt í íbróttabusinu- Aðeln* 250 kr. Frjálsíþróttadeild Aftureldingar ISFUGL Kjúktlngur er hJUU /Vðo ! HANDKNATTLEIKUR Hefð verður brotin á bak aftur á morgun Núerþað KA-heimilið, Afturelding KA-MENN dönsuðu trylltir af gleði að Varmá í gærkvöldi eftir að hafa sigrað Aftureldingu og stigið mikilvægt skref í átt að íslandsmeistaratitlinum. KA hefur aldrei verið svo nálægt þeim „stóra“ og getur fullkomn- að verkið í KA-heimilinu á morg- un. Hins vegar er ekkert öruggt í handbolta fyrr en fiautað hefur verið af, eins og hefur sýnt sig hvað eftir annað í úrslitakeppn- inni, og þó Afturelding hafi ekki sigrað á Akureyri, er of snemmt fyrir norðanmenn að fagna. Þeir geta samt verið ánægðir með að hafa unnið 29:26 í Mosfells- bænum og standa óneitanlega betur að vígi en deildarmeistar- arnir. Sveiflumar voru miklar í gær- kvöldi. Róbert Julian Duran- ona gaf tóninn með kunnu en allt of sjaldséðu hand- Steinþór bragði í kjölfar auka- Guðbjarísson kasts en eftir að Sig- skrífar urjón Bjarnason hafði svarað af línu varði Bergsveinn Bergsveinsson Qögur skot í röð og þar af eitt vítak- ast en samheijar hans breyttu stöð- unni í 5:1. Eftir níu mínútna leik var staðan 6:2 heimamönnum í vil. Þeir höfðu leikið eins og meistarar og mótherjarnir voru í hlutverki lærlinga en sjö mínútum síðar stóðu leikar jafnir, 7:7. Þá fór Sigurður Sveinsson meiddur af velli en því mátti Afturelding ekki við. Liðið missti móðinn, gestimir náðu þriggja marka forystu, 15:12, áður en flaut- að var til hálfleiks, gerðu tvö fyrstu mörkin í seinni hálfleik og héldu forystunni til leiksloka. Heimamenn náðu sex sinnum að minnka muninn í eitt mark en nær komust þeir ekki. Afturelding hefur leikið ákveðna framliggjandi 3-2-1 vörn á móti KA með góðum árangri þar til hún lét undan í gærkvöldi. Svar norðan- manna fólst í gegnumbrotum Rúss- ans Sergei Ziza og skotum Róberts eftir aukaköst. Félagarnir gerðu 10 fyrstu mörk KA og i byijun seinni hálfieiks skaust Jakob Jónsson skyndilega upp í stjörnuhimininn þegar hann tók af skarið og gerði fjögur góð mörk. Guðmundur Arnar Jónsson varði vel í fyrri hálfleik og aftur á mikilvægum augnablikum undir lokin en Jóhann G. Jóhannsson fór illa með nokkur góð og opin marktækifæri og Leó Orn Þorleifs- son var óöruggur. Bergsveinn var frábær í marki Aftureldingar og hefur sennilega gulltryggt landsliðssætið í þessari úrslitarimmu en aðrir lykilmenn í Iiði hans brugðust. Vörnin var ekki eins hreyfanleg og í fyrstu tveimur leikjunum en mestu máli skipti að Bjarki Sigurðsson og Gunnar Andr- ésson voru langt frá sínu besta í sókninni auk þess sem krafta Sig- urðar naut ekki við nema í skamma stund. Reyndar mætti halda að Bjarki hefði fengið sprautu í hléi því allt annað var að sjá til hans í seinni hálfleik en engu að síður var hann langt frá sínu besta. Einar Gunnar Sigurðsson náði sér heldur ekki á strik í sókninni og þó Páll Þórólfsson færi á kostum, einkum eftir hlé, mátti hann ekki við margnum. Með öðrum orðum gengu hlutirnir upp hjá KA en ekki hjá Aftureldingu. Svo einfalt var það. Þannig vörðu þeir Bergsveinn Bergsveinsson, Aftureldingu, 21/1 (þar af 10 til mótherja: 7(2) langskot, 5(3) eftir hraðaupphlaup, 4(4) eftir gegnumbrot, 3(1) af línu, eitt úr horni og eitt vítakast. Guðmundur Arnar Jónsson, KA, 20 (þar af 9 til mót- heija): 12(4) langskot, 3(2) eftir hraðaupphlaup, 3(1) úr horni, 2(2) eftir gegnumbrot. Sigurður tognaði SIGURÐUR Sveinsson, homa- maður Aftureldingar, meiddist í leiknum á móti Aftureldingu í gær og varð að yfirgefa völlinn þegar fyrri hálfleikur var hálfn- aður og staðan 7:7. Hann lék ekki meira með og var aðeins áhorfandi í siðari hálfleik. „Ég tognaði í aftanverðu lær- inu á hægri fæti og átti erfitt með að stíga í fótinn,“ sagði Sig- urður eftir leikinn. „Ég veit ekki hversu alvarlegt þetta er því það á eftir að skoða þetta betur. Það verður bara að koma í ljós hvort ég verð orðinn leikfær á laugar- daginn, en auðvitað reyni ég það ef hægt er.“ BOGFIMI NM og tvö námskeið í Reykjavflc NORÐURLANDAMÓT í bogfimi fyrir fatlaða verður haldið í Laugar- dalshöll um helgina. Mótið hefst kl. 12.30 á morgun, laugardag og keppni þann dag lýkur milli kl. 16 og 17. A sunnudag hefst keppni kl. 10 og lýkur væntanlega um kl. 14. Keppendur eru 17, frá íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finn- landi. í tengslum við mótið verður hald- ið námskeið, bæði fyrir dómara og alla þá sem áhuga hafa á að læra íþróttina. Það er Norðmaðurinn Morten Wilmen, _,,guðfaðir“ bogfimi- íþróttarinnar á Islandi, sem gengst fyrir námskeiðunum. Hann fræðir áhugasama í dómarafræðum á mánudag og þriðjudag í næstu viku en frá miðvikudegi til laugardags verður hann með almenna kennslu í bogfimi, fyrir þá sem hafa áhuga að æfa íþróttina, bæði fatlað og ófatlað fólk. Miklir yfirburðir TBR LIÐ TBR hafði mikla yfirburði í deildarkeppni Badmintonsambandsins sem fram fór um helgina. B-lið TBR sigraði í fyrstu deild, sigraði 8:0 í öllum leikjum sínum nema gegn A-liði TBR því þeim leik lauk 5:3 fyrir B-liðið. A-sveit TBR varð í örðu sæti, tapaði þremur leikjum gegn TBR-B og einum gegn HSK. ÍA-A varð í 3. sæti, HSK í því fjórða, KR í fimmta og lið TBA féll í aðra deild. D-lið TBR sigraði í 2. deild og flyst í þá fyrstu að ári. í sigursveit TBR í fyrstu deild, sem er á myndinni, voru Árni Þór Hall- grímsson, Guðmundur Adolfsson, Skúli Sigurðsson, Orri Örn Árnason, Jó- hannes Helgason, Erla Hafsteinsdóttir, Áslaug Hinriksdóttir og Sara Jóns- dóttir. BADMINTON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.