Morgunblaðið - 25.05.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.05.1997, Blaðsíða 4
4 E SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ Ert þú 18-26 ára og langar til að dvelja erlendis við nám og störf? AU PAIR í BANDARÍKJUNUM Ef þú vilt víkka sjóndeildarhringinn og læra erlent tungumál er ársdvöl sem au pair í Bandaríkjunum ógleymanleg reynsla sem þú býrð að alla ævi. STARFSÞJÁLFUN í U.S.A. Trainee / Intemship Nú gefst þér tækifæri til að kynnast af eigin raun viðskiptaumhverfi eða félagsmálaþjónustu í Bandaríkjunum. Þú færð ómetanlega þjálfun í að tala og nota ensku um leið og þú kynnist annarri menningu með því að lifa og starfa við hlið Bandaríkjamanna. (Lágmarksaldur 20 ár). AU PAIR í EVRÓPU I boði er au pair vist í Austurríki, Bretlandi, Danmörku, Frakklandi, Hollandi, Italíu, Noregi, Spáni, Sviss, Svíþjóð og Þýskalandi. Dvalartími er 6-12 mánuðir. Einnig býðst sumarvist í 2-3 mánuði. STARFSNÁM í EVRÓPU A Work Experience Programme Við bjóðum málaskóla og starfsnám hjá ýmsum fyrirtækjum í ferðaþjónustu í Bretlandi og Austurríki. Þetta er kjörin leið til að læra tungumál í málaskóla og öðlast síðan starfsreynslu í ferðaþjónustu í 3 - 9 mánuði. Hafðu samband í síma 562 2362 eða líttu inn. Við erum að bóka í brottfarir í júní, júlí, ágúst, september, október og nóvember 1997. AuPAIR * MÁLASKÓLAR • STARFSNÁM LÆKJARGATA 4 101 REYKJAVlK SlMI 562 2362 FAX 562 9662 NETFANG aupair@skima.is Utanríkisráðuneytið Verkefnaráðning Vegna aukinna verkefna í málefnum Alþjóða- bankans er tímabundið starf á aðalskristofu ráðuneytisins lausttil umsóknar. Gerð er krafá um háskólapróf, auk þess að sérþekking eða framhaldsmenntun á sviði hag- fræði og/eða þróunarmála er æskileg. Góð kunnátta í ensku og a.m.k. einu Norðurlanda- máli er nauðsynleg. Leitað er að duglegum og samviskusömum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, jafn- framt því að vera samstarfslipur. Nauðsynlegt erað hlutaðeigandi hafi góða aðlögunarhæfni og eigi auðvelt með mannleg samskipti. Umsækjendur þurfa að geta gengið í önnur störf sem falla undir verksvið utanríkisráðu- neytisins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf um mitt ár. Launakjör eru samkvæmt kjarasamn- ingi fjármálaráðherra og Félags háskóla- menntaðrá starfsmanna Stjórnarráðsins. Frekari upplýsingar um starfið eru gefnar af aðstoðarmanni ráðherra og starfsmannastjóra. Umsóknir, með upplýsingum um menntun, fyrri störf, tungumálakunnáttu og meðmæl- endur, sendist utanríkisráðuneytinu, starfs- mannastjóra, Rauðarárstíg 25,150 Reykjavík. Umsóknir þurfa ekki að vera á sérstökum eyðu- blöðum. Umsóknarfrestur er til og með 9. júní nk. Litið verður svo á að umsóknir gildi í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur nema annað sé sérstaklega tekið fram í umsókninni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörð- un um ráðningu hefur verið tekin. Fyrirliggjandi umsóknir óskast staðfestar. SJÚKRAHÚS SUÐURLANDS v/Árvey - 800 Selfoss - Pósthólf 241 . Slmi 98-21300 Ljósmæður Ljósmóður bráðvantartil sumarafleysinga og í fasta stöðu. Fæðingardeildin er nýlega endur- nýjuð og er aðstaða fyrirfæðandi konur og sængurkonur mjög góð. Valkostirtil fæðinga eru mjög fjölbreyttir. Á sama stað vantar hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga og í fastar stöður á hand- og lyflæknissvið og á langlegudeild ShS, Ljós- heima. Um er að ræða fjölbreytt störf við góðar aðstæður. Á sjúkrahúsinu eru 30 rúm sem skiptast í hand- og lyflæknissvið. Vinna hjúkrunarfraeðingar til skiptis á þessum sviðum. Á öldrun- ardeild ShS eru 26 rúm fyrir langlegu. Þar eru hjúkrunarfræðing- ar á bakvöktum á nóttunni. Kynnið ykkur sérkjör varðandi laun og hús- næði. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrun- arforstjóri í síma 482 1300. Heilsugæslustöð Selfoss Hjúkrunarfræðingar/sjúkraliðar Heilsugæslustöð Selfoss óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga og vegna fæðingarorlofs, sem er byrjað, nú þegar og verður í 1 ár, þ.e. til febrúar og apríl 1998. Einnig vantar sjúkraliða við heimahjúkrun frá 14. júlí til 29. ágúst vegna sumarafleysinga. Störf við heilsugæslu eru fjölbreytt og gefandi. Aðstoðað er við að útvega húsnæði. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri heilsu- gæslu í síma 482 1300 og 482 1746. Upptökusvæði Sjúkrahúss Suðurlands er Árnessýsla, Rangár- vallasýsla og V-Skaftafellssýsla, alls 16 þúsund íbúar. Starfssvæði Heilsugæslustöðvar Selfoss er um 6 þúsund íbúar. Svæðið er Selfoss og nálægir hreppar. Þetta er upplagttækifæri fyrir hjúkrunarfræðinga og Ijósmæður sem vilja breyta til, kom- ast burt úr borgarerlinum en samt stutt í borgina. Selfoss er miðstöð verslunar og þjónustu á Suðurlandi og marg- ar náttúruperlur í nágrenninu. Aðstaða til íþróttaiðkana er góð og 4 dagvistarstofnanir fyrir börn eru starfandi í bænum. I ÍSLENSKA * ÚTVARPSFÉLAGIÐ Deildarstjóri þýðingadeildar Óskum eftir að ráða, deildarstjóra þýðingadeildar hjá íslenska útvarps- félaginu. Deildin heyrir undir dagskrár- svið og er skipuð 10 starfsmönnum. Starfssvið; daglegur rekstur deildarinnar, umsjón með öllum þýðingum, prófarka- lestri, filmusafni og flutningi á dagskrár- efni til félagsins og frá því, samskipti við þýðendur og úthlutun verkefna. Hæfniskröfur; við leitum að starfsmanni með háskólamenntun á sviði málvísinda/ tungumála sem hefur reynslu af þýðingum og textagerð. Viðkomandi þarf að hafa góða samskipta- og skipulagshæfileika, viðhafa fagmannleg vinnubrögð og sýna metnað í starfi þar sem íslenskan er í hávegum höfð. Reynsla af stjórnunarstörfum er æskileg. Umsóknarfrestur ertil 1. júní nk. Umsókmr sendist Hermanni Hermanns- syni hjá Islenska útvarpsfélaginu sem einnig veitir nánari upplýsingar. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. @FjftSítp jl HÁ8KÓLINN A AKUREYRI Lausar stöður Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður við Háskólann á Akureyri: Staða dósents í markaðsfræði Kennslu- og rannsóknasvið er markaðsfræði, æskilegt sérsvið markaðsrannsóknir, sölustarf og útflutningsverslun. Til greina kemur að ráða í stöðu lektors. Starfsvettvangur er aðallega við rekstrardeild. Staða lektors í rekstrarfræði — gæðastjórnun. Kennslu- og rannsóknarsvið er rekstrarfræði, æskilegt sérsvið hagnýt notkun gæðastjórnun- ar í íslenskum iðnaði og þjónustu. Starfsvettvangur er aðallega við rekstrardeild. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar, rannsóknir, kennslustörf, stjórnunarstörf svo og námsferil sinn og önnur störf. Með umsóknum skulu send eintök af þeim vísindalegu ritum sem umsækjendur vilja láta taka tillit til. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir eru að sinna og hver eru áform þeirra, eftil ráðningar kemur. Ennfremurer ætlasttil þess að umsækjendur láti fylgja nöfn og heimilisföng minnsttveggja aðila sem leita mátil um meðmæli. Sæki umsækjandi um tvær eða fleiri stöður við Háskólann á Akureyri á sama tíma skal hann láta fullnægjandi gögn fylgja báðum/öllum umsóknum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri. Upplýsingar um starfið gefa forstöðumaður rekstrardeildar eða rektor háskólans í síma 463 0900. Umsóknir skulu hafa borist Háskólanum á Akureyri fyrir 10. júní 1997. EIMSKIP EIMSKIP leggur áherslu á aö auka hlut kvenna í ábyrgöarstööum hjá félaginu og þar meö stuöla aö þvíaö jafna stööu kynjanna á vinnumarkaöi. Verkfræðingur Hf. Eimskipafélag íslands óskar eftir að ráða verkfræðing með framhalds- menntun til starfa á rekstrarsvið fyrirtækisins. Rekstrarsvið ber ábyrgð á rekstri skipa, gáma og annarra tækja Eimskips, sem og rekstri flutningamiðstöðvarfyrirtækis- ins í Sundahöfn. í starfinu felst: Rekstraráætlanir og matsgerðir. Kostnaöar- og hagkvæmnisútreikningar. Ráðgjöf vegna viðhalds og kaup á nýjum tækja- og skipakosti. Ýmis sérverkefni. Hæfniskröfur: Starfsreynsla hérlendis og /eða erlendis. Sjálfstæð vinnubrögð. Stjórnunarhæfileikar. Frumkvæði og skipulagshæfileikar. Góð enskukunnátta. Færni í mannlegum samskiptum. Góð þekking á tölvukerfum svo sem Excel. Þekking eða starfsreynsla af gæðastarfi / gæðakerfum. Fyrir réttan starfsmann er í boði fjöl- breytt og krefjandi starf með margvís- legum tækifærum til faglegs og persónu- legs þroska. Vinsamlegast athugið að allar nánari upplýsingar eru eingöngu veittar hjá Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. Umsóknum skal skilaö fyrir 30. maí n.k. merktar „Eimskip 232" Hagvangur hf Skeifan 19 108 Reykjavík Sími: 581 3666 Bréfsími: 568 8618 Netfang: hagvang@tir.skyrr.is' Veffang: http://www.apple.is /hagvangur „ HAGVANGUR RADNINGARÞJÖNUSTA Rétt þekking á réttum tíma -fyrir rétt fyrirtæki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.