Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 4
4 B FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐLÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997 B 5 DAGLEGT LÍF DAGLEGT LÍF Sumarið færir okkur lóu, maísól og langar bjartar nætur. Líka hundruð ANNA á sinum þriðja Benz. vélfáka, undir einni vélarhlíf, og bæði hjá stelpum og strákum Hrifnastur af línunum Helga Kristín Einarsdóttir faldi bílinn sinn bakvið stórt hús og mælti sér mót við nokkra sportbílaeigendur „Þú færð ekkert að kaupa svona bíl, nema að fara á öku- námskeið. Það er stórmál að keyra þá. Ekki þarf annað en að rétt snerta bensíngjöfina og bíll- inn er kominn hringinn. Mér skilst að framleiddir séu um 800 bflar á ári og að 400 af þeim eyðileggist strax. Það er ekkert mál, því maður finnur ekki fyrir hraðanum. Sá sem ekur á fullt í fangi með að stýra, þetta leitar út um allan veg, hristist allt og er grjóthast. Ef göturnar eru blautar, stoppar bfllinn ekkert, maður skautar áfram og eitthvað út í buskann." Aðspurður hvaða eiginleikar Vipersins falli honum best í geð, segir Arnar best að horfa á hann. „Línurnar eru svo fallegar". „FÓLK snýst í hringi þegar það sér bflinn," segir Arnar Theó- dórsson, eigandi Dodge Viper ‘94, með ÁTTA h'tra og 400 hestafla vél. „Það eru líka svaðalega flott- ar línur í honum og mótorinn er rosalegur." Arnar flytur inn bfla og segist hafa keypt Viperinn vegna langvarandi dellu fyrir þess kon- ar farartækjum. I kjölfarið varð heimili hans eins konar Mekka bfladelluunglinga, sem koma í kippum til þess að berja gripinn augum. Svo rammt kveður að um- ferð um götuna að Arnar segist stundum ekki nenna að taka hann út úr skúrnum. Þá er búið að keyra á eitt barn í atganginum. Boddíið, eða yfirbyggingin, er úr plasti og vegur 1.560 kfló. Arn- ar segir Viperinn fjórar og hálfa sekúndu úr kyrrstöðu í 100, og að því sannreyndu tekur nokkra klukkutima að koma innyflunum aftur fyrir á réttum stöðum og Iagi á jafnvægisstöðvarnar. „Það er bara fyndið að keyra á þessu niður Laugaveginn, maður hálf skammast sín,“ segir hann ennfremur og þvertekur fyrir að skrúfa rúðuna niður og hvfla oln- bogann á hurðinni. Kraftmestu bflar sem framleiddir eru eru 7- 800 hestöfl að Arnars sögn og fást fyrir nokkur íslensk einbýlis- hús. Drunur DP1874' í vélum og dírrindí Morgunblaðið/Golli FRUARBILAR minna á konur í poplínkápum, með belti og vel lagt hár; smáir, hljóðlátir, vinna vel, en komast ekkert áfram. Eða hvað? Frúin í dag hlær í miklu betri bfl og að minnsta kosti þrjár slíkar himinhátt, með hundruð hestafla til reiðu. Ein þeirra er Anna Sigríður Stefánsdóttir, sem, ásamt manni sínum, ekur 193 hestafia Mereedes Benz Slk230, síðan í vor. Anna er á sínum þriðja Benz og segir hún vegfar- endur horfa mikið á þennan. Sum- ir gerast líka svo djarfir að hringja heim til þeirra hjóna og forvitnast; spyija hvaða tegundar bfllinn sé og fleira. „Það er frábært að keyra þenn- an bfl. Hann er hraðskreiður, snöggur og öruggur, ólíkur öllum bflum sem ég hef keyrt,“ segir Anna og bætir við að ekkert jafn- ist á við ökuferð með þakið niðri. „Maður er meira í tengslum við umhverfið þannig, ekki ósvipað og þegar ekið er á mótorhjóli," segir hún líka og lætur þakið hverfa með því að ýta á einn takka, eins og Leðurblökumaður- inn. „ÓIi beið eftir bflnum í þrjú MÆLABORÐIÐ í Slk230 miunir á flugvél af eldri gerðinni. hann ryki allur galopinn, þótt þau stumri yfir honum með tusku og kúst, næstum daglega. Benzinn nýi verður ekki mikið í utanbæj- arakstri segir Anna að lokum, en til stendur að fara með hann til Frakklands í sumarfrí og láta hann vinna fyrir kaupinu sínu. ár,“ segir Anna, því hann fylgist vel með nýjungum í bflaheimin- um. Þegar stundin rann upp fóru þau til Stuttgart í Þýskalandi til þess að sækja þann snögga og keyrðu til Amsterdam þar sem farkostur Eimskipafélagsins beið. Þau Ólafur nota nýja Benzinn meira um helgar enda safnar VIPER Arnars er nokkurs konar goðsögn meðal dellukarla. Og kerlinga. Morgunblaðið/Golli VÉLIN er átta lítra og skilar 400 hestöflum. Fékk bílinn gef- ins frá manninum BIRGIR Skúlason hefur löngum verið áhugamaður um sportbfla og eignaðist sinn fyrsta, Alfa Romeo Spider Veloce ‘90,127 hestöfl, fyrir tveimur mánuðum. „Eg rakst bara á hann og keypti hann,“ segir Birgir um tildrög þess. Spiderinn er alger sumarbíll að Birgis sögn, enda lágur mjög. „Hann er þokkalega kraftmikill og mjög léttur. Vélin er skemmtileg að því leyti að hún vinnur vel á lág- um snúningi," segir hann líka. Þá situr hann vel á vegi og er góður á 120-130. „Hann er ekki gerður fyr- ir mikið hraðari akstur en það.“ Bíllinn virkar eldri en sjö ára við fyrstu sýn, sem Birgir skýiir með því að hönnunin hafi verið nánast óbreytt um áratugaskeið, það er að segja þar til nýverið. Hið eina nýtískulega við bílinn er rafknúnar rúður,“ segir hann jafnframt og bætir við að Spider- inn sjáist gjarnan í bíó. „Þessir bfl- ar eru algengir í kvikmyndum og mér er sagt að bfll eins og minn hafi verið í myndinni Tequila Sun- rise.“ Birgir , segist alls ekki keyra mikið með blæjuna niðri. „Ég er ekki þannig týpa, og vek óþolandi athygli, þótt ég hafi kannski látið mig hafa það.“ RAGNHEIÐUR Jónsdóttir fékk rauðan Mitsubishi Eclipse GSX Turbo, árgerð ‘97, gefins. „Mað- urinn niinn færði niér hann, mér hefði ekki dottið í hug að fá mér svona bfl,“ segir hún. Umræddur eiginmaður pantaði bflinn beint frá Bandaríkjunum og ekki af sérstöku tilefni. „Ég hef aldrei verið með bfladellu," segir Ragn- heiður ennfremur en viðurkennir þó að hafa haft auga fyrir falleg- um bflum, í áranna rás. „Þetta er auðvitað mjög skemmtilegt ökutæki. Bfllinn er kraftmikill, snöggur og stífur, og kannski ekki mjög hentugur fyrir húsmóður sem þarf að flytja heimilinu vistir. Hann er þröng- ur. En það er gaman að spýta í. Þessir bflar eru gerðir fyrir akst- ur á 260-80 kflómetra hraða,“ segir hún og þvertekur fyrir að hafa sannreynt hestöflin 209. Börnin hafa ekki enn fengið að aka bflnum, þótt dóttirin, 21 árs, sé mjög spennt, fyrir því, segir Ragnheiður loks. Morgunblaðið/Ásdís BIRGIR er feiminn við að hafa blæjuna niðri, Morgunblaðið/Ásdís GRÉTA Lind verður að falla fyrir bflnum fyrst. VESTEINN Hauksson segist „eiginlega" vera með bfladellu. Hann keypti sér Mitsubishi 3000 GT fyrir mánuði, fann hann á bflasölu og setti tvo upp í. Þrátt fyrir það er Vésteinn vel í sveit settur á Nissan Sunny ‘92, Volvo 740 ‘89 og Hyundai Accent ‘96. „Ég sá hann á bflasölu og varð bara ástfanginn,“ segir Vésteinn og bætir við að hann hafi aldrei keyrt betri bfl. „Hann er ótrúlega kraftmikill, 220 hestöfl, mjúkur og þægileg- ur, og þótt hægt sé að finna miklu kraftmeiri bfla, er maður farinn að borga svívirðilega háar upphæðir fyrir, kannski rúmar átta milljónir." Vésteinn setti Porsche 944 Turbo upp í og segir að hann hafi verið eins og 40 feta gámur í akstri miðað við þann nýja, engin Qöðrun. „Og það er mikið í hon- um. Maður hefur ekki miklar áhyggjur af því að lenda í árekstri.“ Vésteinn segist aldrei hafa orð- ið fyrir barðinu á lögreglunni, þrátt fyrir öll sín hestöfl. „Þeir virðast hafa illan bifur á strákum á GT bflum en ég veit ekki með þennan. Ég var klagaður fyrir hraðakstur um daginn í Mosfells- sveit og löggan kom og benti mér á að ég þyrfti að taka tillit til hinna vegfarendanna. Ég var að visu búinn að hægja ferðina nið- ur í 100, svo þeir sektuðu mig ekki.“ Loks segist Vésteinn ekki aka bflnum mikið á malarvegum, enda ætli hann ekki að „hreinsa af honum lakkið“. Það liggur við að ég sofi í þessum,“ segir hún. Hyundai Coupe Grétu Lindar er 116 hestöfl og hún er búin að keyra hann 630 kílómetra á tveimur vik- um, á löglegum hraða að mestu. „Bíllinn minn er ekkert rosalega snöggur eins og litlu, léttu bílarnir. Ég er ekkert að reykspóla af stað á ljósum, en þegar maður er kom- inn á ferð finnur maður ekkert fyr- ir hraðanum og verður að gá að sér. Það eru löggur úti um allt.“ Loks segir Gréta Lind að marg- ir snúi sig úr hálsliði þegar hún ek- ur hjá. „Ég hef alltaf verið með bíladellu. Draumurinn er Benz 500se, eða bara Ferrari, eða Lam- borghini. Ég hef alltaf verið dálítill strákur í mér.“ GRÉTA Lind Kristjánsdóttir fékk forsmekkinn af Hyundai Coupe ‘97 á Akureyri og undi sér vart hvíldar fyrr en bfllinn varð hennar. „Ég var á skíðum á Akureyri um pásk- ana og sá svona bfl, gulan, en vissi ekkert hvaða tegund þetta var. Ég og vinkona mín eltum hann út um allt til þess að komast að því. Síðan ætlaði ég vart að trúa þvi að þetta væri Hyundai, því mér hefur aldrei þótt mikið til þeirra koma.“ Eftir það kíkti hún á afmælis- sýninguna hjá Hyundai-umboðinu og sá samskonar bíl, svartan, með stærri vél. „Ég hugsaði með mér, að ég yrði að fá hann. Ég verð nefnilega að falla fyrir bílnum. Að- ur átti ég Polo, og fannst hann flottur, en samt ekki nógu flottur. Morgunblaðið/Ásdís Morgunblaðið/Ásdís VÉSTEINN hefur aldrei keyrt betri bíl. RAGNHEIÐI finnst gaman að gefa í.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.