Morgunblaðið - 07.06.1997, Page 17

Morgunblaðið - 07.06.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 1997 17 LANDIÐ Vestfjarða- leið hættir akstri í Dali Búðardal - Vestfjarðaleið hætti akstri í Dali um síðustu mánaðamót þar sem sérleyfíð rann út og var ekki endurnýjað. Vestfjarðaleið var stofnuð árið 1953 og tók þá við af Guðbrandi Jörundssyni (Dalabrandi) sem hafði annast farþegaflutninga á þessari leið frá því skömmu eftir að Bratta- brekka var opnuð um 1930. Jóhann- es Ellertsson, eigandi Vestfjarða- leið, segist vissulega sakna þess að hætta keyrslu í Reykhólasveit og Dali, en bílaeign sveitamanna sé orðin almenn er ekki sé lengur arð- bært að aka á sérleyfum. Vest- fjarðaleið sinnir keyrslu fyrir Ferða- félag íslands, sér um starfsmanna- ferðir fyrir íslenska álfélagið, auk þess að reka eigin ferðaskrifstofu og er vaxandi vinna við hópferðir með erlenda ferðamenn. Við sérleyfinu í Dali og að Reyk- hólum tóku HP sérleyfís- og hóp- ferðir á Snæfellsnesi og munu halda áfram póst- og farþegaflutningum vestur. HP ekur vestur á sömu dög- um og áður með smávægilegum tímabreytingum. Póstur og sími í Búðardal hættir að svara fyrir- spurnum og sinna pakkaafgreiðslu fyrir rútuna en sú þjónusta færist yfir í Esso sjoppu Dalakjörs í Búðar- dal. Morgunblaðið/Albert Kemp Ungviði ÞÓRUNN Lilja heitir litla stúlk- an á myndinni. Hún var í heim- sókn á bænum Vallarnesi þar sem hún fékk að gefa litlu lanibi að drekka úr pela en hún var í fyrsta skipti að sjá nýfætt lamb. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir afmæli s1nu um þessar mundir. í tilefni afmælisins verður franski gleraugnahönnuðurinn fleiri nýjungar en nokkru sinni fyrr. Þessi frábæri hönnuður hefur aidrei verið betri . Vöruflutn- ingabíll á hliðina Ólafsvík - Vöruflutningabíll fór á hliðina á Fróðárheiði sl. miðviku- dagsmorgun. Var þetta bíll með 45 feta gám sem innhélt 20 tonn af frosnum fiskafurðum. Að sögn bílstjórans var veghefíll þarna við vinnu og hafði heflað upp úr köntunum inn á veginn. Myndað- ist hryggur með stórgrýti á miðjum vegi sem bílstjórinn á flutningabíln- um var að reyna að komast fram hjá þegar vegakanturinn gaf sig. Vel gekk að koma farminum á annan bíl. Félagar úr björgunar- sveitinni Sæbjörgu tóku að sér að aferma bílinn og koma farminum á annan flutningabíl sem hélt síðan áfram flutningum til Reykjavíkur. Morgunblaðið/Guðlaugur Wíum Töluverðar skemmdir urðu á flutningabílnum en bílstjórinn slapp ómeiddur. Fróðárheiði var lokuð í 2 klst. meðan verið var að koma vöru- flutningabílnum á veginn aftur. Linsan fagnar 25 ára Aliir veikomnir - engin boðskort! 1 tilefni afmælisins efna Linsan og Alain Mikli til listsýningar 1 Gallerl Borg dagana 5. til 17. júní. Þar veröa sýndar umgjaröir sem Alaln M1kl1 hefur hannaö s 1 öastl1Ö1n 20 ár og 1 Stöölakot1 eru sýndar töskur og fylgihlutir frð Mikli. Einstaklega athyglisveröar sýningar fyrir alla þá sem kunna aö meta góöa hönnun. Aögangur ókeypis á báöar sýningar. alain mikli. 25 ára LÍNSAIN Aðalstræti 9, sími 551 5055

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.