Morgunblaðið - 02.11.1997, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 02.11.1997, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ 4 HÚN RANN SttR E/cKEHT rtdF Þfgaf fuglafóewr- /hJN FF ANNARS VEGAR Grettir EG ELSKA MCfTTlNA. EG SKYNJA D'/RIN i'SKÓGlNUM FL'ý’TA 'OTTASLEGlM UNOAM MBR. Tommi og Jenni BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329 Til hamingju, Grensássókn! Frá Inga Boga Bogasyni: MIKIÐ hefur gengið á innan íslensku þjóð- kirkjunnar að undan- fömu svo æra mætti bæði stöðugan og óstöðugan. Það er því mikið fagnaðarefni og öllum frómum mönn- um til eftirbreytni það sem gerst þefur í Grensássókn. í vor var kjörinn nýr prestur til sóknarinnar, Ólafur Jóhannsson, sem fær það vandasama hlut- verk að taka við far- sælu starfí mætra presta og braut- ryðjenda á borð við sr. Felix Ólafs- son, sr. Jónas Gíslason og nú sein- ast sr. Halldór Gröndal. Eftirtektar- vert við ráðningu prestsins var sú staðreynd hve hljóðlega hún gekk fyrir sig. Ekki var annað að sjá en sóknarnefndin hafí verið einhuga í ákvörðun sinni því hún afgreiddi málið bæði fljótt og snyrtilega. Ótvírætt gæfumerki var að ekkert var um málið ljallað í fjölmiðlum. Nýi presturinn er ábyggilega starfi sínu vel vaxinn. í stuttu við- tali þakkaði hann mótframbjóðend- um sínum drengskap, sagðist sjálf- Ólafur Jóhannsson ur hafa reynslu af því að tapa í prestskosningum og vissi því vel hvernig þeim liði. Enda voru mót- frambjóðendurnir drengskapar- menn og notuðu ekki tækifærið til þess að básúna eitt né neitt í fjöl- miðlum. Grensássókn virðist vera happasókn. Ég leyfi mér sem með- limur íslensku þjóðkirkjunnar í Grensássókn að þakka fyrir frábært starf sr. Halldórs á umliðnum árum og óska sr. Ólafi velgengni í vanda- sömu starfi. INGI BOGI BOGASON, Safamýri 37. Halldór Gröndal Ljóska Ferdinand Smáfólk S0METIME5 I LIE AWAKE AT NI6HT, ANPI A5K QUE5TI0N5.. 15 THERE ANY ONE THIN6 A PER50N CAN PO TO MAKE HI5 LIFE 5UCCE55F0L? BACK EKERCI5E5' Er til einhver einn hlutur sem einstaklingur getur gert svo að Iíf hans verði farsælt? „Bakæfingar"! Stundum ligg ég andvaka og spyr spurninga... Skylda ríkisvaldsins 1 tóbaksmálum Frá Helga Geirssyni: HÁTTVIRTUR ritstjóri. Ég skora á íslenska ríkisvaldið, heilsuverndunarkerfið undir land- lækni og löggjafarvaldið undir dómsmálaráðherra, og alla sem hafa áhuga á heilsu og velferð ís- lenskra borgara, að leggjast á eitt til að sett verði á laggirnar nefnd heilsu- og lögfróðra sérfræðinga og leikmanna, til að lögsækja skaða- bætur á hendur tóbaksframleiðend- um Bandaríkjanna fyrir bandarísk- um dómstólum. Þessi lögsókn skal hafin af bandarískum lögfræðingum, sem nú þegar hafa náð góðum árangri í skaðabótamálum gegn tóbaksiðn- aðinum. Þessir bandarísku lögfræð- ingar skulu hafa náið samstarf með hinni íslensku nefnd sérfræðinga og leikmanna. Laun lögfræðing- anna skulu vera ákveðin prósenta af tilvonandi skaðabótum. Þessi greiðsluaðgerð er algeng í Banda- ríkjunum og kallast „getting paid on contingency bases“ og kostar þvi sækjanda tiltölulega lítið eða ekki neitt. Islenskir lögfræðingar skulu samtímis sækja mál á hendur tób- aksfyrirtækjunum fyrir hönd ís- lenskra einstaklinga og íslensks þjóðfélags í heild fyrir alþjóðadóm- stólnum. Þar sem um er að ræða mikinn fjölda einstakra skattgreið- enda og hagsmuni þjóðfélagsins í heild, þá skal íslenska ríkið standa straum af öllum kostnaði við rekst- ur þessa máls fyrir alþjóðadóm- stólnum en fá endurgreitt hlutfall af tilvonandi skaðabótum. Það er nauðsynlegt að stefnur verði framkvæmdar og málin tekin fyrir sem fyrst, áður en yfirstand- andi samkomulag bandarískra stjórnvalda og tóbaksfyrirtækja tekur gildi, sem mundi verulega hefta alla lögsókn á hendur tóbaks- fyrirtækjunum. Margir hafa líkt reyktóbaksfram- leiðslunni og sölu við hina alræma ópíumdreifingu Englendinga í Kína á sínum tíma og þar af leiðandi ópíumstríð. Nema hvað reyktóbakið gefur framleiðendum og dreifendum margfalt meiri gróða. Jafnframt kvelur reyktóbakið margfalt fleiri manns til dauða en ópium Englend- inga gerði. Munurinn er einnig að Kínveijar reyndu að banna neyslu hins enska ópíums, en heimurinn hefur af „einhveijum ástæðum" gleypt við reyktóbakinu og hefur jafnvel þótt fínt. Þangað til einstakl- ingurinn eða ástvinur hans hefur þurft að þola þrældóm ánetjunar og kvalafullan dauðadag af völdum reyktóbaksins. Af hveiju reyktóbak- ið hefur verið löglegt hingað til er rannsóknarefni út af fyrir sig. Eitt er þó víst að ef reyktóbak væri að koma á markaðinn í dag, þá yrði það stranglega bannað af öllum sið- uðum þjóðfélögum sem hvert annað ógeðslegt baneitur. HELGI GEIRSSON, 11117-159 Street, Surrey, BC, Canada. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.