Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 23 Hundruð þúsunda enn án rafmagns og hita í Quebec Mörgum hætta búin vegna mikils kulda þaki jarðlestarstöðvar. HUNDRUÐ þúsunda íbúa í Quebec-fylki í Kanada voru enn án rafmagns í gær, og hefur svo verið í rúma viku. Næturfrost fór í 35 gráður með vindkælingu í suðvest- urhluta Quebec í fyrrinótt, að því er Canadian Press greinir frá, og var búist við svipuðu veðri áfram, og er óttast að kuldinn geti reynst hættulegur mörgum sem ekki geta hitað upp híbýli sín vegna raf- magnsleysisins. Að degi til er frostið um 15 gráð- ur og að sögn veðurfræðinga er það allt að sjö gráðum kaldara en að meðaltali. Búast má við að frjósi í pípulögnum í óupphituðum hús- um. Talsmaður rafmagnsveitna Quebec sagði að kuldinn gerði erfitt um vik að sinna viðgerðum. „Maður þarf bara að vera úti við í fimm mínútur til þess að átta sig á því að nú er ekki gott að vera uppi í rafmagnsstaur.“ Lucien Bouchard fylkisstjóri hvatti fólk sem ekki hafði raf- magn til þess að leita skjóls hjá ættingjum eða vinum eða í neyð- arskýlum þar sem upphitun væri. „Ég vil hvetja meðborgara mína til þess að veita hættunni athygli. Við erum ekki vön því að búa við þessar aðstæður," sagði Bouchard. Fimmtán hafa látist Að minnsta kosti fimmtán manns hafa látist af völdum veð- ursins, en alls féllu um 100 milli- metrar af frostrigningu í Quebec, austurhluta Ontario og Atlants- hafsfylkjunum. Frostrigning veld- ur því að ísing hleðst upp og af þeim sökum hafa rafmagnsburðar- virki brotnað og raflínur slitnað. Um 400 þúsund þeirra heimila sem eru enn án rafmagns eru í 99 bæj- arfélögum í Monteregie, suður af Montreal. I fyrradag var aflétt opinberu neyðarástandi í höfuðborginni Ottawa, en það ríkti enn í dreifbýl- inu suðaustur af borginni þar sem tugir þúsunda voru enn án raf- magns. Aðfaranótt þriðjudags tókst að koma á rafmagni á 97% Montreal-eyju, en rafkerfi borgar- innar stendur tæpt þar eð fjórar af fimm háspennulínum til hennar eru enn í sundur. „Munaði mjóu“ í Montreal Framkvæmdastjóri rafmagns- veitna fylkisins hvatti til þess að skólar, verslanir og iðnfyrirtæki í borginni verði lokuð enn um sinn þar eð hætta sé á að skyndileg aukning í orkunotkun myndi reyn- ast rafkerfinu ofraun. Bouchard viðurkenndi að kerfið væri við- kvæmt og sagði að á tímabili hefðu stjórnvöld óttast um Montreal þegar fjórar háspennulínur hefðu slitnað. Hefði fimmta h'nan slitnað hefði allt athafnalíf í borginni lam- ast svo dögum skipti. Sagði Bouchard að þarna hefði „munað mjóu“. Margar götur í miðborginni voru lokaðar í gær á meðan slökkviliðsmenn hreinsuðu ís af þökum skrifstofubygginga. Gífur- leg hætta stafaði af klakastykkj- um, sumum allt að 60 cm þykkum, sem féllu af háhýsum og niður á götu. PEUGEOT PEUGE0T 306 SYMBIO FRANSKA LJ0NIÐ HLAÐIÐ STAÐALBUNAÐI Á LÉTTU VERÐI 1600 cc vél • 90 hestöfl • 5 gíra • bein innsprautun regnskynjari á framrúðu • þokuljós að f raman vökva-og veltistýri loftpúðar báðum megin • rafdrifnar rúður að framan • útvarp og segulband stillt með stöng í stýri • hœðarstillanlegt ökumannssœti bílbeltastrekkjarar ^fjarstýrðar samlœsingar með þjófavörn • litað gler • höfuðpúðar i aftursœti niðurfellanleg aftursœti 40/60 rafdrifnir hliðarspeglar • rafgalvaníseraður • hiti í afturrúðu samlitir stuðarar • barnalœsingar á afturhurðum MUNDU: PEUGE0T 306 SYMBI0 - VERÐ: 1.360.000 KR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.