Morgunblaðið - 26.05.1998, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
4
BÆJAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 1998
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kveðst ekki ætla í landsmálapólitík
Tvennt ólíkt
að sigra vegna
verka sinna
eða væntinga
„ÉG ER ánægð með þessa niður-
stöðu og þetta er sætur sigur,“ sagði
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri um úrslitin í Reykjavík. „Ég
er ekki síst ánægð vegna þess að þó
að ég hafi verið ánægð fyrir fjóram
árum var Reykjavíkurlistinn þá
óskrifað blað en nú er búið að skrifa
einn kafla og leggja hann undir dóm
kjósenda og þeim virðist líka hann
nokkuð vel. Það er auðvitað alveg
tvennt ólíkt að sigra vegna verka
sinna eða væntinga sem bomar em
til manns."
Ingibjörg Sólrún var spurð hvort
hún teldi að sigurinn hefði orðið
stærri ef ekki hefði komið upp um-
ræða um fjármál tveggja fram-
bjóðenda Reykjavíkurlistans.
„Það er ómögulegt að segja, en
það er ekkert ólíklegt að það hafi
haft einhver áhrif á kjósendur, til
þess var leikurinn gerður. Hugsan-
lega hefur komið eitthvert hik á
okkar fólk og það jafnvel ekld skilað
sér á kjörstað. Ég hygg það hafi
frekar verið þannig en að þeir hafi
kosið aðra framboðslista. Kannski
hefði níundi maðurinn náðst ef þetta
mál hefði ekki komið upp en það em
ekkert annað en vangaveltur.“
Hefur það verið rætt eftir úrslit-
in hvort Hrannar B. Amarsson
taki ekki til starfa í borgarstjórn
strax?
„Nei, við munum hittast á morg-
un [mánudag] og fara yfir málin.
Það sem skiptir máli er að við gef-
um Hrannari tækifæri til að
hreinsa mannorð sitt og með hvaða
hætti hann gerir það mun hann
væntanlega ræða við okkur um.
Það verður að koma í Ijós hvað út
úr því kemur.“
Búið að hnekkja eignarhaldi
Sjálfstæðisflokksins
Telurðu að þessi úrslit hafi
pólitíska þýðingu í herbúðum sjálf-
stæðismanna; að ná ekki því tak-
marki sínu að vinna borgina aftur?
„Urslitin era út af fyrir sig
stórpólitísk tíðindi, að Sjálfstæðis-
flokkurinn bíði ósigur í tvennum
kosningum í röð í borginni og að
félagshyggjuöflin fái þennan stuðn-
ing. Það em merkileg pólitísk
tíðindi. Mér hefur alltaf fundist
Sjálfstæðisflokkurinn kasta eign
sinni á borgina og í huga mínum er
búið að hnekkja því eignarhaldi.
Borgin er ekki eign eins flokks
Morgunblaðið/Ásdís
Sigrinum fagnað
BORGARFULLTRÚARNIR Steinunn V. Óskarsddttir, fagna með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgar-
Guðrún Ágústsdóttir, Sigrún Magnúsdóttir og fleiri stjóra er úrslitin Iágn fyrir á laugardagskvöld.
heldur borgarbúa og þeir gera eins
og þeir telja sér henta hverju
sinni.“
Sýnist þér sterk útkoma sameig-
inlegra framboða á vinstri væng
sums staðar á landinu koma til með
að hafa varanleg áhrif?
„Það er erfitt að segja nokkuð
um það og ég hef ekki spáð svo
mikið í kosningatölurnar. En það
sem blandast mikið saman í sveit-
arstjómarkosningum em annars
vegar pólitískar línur og hins vegar
stuðningur við einstaklinga. Það
fer því óskaplega mikið eftir þeim
einstaklingum, sem, ekki síst, leiða
listana um allt land, hvemig úrslit-
in ráðast. Mér sýnist að víða séu
menn að ná verulegum árangri, t.d.
á Húsavík og Austfjörðum, en ann-
ars staðar era menn að tapa fylgi
og ég held að það ráðist alltaf
svolítið af einstaklingunum sem
era í framboði bæði fyrir listana og
fyrir andstæðingana.“
Má búast við að samstarf
Reykjavíkurlistans haldi áfram eft-
ir það kjörtímabil sem nú fer í
hönd?
„Mér fyndist það ekki ótrúlegt
en það ræðst hins vegar af
kjörtímabilinu. Þetta hefur verið
mjög gott og öflugt samstarf á
Arni Sigfússon oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík hyggst hætta sem leiðtogi þeirra
Fyrst og fremst
sigur borgar-
stjóra - með
naumindum þó
„ÞETTA er ákvörðun meirihluta
Reykvíkinga og hún stendur
auðvitað. Það er hins vegar athygl-
isvert að mikill meirihluti þeirra
hafnar í raun R-listanum, 45%
þeirra styðja D-listann og
fjórðungur þeirra sem merktu við
R-listann gera alvarlegar athuga-
semdir við hann. Þetta er fyrst og
fremst sigur borgarstjóra, þó með
nokkmm naumindum,“ sagði Arni
Sigfússon, efsti maður á lista Sjálf-
stæðisflokksins, aðspurður um úr-
slitin í Reykjavík.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir
Sjálfstæðisflokkinn að vera ekki
ráðandi í málefnum borgarinnar
annað kjörtímabilið í röð?
„Ég tel að það hefði verið hægt
að setja þetta i stærra samhengi
eftir þessa nótt að Sjálfstæðis-
flokkurinn kemur mjög sterkur út
á landsvísu, hann styrkir stöðu
sína meðan Ingibjörg Sólrún bætir
við sig 0,6%. Eg sé því ekki annað
en staða flokksins sé sterk og að
frekar megi horfa á stöðuna sem
einangrað íyrirbæri í Reykjavík
sem tengist frekar persónu hennar
en nokkru öðru. Ég tel því stöðuna
ekki mjög alvarlega fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn sem heild. En ég
tel hins vegar að úrslitin geti orðið
Reykjavík til tjóns, öll okkar
áhersla hefur verið á þörf á þróun
og breytingum í stefnu borgarinn-
ar og ég hef meiri áhyggjur af því
og þeirri stöðnum sem hefur ríkt
og það hefur ekki komið fram hjá
R-listanum nein hugmyndafræði
til að vinna gegn því.“
Arni sagði að auk þess þyrfti að
horfa til árangurs í samstarfi
Reykjavíkurlistans: „Það snýr að
því hvort samstarf þeirra flokka
sem standa að R-listanum, en gera
það þó ekki, er líklegt til árangurs
aftur. Alþýðuflokkurinn er nánast
horfinn, það kemur skýi-t fram í
Reykjavík og það kemur fram við-
ast hvar annars staðar. Eftir
stendur sterkara Alþýðubandalag
sem hefur nánast gleypt Alþýðu-
flokkinn og Framsóknarflokkurinn
hlýtur að hugleiða með hvaða
hætti hann ætlar að haga sam-
starfi við R-listann. Þar hefur ver-
ið gefið í skyn að þetta verði
síðasta kjörtímabilið í þessu sam-
starfí og það henti honum ekki þó
að menn standi við orð sín gagn-
vart kjörtímabilinu nú. Það em því
allar líkur á að samstarf R-listans
á þessu kjörtímabili verði með allt
öðram hætti en því síðasta er þeim
tókst tiltölulega vel að jafna
ágreining, að okkar mati með að-
gerðarleysi.“
Hefurðu frekari skýringar á úr-
slitunum í Reykjavík?
Sé ekki langtímaáhrif
„í sjálfu sér ekki aðrar en þær
sem ég hef þegar sagt varðandi
Ingibjörgu og það er augljóst að
það er naumur meirihluti sem veit-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
í hófi sjálfstæðismanna
ÁRNI Sigfússon og Bryndís Guðmundsdóttir koma til ardagskvöld. Þar tóku JúlíusVífill Ingvarsson og Jóna
hófs sjálfstæðismanna á Hótel Loftleiðum á laug- Gróa Sigurðardóttir borgarfulltrúar á móti þeim.
ir henni brautargengi með því að
kjósa R-listann.“
Má ímynda sér að breytingar
hjá forystu sjálfstæðismanna í
Reykjavík skömmu fyrir kosning-
arnar 1994 hafi veikt stöðuna og
hafi enn áhrif?
„Um það er erfitt að fullyrða en
það kann vel að vera. Allur ágrein-
ingur sem kemur þannig fram
kann að hafa áhrif til lengri tíma.
Það er stráð efasemdum sem
kunna að hafa áhrif en ég sé þó
ekki að það hafi þessi lang-
tímaáhrif.
Mér fannst ég hafa mjög
skamman tíma síðast og taldi þá
að ég hefði getað breytt stöðunni
ef ég hefði fengið viku til viðbótar.
Mér finnst ég ekki geta yfirfært þá
reynslu á úrslitin nú og sé ekki að
okkur hefðu nægt örfáir dagar nú
til að snúa stöðunni við.“
Er líklegt að Reykjavíkurlistinn
hefði unnið stærri sigur ef ekki
hefði komið til þess sem Ingibjörg
Sólrún kallaði ófrægingarherferð á
hendur tveimur frambjóðendum
listans?
„Ég vil nú fyrst vísa á bug
orðinu ófrægingarherferð þvi ef
þetta var slík herferð þá má segja
að fjölmiðlamenn séu daglega í
slíkum herferðum þegar þið reynið
að draga fram staðreyndir. Það
mál sem kom upp þurfti að skýra.
Það varðar fjármálaferil en ekki
einstaka tilfelli og það hefur áhrif
því frambjóðendur og gerðir
þeirra skipta máli. Hluti af málinu
er kominn upp á borðið, fjár-
málaóreiða og ferill í fjármálum og
síðan kemur upp ótti Ingibjargar
við opinbera ákæra. Það hlýtur að
eiga eftir að skera úr um það.
Þetta mál þurfti að skýra og það
er greinilegt að borgarbúar voru
sama sinnis vegna þess að það seg-