Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.03.1999, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Háskólinn á Akureyri og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar Undirbúningur að stofn- un Háskóla norðurslóða Morgunblaðið/Kristján NÍELS Einarsson, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, undirrita samning um samstarf stofnananna. Þrjú fíkniefnamál komu upp á tveimur dögum Alls voru 26 manns kærðir SKRIFAÐ var undir samning um samstarf Háskólans á Akureyri og Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar í gær en stofnanirnar gerðu með sér samkomulag um tiihögun samstarfs um málefni norðurslóða. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, sagði að markmiðið væri að efla rannsóknir og kennslu á sviði norðurslóða og sjálfbærrar þróunar. „Við munum samnýta ýmsa þætti hjá stofnununum til að ná þessu markmiði, svo sem bókasafn, að- stöðu fyrir fræðimenn, húsnæðismál og fleira. Eg sé fyrir mér mikil um- svif í kennslu og rannsóknum á sviði norðurslóða í framtíðinni, en stærsta málið á þeim vettvangi er að koma á fót Háskóla norðurslóða sem verður samstarfsverkefni norðlægra há- skóla í þeim 8 löndum sem eiga aðild að norðurskautsráði,“ sagði Þor- steinn. Jón Haukur Ingimarsson, sérfræð- ingur við Stofnun Vilhjálms Stefáns- sonai', vinnur að undirbúningi fundar sem haldinn verður í apríl um Há- skóla norðurslóða, en þar koma sam- an stjórnarmenn í undirbúnings- nefnd ásamt fulltrúum frá norrænu ráðherranefndinni, Evrópusam- bandsins, Bandaríkjunum og Kanada. „Stefnan er sú að stofna Há- skóla norðurslóða formlega á þessu ári og við væntum þess að kennsla geti hafist í nokkrum háskólum haustið 2000. Þetta verður það sem við köllum háskóli án veggja þar sem lögð verður áhersla á kennslu á þver- faglegum sviðum sem tengjast norð- urslóðum, eða háskólanám í norður- slóðafræðum,“ sagði Jón Haukur. Gert er ráð fyrir að nemendur við Háskóla norðurslóða geti stundað nám sitt við ýmsa háskóla sem aðild eiga að honum og einnig að skipti geti orðið á kennurum. Vilhjálmssafn í undirbúningi „Samningurinn við Háskólann á Akureyri gerir okkur enn frekar fært að sinna hlutverki okkar í mál- efnum norðurslóða og efla þátt Is- lendinga í alþjóðlegu samstarfi sem snertir sjálfbæra þróun,“ sagði Níels Einarsson, forstöðumaður Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar. „Við fáum aðgang að ýmsum björgum innan veggja háskólans sem nýtast okkur og gistifræðimönnum á okkar vegum vel.“ Meðal verkefna sem nú er unnið að nefndi Níels að í samstarfi við Bókasafn Háskólans á Akureyri hef- ur verið korhið upp vísi að sérhæfðu norðurslóðabókasafni á sviði auð- lindanýtingar. Þá er stefnt að því að koma upp Vilhjálmssafni, þar sem m.a. verður lögð áhersla á að kynna hvemig arfleifð hans tengist málefn- um norðurslóða nú um stundir. Þetta verkefni er unnið í samstarfi við Há- skólann á Akureyri og Háskólann í Dartmouth. í næsta mánuði verður sett upp eins konar vinnusmiðja um gerð áætlana um sjálfbæra þróun á norðurslóðum og þá er á vegum stofnunarinnar unnið að gerð marg- miðlunarverkefnis um Vilhjálm Stef- ánsson, þar sem m.a. er verið að setja dagbækur hans á stafrænt form til að gera þær aðgengilegri al- menningi. Alþjóðleg miðstöð norðurslóða „Við steftium að því að Akureyri verði alþjóðleg miðstöð í málefnum norðurslóða og höfum orðið vör við mikinn áhuga erlendra samstarfsað- ila okkar á að tengjast betvu- íslensk- um fræðimönnum og stofnunum. Það er góður grundvöllur fyrir ís- lendinga að taka forystu í ýmsum málum er tengjast norðurslóðum, sem er hraðvaxandi málaflokkin-,“ sagði Þorsteinn Gunnarsson. ATLI Guðlaugsson, skólastjóri Tón- listarskólans á Akureyri, hefur sagt upp starfi sínu og mun hann láta af störfum í lok skólaársins í sumar. Atli sagði ástæðu uppsagnarinnar óánægju með kjaramál. Hann sagði að einnig væri mikil óánægja meðal kennara skólans. og væru margir þeirra famir að leita fyrir sér að öðru starfi. „Eg hef frá því í maí á síðasta ári ítrekað óskað eftir viðræðum við bæjaryfirvöld. Þar á bæ þótti mönnum ekki ástæða til að ræða við mig fyrr en ég setti íbúðarhúsið á sölu en þá var það orðið of seint TUTTUGU og sex manns á aldrin- um 15 til 18 ára hafa síðustu tvo daga verið kærðir vegna fíkniefna- notkunar og eða sölu á Akureyri. Tvö fíkniefhamál komu upp á sunnudag en í kjölfar þeirra komst rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri á snoðir um þriðja málið á mánudag, en upplýsingar bárust um að ungur maður hefði verið að bjóða fíkniefni til sölu í bænum. Lögregla hafði einnig upplýsingar um viðskiptavini mannsins. Daníel Snorrason, lögreglufull- trúi í rannsóknardeild, sagði að í kjölfarið hefðu 17 manns sem mál- inu tengdust verið færðir til yfir- heyrslu og viðurkenndu allir neyslu fíkniefna. I þeim þremur málum sem upp hafa komið í bæn- um á sunnudag og mánudag hafa því alls 26 manns verið kærðir. Að sögn Daníels er þetta með stærri málum sem upp hafa komið, þ.e. sjaldan hafa jafnmargir verið teknir á einu bretti og í þetta skipti. og ákvörðun mín er endanleg,“ sagði Atli. Miklar breytingar og aukið vinnuálag Atli tók við stöðu skólastjóra í ágúst 1997 og frá þeim tíma hafa orðið miklar breytingar á starfsem- inni, sem kallað hafa á aukið vinnuá- lag í skólanum. Tónlistarskólinn á Akureyri er fjölmennasti skóli landsins, með 450 nemendur í hljóð- færanámi og um 500 nemendur í tónlistarforskóla í grunnskólum bæjarins. Rúmlega 30 kennarar starfa við skólann. í tengslum við fíkniefnamálið fann lögregla þýfi úr innbrotinu í bókamarkaðinn um liðna helgi, en þaðan var stolið hljómflutnings- tækjum, þráðlausum síma og tölu- verðu magni af geisladiskum. Þýfið fannst í bíl eins þeirra sem tengj- ast málinu. Málum íjölgar og aldurinn lækkar „Það er engin spurning að neysla fíkniefna fer mjög vaxandi hér en það sem við höfum mestar áhyggjur af er að aldur neytenda er alltaf að færast neðar,“ sagði Daníel, en rannsóknardeild lög- reglunnar á Akureyri hefur haft af- skipti af ungmennum allt niður í 14 ára aldur vegna fíkniefnaneyslu. A árunum 1996-1998 komu upp um 40 fíkniefnamál á ári á Akureyri, en til samanburðar má nefna að ár- ið 1994 voru þau 10 og helmingi fleiri ári síðar eða 20. Það sem af er þessu ári hafa komið upp 15 fíkni- efnamál í bænum. „Tónlistarskólinn heyrir nú undir sömu skólanefnd og grunnskólarnir og kennarar skólans eru að kenna frá leikskólastigi upp í háskólastig. Við óskuðum eftir því að fá sömu viðbótargreiðslur og grunnskóla- kennarar fengu síðastliðið vor en án árangurs. Það er ólíkt að stjórna 450 nemenda skóla í einu húsi eða vera með puttana í kennslu 1.000 nemenda úti um allan bæ.“ Atli sagði að um 100 nemendur væru á biðlista eftir að komast í nám í skólanum og eftir að tónlist- arforskólinn fari að virka í grunn- skólunum verði ásóknin enn meiri. Mikil óánægja með kjaramál í Tónlistarskólanum á Akureyri Skólastjórinn segir upp Atvinnulif á landsbyggðinni og alþjóðavæðing Þrýstingur verður á fyrirtæki að sameinast ALÞJÓÐAVÆÐINGIN mun hafa áhrif á atvinnulíf á landsbyggðinni, samkeppni mun aukast, verð á vör- um og þjónustu lækka og valkostum fólks um búsetu og starfsvettvang fjölga. Þrýstingur verður á fyrir- tæki að sameinast og stækka til að geta fjármagnað rannsóknir og þró- un, tæknivæðingu og markaðsstarf. Þetta kom fram í máli Andra Teits- sonar, framkvæmdastjóra Þróunar- félags íslands hf., á hádegisverðar- fundi Verslunarráðs íslands á Foss- hótel KEA í gær, en umræðuefni fundarins var atvinnulífið á lands- byggðinni og alþjóðavæðing. „Þegar við veltum því fyrir okkur hvort of stór fyrirtæki yrðu til við sameiningu Útgerðarfélags Akur- eyringa og Samherja eða KEA og KÞ er hollt að hafa í huga að Volvo verksmiðjumar í Svíþjóð reyndust of veikburða til að standast sam- keppni á alþjóðavettvangi og urðu að sameinast stærra fyrirtæki,“ sagði Andri. Andri gerði að umtalsefni að þekking eða mannauður í fyrir- tækjum yrðu sífellt mikilvægari auðlindir en þegar svonefndur þekkingarstarfsmaður ætti í hlut þyrfti nýja hugsun í stjómun fyrir- tækja. Þegar mikil þekking hefur orðið til á meðal fólks á ákveðnu sviði er líklegt að upp geti sprottið arðvænlegur atvinnurekstur, þetta ætti við um tölvuþjónustu, fjár- málaþjónustu og framleiðslu og markaðssetningu matvæla, en það væri einmitt homsteinn í atvinnu- lífi í Eyjafirði. Háskólinn á Akur- eyri væri kjörinn vettvangur til að ala upp þekkingarstarfsmenn sem seinna meir myndu leggja sitt af mörkum til að auka fjölbreytni og kraft í atvinnulífi við Eyjafjörð. „Ég tel að uppgangur Háskólans á Akureyri sé það markverðasta sem gerst hefur í atvinnumálum við Eyjafjörð á þessum áratug og á sama hátt lykilatriði fyrir framtíð- ina að hann haldi áfram að dafna,“ sagði Andri. Lækkun ríkisútgjalda vænleg leið í byggðastefnu Um það hvort landsbyggðin væri spennandi kostur fyrir langskóla- gengið fólk sagði hann að í ljósi þess hve tiltölulega fáir sneru heim til átthaganna eftir að hafa stundað nám í Reykjavík eða í útlöndum hlytu menn að draga þá ályktun að fram til þessa að minnsta kosti væri ekki svo. Inn í það spiluðu tekju- möguleikar, atvinna maka, framboð á þjónustu, afþreyingu og menningu svo eitthvað væri nefnt auk þarfar fyrir samskipti við fólk sem stundað hefði nám á sama sviði. „Þess vegna kann að vera að samfélag þurfi að vera af ákveðinni stærð til að hald- ast vel á slíku fólki og Akureyri er það tvímælalaust," sagði Andri. Með landsbyggðinni ynnu hins veg- ar ýmsir þættir, nálægð við náttúru, minni vegalengdir, færri glæpir og fleira. Andri ræddi einnig um upplýs- ingabyltinguna, ferðaþjónustu, op- inber umsvif og umhverfismál í er- indi sínu en á öllum sviðum ætti landsbyggðin möguleika. Sagði hann það íhugunarefni fyrir lands- byggðarfólk hvort lækkun ríkisút- gjalda væri vænleg leið í byggðar- stefnu. Slíkt myndi hægja á fjölgun ríkisstarfsmanna, einkum í Reykja- vík, en í staðinn yrði hægt að lækka skatta. Landsmenn hefðu þá úr meira fé að spila og gætu sett aukið fjármagn í uppbyggingu atvinnulífs á eigin forsendum. ' ' ' Morgunblaðið/Kristján FUNDUR Verslunarráðs um atvinnumál á landsbyggðinui .og al- þjóðavæðingu var vel sóttur, en hér.sjást nokkrir fundarínanna. Lítil samfélög standa yfirleitt vel Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Verslunarráðs ís- lands, taldi að sú lífskjarabylting sem framundan væri myndi einnig ná til landsbyggðarinnar, þau nýju störf sem væru að verða til þyrftu einnig að verða til á landsbyggðinni. Sagði Vilhjálmur nauðsynlegt að ná fleira háskólamenntuðu fólki út á landsbyggðina og lagði hann áherslu á að landsbyggðin mætti ekki einangrast. Nefndi hann að lítil samfélög stæðu sig yfirleitt vel, hefðu mikla aðlögunarhæfni og sveigjanleika. Þá bætti hann við að miklar breytingar væru að verða á lífsstíl manna og á því sviði væri ýmsilegt jákvætt fyrir landsbyggð- ina, eins og t.d. aukin ásókn fólks í að búa í smærri og öruggari samfé- lögum, en aðrar breytingar hefðu neikvæðari áhrif. Tækifærin væru til staðar, en menn yrðu að bretta upp ermamar. Vandamál sveitarfélaganna væri ekki allt fólkið sem flytti í burtu, viðfangsefni þeirra yrði að vera að ná inn fólki í stað þess sem færi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.