Morgunblaðið - 19.03.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 19.03.1999, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Brot riðu yfír Bessa ÍS og Framnes ÍS í afspyrnuvondu veðri sem gekk yfír í fyrrinótt Morgunblaðið/Halldór INGIMAR Halldórsson, útgerðarstjóri Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal, kannaði tjónið á skipinu í gær og styður hér annan þeirra í land sem urðu fyrir meiðslum þegar brotið reið yfir Bessa í fyrrinótt. Millj ónatj ón en meiðsli smávægileg TVEIR menn hlutu minniháttar meiðsli þegar brot reið yfir togar- ann Bessa ÍS laust eftir klukkan eitt í fyrrinótt þar sem hann var staddur á Dohrn-banka á leið til hafnar. Dæld kom á síðu skipsins og nemur tjónið milljónum króna að sögn Ingimars Halldórssonar, útgerðarstjóra Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal sem gerið skipið út. Þá riðu tvö brot yfir Framnes ÍS sem Gunnvör hf. gerir út í fyrr- inótt, en tjón var óverulegt og menn sakaði ekki. Um 20 manns voru um borð í Bessa ÍS þegar þetta gerðist, þar á meðal maður utan áhafnar sem var um borð til að reyna þriðju spil- vindu skipsins, en hún var nýlega sett upp til að hægt sé að draga tvö troll samtímis. Akveðið hafði verið að nýta bræluna og sigla með tvo menn í land. A milli 9-10 vindstig voru á miðum þegar brotið reið yfir Bessa, en að sögn Barða Ingi- bjartssonar skipstjóra var ölduhæð ekki mikil eða aðstæður til sigling- ar sérstaklega erfiðar. Menn flugu úr kojum „Þetta var stakt brot sem komið gæti nánast hvenær sem er. Tals- vert högg kom á skipið og það mik- ið að menn köstuðust til og það sem ekki var ólað fast fór á fleygi- ferð,“ segir Barði. „Menn flugu út úr kojum og þeir sem voru vakandi hentust til þar sem þeir voru staddir. Einna verst fóru þeir sem sátu í sjónvarpskróknum, fengu hnykki á sig og einn fékk í sig hillu sem slitnaði upp við höggið." Hann segir að beðið hafi verið meðan tjónið var kannað og hlúð að mönnum, en síðan hafi verið siglt í land. Skipið til hafnar á Isa- firði laust fyrir klukkan 11 í gær- morgun. Dæld myndaðist á síðu skipsins á móts við afturgálgann við brotið. Ingimar segir að tjónið verði ekki metið fyrr en fulltrúar trygginga- félagsins komist vestur og batt hann vonir við að það tækist síð- degis í gær. Hann telji þó tjónið töluvert og að kostnaður við við- gerð gæti skipt milljónum króna. Skipið sé hins vegar tryggt og hann geri sér því von um að tjónið verði bætt að ftillu. „Fyrir utan skemmdirnar á síð- unni hefur ekkert tjón komið í ljós. Við vitum þó að vatn fór inn á spil- mótor. Skipið er því sjóhæft en við munum reyna að gera við til bráða- birgða til að styi-kja það fyrir sigl- ingu,“ segir Ingimar. Hann kveðst vona að viðgerð taki ekki nema ör- fáa daga. „Ég var sofandi í koju þegar þetta gerðist, hentist tij en tókst að hanga í henni,“ segir Óskar Gunn- STARFSMENN Hraðfrystihússins hf. ásamt viðgerðarmönnum sem komu skömmu fyrir hádegi í gær til að skoða skemmdirnar sem urðu um borð í togaranum Bessa ÍS. arsson vélstjóri. „Flestir voru þó vakandi, en alla vega sex voru í koju.“ Ekki alvarlegir áverkar Mennirnir sem áverka fengu voru sendir til skoðunar á sjúki-ahúsinu á Isafirði, en meiðsli þéirra reyndust ekki alvarleg. Einn var rifbeins- brotinn en annars var aðallega um skrámur, mar og tognanir að ræða. Gísli Skarphéðinsson, skipstjóri á Framnesi, segir að brotsjóimir sem riðu yfii' skipið hafi aðeins valdið skemmdum á rekkum. Hann segii' að einnig þurfi að yfirfara slöngubát sem var festur við rekkana og að auki tvo björgunai'báta sem féllu sjálfkrafa niður og blésu út þegar annar brotsjórinn reið yfir. Eins og Bessi var Framnesið á leið af Dohrnbanka og til hafnar og segir Gísli að veður hafi verið mjög slæmt. Fundað eftir helgi um lokun rækjuverksmiðjunnar á Kópaskeri TVEIR brotsjóir riðu yfir togarann Franmes IS en aðeins urðu óverulegar skemmdir og enginn slasaðist. Hugmynd#um að auka veiði í Öxarfirði STEFNT er að því ræða á fundi á mánudag þá alvarlegu stöðu í at- vinnumálum sem fyrirsjáanleg er á Kópaskeri í kjölfar þess að Fisk- iðjusamlag Húsavíkur, FH, ákvað á miðvikudag að loka rækjuvinnslu félagsins á Kópaskeri tímabundið milli vertíða, eða frá maí og fram í október. Þá verður dregið úr rækjuvinnslu á Húsavík og vöktum fækkað. Gripið er til þessara aðgerða til að mæta erfiðum ytri skilyrðum í rækjuveiðum og vinnslu. Um 15-20 manns hafa verið fastráðnir hjá fé- laginu á Kópaskeri og svipaður fjöldi lausráðinn yfir vertíðina frá hausti fram á vor. Á fundinum á mánudag munu fulltrúar í sveitar- stjórn, verkalýðsfélagi og FH bera saman bækur sínar og fara yfir stöðuna. Starfsfólki á Kópaskeri var til- kynnt um ákvörðun stjórnar FH á fundi síðdegis á miðvikudag. Á fundinum var vaipað fram þeirri hugmynd hvort möguleiki væri á að auka veiði í Öxarfirði um 200 tonn, úr 1.500 tonnum í 1.700. Ef FH bætti einhverju við yrði hægt að halda uppi vinnu fram í júní, þá tækju við sumarfrí en að þeim loknum væri stutt í að starfsemi hæfist í sláturhúsi þar sem ævin- lega vantaði fólk til starfa. Rækju- vertíðin hæfist svo um svipað leyti og sláturtíð lyki. Þessi tillaga fékk mikinn hljómgrunn og verður ef- laust til umræðu á fundinum næsta mánudag. Einnig var rætt á fund- inum hvort leita ætti til ríkisstjórn- ar um að hún legði til 100 til 200 tonna byggðakvóta sem fyrirtækið gæti breytt í rækju. Sveitarstjórinn bjartsýnn á að lausn fínnist „Vissulega er þetta nokkurt áfall, en ég vona að ástandið sé ekki viðvarandi. Fólk hér þekkir ekki atvinnuleysi og ég vona að það kynnist því ekki,“ sagði Stein- dór Sigurðsson, sveitarstjóri Öxar- fjarðarhrepps. Hann sagði að frek- ar hefði vantað fólk til starfa, t.d. hefði ekki tekist að fullmanna slát- urhúsið síðasta haust og þá vant- aði fólk til starfa hjá Silfurstjörn- unni. Steindór sagði að byrjað yrði að vinna að lausn málsins strax eftir helgi og hann 11701 ekki öðru en þeir sem að kæmu fyndu hana. „Það þarf að brúa þetta bil og ég vona að okkur takist það,“ sagði Steindór. „Ég er alls ekki svart- sýnn, ég held að þetta muni ganga upp með einhverjum hætti.“ Stein- dór sagði að renna þyrfti styrkari stoðum undir atvinnulífið á staðn- um og verið væri að vinna í því, en á þessari stundu væri ekki hægt að segja fyrir um hvað úr yrði. „Það hefur verið mjög mikil atvinna hérna, en þrátt fyrir það höfum við verið að huga að atvinnutækifærum af öðru tagi. Atvinnulífið þarf að vera fjölbreyttara," sagði Steindór. Leggjum ekki árar í bát Guðfinna Sigurbjörnsdóttir, trúnaðarmaður í rækjuvinnslu FH á Kópaskeri, sagði að ef allt færi á versta veg myndi það hafa gífur- leg áhrif á mannlíf á staðnum. „Þetta verður auðvitað mikið áfall ef illa fer, en menn vona að lausn finnist. Við erum ekkert á því að leggja árar í bát, það er ekkert uppgjafarhljóð í okkur, enda þýðir ekkert að gefast upp strax,“ sagði Guðfinna. Hún sagði að í allan vetur hefði verið mjög mikil vinna í rækju- vinnslunni og sárlega vantað fólk til starfa. Unnið er á tvískiptum vöktum alla virka daga og þá er að jafnaði unnið í 10 tíma á laugardög- um. Fólk væri því vant mikilli vinnu. Fréttir af fyrirhugaðri lokun rækjuverksmiðjunnar væru svo nýtilkomnar að menn væru ekki mikið farnir að spá í hver framtíðin yrði. Alls eru 117 manns í verka- lýðsfélaginu á staðnum og þar af starfa á milli 30 og 40 manns í rækjunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.