Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.04.1999, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 13. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA Roma stöðv- aði sigur- göngu Lazio FRANCESCO Totti var hetja AS Roma er lið- ið stöðvaði 17 leikja sigurgöngu Lazio í 1. deild ítölsku knattspyrnunnar. Roma hafði ekki sigrað í grannaslag liðanna í síðustu 19 skiptin þar til liðin mættust á Óiympíuleik- vanginum í Róm á sunnudagskvöld. Totti lagði upp tvö mörk fyrir Roma og gerði síð- asta mark liðsins. Leikmenn Lazio áttu erfitt uppdráttar og misstu tvo menn út af með rauð spjöld. Leikmenn AC Milan komst í annað sæti deildar- innar með því að sigra Parma 2:1 á heimavelli um helgina. Christian Abbiati, markvörður Milan, varði vel í leiknum og kom í veg fyrir að Parma næði að skora jafn mörg mörk og liðið gerði í fyrri leik liðanna í vetur, en þá fóru leikar 4:0 fyrir Parma. Mílanóliðið, sem hefur ekki tapað leik í síðustu fimm leikjum, virðist nú eina liðið sem get- ur veitt Lazio keppni um titilinn þegar sex um- ferðir eru eftir. Alberto Zaccheroni, þjálfari liðs- ins, er hins vegar jarðbundinn og segir að staðan gæti breyst á nokkrum vikum og hann spyrji að leikslokum. Fiorentina gaf eftir annað sætið, á markatölu, er liðið gerði jafntefli á heimavelli gegn Bari. Miguel Gu- errero jafnaði fyrir Fiorentina á síðustu mínútu leiksins. Fiorentina hefur ekki náð sér á strik frá ára- mótum þrátt fyrir að Gabriel Batistuta sé farinn að leika á ný í sókn liðsins. Reuters MASSIMILANO Cappioli fagnar marki sínu gegn Juventus ásamt sænska landsliðsmann- inum Kennet Andersson, en Hollendingurinn Edgard Davis er ekki ánægður með það. Inter lék í fyrsta skipti í Salemit- ana í hálfa öld en gestimir vilja án efa gleyma þeirri ferð því heima- menn, sem era í harðri fallbaráttu, unnu 2:0 við mikinn fögnuð 40 þús- und áhorfenda. Undir lok leiksins var Ivan Zamorano, Inter, rekinn af velli fyrir mótmæli. Fátt hefur gengið upp hjá Inter í vetur þrátt fyr-ir þjálfaraskipti og liðið er langt frá efstu liðum. Allt leit út fyrir að Juventus væri með unninn leik í höndunum gegn Bologna. Filippo Inzaghi hafði möguleika á að koma liði sínu í 2:0 með því að skora úr vítaspymu. Francesco Antonioli, markvörður Bologna, varði hins vegar frá Inzaghi og á næstu 30 mínútum tókst gestunum að komast yfir með tveimur mörkum og Bologna gerði sér vonir um sinn fyrsta sigur á heimavelli Juventus í 19 ár. Juvent- us, sem lék án Zinedine Zidane, náði hins vegar að jafna níu mínút- um fyrir leikslok með marki frá Angelo Di Livio. Edmundo sagt að þroskast ; GIOVANNI Trappatoni, þjálfari ítalska stórliðsins Fi- I orentina frá Flórens, hefur | sett brasilíska framherjanum j Edmundo úrslitakosti. Annað J hvort þroskist hann og hegði sér eins og fullorðinn maður J eða fari frá félaginu. Trappatoni réðst harka- lega á Brasilíumanninn á æf- ingu liðsins á miðvikudag og sagði honum að hætta fífla- látum í eitt skipti fyrir öll. | „Viljirðu ekki leika fyrir hönd félagsins skaltu láta okkur vita og fara fram á S sölu,“ á þjálfarinn að hafa sagt við Edmundo. „Við höf- um allir þurft að umbera sér- % visku þína og neikvæði í vet- I'í ur. Nú er komið að þér að axla ábyrgðina, því án þess > að hafa hausinn í lagi kemstu ekkert áleiðis í lífinu - þrátt : fyrir alla hæfileikana," bætti hann við, samkvæmt frétt stórblaðsins Gazzetta dello Sport.. Edmundo hefur verið afar t mislyndur á leiktíðinni og ; oftsinnis sagt við fréttamenn | að hugur hans leitaði heim | til Brasilíu. Steininn tók þó | úr er hann tilkynnti um and- í lega vanlíðan í febrúar og j missti af þremur leikjum j liðsins er hann var við glaum ; og gleði á hinni árlegu kjöt- kveðjuhátíð í heimaborginni, Rio de Janeiro. j Fiorentina var þá á toppi | ítölsku 1. deildarinnar og Edmundo hafði leikið frá- ; bærlega í framlínu liðsins við ; hlið argentínsku stórstjörn- j unnar Gabriels Omar Batistuta. Sá síðarnefndi meiddist hins vegar illa og missti marga leiki úr, en það 5 breytti ekki áformum Ed- í mundos um að sækja kjöt- j kveðjuhátíðina. Fyrir vikið er hann afar óvinsæll innan liðsins og félagar hans saka | hann um svik. Batistuta sjálfur hefur 1 gagnrýnt félaga sinn og sak- j að hann um eigingirni og > sjálfselsku, einmitt þegar lið- j ið og félagarnir hafi þarfnast : hans hvað mest. „Ég tala aldrei við hann utan æfinga," sagði Batistuta í viðtali og j átti þá við Edmundo. „Hvers | vegna ætti ég líka að eyða orku í það?“ Chelsea dregur J CHELSEA minnkaði forskot Arsenal og Manchester United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Aston Villa vann sinn fyrsta sigur i 11 leikjum og Everton vann Coventry í fall- baráttuslag. Celta skellti Real Madríd CELTA Vigo tók Real Ma- drid í kennslustund í spönsku deildinni um helgina og vann 5:1. John Toshack, þjálfari Madrídarliðsins, sagði að það væri endanlega úr leik í bar- áttunni um spánska meistara- titilinn og taldi að fátt gæti komið í veg fyrir sigur Barcelona. „Nú verðum við að taka einn leik fyrir í einu og sjá til hver niðurstaðan verð- ur í vor,“ sagði Toshack, en lið hans er 10 stigum á eftir Barcelona. Með sigrinum tókst Celta Vigo að komast í annað sæti á kostnað Valencia, sem tapaði dýrmætum stigum er það gerði jafntefli við Extrema- dura. Barcelona hefur sjö stiga forystu í spönsku 1. deildinni, en liðið vann Tenerife 3:2 Tore Andre Flo og og Gustavo Poyet, sem er nýbyrjaður að leika eftir meiðsli, tryggðu Chelsea sigur og leikmenn þess halda enn í vonina um að þeir geti siglt fram úr tveimur efstu liðunum undh- lok tímabilsins og hampað titlinum eftir- sótta í vor. Ray Wilkins, þjálfari Chelsea, var brattur eftir leikinn og sagði að liðið væri komið á ný í bar- áttu um meistaratitilinn. Liðið er í þriðja sæti, tveimur stigum á efth- Manchester United, sem er í fyrsta sæti. Fyrsti sigur Aston Villa í 11 leikium Aston Villa sigraði í fyrsta sinn í ellefu leikjum í úrvalsdeildinni er liðið lagði Southampton 3:0. Mark Draper, Julian Joachim og Dion Dublin skoruðu fyrir Aston Villa og tryggðu liðinu langþráðan sigur. Southampton átti erfitt uppdráttar í leiknum. Claus Lundekvam var rek- inn út af fimm mínútum fyrir leik- hlé, en félagar hans í Southampton mótmæltu brottrekstrinum kröftug- lega. Arnar Gunnlaugsson var í byrjun- arliði Leicester er það mætti West Ham á heimavelli sínum í leik hinna glötuðu tækifæra. Ian Wright var í liði West Ham eftir meiðsli og fékk tvívegis góð tækifæri til þess að skora fyrir lið sitt, en var fyrirmunað að koma boltanum í netið. Arnar átti einnig tækifæri til þess að skora fyr- ir Leicester en Shaka Hislop, mark- vörður West Ham, varði vel frá hon- um. Leicester er í 13. sæti úrvals- deildarinnar og virðist ætla að kom- ast hjá fallbaráttu. Kólumbíski leikmaðurinn Ha- milton Richard gerði sitt 18. mark á leiktíðinni fyrir Middlesbrough gegn Charlton um helgina. Richard lagði einnig upp síðara mark liðsins fyi'ir Robbie Mustoe. Gary Pallister, fyrr- verandi leikmaður Manchester United, lék sinn 500. deildarleik gegn Charlton. Ógöngur Forest Sorgarsaga Nottingham Forest í úrvalsdeildinni heldur áfram. Nú tapaði liðið fyrir Derby og gerði Horacio Carbonari eina mark leiks- ins. Ekki kom að sök fyrir Derby þó að Russel Hoult, markverði liðsins, væri vikið af velli í leiknum því undir lokin var Richard Gough, Notting- ham Forest, einnig vikið af velli fyrir brot á Paolo Wanchope. Eftir leikinn sagði Nigel Wray, stjórnarmaður Nottingham Forest, af sér. Ef fram fer sem horfir setur Nott- ingham Forest vafasamt met í úr- valsdeildinni. Liðið er nú með 21 stig þegar fimm leikir eru eftir, en það lið sem hefur fengið fæst stig á einu keppnistímabili er Ipswich Town, sem féll með 27 stig árið 1995. Everton tókst að komast af fall- svæðinu með 2:0 sigri á Coventry. Kevin Campell, sem er í láni frá tyrkneska félaginu Trabzonspor, gerði bæði mörk leiksins og tryggði Everton dýrmætan sigur. Urslitin voru að sama skapi vonbrigði fyrir leikmenn Coventry sem ætluðu sér að komast af hættusvæðinu með hagstæðum úrslitum gegn Everton. ■ Úrslit/ BIO ■ Staðan/BIO

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.