Morgunblaðið - 04.05.1999, Page 5
+
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 B 5
---------------------------t
Reuters
irki Arsenal á Derby á Highbury, marki sem kom Arsenal aftur á toppinn eftir
að Man. Utd var þar í sólarhring.
Helgi og
Heiðar
skoruðu
HELGI Sigurðsson skoraði eitt
mark fyrir Stabæk er liðið
vann Lilleström 2:1 í norsku
úrvalsdeildinni um helgina.
Hann hefur gert þrjú mörk
fyrir liðið í fyrstu fjórum um-
ferðunum.
Heiðar Helguson skoraði mark
Lilleström, en liðið sótti hart
að marki Stabæk undir lokin en
tókst ekki að jafna metin. Rúnar
Kristinsson var í liði Lilleström, en
fyrir leikinn fékk hann viðurkenn-
ingu sem besti leikmaður deildar-
innar í aprílmánuði. Pétur Mar-
teinsson var ekki í byrjunarliði
Stabæk en hann hefur verið
meiddur í vetur. Stabæk er í efsta
sæti norsku úrvalsdeildarinnar
ásamt Molde, Lilleström og Odd
Grenland eftir fjórar umferðir.
Molde á leik til góða.
Víking frá Stavangi-i vann
Tromsö 3:1. Auðun Helgason var
sem fyrr í liði Víkings og Tryggvi
Guðmundsson var í liði Tromsö.
Ríkharður var ekki með, en hann
er meiddur.
Bræðurnir Valur Fannar og
Stefán Gíslasynir voru báðir í liði
Strömgodset sem tapaði 4:0 fyrir
Skeid. Strömgodset er við botn
deildarinnar ásamt Kongsvinger,
Moss og Skeid. Stefán fékk gult
spjald í leiknum en félagi hans,
Jostein Flo, fékk að líta rauða
spjaldið.
Steinar Adolfsson og Stefán
Þórðarson voru í liði Kongsvinger
sem tapaði fyiúr meisturum Ros-
enborg 1:0. Árni Gautur Arason
var ekki í marki Rosenborgar en í
hans stað var Jörn Jamtfall.
Kolbotn, lið Katrínar Jónsdótt-
ur, vann Grand Bodö 3:1 um helg-
ina og hefur unnið tvo fyrstu leik-
ina í úrvalsdeild kvenna.
i urvalsdeildinni
m iisSI
FC s CHELSEA
5. maí Chelsea - Leeds
10. maí Tottenham - Chelsea
16. maí Chelsea - Derby
Kahn
autt
og er staða liðsins vonlítil á botni
deildarinnar.
Oliver Kahn, markvörður Ba-
yem, fékk að sjá rauða spjaldið á
30. mínútu. Hann fékk fyrst gult
spjald fyrir brot á Petterson og
síðan rautt þegar hann spymti
knettinum upp í stúku, er hann
mótmælti dómi.
Bæjarar hafa öruggt forskot í
Þýskalandi og segir Mario Basler,
miðvallarspilari, að meistaratitill-
inn sé þeirra. Bayern er með tíu
stiga forskot er fimm umferðir eru
eftir. Ef þeir vinna Stuttgart í
kvöld og Leverkusen tapar fyrir
Núrnberg, er meistaratitillinn
Bæjara. Bayern leikur síðan gegn
Eyjólfi Sverrissyni og samherjum
hans hjá Herthu Berlín um næstu
helgi.
■ Úrslit / B6
■ Staðan / B6
Einar Þór á
heimleið
EINAR Þór Daníelsson, sem leikið hefur
með gríska knattspyrnuliðinu OFI, er á
heimleið og mun spila með KR í sumar.
Samningur hans við gríska liðið rann út
1. maí, en ákveðið var að hann myndi
vera hjá iiðinu til 16. maí og spila þijá
leiki til viðbótar. Keppnistímabilinu lýk-
ur 30. maí í Grikklandi. OFI er í 6. sæti
deildarinnar, en sex efstu liðin tryggja
sér sæti í Evrópukeppninni næsta tíma-
bil.
Einar Þór tekur út leikbann í fyrstu
Útlitið
betra hjá
umferð Islandsmótsins, en verður tilbú-
inn í slaginn með KR í 2. umferð. Hann
segist ekki reikna með að fara aftur til
gríska liðsins. „Félagið er með grískan
strák í sigtinu í mína stöðu. Hann er mun
yngri en ég. Eins og staðan er í dag
reikna ég ekki með að fara aftur til OFI.
Forráðamenn liðsins sögðu mér að ef
þeir næðu ekki að semja við þennan
gríska leikmann myndu þeir hafa sam-
band við mig. En það kemur bara í Ijós.
Eg hefði viljað vera áfram í Grikklandi
því okkur hefur liðið mjög vel hér,“ sagði
Einar Þór.
Hann á enn eftir tvö ár af samningi
sinum við KR. „Ég hef auðvitað áhuga á
að Ieika áfram erlendis en ég er að kom-
ast á síðasta séns, orðinn 29 ára,“ sagði
hann.
KAPPHLAUP Lazio og AC Milan um ítalska meistaratitilinn
magnast enn, nú þegar þrjár umferðir eru eftir. Bæði lið unnu
sína leiki um helgina og því heldur Lazio enn eins stigs forskoti
á AC Milan, hefur 62 stig. Lazio sótti Udinese heim og vann 3:0,
með mörkum Sinisa Mihajlovic úr vítaspyrnu á 30. mínútu og frá
Christian Vieri á 49. mínútu og Roberto Mancini á 58. mínútu að
viðstöddum 32.000 áhorfendum.
Leikmenn AC Milan lentu í kröpp-
um dansi er þeir tóku á móti
næstneðsta liði deildarinnar, Samp-
doria, sem berst af krafti um þessar
mundir fyrii' lífi sínu í efstu deild.
Massiomo Ambrosini kom Mílanólið-
inu yíir á 17. mínútu en Vincenzo
Montella jafnaði metin á þeirri 60., og
vai' það síst gegn gangi leiksins. Leon-
ai'do náði forystunni fyrir heimamenn
19 mínútum síðar, en Marco
Franceschetti jafnaði leikinn á ný á
Barcelona óstöðvandi
FÁTT virðist geta komið í veg fyrir að Bareelona verði spánskur meistari
í vor. Liðið vann Depoilivo Coruna, 4:0, með mörkum frá Luis Figo, Luis
Enrique Martinez, Rivaldo og Patrick Kluivert. Barcelona yfn-spilaði
Deportivo langtíinuin saman og Turu Flores, markvörður Deportivo, kom
í veg fyrir stærri ósigur sinna manna með góðri markvörslu.
Celta Vigo og Mallorca eru níu stigum á eftir Barcelona. Celta Vigo
vann Salamanca 1:0, sem á í harðri fallbaráttu. Salamanca fékk nokkur
góð færi til þess að skora en það var ísraelski leikmaðurinn Haim Revivo
sein tryggði Celta Vigo sigur.
Mallorca, sem er komið í úrslit Evrópukeppni bikarhafa, vami Real Bet-
is 3:1 en þetta var í fjórða skiptið sem liðin mætast í vetur og hefur Mall-
orca unnið í öll skiptin.
81. mínútu. Þannig leit út fyrir að liðin
skildu með skiptan hlut, en á síðustu
sekúndum leiksins skoraði Marcello
Castellini sigurmai'k AC Milan. Yfii-
mai’kinu var nokkur heppni því bolt-
inn hafnaði í vamarmanni Sampdoria
áður en hann fór í markið án þess að
markvörðurinn ætti möguleika á að
verja, enda kominn úr jafnvægi.
Lazio mætir um næstu helgi
Bologna sem er um þessar mundir í
8. sæti deildarinnar. Fer leikurinn
fram í Róm. Helgina þar á eftir sækir
Lazio liðsmenn Fiorentina heim, en
þeir eru í þriðja sæti um þessar
mundir. I síðustu umferðinni mætir
Lazio Parma á heimavelli. Þannig að
ljóst er að leið Lazio að meistaratitl-
inum verður þyrnum stráð.
AC Milan sækir Juventus heim um
næstu helgi en Juventus er um miðja
deildina og hefur að ósköp litlu að
keppa um þessar mundir nema að
halda stoltinu sem meistarar síðasta
árs. Því næst fær AC neðsta lið deild-
arinnar, Empoli, í heimsókn, en
Empoli er þegar fallið í 2. deild. Síð-
asti leikur AC Milan verður gegn
Perugia sem er í neðri hluta deildar-
innar. Þegar síðustu leikir liðanna eru
skoðaðir virðist sem Mílanóbúar eigi
auðveldaii leiki eftir.
■ KRISTÓFER Sigurgeirsson
kom inn á sem varamaður í síðari
hálfleik er lið hans Aris vann AIK
2:0 í grísku 1. deildinni um helgina.
Arnar Grétarsson var ekki í leik-
mannahópi AIK. Einar Þór Daní-
elsson, leikmaður OFI, tók út leik-
bann um helgina.
■ CHELSEA heldur enn í vonina .
um að vinna enska meistaratitilinn.
Liðið vann um helgina Everton 3:1
með mörkum frá Gianfranco Zola,
sem gerði tvö, og Dan Petrescu.
■ LIVERPOOL lenti í miklum erf-
iðleikum gegn Tottenham á Anfi-
eld um helgina. Heimamenn lentu
undir 2:0 áður en þeim tókst að
tryggja sér 3:2-sigur.
■ NOTTINGHAM Forest vann
sinn fyrsta sigur í 6 leikjum er liðið
vann Sheffield Wednesday 2:0.
Forest er fallið og leikur í 1. deild
að ári.
■ NEWCASTLE og Middles-
brough sigla lygnan sjó í úrvals-
deildinni, en liðin gerðu l.T-jafntefli
um helgina
■ KEVIN Keegan hefur ákveðið að
gera samning til frambúðar við
enska knattspyrnusambandið. Talið
er að Keegan fái um 120 milljónir
króna í árslaun fyrir að stýra lands-
liðinu.
■ GENK, lið Þórðar, Bjarna og Jó-
hannesar Guðjónssona, hefur
keypt sænska miðjumanninn
Jesper Jansson, frá Stabæk í Nor-
egi. Leikmaðurinn er 28 ára gamall
og kostaði Genk um 40 milljónir ís-
lenskra króna.' Ef Stabæk hefði
ekki selt hann nú hefði hann fengið
frjálsa sölu frá félaginu í haust.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson lék
með Stoke sem tapaði 4:0 fyrir Gill-
ingham í ensku 2. deildinni.
■ SIGURÐUR Jónsson lék ekki
með Dundee United sem tapaði
fyrir Dundee 2:0 í skosku knatt-
spyrnunni. Sigurður er meiddur í
baki.
■ ÓLAFUR Gottskálksson var að
vanda í marki Hibernian sem vann
Stranrear 4:0 í 1. deildinni í
Skotlandi.
■ ARNAR Gunnlaugsson var ekki
í leikmannahópi Leicester um helg-
ina er liðið lék við Southampton.
■ ALEX Ferguson hefur verið val-
inn knattspyrnustjóri aprílmánaðar
í úi-valsdeildinni, annað sinn í vetur.
Ferguson hefur oftast verið út-
nefndur knattspyrnustjóri mánað-
arins, eða átta sinnum, frá því að
viðurkenningin var veitt fyrst árið
1993.
■ SIR Alf Ramsey, fyrrum þjálfari
enska landsliðsins, er látinn 79 ára
að aldri. Ramsey gerði enska lands-
liðið að heimsmeisturum árið 1966.
Hann lék með Tottenham og Sout-
hampton áður en hann gerðist
knattspymustjóri hjá Ipswich
Town árið 1955. Hann kom liðinu
upp úr gömlu þriðju deildinni og
gerði þá að enskum meisturum í
upphafi 7. áratugarins. Mínútu
þögn var á völlum í Englandi í '
minningu Ramsey um síðustu helgi.
■ KENNY Dalglish hefur sam-
þykkt að ganga til liðs við Celtic og
verða tæknilegur ráðgjafi liðsins frá
og með næsta sumri. Ekki hefur ná-
kvæmlega verið skýrt frá því hvert
verksvið Dalglish verður en líklegt
er talið að hann fái að stjórna því
sem hann vill stjórna hjá félaginu.
■ DALGLISH, sem lék með Celtic
áður en hann gekk til liðs við Liver-
pool fyrir rúmum 20 ái-um, reyndi
fyrir hálfu ári að kaupa ráðandi
hlut í félaginu við þriðja mann en
tilboði þeirra var hafnað.
■ DÓMARI í leik Athletic Bilbao
og Athletico Madrid bókaði 16 leik-
menn í leik liðanna á Spáni um
helgina. 33 brot voru skráð í leikn-
um sem þýðir að dómarinn hefur
bókað fyrir nærri því annað hvert
brot í leiknum. Atheletic vann leik-
inn 2:1.