Morgunblaðið - 04.05.1999, Qupperneq 8
■ GUÐRÚN Arnardóttir, hlaupa-
kona úr Ármanni, keppti í 800
metra hlaupi á móti í Athens í Ge-
orgíuríki á laugardaginn og hafn-
aði í 5. sæti. Guðrún hljóp á 2.12,82
mín., sem er nærri því besta sem
hún hefur hlaupið þessa vegalengd
■ GUÐRÚN varð síðan í 2. sæti í
100 metra grindahlaupi á 13,62
sekúndum en það er talsvert frá Is-
landsmeti hennar, 13,18 sekúndur.
■ GUNNHILDUR Hinriksdóttir
tók þátt í þessu sama móti. Hljóp
hún 400 metra á 59,61 sekúndu,
stökk 1,60 metra í hástökki og
kastaði spjóti 30,88 metra.
■ SIGURBJÖRN Arngrímsson
náði athyglisverðum árangri í 800
og 1.500 metra hlaupi á mótinu í
Athens. Hann hljóp 800 metrana á
1.56,74 mínútum og varð í 13. sæti.
Þá varð hann áttundi í 1.500 metra
hlaupi á 3.57,95 mín.
■ HELGI Björgvinsson er farinn
að leika með Stjörnunni á ný.
Hann meiddist í fyrrasumar og lék
fáa leiki með liðinu. Helgi lék áður
með Fram, Keflavík og Víkingum.
■ MATTHIAS Sammer, lands-
liðsmiðvörður Þjóðverja, sem hef-
ur ekki getað leikið með Dortmund
síðustu mánuði vegna meiðsla, ger-
ir sér nú vonir um að geta leikið
knattspyi-nu á ný. Hann hefur ver-
ið illa meiddur á hné og farið í
margar aðgerðir vegna meiðsla
sinna.
■ TALIÐ var að ferill þessa 31
árs landsliðsmanns væri á enda.
Nú binda forráðamenn Dortmund
svo og leikmaðurinn sjálfur, vonir
við að hann geti leikið á ný.
Sammer gerir sér meira segja
vonir um að geta tekið þátt í
kveðjuathöfn Jiirgen Klinsmanns
24. maí í Stuttgart, til að sýna Kl-
insmann vináttu. Vegna trygg-
ingamála má Sammer ekki leika
kveðjuleikinn.
■ HORST Hrubesch, fyrrverandi
landsliðsmaður Þýskalands, var
óvænt ráðinn þjálfari hjá þýska
knattspyrnusambandinu í síðustu
viku. Hrubescli, sem hefur átt
skrautlegan þjálfaraferii þar, verð-
ur með 17 ára landsliðið og mun
einnig þjálfa b-landsliðið. Hann
gerði þriggja ára samning við
þýska sambandið.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GLÍMUKÓNGUR Islands - Ingibergur Sigurðsson.
Ingibergur Sigurðsson, Grettisbeltishafi
Stefnir á Ólympíu-
leikana í Sydney
Eg átti ekkert frekar von á sigri
því ég hef aðeins æft glímu að
jafnaði einu sinni í viku í vetur og
heldur ekki keppt eins mikið og
áður,“ sagði Ingibergur Sigurðs-
son, handhafí Grettisbeltisins,
fjórða árið í röð. „Eg var ekki eins
öruggur og oft áður, var ekki viss
um styrk minn fyrir mótið. Það
helgast einkum af því að mig vant-
aði meiri keppnisreynslu því ég
hef aðeins keppt á sex eða sjö
mótum á keppnistímabilinu. Því
var ég óöruggur framan af, en
náði mér á strik er á leið og er að
sjálfsögðu ánægður með að vinna
fjórða árið í röð.“
Ingibergur segist hafa látið
gh'muna sitja á hakanum undan-
farið ár en þess í stað æft júdó af
miklum móð. „Stefnan er að kom-
ast á Olympíuleikana í Sydney á
næsta ári, en það er ekkert
hlaupið að því. Eg verð að taka
þátt í mörgum úrtökumótum eftir
næstu áramót og því fylgir mikill
kostnaður sem ég hef ekki séð
fyrir endann á. En takist mér að
fá styrktaraðila hef ég hug á að
reyna að komast á leikana og það
þýðir líklega að glíman mun
verða enn meira útundap en áð-
ur.“
Ingibergur sagði keppnina í 89.
Islandsglímunni hafa verið jafna
og skemmtilega og í raun hafi
ekki verið mikill munur á kepp-
endum. „Nokkrir keppendur voru
kannski ekki í eins góðri æfíngu
og áður en búa þess í stað yfir
mikilli reynslu og eru fyrir vikið
hættulegir, þannig að ég var
aldrei viss um sigur. Það var ekki
fyrr en eftir síðustu glímuna sem
ég var viss um að sigurinn væri í
höfn hjá mér.“
Ingibergur sagðist hafa reynt
að einbeita sér vel á milli glíma og
ekki verið að spá um of í hvað aðr-
ir keppendur voru að gera, en
nokkuð bar á því að keppendur
voru að fetta fíngur út í dómgæsl-
una. „Eg skipti mér ekkert af
henni. Ég hlustaði á tónlist á milli
þess sem ég glímdi og reyndi um
leið að halda mér heitum. Þannig
tókst mér að halda einbeitingu all-
an tímann og ætli það hafi ekki
verið lykillinn að sigri mínum að
þessu sinni.“
ISLANDSGLIMAN / KEPPNIN UM GRETTISBELTIÐ
Ingibergur
vann í
fjórða sinn
jNGIBERGUR Sigurðsson, Víkverja, stóð uppi sem sigurvegari í
Íslandsglímunni, keppninni um Grettisbeltið, fjórða árið í röð á
laugardaginn. Ingibergur hafði nokkra yfirburði í Ísiandsglímunni
að þessu sinni, fékk 6 vinninga úr sjö viðureignum, lagði fimm
andstæðinga sína, en gerði í tvígang jafnglími.
Alls voru það átta glímumenn sem
kepptu um Grettisbeltið, en
þetta var í 89. sinn sem glímt vai' um
gmm þennan elsta verð-
/Var launagrip í íslenskri
Benediktsson íþróttasögu. Virtust
skrifar þeir nokkrir ekki
vera í sem bestri
æfíngu og tóku frekar út af reikningi
reynslunnar til þess að komast í
gegnum mótið. Ingibergur var
greinilega sterkastur þeiira glímu-
manna sem reyndu með sér þótt
hann hafi lítið æft íþróttina síðasta
árið eftir að hann fór að einbeita sér
meira að júdóiðkun. Ingibergur virt-
ist ekki eiga í verulegum vandræðum
með andstæðinga sína, a.m.k. lenti
hann ekki í kröppum dansi í viður-
eignum sínum sjö. Hann gerði jafng-
lími við Þingeyinginn Arngeir Frið-
riksson í fyrstu glímu og einnig við
Jafnar
Ingibergur
met að ári?
INGIBERGUR Sigurðsson
hefur nú unnið Grettisbeltið
ijögur ár í röð og vantar að-
eins einn sigur til viðbótar til
þess að jafna met Sigurðar
Greipssonar og Guðmundar
i Ágústssonar sem unnu ís-
landsglímuna fimm ár í röð.
Sigurður gerði það á árun-
um 1922 tíl 1926 og Guð-
mundur frá 1943 tíl 1947.
„Það er freistandi að mæta
til leiks að ári, en ég vil engu
lofa,“ sagði Ingibergur við
lok Islandsglímunnar sl.
laugardag. „Það veltur á því
hvernig mér gengur að
vinna mér keppnisrétt í júd-
ókeppni Ólympíuleikanna á
næsta ári. Standi ég vel að
vígi er ólíklegt að ég verði
með í Íslandsglímunni. Ég vil
engu lofa, þá svík ég ekkert,
. en óneitanlega er það freist-
andi að jafna þetta met.“
Ólafur H. Ólafsson og
Pétur Ingvason unnu Is-
Iandsglímuna fimm sinnuin,
: en náðu því ekki fimm ár í
röð eins og Sigurður og
Guðmundur. Ölafur vann
fimm sinnum á árunum 1984
til 1991 og Pétur frá 1975 til
1988.
Ármann Lárusson á hins
vegar met sem seint verður
slegið. Hann vann íslands-
Iglímuna fjórtán ár í röð og
alls fimmtán sinnum á ferl-
inum.
'
félaga sinn Pétur Eyþórsson. Aðra
keppendur; Sigurð Kjartansson, KR,
Stefán Geirsson, HSK, Orra Björns-
son, KR, Jón Birgi Valsson og Ólaf
Kristjánsson, lagði Ingibergur af
nokkru öryggi.
Pétur vakti verðskuldaða athygli
fyrir einstaklega góða vöm. Hélt hann
andstæðingum sínum vel við efnið og
tapaði aðeins tveimur glímum, íyrir
Sigui-ði og Ólafí. Hins vegar vai- Pétur
ekki eins d.jaifur til sóknar, en vera
kann að líkamlegur styrkur hans hafi
komið í veg íyrir það. Stefán tók þátt í
Íslandsglímunni í fyrsta skipti, en
hann er nýbakaður skjaldarhafi Hér-
aðssambandsins Skarphéðins. Stefán
sýndi áræði og þor í flestum viður-
eignum sínum og er þama greinilega
framtíðarmaður áferð.
Glímukóngur íslands 1994, Omi
Björnsson, lét sig ekki vanta þrátt
fyrir að hafa oft verið í betri æfingu.
Hann óx með hverri glímu og tapaði
aðeins fvrir núverandi glímukóngi.
Orri vann Arngeir, Sigurð, Jón Val
og Ólaf, en gerði jafnglími við ungu
mennina, Stefán og Pétur.
„Eftir að ég tapaði fyrir Ingibergi
má segja að það hafí verið úti um
sigur hjá mér,“ sagði Orri. „Ég fékk
brjósklos í fyrrasumar og hef ekki
æft sem skyldi í vetur og það kom
niður á stílnum hjá mér. Nú hef ég
hins vegar ákveðið að hella mér út í
æfingar að nýju og koma sterkur til
keppni í Islandsglímunni að ári.“
Oití sagði ennfremur að keppnin
hefði verið óvenju jöfn að þessu sinni
og svo virtist sem allir hefðu getað
unnið alla. „Ingibergur verðskuldaði
hins vegar sigurinn, hann er í bestri
æfíngu af okkur.“ Orri var hins veg-
ar óánægður með dómgæsluna sem
hann sagði hafa verið slaka, einkum
framan af. „Það var verið að gefa gul
spjöld að ástæðulausu auk þess sem
menn sluppu án spjalda fyrir svipuð
atriði þegar á leið. Ég vil þó taka
fram að dómgæslan hafði ekki áhrif
á úrslitin. Sigur Ingibergs var verð-
skuldaður," sagði Orri.
Amgeir Friðriksson hefur undan-
farin ár verið einn fremsti ghmumað-
ur landsins og í fremstu röð í íslands-
glímunni og jafnvel næni sigri. Hann
kvaðst ekki vera sáttur við þriðja sæti
því hann.hefði ætlað sér meira.
„Ég var bara slakur að þessu sinni
og virtist ekki koma nógu ákveðinn
til leiks," sagði Arngeir. „Að sjálf-
sögðu stefndi ég á sigur eins og vant
er, en eftir að ég fékk aðeins hálfan
vinning út úr tveimur fyrstu glímun-
um voru sigurmöguleikarnir orðnir
litlir og því kannski viðunandi að ná
þriðja sætinu."
Amgeir segist oft hafa verið í betri
æfingu en að þessu sinni. „Ég veit
ekki hvað ég geri næsta vetur, það
verður eiginlega að koma í ljós í haust.
Mæti ég til ieiks er líklegt að ég verði
með í Islandsglímunni að ári.“