Morgunblaðið - 30.06.1999, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
JMó Waí>ií>
c
1999
MIÐVIKUDAGUR 30. JUNI
BLAD
Grazer bauð
48 millj. kr
í Rúnar
AUSTURRÍSKA félagið Grazer hefur boðið
Lillesti'om 48 milljónir íslenskra króna fyrir
íslenska landsliðsmanninn Rúnar Kristinsson.
Norska liðið hafði sett 50 milljónir króna sem
lágmarksverð fyrir Rúnar, eftir að fyrsta til-
boð austurríska félagsins kom upp á 20 millj-
ónir króna fyrir tveimur vikum. Lillestrom
hefur ekki tekið tilboðinu og gerir sjálfsagt
ekki fyrr en félagið finnur leikmann til að
taka stöðu Rúnars á miðjunni hjá liðinu. Rún-
ar hefur verið jafnbesti leikmaður liðsins í
sumar.
Knattspyrnudeild KA
skuldar 20 milljónir
Knattspymudeild KA á Akureyri
skuldar um 20 milljónir króna,
að sögn Stefáns Gunnlaugssonar,
formanns deildarinn-
Skapti ar. Morgunblaðið
Hallgrímsson ræddi í gær við for-
skrifar menn knattspymu-
deilda Akureyrai'fé-
laganna beggja, KA og Þórs, en
Þórsarar hafa einnig verið í miklum
fjárhagskröggum síðastliðin ár og
fóm í nauðasamninga vegna þess
fyrir nokkrum missemm. Fyrri hluti
viðtalsins er á Akureyrarsíðu blaðs-
ins í dag, bls. 17, en síðari hlutinn
birtist á morgun.
Stefán Gunnlaugsson tók við for-
mennsku í knattspyrnudeild KA fyr-
ir þessa leiktíð, eftir tíu ára fjarvera,
en hann var formaður deildarinnar
þegar KA varð Islandsmeistari 1989
og hætti störfum að loknu keppnis-
tímabilinu 1990. „Þegar ég tók við
aftur voru skuldirnar um eða yfir 20
milljónir, en aðalstjórn félagsins tók
myndarlega á því; tók lán sem við
veltum á undan okkur með dyggri
aðstoð hennar. Enda held ég að það
sé miklu meira en nóg starf að reka
knattspyrnudeild þótt hún sé ekki
með tugi milljóna á bakinu líka. En
við töldum betra að reyna að komast
út úr þessu sjálfir svona heldur en
fara í nauðasamninga,“ sagði Stefán.
Stjórnin styður Einar
Að sex umferðum loknum er KA í
næstneðsta sæti 1. deildar íslands-
mótsins, næstefstu deildar. Og að
gefnu -tilefni sendi knattspymudeild
KA frá sér yfirlýsingu í gær „vegna
umræðna innan KA, en þó enn frek-
ar utan KA,“ eins og þar segir, vilji
stjórnin taka fram að þjálfari meist-
araflokks, Einar Einarsson, sé ráð-
inn til starfa hjá deildinni út þetta
keppnistímabil og engin breyting sé
fyrirhuguð á því. „Vonumst við til að
KA nái að vinna sig út úr þeirri
stöðu, sem deildin er í, en til að það
megi takast verða allir að vera sam-
taka, ekki síst „stuðningsmenn" sem
því miður eru fyrstir til að gefa eftir
þegar hlutirnir ganga ekki eins og
vonast er til.“
Stefán Gunnlaugsson segir að KA-
menn taki nokkra áhættu í sumar.
„Við leggjum í þetta peninga og ætl-
um að ná árangri. En auðvitað er al-
veg ljóst að það er ekki alltaf sama-
semmerki þar á milli; menn geta
ekki keypt sér árangur. Annað þarf
að fylgja með og við gerðum okkur
grein fyrir því. Þess vegna getur
tekið annað sumar að byggja upp
virkilega gott lið.“
SVO gæti farið að franski
miðheijinn hjá Arsenal,
Nicolas Anelka, verði kominn
í raðir ftalska liðsins Lazio
fyrir næstu helgi. „Mín helsta
ósk er þó að fara til Real Ma-
drid. Ef það gengur ekki eftir
er ekki úr vegi að fara bara
til Lazio,“ sagði Anelka í gær.
Forráðamenn Arsenal eru
að reyna að semja við Rómar-
liðið og hafa kvartað til al-
þjóða knattspyrnusambands-
ins, FIFA, undan Real Madrid
sem hefur haft samband við
Anelka án þess að ræða við
Arsenal.
„Eg kýs frekar að fara til
Lazio en að leika áfram með
Arsenal," sagði Anelka við _
franska blaðið L’Equipe. „Ég
myndi sætta mig við það því
hef í huga að leika einhvern
tíma á Italíu hvort eð er.“
Talsmaður Lazio, Vincenzo
Morabito, sagði: „Samningar
eru á lokastigi. Við vonumst
til að geta komist að sam-
komulagi við Arsenal í síð-
asta lagi á föstudag."
Anelka
á leið til
Lazio?
Fengu góðan
stuðning í Thisted
EINAR Þorvarðarson, þjálfari piltalandsliðsins í handknattleik,
var kampakátur þegar Morgunblaðið náði tali af honum í Thi-
sted í gærkvöldi. Þá vora strákarnir hans nýbúnir að taka á
móti Norðurlandameistaratitlinum í handknattleik, með því að
leggja Dani að velli 26:20. „Það er alveg geysilega gaman
hérna,“ sagði hann. „Við eram hérna að grilla pylsur úti í garði
með hópi Islendinga. Það er búið að slá upp tjaldi hérna og
þetta er mjög glæsilegt." Einar sagði að íslendingar hefðu fjöl-
mennt í íþróttahöllina í Thisted og stutt liðið með sóma. „Það
hjálpaði okkur auðvitað mikið,“ sagði hann.
Landsliðshópur íslands var skipaður eftirtöldum leikmönn-
um: Markverðir vora Stefán Hannesson, Val, og Hreiðar Guð-
mundsson, Gróttu/KR. Aðrir leikmenn voru Einar Hólmgeirs-
son og Ingimundur Ingimundarson, IR, Bjarki Sigurðsson,
Fannar Þorbjörnsson, Snorri Guðjónsson og Markús Mikaels-
son, Val, Sverrir Pálmason, Gróttu/KR, Róbert Gunnarsson,
Fram, Valdimar Þórsson, Selfossi, Sigursteinn Arndal, FH,
Hjalti Pálmason, Víkingi, Jónatan Magnússon, KA, Níels Reyn-
isson, UMFA, og Kristján Andrésson, sem leikur með HK
Eskilstuna í Svíþjóð.
■ Betri á öllum sviðum / B4
HANDKNATTLEIKUR / HM PILTALANDSLIÐA I DANMORKU
Morgunblaðið/Gregers Kirdof
ÍSLENSKU piltarnir ásamt Friðriki Guðmundssyni liðs-
stjóra og Einari Þorvarðarsyni þjálfara.
KNATTSPYRNA: MAMADOU DIALLO VILL EKKI LEIKA Á AKRANESI / B4