Morgunblaðið - 30.06.1999, Page 4
nmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
ÍHSOR
HANDKNATTLEIKUR
íslenska piltalandsliðið varð Norðurlandameistari í handknattleik
á öllum sviðum
Morgunblaðið/Gregers Kirdof
ÍSLENSKU strákarnir fagna eftir að Bjarki Sigurðsson, fyrirliði þeirra, tók við Norðurlandabikarn-
um, sem piltalið frá íslandi hefur tvisvar sinnum áður unnið.
Betrí
ÍSLENSKA piltalandsliðið í
handknattleik, skipað leik-
mönnum 18 ára og yngri, varð
Norðurlandameistari í gær eft-
ir að hafa borið sigurorð af
Dönum, 26:20, í úrslitaleik í
Thisted í Danmörku. Öruggur
sex marka sigur var minnsti
munur sem skildi íslenska lið-
ið og andstæðinga þess í
þremur leikjum. Norðmenn
voru gersigraðir, 31:15, og
Svíar lagðir, 28:18.
JT
Íslenska liðið náði fljótt góðri for-
ystu í úrslitaleiknum og var yfír í
leikhléi, 13:7. Liðið hélt síðan fímm
til sex marka for-
Eftir skoti til leiksloka.
Edwin Bjarki Sigurðsson,
Rögnvaldsson Val, Valdimar Þórs-
son, Selfossi, og
Jónatan Magnússon, KA, voru
markahæstir íslenska liðsins með
fjögur mörk.
Einar Þorvarðarson, þjálfari liðs-
ins, sagði samheldni og sterka liðs-
heild, öðru fremur, hafa gert
gæfumuninn í mótinu. „Við höfum
ekki oft orðið Norðurlandameistar-
ar í gegnum tíðina. Þetta er lið sem
hefur ekki unnið oft að undanfömu,
en við vorum að leika mjög góðan
handknattleik og vorum betri á nán-
ast öllum sviðum. Lið Norðmanna
og Danmerkur eru að búa sig undir
lokakeppni Evrópumótsins, en við
tókum þátt í undankeppni fyrir það
í vor og töpuðum þá fyrir Pólverj-
um. En þetta var glæsilegt og þess-
ir strákar eru glæsilegir fulltrúar
Islands," sagði hann.
Var þetta þá eins konar uppreisn
æru eftir að hafa tapað fyrir Pól-
landi?
„Það var svo sem ekkert óeðlilegt
að tapa fyrir Pólverjunum. Þessir
piltar eru vitanlega að taka þátt í
Islandsmóti og voru í prófum. Við
fengum aðeins tveggja vikna undir-
búning fyrir viðureignina við Pól-
verja. Hún fór mestmegnis í að
finna réttu uppstillinguna og að
stilla saman strengi, en við höfum
nú verið saman í fimm vikur og við
erum að uppskera eins og sáð var.“
Kom þetta ykkur á óvart?
„Já, svona lagað kemur manni
alltaf aðeins á óvart, sérstaklega
miðað við gengi liðsins að undan-
fömu. Við gerðum jafntefli við Dani
um áramótin og þessi aldurshópur
hefur oftar en ekki tapað fyrir Sví-
um, en gegn Norðmönnum höfum
við sigrað og tapað á víxl.“
Nú sigrið þið með tiltölulega
miklum mun. Teiurðu hann gefa
rétta mynd af getu liðanna?
„Eg get ekki sagt annað. Þetta
eru lið sem eru að búa sig undir enn
stærra mót. Vinna okkar er að skila
sér. Hópurinn er samheldinn og
okkur hefur tekist að byggja upp
sterka liðsheild. Við áttum síðast
sambærilegt lið árið 1993, sem var
skipað leikmönnum 21 árs og yngri
og fékk bronsverðlaun á heims-
ilieistaramóti í Egyptalandi. Flestir
þeirra leikmanna urðu Norður-
landameistarar áður með
piltalandsliðinu.
Eg vona að við séum á réttri leið,
en það eru alltaf ákveðnar sveiflur á
styrk unglingaliðanna. Árgangar
eru misjafnir. Við erum að veija
leikmenn úr um tuttugu félögum,
sem eru virkir í þessum aldurs-
flokkum. Þjóðirnar, sem við erum
að etja kappi við, hafa miklu meira
úrval leikmanna. Þetta gefur góð
fyrirheit. Það þarf að gefa þessu liði
góðan gaum og fjárfesta til framtíð-
ar.“
Vissuð þið fyrir mótið hvar þið
stóðuðmiðað viðhin liðin?
„Nei, það vorum við ekki vissir
um. Við vorum ekkert öruggir um
að vinna einhverja sigra í þessu
móti, en við settum okkur markmið
að komast í úrslitaleikinn. Þegar
þangað var komið var ekkert annað
að gera en að ljúka verkinu og við
lönduðum titlinum.“
Varstu ekkert hræddur um að
Mamadou Diallo, sóknarmaður
norska knattspyrnuliðsins
Lillestrom, sem til stóð að fengist
lánaður til Akraness, kemur ekki til
liðsins. Aðstandendur Lillestrpm
höfðu áhuga á að lána Diallo, en
segja málinu nú lokið eftir í ljós
kom að hann vill sjálfur ekki fara.
Diallo heldur því áfram að leika
fyrir Lillestrom.
strákarnir ofmetnuðust eftir að hafa
sýnt góðan leik í fyrstu tveimur
leikjunum, þar á meðal unnið stór-
sigur á Norðmönnum?
„Jú, slíkt getur komið fyrir og
maður hefur því ávallt áhyggjur af
því. En leikmennirnir eru mjög
samheldnir og skynsamir. Okkur
tókst vel að halda þeim á jörðinni.
Þetta hefði þó getað orðið mun auð-
veldara fyrir okkur, því Norðmenn
gerðu jafntefli við Svía. Ef Norð-
menn hefðu unnið, hefðum við mátt
tapa síðasta leiknum með níu mörk-
um en standa samt uppi sem sigur-
vegarar. Við gerðum samt aldrei
ráð fyrir því að Norðmenn ynnu og
dagskipunin var að klára þetta
sjálfir.“
Logi Ólafsson, þjálfari Skaga-
manna, sagðst hafa búist við því að
Diallo fyndist það ekki spennandi
kostur að koma til íslands til að
leika knattspyrnu. Diallo, sem kem-
ur frá Senegal, var lánaður til MSV
Duisburg í Þýskalandi í vetur en
hefur ekki náð að festa sig í sessi í
liði Lillestrom í sumar.
Logi sagði leikmanninn mjög
fyrir utan samheldnina sem þú talar
um?
„Nokkrir leikmenn eru að leika í
fyrstu deild og eru búnir að vera
saman í landsliði í tvö ár. Þeir
þekkjast vel og mikið verk hefur
verið unnið áður en ég kem tO sög-
unnar. Það leynir sér ekki. Sjálfs-
traustið hefur verið að aukast og
leikskipulagið hefur tekist mjög vel.
Ég er mjög stoltur af því. Við leik-
um 3-2-1-vörn, en það er ekki mikil
hefð fyrir henni á Islandi. Við vor-
um líka að verja 25 til 30 skot að
jafnaði í fyrstu tveimur leikjunum,
en þau voru um sautján eða átján í
úrslitaleiknum. Sóknarleikurinn
gekk líka vel. Við virtumst einfald-
lega betri á öllum sviðum,“ sagði
Einar-.
góðan. „Það hefði verið feikileg
lyftistöng fyrir okkur ef hann hefði
þegið boðið,“ sagði hann. Ekki er
þó öll von úti enn því, „fram-
kvæmdastjóri liðsins sagði honum
að hugsa málið betur. Eg geri þó
ekki ráð fyrir að hann komi,“ sagði
Logi en bjóst ekki við að liðið leit-
aði eftir liðsstyrk annarra útlend-
inga.
Rigning í
Wimbledon
KEPPNI á Wimbledon-tennis-
mótinu lá niðri í gær vegna
rigningar. Það var annan
daginn í röð sem rigning
hafði áhrif á mótshaldið. A
mánudag náðist aðeins að
ljúka fimm leikjum af sextán
sem áttu að fara fram í 4. um-
ferð mótsins áður en keppni
var frestað vegna rigningar.
Aðeins fímm keppendur eru
því komnir áfram í 8-manna
úrslit karla og kvenna: Andre
Agassi, Gustavo Kuerten, Jel-
ena Dokic, Jana Novotna og
Lindsay Davenport.
Ástralska stúlkan Jelena
Dokic heldur áfram að koma
á óvart eftir að hún sló Mart-
inu Hingis út í fyrstu umferð.
I fjórðu umferðinni lagði hún
að velli Frakkann Mary Pi-
erce, sem er.í níunda sæti
heimslistans, í tveimur sett-
um, 6-4 6-3. „Ef mér hefði
verið sagt það fyrir tveimur
vikum að ég kæmist í fjórð-
ungsúrslit hefði ég ekki trúað
því,“ sagði Dokic eftir sigur-
inn.
■ GRINDAVÍK leikur án þriggja
lykilmanna er liðið mætir Leiftri í
efstu deild karla í knattspyrnu á
sunnudaginn í Grindavík. Grétar
Ólafur Hjartarson tekur út leik-
bann eftir að hafa fengið að sjá
rautt spjald á Akranesi. Þá voru
þeir Alistair McMillan og Scott
Ramsey úrskurðaðir í eins leiks
bann vegna fjögurra áminninga á
fundi aganefndar KSÍ í gær.
■ LEIFTUR leikur án Sergio Luis
De Macedo, sem fer í leikbann
vegna fjögurra áminninga.
■ PIERRE van Hooijdonk, hol-
lenski framherjinn sem var hjá
Nottingham Forest sl. tímabil, hef-
ur skrifað undir fjögurra ára samn-
ing við hollenska félagið Vitesse.
Hollenska félagið vildi ekki gefa
upp kaupverðið, en talið er að það
nemi um 3,5 milljónum punda. Van
Hooijdonk hefur verið á sölulista
síðan í ágúst í fyrra, en þá lenti
hann í útistöðum við félagið.
■ LAURENT Blanc, varnarmaður
og fyrirliði Marseilíe og franska
landsliðsins, hefur gengið til liðs við
Inter Milan. Kaupverðið er um 220
milljónir króna. Blanc, sem er 33
ára, hafði einnig fengið tilboð frá Li-
verpool, en sagðist ekki hafa áhuga
á að leika í Englandi. Fyrir hjá Int-
er er Brasilíumaðurinn Ronaldo,
en Blanc lék einmitt með honum
þegar hann var hjá Barcelona 1997.
Þjálfari Dana
tók poka sinn
KELD Nielsen, landsliðsþjálf-
ari Dana í handknattleik, var
leystur frá störfum hjá
danska handknattleikssam-
bandinu, í kjölfar ófara lands-
liðsins á HM í Egyptalandi.
Áður en liðið hélt til Egypta-
lands voru væntingarnar til
liðsins miklar og sumir töluðu
um verðlaunasæti. Markmið
danska handknattleikssam-
bandsins var að vera á ineðal
átta efstu og tryggja sér þar
með þátttökurétt á Ólympíu-
leikunum í Sydney á næsta
ári, en það gekk ekki eftir.
Hver er helsti styrkur liðsins,
KNATTSPYRNA
Mamadou Diallo vill
ekki leika á Akranesi