Morgunblaðið - 10.07.1999, Side 28
28 LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ1999
MORGUNBLAÐIÐ
MARGMIÐLUN
Einn með
ósýnilegum
geimverum
LEIKIR
Enemy Zero. SegaPC gaf nýlega út
endurgerða útgáfu af Warp leiknum
Enemy Zero sem hannaður var fyrir
Sega Satum. Lcikurinn fellur inn í
svokallaðann FMV geira þar sem leik-
ir eins og Riven og Myst sitja á toppn-
um. Hann krefst 133 MHz tölvu og
hljóðkorts. Bömum undir fjórtán ára
aldri er ekki ráðlagt að spila leikinn.
LEIKURINN á sér stað í geimn-
um, í geimskipmu Aki. Oþekkt
ósýnilegt dýr hafði komist inn í
skipið og hafíð slátrun á áhöfn þess.
Spilendur taka sér hlutverk Lauru
sem vaknað hafði minnislaus og
rugluð vegna mistaka í dásvefni
skipsins og ákveðið að reyna að
komast að því hvað væri í gangi.
Leikurinn gerist mestmegnis í
fyrstu persónu, en alltaf Þegar
Laura gerir einhvað er það sýnt í
teiknuðu atriði sem yfirleitt
er í þriðju persónu.
Grafík leiksins er
með ágætum, eins
og gengur og ger-
ist í þessum flokk
leikja, atriðin eru
vel teiknuð og
hönnuðum leiksins hefur tekist vel
til í að skapa stemmninguna sem
fylgir því að vera fastur einn í bil-
uðu geimskipi með helling af ósýni-
legum geimverum.
Þar sem sjón nýtist spilanda ekki
í baráttunni við geimverumar verð-
ur að nota lítið tæki sem Laura
finnur í byrjun leiksins. Tæki þetta
sendir frá sér hljóðboð sem gefa til
kynna hvar dýrið er, ef langt er
milli pípanna í tækinu er dýrið langt
frá, ef stutt er á milli er það nálægt,
ef pípin eru skræk er það fyrir
framan, djúp fyrir aftan og asnaleg
til hliðar. Þetta er í raun ekki jafn
flókið og það hljómar og flestir spil-
endur ættu að ná þessu strax í þjálf-
unarhluta leiksins.
Það versta við Enemy Zero er ná-
kvæmnin sem hann krefst. I byrjun
leiksins finnur Laura til að mynda
upptökutæki sem hægt er að nota
til að vista leikinn. Þetta tæki þarfn-
ast orku og í hvert skipti sem leikur
er vistaður eða sóttur aftur eyðist
hluti af þessari orku. Þetta þýðir
það að ef spiianda gengur illa getur
hann verið búinn með orkuna fyrir
síðasta hluta leiksins þar sem mest
er þörfin fyrir að vista.
Sega ákvað að gefa leikinn út fyr-
ir PC í kjölfar þess að hann gekk
ágætlega í Satum-tölvumar.
Sega-menn hafa greinilega
ekki hugsað mikið út í það að
PC tölvur í dag geta keyrt
mun stærri og flottari leiki,
en eins og kemur fram þarfii-
ast leikurinn ekki nema 133
MHz örgjörva sem er, eins og
flestir tölvueigendur vita, því
miður að verða úrelt fljótt.
Ef Sega átti von á að
Enemy Zero myndi slá í
gegn skjátlaðist mönnum
því miður illa. Leikurinn er
góður, flottur og stór, en í
dag em til leikir sem era
mun betri, flottari og
stærri. Kannski hefði
það einhvað hjálpað að
endurbæta leikinn meira
en að skipta bara um raddim-
ar á persónunum.
Ingvi Matthías Árnason
Word vírus í Asíu
TÖLVUVÍRUSAR era óteljandi og
gera nú orðið ekki bara stýrikerfis-
mun, heldur eru þeir missvæsnir
eftir því hvaða tungumál notandinn
er með uppsett á tölvu sinni. Nú fer
sem logi yfir akur í Asíu víras sem
leggst aðeins á tölvur sem era með
kínverska eða japanska gerð af
W ord-ritvinnsluforritinu.
Vírasinn ógurlegi, sem kallast
júlídráparinn, er svonefndur
fjölvavíras, sem þýðir að hann fer í
gang þegar Word-skjal með honum
er ræst. Um leið og hann fer af stað
yfirskrifar hann öll skjöl sem hann
kemst í tæri við og byrjar síðan á að
yfirskrifa kerfisskrár á hörðum disk
tölvunnar.
Eins og getið er hefur vírasinn
ekki áhrif nema á japanskar og kín-
verskar útgáfur Word og því lítil
hætta fyrir Vesturiandabúa, en
hann varð virkur 1. júlí síðastliðinn
og verður virkur út mánuðinn.
Atari snýr aftur
Morgunblaðið/Jim Smart
LYNX-leikjatölvan frá Atari lifir enn góðu lífi þó
fyrirtækið hafí þrotið örendi.
Sumar leikjatölvur lifa
lengur en aðrar. Árni
Matthíasson rifjar upp
söguna af Atari Lynx,
sem nú er hægt að
kaupa hér á landi þó
löngu sé hætt að
framleiða hana.
ÞAÐ ÞÓTTI leikjafróðum saga til
næsta bæjar þegar verslun í
Reykjavík tók að auglýsa til sölu
Atari-leikjatölvur á spottprís. Tölv-
umar, sem heita Lynx, hafa reynd-
ar ekki verið framleiddar í nokkur
ár, en samt er áhugi á þeim tals-
verður og fer síst minnkandi.
Atari var fremsta leikjafyrirtæki
í heimi í árdaga leikjatölvunnar,
stofnað íyrir 20.000 krónur en
græddi milljónir á Pong-leiknum
góðkunna og lenti síðan í höndun-
um á Warner-risanum. Fyrirtæk-
inu var þó ekki vel stjómað og
frammámönnum þess var hreint
ekki lagið að átta sig á hvað væri
að gerast í leikjaheimum, hvert
stefndi og hvaða leið fyrirtækið
ætti að feta. Farið var að halla und-
an fæti hjá fyrirtækinu þegar það
festi kaup á öðrum leikjatölvufram-
leiðanda, Epyx. Epyx var umsvifa-
mikið í framleiðslu á leikjum fyrir
leikjatölvur annarra fyrirtækja, en
hafði einnig komið sér upp vélbún-
aðardeild, réð til starfa forritara
sem áður störfuðu fyrir Amiga og
hófst handa við að framleiða nýja
gerð af ferðaleikjatölvu. Áður en
tókst að ljúka við tölvuna var fyrir-
tækið aftur á móti komið í þrot og
Atari keypti allt klabbið og þar á
meðal Epyx-leikjatölvuna sem þeir
Atari-menn nefndu upp á nýtt og
kölluðu Atari Lynx.
Lynx-tölvan var geysispræk á
þess tíma mælikvarða, var með 16
bita 16 MHz 6502 örgjörva, tals-
verðan grafískan stuðning í vél-
búnaði og fyrirtaks hljóm. Einnig
bauð kerfið upp á að tengja mátti
saman nokkrar Lynx-tölvur í einu,
allt upp í átta, og spila netleik sem
var mikil bylting á þeim tíma.
Fjóram áram eftir að Lynx kom
á markað sendi Atari frá sér aðra
gerð af leikjatölvu, Jaguar 64, sem
var tæknilega fullkomin og ætluð
fyrir sjónvarp. Atari-menn hugðust
nýta Lynx-tölvuna sem stýripinna
fyrir Jaguarinn, enda sáu þeir í
hendi sé að með svo öflugan
stýripinna væri hægt að fara áður
óþekktar leiðir í gervigreind og
hreyfingum í tölvuleikjum. Áður en
tókst að þróa þá forvitnilegu hug-
mynd áfram var Atari nánast búið
að syngja sitt síðasta og rann að
lokum inn í fyrirtæki sem ekld
hafði þekkingu eða áhuga á að
vinna nýjar lendur í leikjalandi.
Fyrir vikið þvarr Atari allur mátt-
ur, en á síðasta ári keypti leik-
fangaframleiðandinn Hasbro leif-
arnar af Atari og nýtir sem vöra-
merki á endurgerða gamla leiki.
Framan af töldu menn að Hasbro
myndi endurvekja leikjatölvur fyr-
irtækisins, en fyrr á þessu ári gaf
Hasbro allan höfundarrétt að
Jaguar-leikjatölvunni og getur því
hver sem er spreytt sig á að smíða
Jaguar-tölvur eða þrælað sér í
gegnum leikina sem Átari átti rétt-
inn á.
Lynxinn lifir góðu Iífí
Lynxinn lifir góðu lífi, eins og
sannast á því að hægt er að kaupa
Lynx-tölvur í BT í Skeifunni og
Hafnarfírði, en einnig er mikið líf í
Lynx á Netinu og enn era að koma
út leikir fyrir vélina. Að sögn versl-
unarmanna í BT era tölvurnar
komnar frá Bretlandi og ekki ljóst
hvort fleiri komi hingað en bárast í
sendingunni sem nú er selt úr. Á
sínum tíma var hver Lynx-tölva
seld með einum leik, en þrír leikir
fylgja tölvunni nú, reyndar ekki
bestu leikirnir sem hægt er að fá
fyrir Lynx, en góðir engu að síður.
Lynx-tölvan er nokkur stór um
sig, að minnsta kosti ef miðað er
við lófatölvur nútímans eða Nin-
tendo GameBoy, 22x10 sm, og 5
sm að þykkt. Hún gengur fyrir sex
AA-rafhlöðum, en einnig er hægt
að kaupa sérstaklega spennu-
breyti.
Inngangur er fyrir heyrnartól og
eins og áður segir er einnig hægt
að tengja hana öðram Lynx-tölv-
um. Kjami tölvunnar er tvö ör-
gjörvasett sem deila með sér verk-
um. Þau vora kölluð Suzy og
Mickey. Mickey er meðal annars
16-bita 16 MHz CMOS gjörvi með
MOS 65C02 8 bita örgjörva sem
keyrði á 4 MHz, en minnisaðgang-
ur var 16 bita. Hljóð er fjögurra
rása og nær frá 32 Hz upp í 100
Hz. DMA rekill er fyrir kristals-
skjá, 12 bita litaspjald með 4.096
litum og sextán liti samtímis.
Suzy er með 16-bita 16 MHz
CMOS gjörva og ýmislegri nútíma-
legri grafískri stýringu sem skilað
gat meðal annars upp undir 75
römmum á sekúndu. Upplausnin
var 160x102, 16.320 pixel, en gat
sýnt 480x102 upplausn við sérstök
tilefni.
Eins og sjá má af ofangreindu
var Lynxinn með átta bita ör-
gjörva, en grafísk vinnsla var sext-
án bita. Minni í Lynx var 64 K af
120 nanósek. DRAM. Leikir vora
yfirleitt á frá 128 K hylkjum upp í
256 K en hægt er að koma 2 mega-
bætum í leikshylki. Flestir leikj-
anna fyrir Lynx vora 128 K, en
einnig voru til stærri leikir og þar á
meðal Ninja Gaiden 3, Pit Fighter
og Jimmy Connors Tennis sem
vora allir í 512 K hylkjum.
Einhver lager er enn til af Lynx-
tölvum víða um heim, en þó tölvan
sé komin til ára sinna er enn hægt
að skemmta sér við leiki í henni. Af
leikjum sem fylgja með vélinni hér
heima má nefna Shanghai, sem er
framúrskarandi vel heppnaður, og
Shadow of the Beast, sem er
þrælerfiður leikur og nýtir graf-
íska möguleika tölvunnar út í æsar.
Einnig vora í bunkanum einhver
eintök af Klax sem er bráð-
skemmtilegur.
Lynxinn lifir einnig góðu lífi á
Netinu því þar er mikið um hann
fjallað. Víða er hægt að kaupa leiki
í tölvuna og kosta þeir ekki ýkja
mikið, og enn eru menn að gefa út
leiki fyrir hana, þó ekki séu það
nema fáeinir leikir á ári.
COMPAd
Prenrio 51
rUJI I 3U UteUne
• AMD K6 350Mhz örgjörvi
• 512K skyndlminni
• 32MB minní
> 3,2GB diskur
»3,5' disklingadrff
• 24* geísladríf
• 12,1 " TFT skjár
> Ending rafhlöðu
m vinnslu 3 timar
I Windnws 98 og Word 97
AMD 400 Mhz örgjörvi
17" skjár með innb. hljóðnema
64 MB ínnra mlnni
8 GB diskur
8 MB 2D/3D skjákort
SX DVD drif W\
56K mótald og 2 mánuðír á netlm
16bitahljóðkort _
Hidden 8. Dangerous
» Mús með skruntakka k V****^^^^^ |áui «1
»Windows 98 uppsett og á CD ^ •
iaugardag 10:00 -16:00 og BT Skeifunni sunnudag 13:00 -17:00 • Munið netieikinn: www.bt.is
Rlýjustu leikirnir
BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020
Skeifunni 11 • 108 Rvk • Sími 550 4444