Morgunblaðið - 10.07.1999, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 1999 39fc
+ Ólafur Dagur
Ólafsson fædd-
ist á sjúkrahúsi
Suðurlands 14. des-
ember 1989. Hann
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
6. júlí 1999. Ólafur
Dagur var sonur
Ólafs Inga Sigur-
mundssonar, f. 18.2.
1961 og Önnu Gísla-
dóttur, f. 5.1. 1961.
Föðurforeldrar
Ólafs Dags eru Sig-
urmundur Guð-
björnsson, f. 25.1.
1934 og Þórfríður Soffía Har-
aldsdóttir, f. 22.2. 1937. Móður-
Elsku litli bróðir okkar.
Við systkinin erum mjög þakklát
fyi-ir að hafa fengið að kynnast þér
og hafa þig hjá okkur í þessi ár. í
okkar augum ertu hetjan okkar
fyrir allt sem þú gekkst í gegnum í
veikindum þínum.
Alveg sama hvað bjátaði á var
alltaf grunnt á fallega brosinu þínu
sem bræddi hjörtu allra sem voru
nálægt þér. Við eigum svo margar
góðar minningar um þig sem við
munum geyma í hjörtum okkar alla
tíð.
Það er frá svo mörgu að segja.
Það var gaman að vera með þér í
sveitinni þegar við bjuggum í
Björnskoti og sjá þig sinna sveita-
störfunum, þau voru þitt yndi. Þér
fannst svo gaman að keyra heyið í
kýrnar á hjólastólnum þínum og
það var ótrúlegt hve mikið þú gast
tekið í einu. Kúnum fannst heyið
svo gott sem þú gafst þeim. Þú
hafðir svo mikinn áhuga á vélum og
öllu sem þeim viðkom. Það mátti
varla koma bfll í heimsókn án þess
að þú fengir að skoða vélina í hon-
um. Þú hafðir ákveðnar skoðanir á
hlutunum og lést ekki snúa þér.
Þegar við keyptum nýjan traktor í
fyrra, sagðir þú að það yrði að vera
traktor með aukasæti svo þú gætir
farið út á tún með pabba.
Þú hafðir gaman af því að tefla
skák og stóðst þig vel og talaðir oft
um hvað þér fannst gaman að fara
á skákmótið í fyrra þegar þú hittir
hr. Ólaf Ragnar Grímsson forseta.
Síðan breyttust aðstæður og við
fluttumst búferlum hingað á Sel-
foss. Þú kveiðst ekkert fyrir flutn-
ingunum né að byrja í nýjum skóla.
Bekkurinn sem þú fórst í var æðis-
legur og kennarinn frábær og þar
eignaðist þú marga góða vini,
krakkarnir hópuðust að þér því það
geislaði svo mikið af þér. Eitt sinn
þegar kom til tals hvað þú ættir
marga vini varstu snöggur að svara
foreldrar Ólafs
Dags eru Gísli Rún-
ar Guðmundsson f.
9.7. 1938 og Unnur
Guðmundsdóttir, f.
12.2. 1943.
Ólafur Dagur
var íjórða barn for-
eldra sinna. Systk-
ini hans eru 1) Mar-
ía Ósk Ólafsdóttir,
f. 26.7 1982, 2) Guð-
björn Már Ólafsson,
f. 25.5 1984, 3) Rún-
ar Geir Ólafsson, f.
2.1. 1988.
Ólafur Dagur
verður jarðsunginn frá Selfoss-
kirkju í dag klukkan 11.
og sagðir: „Hvað get ég að því gert
að ég er svona vinsæll?“ Þetta varst
bara þú, sagðir bara hreint og beint
hvað þér fannst og það var alltaf
hægt að spyrja þig álits.
Eftir að þú byrjaðir í bekknum
vaknaði mikill fótboltaáhugi. Ar-
senal var þitt lið og þú áttir orðið
bol og trefil og varst kominn í fé-
lagið hér á Selfossi. Félagsskírtein-
ið hékk uppi á ísskáp svo allir gætu
séð með hverjum þú hélst.
Elsku litli Óli Dagur okkar, við
munum sakna þín meira en orð fá
lýst og þú munt alltaf lifa í hjörtum
okkar,
þín systkini,
María Ósk, Guðbjörn Már og
Rúnar Geir.
Að morgni þriðjudagsins 6. júlí
barst okkur sú hörmulega fregn
að hann Ólafur Dagur, frændi
okkar, væri látinn.
Og maður spyi- sig þeirrar
spurningar af hverju þú varst tek-
inn svona fljótt frá okkur. Það er
fátt um svör en einhvern tilgang
hlýtur Guð að hafa með þessu.
Þegar litla frænka þín, hún Mar-
grét Rún, fékk þessa frétt tók hún
utan um mömmu sína og sagði:
„Mamma, nú er Óli Dagur hjá
Guði og langafa og þeir passa að
honum líði vel“. En Óli Dagur,
mikið eigum við eftir að sakna
þess að sjá þitt hlýja bros og
spjalla við þig um allt mögulegt
því þú hafðir mjög gaman af að
spjalla við fólk.
Þú hafðir mikinn áhuga á fót-
bolta og hélst mikið með Arsenal-
liðinu. Mikil synd var að þú fékkst
aldrei að prófa sjálfur að spila fót-
bolta vegna fötlunar þinnar því ég
veit að þú hefðir orðið góður leik-
maður ef marka má þinn mikla
áhuga.
Elsku Anna, Óli, María Ósk,
Guðbjörn Már og Rúnar Geir,
ykkar missir er mikill og við biðj-
um þess að góður Guð styrki ykk-
ur á erfiðri stundu og vaðveiti
drenginn ykkar, hann Óla Dag.
„Þótt ég sé látinn harmið mig ekki með
tárum. Hugsið ekki um dauðann með
harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert
eitt ykkar tár snertir mig og kvelur.
En þegar þið hlæið og syngið með glöðum
hug lyftist sál mín upp í mót, til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið
gefur og ég tek þátt í gleði ykkar yfir líf-
inu.“
(Ur spámanninum e. Kahlil Gibran.)
Kveðja,
Sigríður (Sirrý) og fjölskylda.
Elsku vinur. Þegar þið fluttuð í
Fífutjömina um áramótin síðastlið-
in vorum við svo heppin að fá að
kynnast þér og bróður þínum Rún-
ari Geir. A þessum stutta tíma höf-
um við átt margar og góðar sam-
verustundir. Þessar stundir munu
lifa í hjarta okkar. Við fundum fljótt
að við áttum margt sameiginlegt.
Þar stóð fótboltinn upp úr. En við
vorum ekki öll á sama máli um
hvaða lið væri best. Rúnar Geir og
Gunnar Sturla voru Manchester
United-aðdáendur, en þú og Val-
gerður Rut voru einlægir Arsenal-
aðdáendur og ætlar Valgerður Rut
að halda því merki uppi og við vitum
að þú styður við bakið á henni í því.
Við spiluðum fótbolta saman í göt-
unni, lékum okkur í fótboltaleikjum
í tölvunni og horfðum saman á fót-
boltaleiki í sjónvarpinu og sérstak-
lega þegar liðin okkai’ voru að
keppa. Þetta voru frábærar stundir
sem lifa í minningunni. Þegar við
spiluðum fótbolta í götunni voru þú
og bróðir þinn í markinu og við í
sókninni.
Okkur fannst mjög skemmtilegt
að fara með þér upp í Eyði-Sandvík
þar sem foreldrar þínar voru með
bú. Þar tíndum við þúfur þegar ver-
ið var að slétta túnið og horfðum á
þegar foreldrar þínir mjólkuðu
kýrnar. Þar spiluðum við líka fót-
bolta og þar fékk hundurinn ykkar
hún Táta að spila með okkur, en oft-
ast var hún þó bara fyrir. Hún
kunni ekki reglurnar í fótboltanum.
Það er mjög sárt fyrir okkur öll
að missa þig. Við vorum búin að
plana að gera ýmislegt saman í
sumar, t.d. að halda götugrill. Við
ætluðum saman í bíó að sjá Wild,
Wild West. Við ætluðum líka saman
í keilu. Þótt við sjáum þig ekki vit-
um við að þú verður alltaf með okk-
ur hvað sem við gerum.
Það er sárt fyrir fjölskyldu þína
að missa þig og sérstaklega er miss-
ir Rúnars Geirs mikill. Þið voruð
svo nánir og mikið saman. Þú fórst
svo snöggt frá okkur, en minningin
um yndislegan dreng fylgir okkur
áfram. Kæra fjölskylda í Fífutjöm
OLAFUR DAGUR
ÓLAFSSON
+ Laufey Eysteins-
dóttir fæddist í
Tjarnarkoti í Aust-
ur-Landeyjum 22.
desember 1912.
Hún lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Sunnuhlíð 4. júlí
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Fossvogskirkju
9. júlí
Það er nótt í Vatns-
firði, sumamótt eins og
hún getur fegurst verið
á Islandi. Allt um kring
er friður og ró. Þetta er sá tími er
náttúran, dýr og menn taka sér
hvfld á vit svefnsins. En ég get ekki
sofið. Er að hugsa um þig er nú hef-
ur hlotið hina hinstu hvfld eftir
langa ævi. Hugsanir um svo margt
sem þú sagðir mér streyma fram í
hugann. Eg sé fyrir mér gamla bað-
stofu á Suðurlandi árið 1912. Þar
komstu í heiminn eftir
mjög erfiða fæðingu,
vart hugað líf. En þú
varst seig eins og öll
þau mörgu ár tilveru
þinnar. Eg sé fyrir mér
ungling við störf og
leik. Eg sé fyrir mér
unga fallega Ijóshærða
stúlku, er finnur einu
ástina sína á Korpúlfs-
stöðum á fyrri hluta
þessarar aldar. Árin
þín á Reyðarfirði með
fyrrverandi tengdaföð-
ur mínum sem ég
þekkti aldrei. Sá mikli
mannkostamaður lést aðeins 37 ára
gamall.
Eg sé fyrir mér nýbýlingsárin
ykkar í Kópavogi. Þú sagðir mér
margt um mannlífið á þeim tíma.
Börnin sem lifðu urðu þrjú. Ham-
ingja, vinna og hin unga fjölskylda
var þér allt. En allt of snemma
stóðstu uppi, ung móðir, ein. Á þeim
tíma var félagsleg aðstoð önnur en
hún er í dag. En stóðstu ein? Nei, því
við hlið þér stóð sonur þinn, Haukur,
eins og klettur og aðstoðaði þig við
að koma yngri systkinunum til
manns. Við tók vinna á ýmsum stöð-
um. Vinna við að hafa í og á litlu fjöl-
skylduna. Sá vinnudagur var langur.
En uppskeran sú að nú kveður þig
hópur af mannvænlegu fólki.
Síðustu árin í Sunnuhlíð vai-stu
sátt. Sátt við lífið og umhverfið. Sátt
við lífshlaup þitt. Þakklát íyrir góða
umönnun ættingja og starfsfólks. Ég
sá þig síðast á laugardaginn og sá að
brátt mundi draga að leiðarlokum.
Ég vissi að þú heyrðir þau orð er ég
hvíslaði í eyra þér, þau orð mun ég
reyna að standa við.
Við áttum ekki alltaf skap saman
en vinátta okkar hélst alltaf óbreytt.
Ég flyt þér kveðju Hafdísar, sonar-
dóttur þinnar, er flutti af landi brott
daginn fyrir andlát þitt. Einnig
kveðju Gunnhildar, dóttur minnar.
Nú kveð ég þig í hinsta sinn og vona
að áframhaldið sé eins og trú okkar
kennir. Þá stendur þú einhver staðar
ung, ljóshærð stúlka og heldur í
höndina á ungum brúneygum manni
með bros á vör.
Sigríður Magnúsdóttir.
LAUFEY
EYSTEINSDÓTTIR
8, við sendum ykkur okkar innileg-
ustu samúðarkveður og biðjum Guð
að styrkja ykkur í sorg ykkar.
Gegnum tárin geisli skín,
gleði og huggun vekur.
Göfugandansáhrifþín
enginn frá mér tekur.
(Erla)
Þínir vinir,
Gunnar Sturla og
Valgerður Rut.
í dag kveðjum við bekkjarfélaga,
nemanda og vin. Við kveðjum Ólaf
Dag. Það er sárt að kveðja. En þeg-
ar við skoðum hug okkai- betur, þá
vitum við að sorgin kemur vegna
þess sem var gleði okkar. Við erum
þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast Óla Degi. Þegar við frétt-
um andlát hans komu fram í hugann
myndir úr skólastarfinu síðastliðinn
vetur. Brosandi og glaðlegur dreng-
ur sem brunar inn í skólastofuna í
stólnum sínum um leið og hann býð-
ur góðan dag. Óli Dagur tók þátt í
öllu skólastarfinu af jákvæði og
eljusemi. Glaðlyndi hans og þraut-
seigja verður okkur öllum eftir-
minnileg og lærdómsrík. Við minn-
umst drengs sem færði bekkjar-
systur sinni svolítið af namminu
sínu á öskudaginn þegar hann frétti
að hún væri veik. Við minnumst
gleðinnar sem fylgdi því að taka
þátt í leikritum á árshátíð og bók-
menntahátíð. Við minnumst ákafans
við að komast nógu fljótt út í fót-
bolta í frímínútum. Við minnumst
gáskans við að spóla á svellinu og
prófa stólinn í sköflunum. Við minn-
umst sjálfstæðisins við að bjarga
sér með sem minnstri hjálp. En
fyrst og síðast minnumst við
ánægjulegra stunda í samheldnum
og góðum bamahópi. Við erum öll
svo ótrúlega miklu ríkari eftir að
hafa kynnst Óla Degi.
Við í 4. J.H. ræddum oft saman
um óskir okkar og drauma á nota-
legum stundum í heimakróknum.
Við vissum öll hver var stærsta
óskin hans Óla Dags. Hún var að
geta hlaupið og leikið sér. Við trú-
um því að nú hafi sú ósk ræst. Við
sendum fjölskyldu Óla Dags inni-
legar samúðarkveðjur.
Ég fel í forsjá þína
Guð faðir sálu mína,
því nú er komin nótt.
Um ljósið lát mig dreyma
og Ijúfa engla geyma
öll bömin þín, svo blundi rótt.
(M. Joch.)
Fyrir hönd okkar í 4. J.H.
Inga og Jóna.
Það var bjartur, sólríkur sumar-
dagur og allt virtist svo fagurt en
skyndilega breyttist allt. Mér barst
andlátsfregn lítfls drengs, Ólafs
Dags Ólafssonar frá Bjömskoti.
Það leita ótal spurningar á hugann
um lífið, tilveruna og dauðann. Ég
finn engin svör. Hver er tilgangur-
inn? Eitt veit ég þó; Ólafur Dagur
hefur verið mikill gleðigjafi foreldr-
um sínum og systkinum, svo og öll-
um þeim sem hann hefur verið sam-
ferða á sinni stuttu ævi. Minningin
um hann er Ijós í myrkrinu sem
ávallt mun skína.
Leiðir okkar Óla Dags lágu sam-
an síðastliðið haust þegar ég tók til
starfa við skólann hans, Brautar-
holtsskóla á Skeiðum. Óli Dagur
gekk ekki heill til skógar en það lét
hann ekki hafa áhrif á jákvæðni sína
og góða skapið. Hann var hlýr í við-
móti, glaður og fullur bjartsýni. Oft
þegar Óli Dagur hafði lokið við
verkefni sitt spjölluðum við saman
um óteljandi hluti sem hann hafði
áhuga á. Hann hafði svo ótrúlega
sterkan vilja til þess að vera með í
öllu og láta sig allt varða. Þrátt fyrir
ungan aldur var Óli Dagur mjög
ábyrgur, hann þekkti sínai’ sterku
og veiku hliðar.
Óli Dagur var vinsæll meðal
skólafélaga sinna og naut þess að
vera með þeim í leik og starfi. Það
var gaman að sjá þegar hópurinn
hljóp niður á fótboltavöll til leikja,
þá hoppuðu einn eða tveir vinir aft-
an á hjólastólinn og völdu að aka
með vini sínum um hlaðið, ýmist í
leik eða hrókasamræðum.
Ég minnist haustferðar okkar í
september síðastliðnum, um Hval-
fjarðargöngin upp á Akranes. Ég)|
gleymi ekki hve hrifinn Óli Dagur
var í Steinasafninu. Þar var svo
margt að skoða og margt sem hann
vildi fá svör við.
Okkur þótti leitt þegar þeir Óli
Dagur og Rúnar Geir fluttu með
fjölskyldu sinni á Selfoss en við
vissum að þannig varð það að vera.
Við söknuðum þeirra öll og vorum
ákveðin í að halda sambapdinu
áfram. Nú, við fráfall Ólafs Dags, er
saknaðartilfinningin enn sterkari.
Vegir Guðs eru órannsakanlegir
og við verðum að trúa því að til-
gangur sé með því sem á okkur eU
lagt; Guð hefur kallað Ólaf Dag til
annarra starfa á æðri stigum. Elsku
Anna, Ólafur, Rúnar Geir, Guðbjörn
og María, við í Brautarholti biðjum
algóðan Guð að gefa ykkur styrk til
þess að vinna úr þessari þungu
sorg.
Minningin um Ólaf Dag Ólafsson
mun lifa í hjörtum okkar.
Rut Guðmundsdóttir.
Kveðja frá Sólvallaskóla
Sú harmafregn barst okkur að
morgni 6. júlí síðastliðins að Ólafur
Dagur Ólafsson, 9 ára að aldri, hefði _
látist á sjúkrahúsi í Reykjavík þá’"'
um nóttina.
Hér má með sanni segja að skjótt
hafi sól brugðið sumri.
Ólafur Dagur kom til okkar í Sól-
vallaskóla um síðustu áramót ásamt
tveimur bræðrum sínum. Enda þótt
Ólafur Dagur væri fatlaður og
bundinn hjólastól vakti það strax at-
hygli mína hve glaðlegur og hiklaus
hann var í allri framkomu. Hann
bar það þannig með sér við fyrstu
kynni að hann hafði notið afar
þroskavænlegra skilyrða, bæði ÍJM
skóla og á heimili.
Enda gekk það og eftir að Ólafur
Dagur varð afar vinsæll meðal
bekkjarsystkina sinna í nýja bekkn-
um, 4. JH. Þau studdu hann af al-
hug þar sem þau fundu hann veikan
fyrir, fylgdu honum eftir í frímínút-
um, á göngum eða leikvelli og
einnig í íþróttasal.
En Ólafur Dagur hafði hins vegar
fulla einurð til að taka forystu þar
sem hann fann sig sterkan fyrir.
Hann hafði t.d. framsögn fyrir
hópnum á bekkjarskemmtunum og í
skákíþróttinni bar hann af öðrum.
Glaðværðin og bjartsýnin voru
þau einkenni sem hann bar með sér
hvert sem hann fór og með þeirrig^
lyndiseinkunn var hann öðrum sönn
fyrirmynd. Ekki síst þess vegna
mun nú margur sakna vinar í stað
við skyndilegt fráfall hans. Sárastur
harmur er þó kveðinn að foreldrum
hans og systkinum.
Fyrir hönd Sólvallaskóla sendi ég
þeim mínar innilegustu samúðar-
kveðjur um leið og við biðjum minn-
ingu Ólafs Dags Ólafssonar bless-
unar Guðs.
Óli Þ. Guðbjartsson.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri
Sverrir Olsen,
útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/'