Morgunblaðið - 20.07.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999 45^
Dagbók lögreglunnar
Mikill erill vegna ölvunar
helgina 16.-19. júlí 1999
MIKILL erill var hjá lögreglunni í
Reykjavík um helgina vegna ölvunar
og ýmislegs annars en bókuð voru
620 verkefni í dagbólc lögreglunnar
um helgina.
Of mikið var um hraðakstur um
helgina en 53 voru stöðvaðir þess
vegna. Þá var tilkynnt um 19 innbrot
og var nokkur hluti þeirra í bifreiðir.
Tilkynnt var um fjöldaslagsmál við
hús í austurborginni aðfaranótt
sunnudags og þá lagði lögregla mikla
vinnu í að leita að tveimur stroku-
föngum frá Litla-Hrauni. Þeir fund-
ust í heimahúsi í Reykjavík á sunnu-
dagskvöld. Þá voru sextán teknir fyr-
ir meinta ölvun við akstur.
Aðfaranótt laugai-dags valt bifreið
á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Ekki
urðu slys á fólki en ökumaður var
grunaður um ölvun við akstur. Mjög
mikil umferð var um Vesturlandsveg
áleiðis til borgarinnar síðdegis á
sunnudag og nokkrar tafir urðu.
Slys og líkamsmeiðingar
Kona fótbrotnaði í Lækjargötu að-
faranótt laugardags og var flutt á
slysadeild. Þá slasaðist maður á hót-
eli er hann rann til í bleytu í eidhúsi
og hlaut skurð á augabrún.
Tilkynnt var um fjöldaslagsmál
við hús í austurborginni aðfaranótt
sunnudags. Þar reyndust tveir menn
vera að slást og var annar fluttur á
slysadeild en hinn vildi sjá um sig
sjálfur.
A föstudagskvöld sprakk gos-
drykkjatæki framan í dreng í heima-
húsi. Hann hlaut áverka á vör og var
fluttur á slysadeild til aðhlynningar.
Annar drengur féll niður um hlera
og niður á teppalagt gólf fyrir neðan.
Hann fékk höfuðhögg og var fluttur
á slysadeild.
Urðu fyrir skoti úr loftbyssu
Tveir ungir piltar skutu úr loft-
byssu á aðra tvo og fékk annar pilt-
anna skot í læri og háls en hinn í nef-
ið um sentímetra frá auganu. Ekki
var um alvarlega áverka að ræða en
óvíst er hvað hefði gerst ef skotið
hefði lent í auganu. Svona tilfelli
koma upp öðru hvoru og virðist fólk
ekki átta sig á því að loftbyssur eru
ekki leikföng og alfarið bannaðar
fyrir aðra en þá sem hafa fyrir þeim
sérstakt leyfi.
Á sunnudag féll drengur niður af
bílskúrsþaki við Rauðalæk. Hann
kenndi til eymsla í baki og hendi og
var fluttur á slysadeild.
19 innbrot tilkynnt til lögreglu
Tilkynnt var um 19 innbrot um
helgina og var nokkur hluti þeirra í
bifreiðir. Úr þeim var stolið hljóm-
tækjum, skilríkjum, farsíma og hús-
lyklum. Brotist var inn í geymslu í
vesturbænum og stolið silfurmunum,
málverki og hljóðfæri.
Um helgina gerðist það í tvígang
að maður kom inn í söluturn til að
kaupa vindlingalengjur. í stað þess
að borga vöruna var hún gripin og
hlaupið út. Málin eru í rannsókn.
Aðfaranótt laugardags var fremur
rólegt í miðborginni þrátt fyrir tals-
verðan mannfjölda þar. Nokkuð var
um stimpingar og pústra manna á
milli en ekki alvarleg meiðsli, þó
voru þrír fluttir á slysadeild.
Háttaði sig við Tjömina
Um helgina var tilkynnt um mann
sem var að hátta sig og búast til
sunds í Tjörninni. Þegar lögreglan
kom á staðinn var maðurinn að
klæða sig aftur svo minna hefur orð-
ið úr sundinu en ætlað var.
Farið var inn í ólæsta bifreið í
Hvassaleiti og kveikt í farþegasæti.
Bifreiðin skemmdist nokkuð.
Tilkynnt var um mann að skjóta úr
■
R A Ð A U G
S I IM G A R
loftbyssu. í ljós kom að þetta var
svokölluð gormabyssa og var hún
haldlögð.
Á laugardag var tilkynnt um að
„glussi“ læki úr pramma í höfninni.
Starfsmenn hafnarinnar fóru strax að
eyða olíunni.
Fjöldi fólks á veitingastöðum
Mikill fjöldi fólks var á veitinga-
stöðum í miðborginni aðfaranótt
sunnudags. Talsverður erill var hjá
lögreglu við ýmis verkefni þar, þríi-
handteknir vegna tveggja líkams-
árása og tveir fluttir á slysadeild.
Einn var handtekinn vegna rúðu-
brots. Ástandið var þó nokkuð gott
miðað við mannfjöldann.
Mikil vinna var lögð í leit lögregl-
unnar að tveimur strokuföngum frá
Litla-Hrauni. Þeir fundust í heima-
húsi í Reykjavík á sunnudagskvöld.
Maður var vistaður í fanga-
geymslu fyrir að reyna að hindra
lögreglu í stai’fi í miðborginni með
því að standa fyrir lögreglubifreið á
gatnamótum.
Tilkynnt var um eld utandyra í
austurbænum á sunnudagskvöld.
Þar hafði verið kveikt í olíu á malbiki
og slökkti lögreglan eldinn. Einnig
var kveikt í jólatré á svæði Sorpu.
Frá Kvennaskólanum
í Reykjavík
Laus eru til umsóknar kennslustörf við skólann
næsta vetur í eftirtöldum greinum:
Eðlisfræði 8 kennslustundir á viku.
Efnafræði 12 kennslustundir á viku.
Stjörnufræði 3 kennslustundir á viku.
Umsóknarfrestur er til 31. júlí nk.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, berist skólanum að Fríkirkjuvegi
9. Ekki þarf sérstakt umsóknareyðublað.
Launakjör eru skv. samningum kennarafélaga
og ríkisins. Ráðningartími er frá 1. ágúst.
Ingibjörg Guðmundsdóttir skólameistari veitir
nánari upplýsingar í síma 562 8077 eða
553 9408.
Skólameistari.
Lagermaður
Röskan mann vantartil starfa á frostlager. Þarf
að geta byrjað fljótlega. Menn á „besta aldri"
eru sérlega velkomnir. Hæfniskröfur: Skipu-
lagshæfni og snyrtimennska. Tölvukunnátta
æskileg en ekki skilyrði. Góð laun í boði fyrir
góðan mann.
Nánari upplýsingarveitirverksmiðjustjóri í síma
568 6366 þriðjudag og miðvikudag milli kl. 10
og 12.
Kjötumboðið hf.
Á.GUÐMUNDSS0N ehf
Húsgagnasmiðir/
verkamenn
Óskum eftir að ráða húsgagnasmiði og verka-
menn til framtíðarstarfa í nýja húsgagnaverk-
smiðju okkarað Bæjarlind 8—10, Kópavogi.
Nánari upplýsingar veitir verkstjóri á staðnum.
Vörubílstjórar
Vana vörubílstjóra og „trailer"-bílstjóra vantar
til starfa strax. Einnig vanan röralagnamann.
Mikil vinna.
Upplýsingar í símum 565 3140 og 899 2303.
Klæðning ehf.,
Vesturhrauni 5.
Bogmaður
Leita eftir að starfa með fólki í
bogmannsmerkinu. Spennandi starf.
Upplýsingar Díana Von Ancken, sími
897 6304 eða netfang dva@simnet.is.
HSKUR
Kennarar — kennarar
Okkurvantarframreiðslufólkog þjóna ífulla
vinnu og aukavinnu. Kennarar henta mjög vel.
Góð laun í boði. Skemmtileg og lífleg vinna.
Upplýsingar á staðnum eða í síma 553 9700.
Kjötiðnaðarmenn
Kjötiðnaðarmenn eða menn, vana kjötskurði,
vantar strax. Einnig vantar starfsfólk í almenn
pökkunar- og vinnslustörf nú þegar.
Nánari upplýsingarveitirverksmiðjustjóri í síma
568 6366 þriðjudag og miðvikudag milli kl. 10
og 12.
Kjötumboðið hf.
Alþjóðlegt
stórfyrirtæki
leitar að dugmiklu og sjálfstæðu fólki. Tungu-
mála- og tölvuþekking æskileg. Hlutastarf
50—150 þúsund og fullt starf 150— 300 þús.
Viðtalspantanir í síma 588 0809.
Lagerstarf
Heildverslun með hársnyrtivörur óskar eftir
starfsmanni á lager.
Viðkomandi þarf að vera ábyggilegur og eiga
gott með að umgangast fólk.
Umsóknir beristtil afgreiðslu Mbl., merktar:
„Hár - 8321", fyrir 23. júlí nk.
Skipstjóri
Óskum að ráða skipstjóra á Skel ÍS 33 sem
veiðir með skelplóg.
Upplýsingar í síma 862 0583.
Skelfiskur hf., Flateyri.
TILK YISIMIIMGAR
Aðalfundur
Aðalfundur Norðvesturbandalagsins hf. verður
haldinn þriðjudaginn 27. júlí 1999 kl. 14.00.
Fundurinn verður í matsal sláturhúss NVB á
Norðurbraut 24, Hvammstanga.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Skýrsla framkvæmdastjóra.
3. Ársreikningur 1998.
4. Kosning stjórnar og endurskoðanda.
5. Meðferð taps.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
7. Heimild til aukningar hlutafjár í félaginu.
8. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur 1998 verðurtil sýnis á skrifstofu
félagsins viku fyrir aðalfund.
Stjórn Norðvesturbandalagsins hf.
TILBOÐ/UTBOO
ÓUFSFJÖRÐUR
SLÆ
rrn ic
SIGLINGASTOFNUN
Útboð
Hafnarsamlag Eyjafjarðar óskar eftir til-
boðum í verkið:
Ólafsfjörður — stálþil og þekja
Helstu magntölur:
• Brjóta þekju á keri 150 m2 ásamt 20 m löng-
um steyptum vegg.
• Reka niður47 tvöfaldar stálþilsplötur og
ganga frá festingum og stögum.
• Fylling í þil og ker: 2000 m3.
• Steypa 60 m kantbita með pollum, niðurföll-
um og stigum.
• Steypa þekju 410 m2 og 20 m vegg.
• Útvega og koma fyrir fríholtum.
• Grjótverja utan við ker um 2400 m3.
• Rífa um 90 m langa trébryggju og koma fyrir
grjótfyllingu alls um 3100 nrí3.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofu
Dalvíkurbyggðar, ráðhúsinu Dalvík og á skrif-
stofu Siglingastofnunar, Vesturvör 2, Kópavogi
frá miðvikudeginum 21. júlí 1999, gegn 5.000
kr. greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum þriðjudag-
inn 10. áqúst 1999 kl. 11.00.
TIL SOLU
Skrifstofustólar
Frábært tilboð á skrifstofustólum.
Innx, Síðumúla 34,
sími 588 2444.
Opið kl. 13-18.
Lítið fyrirtæki
til sölu með mikla vaxtamöguleika hér
heima og erlendis.
Verð 550 þúsund með lager.
Áhugasamir hafi samband við Sverri í
síma 898 3000.
YMISLEGT
Er rafbylgjuvandi
hjá þér?
Er ryk og ló í ibúðinni?
Ef svarið er já, þá er likami
þinn eins að innan, það
veldur heilsutjóni. í boði er
framtíðarlausn og ráðgjöf.
Hreiðar Jónsson,
sími 695 4455.
Dilbert á Netinu
vg) mbl.is
^ALLTAH eiTTHVAO NÝTT~