Morgunblaðið - 04.08.1999, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1999 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
Kjaftstopp
Frá Herði Torfasyni:
Á STUNDUM er það þannig í líflnu
að maður verður hreinlega kjaft-
stopp af undrun. Þetta henti mig
núna nýlega í samskiptum mínum
, við Landssímann. Og þar sem ég get
ekki litið á þetta sem mitt einkamál
skrifa ég þetta greinarkorn og krefst
' svara frá Landssímanum á sama
vettfangi. Málið er að ég fór í langt
ferðalag í sumar og hafði fartölvu
með til að geta unnið og sinnt þeim
hluta starfs míns sem byggist á sam-
skiptum við ýmsa aðila gegnum raf-
póst og irc. Þetta er í fyrsta sinn sem
ég ferðast með fartölvu til útlanda.
Þar sem ég er tengdur í gegnum
Landssímann og hef netfang þar, og
til að hafa allt á hreinu, brá ég mér
inn á Grensásveg í þjónustumiðstöð-
ina hjá þeim og ræddi málið við einn
starfsmann þar, áður en ég fór. Þau
samskipti voru hin ánægjulegustu.
Maðurinn liðlegur, brosmildur og
kurteis og skýr í svörum. Hann
sýndi mér meira að segja hvað ég
œtti að gera til að tengjast. Sem sagt
allt var í stakasta lagi.
Eg fór til útlanda og þar kom að ég
skrifaði nokkur rafbréf og sendi og
j sótti þau sem ég átti hjá isholf.is.
Þetta gekk vel nema að stuttu seinna
! hætti ég að fá rafbréf. Þetta var ein-
kennilegt og stóðst eiginlega engin
rök. Mikilvæg mál voru í umræðu og
á samningastigi en allt í einu hætta
allir að skrifa mér! Augljóslega var
eitthvað að. Ég yfirfer allar tenging-
ar í tölvunni. Finn ekkert athugunar-
vert. Ég leita álits sérfræðinga, þeh-
segja mér að allt sé í stakasta lagi.
Þá byrja símhringingarnar frá
j fólki á Islandi sem spyr mig hvers-
vegna í ósköpunum ég svari ekki raf-
bréfunum þeitra? Eina sem ég gat
sagt, eins og satt var, að ég hafði
ekki fengið neinn rafpóst frá þeim.
Ég notaði allar aðferðir sem ég
kunni en allt kom fyrir ekki. Nú var
málið að skipta um netfang í snatri
til að bjarga málum og það er gert.
Ég reyni að sækja rafbréfín mín hjá
isholf.is í gegnum hotmail.com en
þeir fá þær upplýsingar að ég sé
ekki skráður þar. Ég hafði samband
við isholf.is og fæ að vita að þar sem
ég sé staddur í útlöndum megi ég
senda rafpóst í gegnum fyrirtæki
þeirra en ekki sækja hann þangað.
Þetta sé regla hjá þeim. Stutt og
skýrt svar. Þá varð ég kjaftstopp.
Kjaftstopp vegna þess að ég gerði
mér grein fyrir því að ef ég hefði ekki
rætt við Landsímann áður en ég fór
hefðu þessi vandræði mín aldrei orðið.
Ég hefði áreynslulaust getað sótt all-
an minn rafpóst til þeirra. En þar sem
þeir vissu um dvöl mína í útlandinu þá
neita þeir mér um aðgang að póstin-
um mínum! Þetta atriði hafði enginn
nefnt við mig áður en ég fór. Ekki
einu sinni gefið það í skyn. Hverslags
einræðistilhneiging er hér á ferð?
Ég krefst opinberlega skýringa á
þessari framkomu Landssímans. Og
nú skulu forsvarsmenn Landssímans
ekki æla framan í mig því svari að ég
ætti að hafa kynnt mér reglur þeirra
áður en ég fór því þeim bar að kynna
mér þær þegar ég leitaði til þeirra.
Og þar sem slíkt mál snertir alla sem
nota rafpóst vil ég endilega vekja at-
hygli á þessu og helst fá álit annarra
á málinu. Eins langar mig til að fá að
vita hvort slíkar reglur séu hjá öðr-
um samskiptafyrirtækjum sem ann-
ast tölvusamskipti.
HÖRÐUR TORFASON,
söngvaskáld og leikstjóri.
Skoðanakönnun á fjár
hagsafkomu aldraðra
Frá Guðmundi Jóhannssyni:
l »HEYRT hef ég erkibiskups boð-
skap.“ „Já, ágætu eftirlaunaþegar.
Þið hafið eflaust bæði heyrt og séð
' niðurstöðu skoðanakönnunar um fjár-
hagslega afkomu eftirlaunaþega og
annarra láglaunahópa, m.ö.o. þið haf-
ið það gott og getið lagt niður skottið
og verið ekki með neitt nöldur. Það
eru aðeins örfá prósent sem eru drag-
ast upp vegna fátæktar. Miðvikudag-
inn 21. júlí birtist nærri heilsíðufrétt í
Morgunblaðinu um niðurstöðu þess-
(arar skoðanakönnunar, ásamt bros-
andi heilbrigðisráðherra, og efalaust
hefur könnunin glatt hann. Ekki
I hvarflar að mér að vefengja niður-
stöður en greinin er fróðleg að ýmsu
leyti og kemur eitt og annað fram í
henni sem er athyglisvert og rennir
stoðum undir ábendingar okkar sem
höfum haldið því fram að þessir hóp-
ar sætu við skertan hlut. Umrædd
skoðanakönnun gefur tilefni til nokk-
urra spurninga sem mjög fróðlegt
væri að fá svör við. Með því að ég sá
I ekki að fram kæmi hve margir voru í
| þessari könnun (kannski hefur mér
| yfírsést það) þá spyr ég hve margir
voru þeir? I öðru lagi, hver voru neðri
aldursmörk þeirra sem spurðir voru?
Var einhver hluti þeirra sem spurðir
voru með launatekjur og ef svo var, af
hve stórum hluta af heildinni? Það er
glæsilegt að tróna á toppinum með
góð lífskjör miðað við nágranna okkar
en einhvers staðar stendur: „Maður,
líttu þér nær.“ Væri það ekki nær-
j tækara að bera okkur saman við lífs-
hjör almennt innan eigin þjóðar. Því
væri fróðlegt að vita hvort það sé
skoðun ráðherrans að aldraðir eigi að
hafa rúm 50% af meðallaunum innan
þjóðfélagsins? Og hvort hann telji það
líka sjálfsagt að þeir fái 50% af gild-
andi launavísitölu eins og hún er
hverju sinni. Enda kemur fram í um-
ræddri frétt í Morgunblaðinu að
ánægja aldraðra með íjárhagsafkomu
sína hefur minnkað frá 1995-1999 og
um leið óánægjan aukist að sama
skapi og ekki að ástæðulausu, þ.e.
markvisst hefur verið unnið að því að
skerða tekjurnar. (Það er slæmt hvað
það hefur tekið þessa hópa langan
tíma að átta sig á þessari skerðingu.)
Ef við skiljum kjamann frá hisminu
er niðurstaðan sú, að markvisst er
verið að draga þetta láglaunafólk í
dilka, sem ekki njóta almennra laga
og réttinda sem gilda í landinu. Eg
endurtek í því sambandi launavísitöl-
una svo og skattamálin og þar ítreka
ég, sem margoft hefur verið bent á,
að það er staðreynd að um þrír fjórðu
hlutar lífeyrissjóðsteknanna eru fjár-
magnstekjur en eigi að síður verður
að greiða yfír 38% skatt af þeim.
Þetta heitir að njóta ekki almennra
og gildandi laga. Talið er að í dag séu
6,6 vinnandi menn á bak við hvem líf-
eyrisþega, og muni verða komið 3,3
árið 2030. Sjálfsagt er hér um að
ræða rétta og fræðilega útreikninga.
Má þá ekki láta sér detta í hug að öll
þjóðin verði komin á eftirlaun um
miðja næstu öld? En án gamans skilst
mér að stefnt sé að því að lífeyrissjóð-
ir framtíðarinnar yrðu burðarásar í
eftirlaunum þjóðarinnar. Hins vegar
verður aldrei hjá því komist að viss
hópur, sem ýmsar orsakir valda, verði
háður greiðslum frá hinu opinbera.
GUÐMUNDUR JÓHANNSSON
eftirlaunaþegi.
^vjrskass/xr
Á allar gerðir bíla. **
Verð frá aðeins kr.
19.900,-
cm
JÓNSSON ehf
14, 112 Reykjavík, sími 587 6644
uAum«s|um, Toyota-salurinn í Njarðvik. aiml 421 4888
UTSALAN
hefst í dag
Fjöldi
spennandi
tilboða
SKÚUERSLUN
KQPAVOGS
HAMRABORG 3 • SÍMi 5 54 1754
Veður og færð á Netinu
vCT>mbl.is
-ALLTAf^ eiTTHVAB /VYTT