Morgunblaðið - 05.08.1999, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1999 C 3»
Morgunblaðið/Björn Gíslason
grátt silfur saman. Hér sjást þær (
i loks sigur eftir langa bið.
á list
rinum
Akureyri á dögunum. Þeir eru báðir
stöðugir kylfingar með góða, einfalda
sveiflu. Þeir slá mjög beint og því gæti
Hvaleyrarholtsvöllur hentað þeim vel því
brautirnar þar eru þröngar og karginn
erfiður.
Gömlu mennirnir, Björgvin Þorsteins-
son og Þorsteinn Hallgrímsson, hafa
reynsluna. Ég veit hins vegar ekki hvort
Björgvin er enn þyrstur. Ef til vill hefur
hann hug á að ljúka öldinni með Islands-
meistaratitli."
Ragnar telur Hvaleyrarholtsvöll hinn
besta hér á landi um þessar mundir. Því
telur hann að keppendur eigi að geta
nýtt sér góðar aðstæður og sýnt góðan
leik. „Völlurinn er í besta ástandi sem
hægt er að hafa hann í. Ef mótið vinnst á
pari eða yfir því í góðu veðri tel ég óhætt
að segja að við þyrftum þá að endur-
skoða æfingaáætlanir okkar,“ segir
Ragnar. Hinsvegar segir hann að mun
færri kylfíngar verði um hituna ef veðrið
verður slæmt. „Það er erfiðara að spila í
roki og þá skara þeir fram úr sem kunna
fleiri tegundir högga, eins og Þorsteinn
Hallgrímsson.“
LANDSMÓTIÐ í GOLFI
Einvígi Ragnhildar Islandsmeistara og Ólafar Maríu iiggur í loftinu
Völlurinn helsta hindr-
unin - ekki mótheriarnir
Síðastliðin þrjú ár hefur keppni um æðstu metorð íslenskra
kvenkylfinga staðið á milli Ragnhildar Sigurðardóttur, marg-
reyndrar keppniskonu úr Goifklúbbi Reykjavíkur, sem varð m.a.
íslandsmeistari um miðjan níunda áratuginn, og Ólafar Maríu
Jónsdóttur úr Keili, sem varð íslandsmeistari fyrir tveimur árum.
Búast má við að þær tvær berjist um meistaratignina á Hvaleyr-
arholtsvelli, heimavelii Ólafar, um helgina, en aðrar reyna eftir
fremsta megni að halda í við þær. Hinsvegar segir Ragnar Ólafs-
son, landsliðseinvaldur: „Hinar eru einfaldlega ekki tilbúnar."
Ragnhildur á titil að verja. Hún
hefur verið lengi að og hefur tví-
vegis orðið íslandsmeistari. í fyrra
ygggggUKM skiptið, 1985, var hún
Eftir aðeins fimmtán ára
Edwin gömul. Hún átti mjög
Rögnvaldsson gott tímabil í fyrra, en
hefur ekki náð að
fylgja því eftir í ár.
Hún hefur þó hug á að snúa blaðinu
við, en Landsmótið er sannarlega
rétti tíminn til þess. „Ég hlakka
virkilega mikið til. Það er gaman að
taka þátt í Landsmóti, því þar mynd-
ast alltaf mikil stemmning," segir
Ragnhildur.
Þér gekk mjög vel í fyrra og þá
vannstu mörg mót. Hvemig tekur þú
því þá núna þegar þú sigrar ekki?
„Ég hef bara einfaldlega ekki gert
jafn góða hluti og í fyrra. Ég veit
upp á mig skömmina í þeim efnum.
En það er mikilvægt að láta það hafa
sem minnst áhrif á sig, reyna frekar
að bæta sig. Það munaði til dæmis
bara einu höggi á okkur Ólöfu á
Akureyri. Auðvitað vil ég alltaf vinna
- sigurviljinn er alltaf til staðar.“
En hver verða viðbrögð þín þegar
þú nærð ekki að vinna sigur og Olöf
María fer með sigur afhólmi?
„Ég er komin með svo mikla
reynslu af því að vera í öðru sæti.
Það hefur margoft orðið hlutskipti
mitt í Landsmóti. Ég hugsa þó ekki
mikið um hver gerði betur en ég.
Maður vinnur bara ef maður leikur
nógu vel. Þess vegna reyni ég bara
að bæta mig þegar mér gengur
ekki sem skyldi," segir Ragnhildur,
sem segist hafa orðið fyrir von-
brigðum með frammistöðu sína á
flötunum í sumar. „Á Akureyri var
ég eins og asni á flötunum - þrípút-
tandi og tvívippandi. Þau mistök
liggja í höfðinu. Púttin hafa ekki
verið nógu góð. Ég er núna komin
með nýjan pútter, sem á að hjálpa
mér við að strjúka púttin beint því
hann er þyngri.“
Heldurðu að þú mætir með öðru
hugarfari íþetta mót heldur en ef þú
hefðir sigrað í tveimur síðustu mót-
unum?
„Já, ég hugsa það. Ég hefði í það
minnsta verið sigurvissari. Ég þarf
bara að spila betur. Ég hef ekki stað-
ið mig nógu vel. Leikur minn hefur
þó verið nokkuð stöðugur og ég hef
skorað ágætlega. Ég hef ekki oft
slegið meira en áttatíu högg, heldur
hef ég oftast verið í kringum 75 til 77
högg. En mig vantar þessa „bombu-
hringi“ þegar ég næ að leika undir
pari líkt og í fyrra. Það er rosalega
gaman.“
Það liðu þrettán ár frá fyrri ís-
landsmeistaratitli þínum til þess
næsta. Hvað orsakaði þessa „þurrð“?
„Ég og Karen [Sævarsdóttir]
börðumst sífellt um titilinn og vorum
oft ansi jafnar. En mig vantaði ein-
faldlega hugsunarhátt sigurvegarans
- þurfti að vita fyrir víst að ég gæti
sigrað.“
Veistu það núna?
„Já, ég sýndi í fyrra að ég gat unn-
ið. Auðvitað get ég þetta.“
Völlurinn - heimavöllur Ólafar
Maríu - er hann eitthvað sem hefur
góð eða slæm áhrif á þig?
„Hann er fyrst og fremst í frá-
bæru ástandi. Það er mjög vel um
hann hugsað og þar er allt virkilega
snyrtilegt. Keilismenn eiga heiður
skilinn fyrir frábær störf. Ég hef
ekki séð jafn snyrtilegan völl hér á
Islandi í mörg ár. Mér finnst mjög
gaman að spila þarna. Veðrið á að
vera gott, nánast iogn, en ef það er
eitthvert rok er mun erfiðara við
völlinn að etja - sérstaklega Hraun-
ið. Þá þarf maður að nota heilann
mikið,“ segir Ragnhildur.
Spila til sigurs
Ólöf María Jónsdóttir, sem varð
íslandsmeistari í Grafarholti fyrir
tveimur árum, verður á heimavelli í
þetta sinn. Hún hefur sigrað í tveim-
ur síðustu stigamótunum - fyrst á
íslandsmótinu í holukeppni og síðast
á Akureyri fyrir tíu dögum. Ólöf
María segist ætla að leika til sigurs
og hefur aðeins áhyggjur af einu -
þolinmæðinni.
Með hvaða hugarfari hefurðu ein-
sett þér að mæta til leiks?
„Við upphaf mótsins hef ég það að
leiðarljósi að halda þolinmæðinni og
leika af skynsemi, en umfram allt
stefni ég á að spila til sigurs. Á því
leikur enginn vafi og það er það eina
sem kemst að í mínum huga.“
Stendur þér stuggur af einhverj-
um öðrum keppanda en Ragnhildi
Sigurðardóttur?
„Ég efast um að einhver annar
geti unnið þetta mót, en Kristín Elsa
[Erlendsdóttir, Keili] og Herborg
[Arnarsdóttir, GR] geta báðar leikið
mjög vel og það má ekki útiloka þær,
þó athyglin hafi beinst nær eingöngu
að mér og Ragnhildi.“
Ertu að leika gegn Ragnhildi,
gegn vellinum - eða jafnvel gegn
sjálfri þér?
„Ég er náttúrulega aðallega að
keppa við völlinn - og legg mest upp
úr því að ég sjálf leiki gott golf. Ég
hugsa ekki um það sem keppinautar
mínir gera. Ef ég finn taktinn og verð
þolinmóð tel ég að útkoman geti orðið
góð fyrir mig. Völlurinn er helsta
hindrunin - ekki mótherjarnir.“
Heimavöllurinn - hvernig áhrif
heldurðu að hann hafí á þig? Finn-
urðu fyrir meiri þrýstingi utan frá
vegna hans eða fínnst þér þú hafa
forskot?
„Ég held að það sé beggja blands.
Auðvitað eru gerðar meiri væntingar
til mín - að ég standi mig vel á eigin
heimavelli, en vitaskuld hef ég líka
forskot vegna þess að ég get verið
heima og slappað af. Þetta er tví-
rætt. Ég þekki aðstæður betur og
vonandi verða fleiri áhorfendur frá
mínum klúbbi. Þannig verð ég ró-
legri.“
Hvernig líður þér fyrir mótið? Ert
þú full sjálfstrausts eftir að hafa
sigrað á tveimur stigamótum í röð?
„Sjálfstraustið er í lagi. Vonandi
verður þolinmæðin á svipuðum nót-
um. Hún er það eina sem ég hef
áhyggjur af.“
Hefur hún verið vandamál?
„Já, það hefur komið fyrir að ég
hef orðið pirruð. Flatirnar á vellinum
eru erfiðar. Þær líta út fyrir að vera
auðveldar viðureignar, en í þeim er
lúmskt brot, sem erfitt er að lesa.
Það er því mjög mikilvægt að púttin
heppnist, en ef því er ekki að heilsa
verð ég að halda þolinmæðinni."
Ragnhildur og Olöf
María hafast ólíkt að
RAGNHILDUR Sigurðardóttir og Ólöf María hafast ólíkt að við æfing-
ar. Kappsamir kylfingar skiptast gjarnan í tvær fylkingar hvað þær
varðar. Flestir eyða miklum tíma á æfingasvæðinu og slá þar hundruð
högga þar til þeir eru ánægðir, en mun færri fara út á völl til að finna
taktinn og æfa sig í að aðlaga leik sinn aðstæðum.
Ragnhildur er ein þeirra sem fer oftast út á völl og leikur nokkrar
holur til að skerpa leik sinn. „Ég fer mest á kvöldin, þegar fólki er farið
að fækka á vellinum. Þegar ég slæ misheppnað högg, slæ ég bara öðr-
um bolta og stundum prófa ég nokkur högg við flatirnar, t.d. úr glomp-
um,“ sagði Ragnhildur þegar Morgunblaðið náði tali af henni við loka-
undirbúning fyrir Landsmótið, en þá var hún einmitt við leik á Korp-
úlfsstaðavelli.
Ólöf María er á öndverðum meiði. „Ég legg mikið uppúr því að fara á
æfingasvæðið. Sérstaklega gerði ég það mikið í byrjun sumars, en síð-
astliðinn mánuð hef ég spilað meira en áður,“ segir hún. Lengi má deila
um hvor aðferðin sé happadrýgri. Til eru dæmi um andstæður sem
þessar í heimi atvinnumanna. Suður-Afríkubúinn Ernie Els tilheyrir
sama hópi og Ragnhildur, en Fiji-búinn Vijay Singh leitar sífellt að
hinni fullkomnu golfsveiflu á æfingasvæðinu.
verður haldið á Kiðjabergsvelli,
Grímsnesi, laugardaginn 7. ágúst.
Vegleg verðlaun, bæði með og án
forgjafar, auk annarra verðlauna.
Skráning á Kiðjabergi í síma 486 4495
kl. 16-20 fimmtudag og kl. 12-20
föstudag.
Komið og spilið á hinum stórglæsilega
Kiðjabergsvelli.
Allir kylfingar velkomnir.
BYKQ
W
Golfklúbbur
Kiðjabergs
(9fesiO/
BYKO - MOTIÐ