Morgunblaðið - 05.08.1999, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA
KR-ingar í úrslitin
KR-ingar tryggðu sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni Knattspyrnu-
sambands íslands er liðið lagði Breiðablik 3:0 á KR-velli í gær-
kvöldi. Blikar voru síst lakari aðilinn framan af leik en þeir gerðu
sig seka um slæm varnarmistök sem leikmenn Vesturbæjarliðs-
ins nýttu sér til hins ýtrasta.
Morgunblaðið/Golli
SIGURREIFIR KR-ingar. Sigursteinn Gíslason og Þórhallur Hin-
riksson fagna öðru marki Bjarka Gunnlaugssonar í leiknum
gegn Breiðabliki.
Ekkert annað en
sigur kom til greina
Leikurinn hófst með iátum. KR-
ingar voru beittari fyrstu mínút-
ur leiksins og var Bjarki Gunn-
laugsson tvisvar sinnum nærri því
að skora mörk, en í bæði skiptin
hafnaði knötturinn í stönginni. í
fyrra skiptið náði Ein-
Gfe/í ar Pór Daníelsson að
Þorsteinsson senda fyrir markið en
skrífar síðara færið átti
Bjarki svo til sjálfúr:
lék á einn varnarmann Blika og
skaut að marki en inn vildi boltinn
ekki. A meðan KR-ing£ir geystust
fram í hverja sóknina á fætur
annarri virtust framherjar Blika
einmana og fengu fá færi til þess að
vinna úr. Helst var að Sigurður
Grétarsson, þjálfari liðsins, sem var
í sóknarlínu liðsins eftir hlé, gerði
usla meðal varnarmanna Vesturbæ-
inga. Ur einni slíkri rispu þjálfarans
barst boltinn að markteig KR. Þar
var Kjartan Einarsson einn íyrir
framan markið í sannkölluðu dauða-
færi en skaut af afli og boltinn fór
himinhátt yfír markið.
Blikar hresstust talsvert er á leið
fyrri hálfleik og tókst að loka betur
á sóknarmenn KR-inga. Allt leit út
fyrir að mesti mátturinn væri úr
KR-ingum og að markalaust yrði í
hálfleik, en Guðmundur Benedikts-
son var á öðru máli. Hann fékk
knöttinn vinstra megin fyrir utan
vítateig Blika og sendi fyrir. Send-
ingin virkaði meinleysisleg en þar
var Bjarki Gunnlaugsson á réttum
stað og náði að skalla í netið án þess
að vamarmenn gestanna fengju
rönd við reist. Markið kom á besta
tíma fyrir heimamenn en gestina
sveið undan enda var flautað til
leikhlés nokkrum sekúndum síðar.
Tvisvar
áður 3:0
KR-ingar hafa tvisvar sinnum
áður unnið 3:0 í undanúrslit-
um bikarkeppninnar, árið
1962 og 1994. í bæði skiptin
urðu þeir bikarmeistarar í
kjölfarið. Árið 1962 lagði KR
lið ÍBA 3:0 í undanúrslitum í
leik þar sem Örn Steinsen
kom KR-liðinu á bragðið á 2.
mínútu. í kjölfarið fylgdu tvö
mörk frá Ellerti B. Schram
sem innsigluðu sigurinn. Tutt-
ugu og tveimur árum síðar
lagði vesturbæjarliðið lið Þórs
á Akureyri 3:0 í undanúrslit-
i um. Þá gerðu Heimir Porcha,
James Bett og Hilmar Björns-
son mörk KR. Enginn þeirra
leikur lengur með KR en
Heimir var með Breiðabliki í
leiknum í gær. í úrslitaleik
1962 vann KR Fram 2:0 og
1994 sigruðu KR-ingar liðs-
menn Grindavíkur, 3:0, í úr-
slitaleik.
Blikar fengu tækifæri til þess að
jafna leikinn í upphafi síðari hálf-
leiks er Kjartan Einarsson var á ný
í góðu marktækifæri. En sem fyrr
brást honum bogalistin og boltinn
fór framhjá marki KR. Heilladís-
irnar voru ekki hliðhollar Blikum
en þær fylgdu KR-ingum hvert fót-
mál og gerðu þeir annað mark
leiksins um miðjan seinni hálfleik.
Sem fyrr voru Bjarki og Guðmund-
ur í aðalhlutverkum. Guðmundur
sendi hárfína sendingu framhjá
varnarlínu Blika frá hægri. Bjarki
tók við boltanum og brunaði að
marki, lék á Atla Knútsson,
markvörð, og hugðist senda knött-
inn í markið. En á ótrúlegan hátt
hrasaði Bjarki um sjálfan sig og
virtist hafa fyrirgert möguleikum
sínum á að skora er Guðmundur
Örn Guðmundsson, varnarmaður
Blika, kom aðvífandi og gerði sig
líklegan til að bjarga sínu liði fyrir
horn. En þegar öll sund virtust lok-
uð tókst Bjarka, sem var liggjandi,
að senda boltann undir Guðmund
Örn og í markið. Skondið mark en
tryggði heimamönnum örugga for-
ystu. KR-ingar hrósuðu happi og
stuðningsmenn þeirra töldu liðið á
leið í úrslitaleikinn. Sú varð raunin,
en KR-ingar voru ekki hættir.
Skömmu fyrir leikslok léku Einar
Örn Birgisson, sem nýlega hafði
komið inn á sem varamaður, og
Guðmundur í gegnum vörn Blika,
sem svaf á verðinum enn á ný. Guð-
mundur virtist ætla að láta Einar
ljúka sókninni en tókst ekki að
senda knöttinn til hans. Þess í stað
barst boltinn í varnarmann Breiða-
bliks og aftur til Guðmundar, sem
kom honum í netið: 3:0.
KR-ingar, sem léku síðast í úr-
slitum keppninnar árið 1995, eru
vel að sigri sínum komnir. Þeir léku
skynsamlega, vörn liðsins gaf fá
færi á sér og sóknarmenn liðsins
nýttu færin. Blikar, sem gátu ekki
stillt upp sínu sterkasta liði og urðu
að sjá af lykilmönnum út af, léku
ágætlega framan af, en fóru illa
með þau færi sem liðið fékk og
sýndu sóknarmönnum KR óþarfa
gestrisni. Slíkt hefur aldrei talist
vænlegt til árangurs.
Tryggvi gerði
eitt mark
TRYGGVI Guðmundsson skor-
aði eitt mark í 5:0-sigri Tromso
á Raufoss í norsku bikarkeppn-
inni í gærkvöld. Bjöm Jakobs-
son er nýlega genginn tii liðs
við Raufoss, en ekki fer sögum
af frammistöðu hans í leiknum.
Kongsvinger, sem Steinar
Adolfsson leikur með, vann
mikilvægan 4:0-sigur á Váler-
enga í úrvalsdeildinni í gær-
kvöld. Kongsvinger er, þrátt
fyrir sigur, enn í neðsta sæti
deildarinnar.
Við bjuggum okkur vel undir
leikinn enda kom ekkert ann-
að til greina en að fara í úrslita-
leikinn, sem er sá stærsti í ís-
lenskri knattspyrnu," sagði Guð-
mundur Benediktsson, sem lagði
upp tvö mörk KR-inga og skoraði
eitt gegn Breiðabliki í gærkvöld.
Þrátt fyrir að vel hafi tekist til
upp við markið kvaðst hann engan
veginn sáttur við eigin frammi-
stöðu í leiknum. „Ég er fremur
óánægður með eigin frammistöðu
þegar á heildina er litið. Mér
tókst að vísu að leggja upp tvö
mörk og skora eitt, en tapaði bolt-
anum of mikið að mínu viti. En
það sem skiptir máli er að sigur
vannst og liðið er komið í úrslit
bikarkeppninnar.“
Eyjamenn og Skagamenn eiga
enn eftir að útkljá hvort liðið
kemst í úrslit en Guðmundur
sagði að sig skipti litlu hvoru liði
KR mætti. „Við höfum leikið gegn
báðum liðum og það eru hörku-
leikmenn innan beggja raða.
Skagamenn eru vaxandi og Eyja-
menn eru ætíð sterkir. Það skiptir
engu máli hvort liðið fer í úrslit
því um stórleik er að ræða.“
Mörkin ódýr
„Mér fannst liðið leika virkilega
vel í fyrri hálfleik og þeir [KR-
ingar] voru ekki að skapa sér nein
tækifæri. Við gáfum þeim mörkin
á silfurfati og það var súrt í broti.
Því miður náðum við ekki að
skora þrátt fyrir að hafa fengið
góð marktækifæri," sagði Hákon
Sverrisson, fyrirliði Breiðabliks,
að loknum leik gegn KR í undan-
úrslitum bikarkeppninnar.
Hákon sagði að einhverju máli
hefði skipt að liðið hefði verið án
lykilmanna í leiknum. „Við vorum
án nokkurra leikmanna og það
hafði án efa áhrif á úrslit leiksins.
En við lékum góða knattspyrnu
og þeir sem komu inn í liðið stóðu
sig vel. Þegar upp er staðið get-
um við gengið sáttir frá þessum
leik.“
Rakel kom
fersk inn
„ÉG átti að koma fersk inn,“
sagði Rakel Logadóttir, sem
braut ísinn á Skaganum í gær
þegar hún skor-
Stefán aði með fyrstu
Stefánsson sneriingu, 45
skrífar sekúndum eftir
að hún kom inn
á sem varamaður á 56. min-
útu, fyrsta mark íslands gegn
Ástralíu á Norðurlandamóti
landsliða 21 árs og yngri.
Leiknum lauk með 2:1 sigri ís-
lensku stúlknanna, sem eiga
fyrir vikið möguleika á að
spila um 3. sæti keppninnar.
Gestirnir frá Ástralíu byrj-
uðu betur, en eftir skot þeirra
í slá á 10. mfnútu fóru ís-
lensku stúlkurnar að fikra sig
framar á völlinn, enda ekki
vanþörf á þar sem sóknarleik-
menn þeirra spiluðu að mestu
við hlið miðvallarleikmanna.
Þær tóku betur við sér eftir
gott sláarskot á 16. mínútu,
sjálfstraustið lét á sér kræla
og eftir annað sláai-skot á 31.
mínútu, þegar Edda Garðars-
dóttir vippaði glæsilega yfir
markvörð Ástrala, færðust
þær í aukana. Rétt fyrir leik-
hlé var Edda enn á ferð með
aukaspyrnu af 25 metra færi
en markvörður Ástrala varði
glæsilega í horn.
Áströlsku stúlkurnar ætl-
uðu sér að ná aftur tökum á
leiknum eftir hlé og börðust
fyrir sínum hlut, en þá skor-
aði Rakel og síðan Heiða Sig-
urbergsdóttir - segja má
þvert gegn gangi leiksins.
Undir lokin sóttu Ástralar
meira og uppskáru mark Kim
Revell, sem skoraði nánast frá
endalfnu.
„Við byijuðum rólega en
vandamálið var mest sálfræði-
hliðin og þessi sigur var
einmitt það sem við þurftum,"
sagði Þórður Lárusson, þjálf-
ari íslenska liðsins. „Það tók
okkur tíma að komast í gang
því stelpurnar voru hræddar,
enda margar að spila í fyrsta
sinn við þær bestu í heiminum
- jafnvel stelpur sem hafa
leikið í úrslitum heimsmeist-
arakeppninnar.“ Óhætt er að
taka undir orð hans um sál-
fræðivandann því lengi vel
var eins og íslensku stúlkurn-
ar þyrðu ekki fram á völlinn,
það vantaði alla græðgi, en
betur gekk þegar á leið - von-
andi skilar það sér gegn Sví-
um á föstudaginn. „Við ættum
að geta spilað um þriðja sætið
því það er alveg möguleiki á
að vinna þær sænsku. Þær
unnu Ástralíu, sem vantaði
sinn besta leikmann. Við mun-
um gera okkar besta og ég
vona að áhorfendur sjái um
sitt.“
Fylgst með
KR-ingum
BOBBY Williamson, knattspyrnu-
stjóri skoska úrvalsdeildarliðsins
Kilmamock, íylgdist með KR-ing-
um er liðið lék gegn Breiðabliki í
undanúrslitum bikarkeppni Knatt-
spyrnusambands íslands í gær-
kvöldi.
KR mætir Kilmamock í Evrópu-
keppni félagsliða í þessum mánuði
og hafa forráðamenn skoska liðsins
fylgst grannt með Vesturbæjarlið-
inu í sumar. Williamson hefur kom-
ið tvisvar sinnum, en alls hefur fé-
lagið sent fulltrúa sinn þrisvar sinn-
um hingað til lands.