Morgunblaðið - 18.08.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.08.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Biðlistar eftir leikskólaplássi á Akureyri hafa lengst á þessu ári Fleiri börn eru á biðlista eftir plássi en fyrir ári SAMKVÆMT nýjustu tölum um börn á biðlista eftir leikskólaplássi á Akureyri er 351 umsókn á biðlista. Þessar tölur eru frá því í lok jólí en að sögn Sigríðar Sítu Pétursdóttur, deildarstjóra leikskóladeildar, er vonast tO að eitthvað verði hægt að stytta biðlistann þegar nýr leikskóli í Móasíðu tekur tO starfa einhvem tímann eftir miðjan september. Eins og ástandið er í dag segir Sigríður Síta að rúmur helmingur barna sem eru á biðlista sé eins árs en aðeins einn leikskóli á Akureyri hefur hingað tO tekið við svo ungum bömum. Einn umsækjandi um stöðu leikskólastjóra „Eins og þetta blasir við okkur núna er 351 umsókn á biðlista og þar af em 170 böm tveggja ára eða eldri. 181 bam er síðan fætt á síðasta ári,“ sagði Sigríður Síta. Að sögn Sigríðar eru mjög fá pláss fyrir eins árs börn tO staðar, að- eins KiðagO hefur tekið við bömum yngri en tveggja ára. Sigríður Síta sagði að fljótlega upp úr miðj- um september yrði opnaður nýr leikskóli við Móasíðu og það verður leikskóli fyrir börn eins til þriggja ára. „Þangað fara hins vegar elstu börnin fyrst til að byrja með, því við reynum alltaf að útvega þessum eldri bömum pláss sem fyrst, en það á hins vegar alveg eftir að raða börnum inn á þennan nýja leikskóla," sagði Sig- ríður Síta. Að sögn Sigríðar Sítu er komin ein umsókn um stöðu leikskólastjóra fyrir nýja leikskólann, en umsækjandi vOl ekki láta nafns síns getið í fjölmiðlum að svo stöddu. „Við emm hins vegar ekki búin að ráða leikskólakennara að skólanum en það hefur verið grennslast fyrir um stöðurnar. Leikskólakennararnir vilja gjarnan vita hver er stjórnandi að skólanum þannig að ég býst við að hreyfing komist á mál- in þegar tilkynnt verður um ráðningu leikskóla- stjóra,“ sagði Sigríður Síta. Ráðið verður í sex almennar stöður leikskólakennara við nýja leik- skólann. Betra ástand með nýjum leikskólum Sigríður Síta sagði að fleiri börn væra á biðlista á þessu ári heldur en vom í íyrra. „Við geram okkur vonir um að ástandið muni batna þegar nýi leikskólinn við Móasíðu tekur til starfa og svo er stóra spurningin hvenær leik- skólinn við Iðavelli verður tilbúinn. Við vonumst tO þess að það verði haustið 2000. Þá ætti ástandið á biðlistunum að skána tO muna, en reyndar er ekki búið að ákveða hvort leikskól- inn við Iðavelli verður þriggja eða fjögurra deOda,“ sagði Sigríður Síta að lokum. Gúmmívinnslan kaupir Hjól- barðaþjónustu Einars GÚMMÍVINNSLAN hf. á Akur- eyri hefur fest kaup á fyrirtækinu Hjólbarðaþjónustu Einars við Dal- braut og mun taka við rekstrinum um næstu mánaðamót. Engar vera- legar breytingar eru fyrirhugaðar á rekstri Hjólbarðaþjónustu Einars, fyrirtækið verður áfram rekið und- ir sama nafni og starfsmannafjöldi helst óbreyttur. Að sögn forsvarsmanna Gúmmí- vinnslunnar sjá þeir ýmis sóknar- tækifæri í kjölfar kaupanna og sjá fyrir sér hagræðingu í rekstri. Með fjölgun dekkjaverkstæða í eigu fyrirtækisins gefist betri kostur á að markaðssetja þær vör- ur sem Gúmmívinnslan er að selja. -------------- Fjöldi manns á handverks- sýningu FJÖLDI gesta lagði leið sína að HrafnagOi í Eyjafjarðarsveit um liðna helgi og heimsóttu handverks- hátíðina Handverk 99. Að sögn Hreiðars Hreiðarssonar, eins af forsvarsmönnum sýningarinnar, er þetta svipaður fjöldi og á sýning- unni fyrir ári þrátt fyrir að veðrið hafí ekki leikið við Eyfirðinga alla helgina. Morgunblaðið/Margit Elva Gunnar Björnsson og Jakob Hallgrímsson, smiðir hjá Trésmiðju Fljótsdalshéraðs, byrjuðu á að reisa útveggi nýju flugstöðvarinnar á þriðjudagsmorgun. Bygging nýrrar flugstöðvar í Grímsey í fullum gangi Grímsey. Morgunblaðið. FRAMKVÆMDIR við nýju flug- stöðina í Grímsey standa nú sem hæst, en þær hófust ekki fyrr en eftir miðjan júlí. Áætlað var að byrja verkið fyrr í sumar en framkvæmdir töfðust því ákvörðun um stað- setningu lá ekki fyrir á tilsettum tíma. Húsið, ásamt flugturni sem enn er í smíðum, er smiðað af Tré- smiðju Fljótsdalshéraðs, Fellabæ og kom í einingum fullbúið að ut- an til Grímseyjar mánudaginn 9. ágúst með ferjunni Sæfara. Flugstöðin verður um 60 fer- metrar á einni hæð, en flugturn- inn, sem er áfastur húsinu, verð- ur um lO fermetrar á tveimur hæðum. Áætluð verklok eru um miðjan október. Viðbygging við Amtsbókasafnið Undirbún- ingur haf- inn að nýju STEFNT er að því að hefja fram- kvæmdir við nýbyggingu við Amts- bókasafnið á Akureyri næsta vor. Ýmisleg undirbúningsvinna er nú í fullum gangi að sögn Ásgeirs Magnússonar, formanns fram- kvæmdanefndar Akureyrarbæjar. Forsaga málsins er löng því sam- keppni um þessa byggingu var haldin fyrir mörgum áram og vann Guðmundur Einarsson arkitekt þá samkeppni. „Síðan þá hefur margoft átt að reisa þessa bygg- ingu en núverandi meirihluti hefur einsett sér að hefja þessa fram- kvæmd sem fyrst,“ sagði Ásgeir. Á fundi framkvæmdanefndar 9. ágúst síðastliðinn kom fram að Verk- fræðistofa Norðurlands myndi skila verkfræðiteikningum fyrir næstu áramót og einnig að endumýja yrði byggingarleyfið þar eð eldra leyfi er fallið úr gildi. „Guðmundur Einarsson er þessa dagana að ganga frá sérteikningum sem aUtaf átti eftir að gera. Það era ýmsar teikningar varðandi t.d. inn- réttingar. Síðan era það verkfræði- teikningarnar sem eiga að vera til- búnar um næstu áramót og verið er einnig að ganga frá útboðslýsingu. Reiknað er með að þetta fari í út- boð í vetur,“ sagði Ásgeir. Ásgeir sagði að fundur með Guðmundi yrði einhvern tímann um næstu mánaðamót. Að sögn Ásgeirs stendur til að hefja fram- kvæmdir næsta vor. „Við vinnum að minnsta kosti samkvæmt þeirri áætlun og það er gert ráð fyrir því í málefnasamningi núverandi meirihluta," sagði Ásgeir Magnús- son. -------------- „Heyr himna smiður“ VEGNA mikillar aðsóknar að sýn- ingunni „Heyr himna smiður“ að Hólum í Hjaltadal hefur verið ákveðið að framlengja sýningar- tímann um eina viku, eða til sunnudagsins 22. ágúst. Sýningin, sem vakið hefur verðskuldaða at- hygli í héraðinu, hefur að geyma marga afar gamla og verðmæta kirkjumuni úr kirkjum og bæna- húsum Skagafjarðarprófastsdæm- is og hafa sumir þeirra aldrei verið til sýnis. Það eru Þjóðminjasafn Islands, Byggðasafnið í Glaumbæ og Hólaskóli sem standa að sýn- ingunni en hún er í skólahúsinu á Hólum. Sýningin er opin daglega kl. 9-18 og er aðgangur ókeypis. OLYMPUS LOEWE. Myndavélar Sjónvarpstæki B ÆlasCbpco Rafmagnsverkfæri El CDinDGSiT ___________________________ Geislagötu 14 • Sími 462 1300 Fyrirhugað yfírvinnubann húsasmiða á Akureyri Bannið hefur ekki tekið gildi ennþá FRESTUR sá er smiðir á Akureyri gerðu á fyrirhuguðu yfirvinnubanni rann út 15. ágúst. Þann tíma átti að nota til að reyna að finna lausn á málinu, en eins og komið hefur fram í Morgunblaðinu þá vora smiðir ekki ánægðir með þau kaup og kjör sem þeir bjuggu við og töldu sig eiga rétt á sambærilegum launum og starfsbræður þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Enn hefur yf- irvinnubannið ekki tekið gildi og ekki hafa verið gerðir nýir samn- ingar á milli smiða og bygginga- verktaka. Málið virðist í biðstöðu og menn halda að sér höndum. Páll Alfreðsson hjá P. Alfreðsson sagði að yfirvinnubannið hefði ekki tekið gildi hjá hans smiðum. „Það er allt í biðstöðu hjá okkur og allt gott á milli manna. Við töluðumst við í upphafi, ég og smiðir mínir, og bíðum núna átekta," sagði Páll. Sigurður Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri og eigandi SS Bygg- is, sagði að smiðir hjá fyrirtæki hans hefðu frestað aðgerðum þann 5. ágúst síðastliðinn. „Þeir frestuðu sínum aðgerðum og síðan hefur svo sem lítið gerst. Þeir era enn að vinna að því að ég best veit,“ sagði Sigurður. Örn Jóhannsson hjá Hyrnu sagði að ekkert yfirvinnubann væri í gildi hjá þeim smiðum sem væra í vinnu hjá fyrirtækinu. „Þeir hættu við þær aðgerðir að svo stöddu. Það eru ekki neinar samn- ingaviðræður í gangi hjá okkur. Við semjum bara við hvern fyrir sig en ekki heilan hóp í einu, það höfum við ekki gert og munum ekki gera,“ sagði Örn. Forsvarsmenn SJS-verktaka vildu hins vegar ekkert segja um málið að svo stöddu, sögðust vilja fá vinnufrið til að vinna að lausn máls- ins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.