Morgunblaðið - 19.12.1999, Page 24
24 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/gg
Veiðileyfi fara nú víða hækkandi. Myndin er frá Stokkhylsbroti í Norðurá.
V erðbólga á veiði-
leyfamarkaðinum
Mikið er talað um þenslumerki í þjoðfélag-
inu og að þörf sé á aðgerðum til að draga úr
þeim, enda eigi hin illræmda verðbólga ella
greiða leið inn í viðkvæmt efnahagslíf lands-
manna. Menn greinir nokkuð á um á hvaða
stigi þessi vandi er, en á einu sviði er óhætt
að segja að merkin séu ekki aðeins vel sýni-
leg heldur beinlínis hrópandi. Það er veiði-
leyfamarkaðurinn þar sem hver þekkta lax-
veiðiáin af annarri hefur snarhækkað 1
verði, ýmist eftir útboð eða lagfærða samn-
inga sem í gildi eru. Guðmundur Guðjóns-
son leit yfír tíðindi síðustu vikna og ræddi
við nokkra aðila sem málinu tengjast.
Nú síðast var greint frá þvi
að dagstöngin í júníhoil-
unum í Grímsá í Borgar-
firði er auglýst í verðskrá
bænda við ána á bilinu 80.300 og upp
í 91.834 krónur. Innifalið í verðinu er
leiðsögn, fæði og gisting. Auglýsa
bændur að fram til 7. ágúst sé aðeins
um fluguveiði að ræða og hvert ein-
asta veiðileyfi sé selt.
Tíðindi þessi frá Grímsá komu í
kjölfarið á fregnum af verðhækkun-
um á veiðileyfum í Víðidalsá, Mið;
fjarðará, Þverá, Norðurá og Hofsá. í
Víðidalsá var samningur við leigu-
taka framlengdur og hækkaði hann
um 14%. Fá bændur þar nú 28,5
milljónir á ári og er upphæðin verð-
tryggð miðað við Bandaríkjadollar
og neysluvísitölu. Bændur í Víðidal
segja samninginn miða við framleng-
ingu á leigusamningi bænda við
Þverá og Kjarrá við viðsemjendur
þeirra.
Um nokkurt skeið hefur verið
nokkuð kyrrlátt á þessum markaði,
en útboð og útleiga á Miðfjarðará í
haust virðist hafa hrundið af stað
keðjuverkun. Áin var leigð fyrirtæk-
inu Laxá-á fyrir næstum 32 milljón-
ir, en það var tæplega 5 milljónum
króna hærra tilboð en það sem næst
kom. Þar hækka einstök holl mis-
mikið, allt frá upphæð sem stemmir
við hækkun neysluvísitölu upp í rúm-
lega 85%. Formaður Stangaveiðifé-
lags Reykjavikur, Kristján Guðjóns-
son, er ekki í vafa um að þessi
samningur ýtti skriðunni af stað.
„Áhrif þessa samnings létu ekki á
sér standa því stuttu síðar var end-
urnýjaður samningur um Þverá/
Kjarrá, með miklum hækkunum,
enda gerður undir þrýstingi," sagði
Kristján á aðalfundi SVFR fyrir
skömmu.
Mikil þensla
Þorsteinn Þorsteinsson, bóndi á
Skálpastöðum í Lundarreykjadal,
formaður Veiðifélags Grímsár, sagði
í samtali við Morgunblaðið að það
væri greinilega mikil þensla á veiði-
leyfamarkaðinum og forystumönn-
um veiðifélagsins hefði ekki verið
stætt á því gagnvart félögum sínum í
sveitinni, að „stinga höfðinu í sand-
inn“, eins og hann komst að orði.
„Við viljum halda veiðileyfum eins og
hægt er innanlands, en eitthvað
þurfti að gera. Ef við hefðum ekki
brugðist við, hefðum við horft fram á
að setja ána í útboð. Við Grímsár-
bændur höfum lengi séð sjálfir milli-
liðalaust um sölu á veiðileyfum í ána
og vildum halda því áfram. Það hefur
verið til hagsbóta fyrir alla aðila að
hafa ekki millilið. En það var kominn
upp órói vegna hækkana á Miðfjarð-
ará, Víðidalsá, Þverá og Norðurá.
Það sem við höfum með þessu gert
er að auka við útlendingatímann.
Verðið sem menn sjá nú sett á júní-
dagana er í samræmi við það sem
gerist á útlendingamarkaðinum. Sá
markaður ber ekki meiri hækkun og
ekki vildum við velta verðinu út í
verðlagið innanlands. Á móti geta
menn séð, að seinni hluta sumars eru
hækkanir á dögum okkar ekki meiri
heldur en sem nemur þeirri verð-
bólgu sem verið hefur. Þessi ákvörð-
un er tekin að vel yfirlögðu ráði eftir
að öllum öðrum kostum hafði verið
velt upp. Við gerum okkur ljóst að
hætt er við óánægju hjá mönnum
sem veitt hafa hjá okkur á umrædd-
um tíma. Slíkt er leitt, en við biðjum
menn að hafa hugfast að með útboði
hefði væntanlega orðið mun meiri
röskun á stöðu manna,“ sagði Þor-
steinn.
Veiðileyfi alltaf verið dýr
Pétur Pétursson, sem leigir
Vatnsdalsá ásamt frönskum sam-
starfsmanni sínum, Guy Geffroy,
sagði í samtali, að laxveiðileyfi hefðu
alltaf verið dýr, hins vegar væri
ástæða til að staldra við og íhuga þá
keðjuverkun sem nú væri farin af
stað. „Menn verða alvarlega að
passa sig að spenna ekki bogann of
hátt. Mér sýnist að það séu endarnir,
það er að segja vorið og haustið, sem
hækka sums staðar allverulega og
menn myndu ekki verðleggja svæðin
svona ef þeir þyrftu þess ekki með til
að ná endum saman. Oft hefur verið
talað um samkeppnina um erlendu
veiðimennina, en vel að merkja,
veiðileyfasalar hér á landi eru farnir
að bjóða íslenskum veiðimönnum
laxveiðileyfi í frægustu ánum á Kóla-
skaga. Fyrstu árin héldu menn að
ísland hefði vinninginn þar eð að-
staðan í Rússlandi væri svo slök. Það
var kannski einu sinni, en ekki leng-
ur, aðbúnaðurinn á Kóla er alltaf að
batna og batna og menn eru að vísu
ekki í ódýrari veiði þar, en það er
miklu meira af fiski,“ segir Pétur.
Pétur segir að eflaust sé til „þak“ á
verðlagi laxveiðileyfa og ef menn fari
upp úr þakinu hljóti að draga úr sölu.
„Þá lenda menn aftur á byrjunarreit.
Hækkanir á bilinu 5 til 9% teljast yf-
irleitt eðlilegar. Það eru breytingar á
vísitölum og sveiflur á gjaldeyris-
mörkuðum. Þegar ég samdi í Vatns-
dalnum árið 1996 stóð dollarinn í 66
krónum, en þegar kom að fyrstu af-
borgun af samningnum var hann
kominn í 73 krónur.
Mikil breyting
Pétur segist ekki skilja alveg
hreint í hverju liggur að verðlagið
skrúfast upp „akkúrat núna“, eins og
hann segir, en vissulega hafi orðið
miklar breytingar á útleigumálum.
„Áður en ég rek það eitthvað blasir
reyndar við, að í ýmsum þeirra til-
vika sem nú eru komin fram með
verðhækkanir eru framkvæmdir og
uppbygging sem hafa kallað á aukið
fé. Bændur við Víðidalsá hafa t.d.
nýverið tekið veiðihúsið í Tjarnar-
brekku í gegn. Það kostaði mikið fé
og fyrirkomulagið er þetta: Leigu:
takar borga, bændur framkvæma. í
Miðfirði hefur mér skilist að fé eigi
að renna til stórbættrar vegagerðar
með ánum. Annars er breytingin
sem ég nefndi áðan kannski ekki
hvað síst fólgin í því, að leigusali fær
meira í sinn hlut heldur en áður var.
í eina tíð var það leigutakinn sem
fékk meira og menn tóku laxveiðiár á
leigu gagngert til að græða, en þetta
hefur snúist við og í dag fær leigusal-
inn meira en leigutakinn. Það hefur
verið vaxandi viðhorf og bæði skilj-
anlegt og eðlilegt að landeigendur
við laxveiðiár vilja fá eins mikið og
þeir frekast geta út úr samnings-
gjörð hverju sinni. Það er þeirra
réttur og leigutaka síðan að meta
hvað hann getur gengið langt því
enginn fer í þetta til að borga með
sér. Mér fmnst þessi breyting hafa
beint þessum málum út í að vera al-
vöru viðskipti, enda eru þá báðir að
bera eitthvað úr býtum. Hitt er svo
annað mál að ég gat þess áðan að það
er einhvers staðar þak og maður sér
það á verðlagningu í sumum ám að
menn eru búnir að teygja sig nokkuð
langt. Þar sem áður dugði að hafa
hátt verð á 4-5 vikna útlendingatíma
til að ná inn leigunni, dugar það ekki
lengur. Þegar septemberdagar fara
ekki undir 20 þúsund krónur dag-
stöngin, er farið að strekkja á bogan-
um svo um munar. Á endanum eru
það alltaf innlendu stangaveiðimenn-
irnir sem fá á baukinn.
Hvað með Vatnsdalsá?
„Eins og ég gat um áðan hefur
verið óbreytt verð síðan 1997 utan
einhverjar eðlilegar verðlagshækk-
anir. En þegar boltinn byrjar að
rúlla getur allt gerst. Þetta er keðju-
verkun og ég þykist vita að þetta
mun skjóta upp kollinum í Vatns-
dalnum. í þessu sambandi skiptir
miklu máli að rýna ekki um of í veltu-
tölur. Þær segja ekkert, það er það
sem eftir stendur sem skiptir máli.“
Eftirspurnin eykst
Böðvar Sigvaldason, kenndur við
Barð í Miðfirði, er formaður Lands-
sambands veiðifélaga og hann sagði í
samtali við Morgunblaðið að hann
teldi að aukin eftirspurn erlendra
veiðimanna eftir veiðidögum í ís-
lenskum ám væri skýringin á um-
ræddum hækkunum. Svokallaður
„útlendingatími“ væri að lengjast,
ekki væri um að ræða að hann hækk-
aði svo mjög umfram það sem verið
hefur. Hins vegar væru aðrir hlutar
veiðitímans að hækka í verði og það
skýrðist a.m.k. að hluta til vegna
þess að erlendir veiðimenn „koma
víðar inn“ eins og Böðvar komst að
orði.
„Erlenda aðsóknin hefur aukist,
sérstaklega frá Evrópu. Þetta hefur
gerst samhliða því að laxastofnar
hafa farið þverrandi í nágrannaríkj-
um okkar. Veiði hefur minnkað og þó
að við höfum lent í nokkurri niður-
sveiflu síðasta sumar telst íslensk
veiði samt sem áður í fremstu röð
meðan veiði hrakar annars staðar.
Það vekur áhuga á Islandi og auk
þess hefur ýmislegt verið gert til að
vekja athygli á laxveiði hér á landi.
Þegar eftirspumin er svona mikil og
vaxandi fer ekki hjá því að það eykur
þrýsting á verðið.
Nú sést víða óvenju hátt verð á
veiðidögum utan besta tímans, getur
þetta gengið upp eða er boginn nú
spenntur of hátt?
„Á meðan eftirspurnin er fyrir
hendi getur það gengið upp. Er á
meðan er, en það er eiginlega ekki
komin reynsla á þetta ennþá. Þessar
hækkanir koma fram núna og standa
fyrir næsta sumar. Við getum jafn-
framt sagt að það er líka hægt að of-
bjóða markaðinum og ef það verður
ofan á er um áfall að ræða því það er
að sjálfsögðu verra að falla niður úr
stiganum heldur en að klifra upp í
hann. En þegar til lengri tíma er litið
verður það tíminn sem sker úr um
hvernig þetta fer.“
Það er ef til vill við hæfi að klykkja
út í þessum pistli með því að hafa eft-
ir Eyþóri Sigmundssyni skoðun
stangaveiðimanns sem fer sínar eig-
in leiðir, hverju hann svaraði þegar
grundvallarspurningarnar voru
lagðar fyrir hann: „Eg er hlynntur
þessum háu leyfum. Mér hefur lengi
þótt góð veiðileyfi hér á landi allt of
ódýr. Hins vegar skil ég ekki hversu
lengi íslenskir stangaveiðimenn ætla
að láta selja sér dýr veiðileyfi á tím-
um þegar enginn fiskur er genginn.
Það er byrjað allt of snemma í fjöl-
mörgum ám og þetta er meira og
minna uppselt. Sams konar óhæfa,
en af öðrum toga, er haustveiðin.
Hvað á lengi að selja veiðileyfi langt
fram á haust og hleypa mönnum í að
draga laxa grútlegna upp úr hrygn-
ingarbælum sínum? Ég veiði árlega í
Nesi í Aðaldal, seint í ágúst. Þar er
nóg af laxi, en eingöngu vegna þess
að bandarísku veiðimennirnir sem
veiða um hásumarið sleppa nær öll-
um löxum sínum. Það er allt of víða
verið að bókstaflega tæma árnar.
Þær eru barðar frá fjalli til fjöru frá
vori fram á haust, fiskurinn fær eng-
an frið, stöngum er fjölgað, veiðitími
lengdur, vegir lagfærðir, veiðimönn-
um fjölgar. Það er ekki langt í að
þetta verði allt saman gjörónýtt."