Morgunblaðið - 19.12.1999, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 35
!
■
Lxiuritm eð vÉföliþróun afiiotag^Ha á t±i abithu 1993-1999.
þeir sem greiða afnotagjald í dag.
Verðið myndi óhjákvæmilega hækka,
eins og gerst hefur hjá Stöð 2, eða í
um 4.000 kr. á mánuði. Dagskráin
yrði í auknum mæli sniðin að hags-
munum auglýsenda og David Atten-
borough kæmist tæplega á dagskrá,
hvað þá þjóðfélagsumræða sem fram
hefur farið í fjölmörgum umræðu-
þáttum Ríkisútvarpsins, svo dæmi
séu tekin.
Er Rikisútvarpið illa rekið? Eru til
gild rök íyrir þeirri staðhæfingu, og
ef svo er, hveijar eru þá lausnimar?
Fjárhagur Ríkisútvarpsins verður að
vera traustur, ef ekki á að grafa und-
an sjálfstæði þess. Afnotagjaldið
hækkaði ekki frá því í febrúar 1993
þar til í desember 1998, eða í tæp sex
ár. Þrátt fyrir litla verðbólgu á ís-
lenskan mælikvarða þýðir þetta í
raun verulegt tekjutap. Til að vinna á
móti því hefur Ríkisútvarpið reynt af
alefli að auka tekjur sínar af auglýs-
ingasölu og kostun.
Árið 1993 námu afnotagjöldin um
75 prósentum af tekjum Ríkisút-
varpsins, í ár verður hlutfall afnota-
gjaldanna líklega innan við 65 prósent
af heildartekjunum. Eins og sést í
töflunni sem sýnir hlutfall afnota-
gjalda er það hlutfall næstlægst á ís-
landi þegar borið er saman við aðrar
Norðurlandaþjóðir.
Vægi afnotagjalda hér á landi er
næstminnst í þessum samanburði. Þó
verður að taka mið af því að afnota-
gjald á hvert heimili er töluvert lægra
í Danmörku og að auglýsingaverð er
töluvert hærra. Þetta þýðir t.d. að
töluvert meira af auglýsingum liggur
á bak við íslensku auglýsingatekjutöl-
umar en þær dönsku. Einnig er það
athyglisvert að þróunin hér á landi er
öfug við það sem gerist annars staðar
á Norðurlöndum, þ.e. vægi auglýs-
ingatekna og annarra tekna eykst hér
á landi frá ári til árs en vægi afnota-
gjalda hefur aukist hjá frændþjóðum
okkar undanfarin misseri. Að ölium
líkindum verður ísland með lægsta
hlutfall afnotagjalda í ár. Skýringin á
þessari þróun er sú að stjómvöld hér
á landi hafa ekki séð ástæðu til að
tryggja það að afnotagjald Ríkisút-
varpsins hækki í takt við þróun verð-
lags eins og sjálfsagt þyldr í flestum
nágrannalöndum okkar.
Hækkun afnotagjalda í samræmi
við verðlagsþróun er óhjákvæmileg ef
tryggja á gæði dagskrár og framboð
dagskrárefnis frá ári til árs. Færa má
gild rök fyrir því að sjálfstæði Ríkis-
útvarpsins sé ógnað með svo lágu
hlutfalh afnotagjalda sem raun ber
vitni. Niðurstaðan hlýtur að vera sú
að afnotagjöldin era homsteinn sjálf-
stæðis Ríkisútvarpsins. Tekjutap
verður ekki endalaust brúað með
auknum auglýsingatekjum og kostun.
Þar fyrir utan er íylgni á mUU auglýs-
ingasölu og hagvaxtar í landinu. Spáð
er minnkandi hagvexti á næsta ári, en
það þýðir, ef sú spá gengur eftir, að
auglýsingasala dregst saman og þar
með tekjur Rfldsútvarpsins. Það eyk-
ur enn á rekstrarvanda Ríkisútvarps-
ins.
Árið 1998 var tap á rekstri Ríkis-
útvarpsins 345 milljónir. Áfallnar líf-
eyrissjóðsskuldbindingar, sem Líf-
eyrissjóður ríkisstarfsmanna getur
ekki staðið undir, skýra að stóram
hluta þetta tap, eða sem nemur 293
miUjónum króna. Halli á reglulegum
rekstri var hins vegar 52 milljónir
króna. Launakostnaðurjókstum 12%
frá árinu 1997 tU 1998. Hjá Ríkisút-
varpinu nema laun og launatengd
gjöld um 65% af heildarútgjöldum.
Full ástæða hefði því verið til að
mæta þessum launahækkunum með
hækkun afnotagjalda. Það er ljóst af
framangreindu að RUdsútvarpið get-
ur vart lengur uppfyllt lögboðnar
skyldur sínar, með óbreyttri afstöðu
stjórnvalda. ÓhjákvæmUeg niður-
staða hlýtur því að verða samdráttur í
dagskrá á komandi misseram.
Stjómvöld hafa verið með háværar
kröfur um hagræðingu innan RUds-
útvarpsins undanfarin ár. Töluverður
árangur hefur náðst í þeim efnum
innan veggja RUdsútvarpsins en slík-
ar aðgerðir duga ekki einar til ef end-
ar eiga að ná saman.
Mönnum hefur orðið tíðrætt um
rekstrarform Ríkisútvarpsins, að ein-
kenni einkarekstrar mættu vera
meiri, svo vitnað sé í orð menntamála-
ráðherra. Aðrir vUja ganga lengra og
einkavæða RUdsútvarpið. Hér verður
ekki lagt mat á slíkar breytingar en
þó skal bent á að árangursstjómun og
skýrari markmiðsstýring starfs-
manna gæti án efa bætt rekstur og
aukið ánægju í starfi án þess þó að
ógna því sjálfstæði sem aUtaf verður
að vera í fyrirrúmi þegar hugað er að
breytingum á rekstri Ríkisútvarps-
ins. Einkavæðing auglýsinga- og inn-
heimtudeildar era t.d. breytingar sem
ekki hefðu áhrif á sjálfstæðið.
Niðurlag
Á íslandi hefur undanfarin misseri
glöggt mátt merkja þróun í samrana
fyrirtækja sem augsýnUega getur
stefiit tU einokunar á vissum sviðum.
Stærð markaðarms, eða öUu heldur
smæð hans og einhæfni, gerir það að
verkum að fákeppni getur orðið í til-
teknum rekstri á örskömmum tíma.
Fyrirsjáanlegt er hver tUhneigingin
yrði eftir að öll ljósvakamiðlun í land-
inu stæði einkavædd. Era íslenskir
stjómmálamenn tilbúnir að hugsa þá
hugsun tU enda að stjómendur eins
íyrirtækis eða samsteypu hafi um það
lokaorð hvort þeir fá að tjá sig í út-
varpi og sjónvarpi eða ekki?
MUton Friedmann, Nóbelsverð-
launahafi í hagfræði, lét einhvem
tíma þau orð falla að stjómmálamenn
leystu aldrei neinn vanda því þeir
væra vandinn. John Kenneth Gal-
braith, einn viitasti hagfræðingur
þessarar aldar, hefur haldið því fram
að pólítísk hugmyndafræði hafi staðið
í vegi fyrir raunsæjum og skynsam-
legum tökum á viðfangsefnum stjóm-
málamanna og þar með hindrað far-
sælar lausnir á þeim vettvangi.
Pólítísk hugmyndafræði virðist ein-
mitt lita afstöðu íslensku stjómmála-
flokkanna til RUdsútvarpsins.
Stjórnarandstaðan og Framsóknar-
flokkurinn verja svo til óbreytt íyrir-
komulag en hægri vængurinn vUl að
sjónarmið einkarekstrar fái að njóta
sín í meira mæli en nú er. Hér eru
skoðanir ílokkanna ýmist af eða á og
þingmenn virðast múlbundnir á sín-
um bás. Pólítísk pattstaða virðist
komin upp. Viðfangsefnið er endur-
skoðun á hlutverki RUdsútvarpsins
og það verður hvorki leyst með pólít-
ískum hártogunum né pólítískri hug-
myndafræði. Hér þarf að koma til
önnur nálgun ef vel á að fara. í mál-
efnum RUdsútvarpsins er enginn
stjómmálaflokkur undanskiUnn
ábyrgð.
Eitt er að átta sig á vandanum en
annað er að bregðast við. Þegar kem-
ur að hinu síðartalda þrýtur stjóm-
völd því miður örendið. Ráðamenn
þjóðarinnar gera sér flestir grein fyr-
U' því áð staða Ríkisútvarpsins er ekki
viðunandi en flesta virðist skorta
kjark og áræði tU þess að taka þannig
á málum að viðunandi sé. Ef framtíð-
arhlutverk RUdsútvarpsins verður
ekki skUgreint upp á nýtt og rekstrar-
grandvöllur þess tryggður í náinni
framtíð er ljóst að óskabam þjóðar-
innar verður að olnbogabami hennar.
Það er á valdi Alþingis að velja þessu
barni hlutverk á nýrri öld.
Þorsteinn Þorsteinsson er for-
stöðumnður markaðssviðs Ríkisút-
vai-psins. G. Pétur Matthíasson er
deihlarstjóri innheimtudeildar Ríkis-
útvarpsins.
Hefur þú séð
bseklinginn?
Kosaiega mikið af
frábærum leikföngum
FisKerPricc
v 'eikfc
ÉÉ |
*
«BK
Umboðsaöili MATTEL á íslandi:
I. Guðmundsson ehf.
Vatnagörðum 26, - 104 Reykjavík
Sími: 533 1999 - Fax: 533 1995
Sjáðu á netinu: www.mattel.com
; Barnkfansaúttekt S,eífe
""^Ssss.,
| 173/BIRGIR