Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.01.2000, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ 38 FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2000 Þjóðleg málalok Ráðning Finns Ingólfssonar í embœtti seðlabankastjóra er sigur hins þjóðlega yfir erlendum tískustraumum. Aðeins eitt er verra en kyrrstaða og það er breyting. Breyting- ar reyna á, kalla á i stundum á endur- mat, ný viðhorf og jafnvel upp- gjör. Fólk forðast breytingar og það gera þjóðfélög líka. Pess vegna fór eitt heljarmikið fegin- leikans andvarp um íslenskt samfélag á síðustu dögum ársins 1999; þrátt fyrir nýja ár- þúsundið, þessa skelfílegu, óvissu framtíð, er allt óbreytt á Islandi. Stjórnmálamenn og hagsmunasamtök þeirra, sem nefnast stjórnmálaflokkar, ráða blessunarlega enn því sem þeir vilja ráða hér í lýðveldi hamingj- unnar og fara sínu fram án tillits til þeirra hvikuiu fyrirbrigða er nefnast al- VIÐHORF Eftir Asgeir Sverrisson menningsálit og þjóðarvilji. Guði sé lof. Sú rás at- burða, sem leiddi til þess að Finnur Ingólfsson, ráðherra og varaformaður Framsóknar- flokksins, ákvað að hætta af- skiptum af stjórnmálum og ger- ast seðlabankastjóri var þjóðleg vel og í fullkomnu samræmi við hefðir, sem mótast hafa í þessu landi. Hið sama gildir um skýr- ingar þær, sem ráðherrann gaf á þessari ákvörðun sinni og vand- aðir menn og konur tóku undir. Ákvörðun Finns Ingólfssonar stóð í engu sambandi við póli- tíska stöðu hans og flokksins, sem hans beið að stýra. Því fór gjörsamlega fjarri að Finnur Ingólfsson teldi einfaldlega sjálfsagt að nota tækifærið, sem honum bauðst sem stjórnmála- manni og taka sér mun betra starf, sem hann hafði sjálfur lát- ið ógert að skipa í mánuðum saman. Það er lygi og óhróður að Finnur Ingólfsson hafi með þessu móti höggvið á hnút, sem forusta Framsóknarflokksins hafði riðið, sökum þess að til- tekna konu langaði óendanlega mikið til að verða ráðherra og tiltekinn karl neitaði að standa upp fyrir henni vegna þess að hann gat ekki hugsað sér að hætta að vera ráðherra. Nei, ekkert af þessu átti við og um það var fólkið í landinu vitan- lega upplýst. Finnur Ingólfsson hætti afskiptum af stjórnmálum vegna þess að illa er komið fram við stjórnmálamenn á Islandi. Raunar var það ekki Finnur Ingólfsson, sem varð fyrir of- sóknum, einkum af hálfu fjöl- miðlaskrílsins á íslandi, sem aft- ur urðu til þess að ráðherra iðnaðar og viðskipta ákvað að taka sér nýtt starf. Þær viður- styggilegu tilraunir til mann- orðsmorðs og sköpunar ólgu og ósættis beindust gegn öðrum manni. Finnur Ingólfsson hefur sjálf- ur greint þannig frá rás at- burða: Finnur Ingólfsson fylgd- ist með því í baráttu fyrir þingkosningarnar í fyrra hvern- ig ráðist.var að leiðtoga hans og pólitískum læriföður, Halldóri Ásgrímssyni, með sérJega ill- skeyttum og persónulegum hætti. Finni Ingólfssyni þótti þetta mjög miður og hugsaði með sjálfum sér að slíkar árásir kærði hann sig ekki um að upp- lifa. Og hin röklega niðurstaða undangenginna hugleiðinga Finns Ingólfssonar gat aðeins orðið ein. Hann ákvað að gerast seðlabankastjóri. I öðrum löndum, sem styðjast við vanþróað stjórnarfar, hefði niðurstaðan ef til vill orðið sú að sá, sem varð fyrir árásunum, hefði ályktað sem svo að hann kærði sig ekki um frekari af- skipti af stjórnmálum. En þann- ig er því ekki farið á Islandi. Hér á landi hefur kristilegur kærleikur náð því stigi að heimsins illska verður til þess að annar maður en fórnarlamb óréttlætisins verður seðla- bankastjóri. Sá, sem ráðist var á, stendur að vísu eftir einn, sár og óvarinn á vígvellinum en get- ur huggað sig við að sökum þeirra rauna, sem á hann hafa verið lagðar, hefur annar maður verið skipaður í eitt virðulegasta og best launaða embætti lands- ins. Hér er því iðkuð kristileg stjórnsýsla í anda píslar, fórnar og friðþægingar. Vitanlega styðja starfsbræður og -systur Finns Ingólfssonar upp til hópa þennan málflutning og harma, iíkt og flestir rétt- hugsandi menn, að hann skuli hafa neyðst til að hætta afskipt- um af stjórnmálum og taka starf seðlabankastjóra vegna þess hve grátt Halldór Ásgrímsson var leikinn fyrir síðustu þingkosn- ingar. Þó er það huggun harmi gegn hversu þjóðlega staðið hefur verið að þessum umskiptum. Brotthvarf Finns Ingólfssonar hefur orðið til þess að ábyrgir aðilar á íslandi eru teknir að hafa af því áhyggjur að hæfustu fulltrúar hverrar kynslóðar muni ekki lengur sækjast eftir störfum á vettvangi stjórnmála sökum þess hversu óvægin og persónuleg þjóðmálabaráttan sé orðin. Þarna virðist sumsé fund- ið nýtt áhyggjuefni og sýnist nokkuð lífvænlegt. Meinið er að þessi ótti er með öllu óþarfur og byggist á mis- skilningi. Islenskir stjórnmála- menn eru samkvæmt skilgrein- ingu jafnan hæfustu fulltrúar hverrar kynslóðar. Sú skilgrein- ing hefur verið margítrekuð og staðfest, nú síðast með ráðningu Finns Ingólfssonar í starf bank- astjóra Seðlabanka Islands. Þetta eru rökleg sannindi, sem ekki verða dregin í efa, ekki frekar en t.a.m. sú speki að allir piparsveinar séu ókvæntir. Af sjálfu leiðir að stjórnmálamenn allra kynslóða, kominna og ókominna, verða ávallt og ævin- lega hæfastir til að sinna mestu ábyrgðarstörfunum. Það getur vel verið að er- lendar þjóðir hafi annan hátt á en svona viljum við hafa það á íslandi. Þess vegna ber að fagna því að Finnur Ingólfsson skuli hafa verið skipaður seðlabankastjóri þótt vitanlega hljóti menn að harma að ofsóknir, sem Halldór Ásgrímsson varð fyrir, skuli hafa þvingað varaformann Framsóknarflokksins til að taka þessa ákvörðun. Skipun Finns Ingólfssonar er sigur hins þjóð- lega yfir hinu óþjóðlega, sigur íslensks fullveldis yfir útlendum tískuhugmyndum, sem óvandað- ir menn og illa innrættir reyna að sannfæra þjóðina um að eigi erindi við hana. MINNINGAR BERGÞORA BALDVINSDÓTTIR + Bergþóra Baldv- insdóttir fæddist í Elliðakoti í Mos- fellsbæ hinn 27. des- ember 1913. Hún andaðist í Sjúkra- húsi Reykjavíkur hinn 30 . desember síðastliðinn. Foreld- ar hennar voru Baldvin Sigurðsson ættaður frá Tungu í Grafningi og Valdís Jónsdóttir ættuð frá Leiti í Dýrafirði. Bergþóra ólst upp á Eiði á Seltjarnarnesi hjá föður si'num og fósturmóður, Sigríði Kristjánsdóttur, sem ættuð var frá Alviðru í Dýrafirði. Berg- þóra átti sex hálfsystkini samfeðra sem öll eru látin en þau hétu: Ing- veldur, Dýri, Viggó, Kristjana, Baldvin og Hjörleifur. Einnig átti Bergþóra fimm hálfsystur, dætur Valdísar og Jóns Benediktssonar, en þær heita: Ingunn sem er látin, Elsku amma og langamma. Nú er komið að kveðjustundinni. Við höf- um í gegnum tíðina rætt opinskátt um dauðann en samt kemur hann alltaf aftan að manni. Þú varst okkur ákaflega kær og vandfundin er ást- ríkari og bjartsýnni manneskja. Þú gafst okkur mikla gleði og kærleik. Alltaf varstu hress í fari og huga, þrátt fyrir líkamleg áföll síðustu ár- in. Alla tíð hafa samskipti okkar verið mjög náin. Minningabrotin streyma fram. Við erum á Laugarvatni í sumarbústað- inum og ég er að hjálpa þér og afa að setja niður aspir. Við sitjum í eldhús- inu hjá þér að borða lummur. Þú ert að kenna mér að búa til fiskibollur, sem vilja reyndar aldrei verða eins góðar og hjá þér. Þú hafðir yndi af því að búa til góðan mat og þau voru ófá skiptin þegar við komum í heim- sókn sem þú varst búin að finna ein- hveija dýrindis uppskrift sem þú vildir prófa. Við erum í Kringlunni og þú ert að versla þér föt. Þú hugs- aðir mikið um útlitið og varst alltaf vel tilhöfð. Síðustu ár höfum við átt Sigríður, Matthildur, Ruth og Guðbjörg . Þá átti hún tvö uppeldis- systkini þau Harald sem dó ungur og Ágústu sem lifir syst- ur sína í hárri elli. Bergþóra var tvíg- ift . Fyrri eiginmaður hennar var Bjöm Sig- urbjörnsson sem nú er látinn en hann var ættaður var frá Okr- um í Fljótum. Björn og Bergþóra bjuggu á Siglufirði mest alla sína hjúskapartíð. Börn Bergþóru og Björns eru: 1) Sigríður, f. 6. apríl 1935, gift Odd- geiri Sigurðssyni og eiga þau þrjú börn, sjö barnabörn og eitt barna- barnabarn. 2) Fjölnir, f. 26. desem- ber 1940, kvæntur Evu Gestsdótt- ur og eiga þau tvær dætur en auk þess á Fjölnir tvær dætur frá fyrra hjónabandi og níu barnabörn, en eitt þeirra er Iátið. 3) Matthías, f. ánægjulegar samverustundir fyrir jólin við að hengja upp jólaskreyt- ingarnar þínar. Þeir sem þekktu þig vita hversu mikið jólabarn þú varst í þér og það var ævintýralegt að koma til þín og sjá jólaljósin. Núna síðast var sem þau skinu skærar og væru fallegri en nokkru sinni áður. Hilmari og Hjalta leið vel í návist þinni og það var þeim alltaf tilhlökk- unarefni að fara í heimsókn til þín. Það varð að vana að þeir fóru beint í ftystiskápinn og náðu sér í ís því þeir vissu að af honum áttir þú nóg til. Þú varst þeim afskaplega kær og það er erfitt fyrir þá að skilja að nú sé ekki lengur hægt að fara í heimsókn til langömmu. Við erum búin að segja þeim að nú sé langamma orðin að engli og komin til guðs. Okkur var það mjög mikils virði að þú skyldir flytja ræðu í afmæli mínu 18. desember síðastliðinn. Þetta var í fyrsta sinn sem þú talaðir fyrir fram- an svo stóran hóp af fólki. En orð þín voru hlýleg og væntumþykjan fór ekki á milli mála. Þú stóðst þig eins og hetja. Þú ert og verður alltaf mikil hetja í okkar augum. 18. desember 1947, d. 4. september 1960. Björn og Bergþóra slitu sam- vistum. Hinn 14. janúar 1951 giftist Bergþóra Ásgeiri Sigurjónssyni bifreiðastjóra, f. 4. febrúar 1913, d. 18. ágúst 1995. Ásgeir var alinn upp í Ási í Hegranesi. Bergþóra og Asgeir bjuggu alla sína hjúskapar- tíð í Kópavogi og í Reykjavík, nú síðast frá 1987 á Grandavegi 47 í Reykjavík. Bergþóra og Ásgeir eignuðust saman eina dóttur 4) Helgu, f. 25. júní 1951, gift Guðna Eiríkssyni og eiga þau fimm dætur og sex bama- börn. Sigríður, Fjölnir og Matthías ólust upp hjá Bergþóru og Ásgeiri eftir að þau gengu í hjónaband. Ásgeir eignaðist dótturina 5) Unu, f. 1. ágúst 1935, með fyrri konu sinni, Maríu Benediktsdóttur frá Haganesi í Fljótum. Una er gift Einari Einarssyni og eiga þau þrjú börn, tíu barnabörn og fjögur barnabarnabörn. Afkomendur Bergþóm og Ásgeirs eru því orðn- ir 57 talsins. Útför Bergþóru Baldvinsdóttur fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Fossvogskirkju- garði. Nú ertu sofnuð svefninum langa og við eigum eftir að sakna þín mikið. Það hefur verið skrýtið að geta ekki hringt í þig þvi okkar daglegu símtöl voru okkur mikils virði. Við gátum spjallað um allt á milli himins og jarðar og gátu símtölin stundum ver- ið ansi löng. Það er aðdáunarvert hvernig þú horfðir á lífið og hversu jákvæð og hugrökk þú varst. Allt væri svo auð- velt ef fleiri myndu taka þig til fyrir- myndar. Nú er björt og ljósrík leið til himn- aríkis framundan og þar bíður afi eftir þér. Elsku amma og langamma, við kveðjum þig með þakklæti og virð- ingu. Ásgerður, Jóhann, Hilmar og Hjalti. Elskuleg amma mín. Ég var svo lánsöm að eiga tvær mæður og önnur þeirra varst þú. En núna ert þú farin og söknuðurinn er sár. Það er erfitt að kveðja þig, amma. Þú varst svo BJARNI RÖGNVALDSSON + Bjarni Rögn- valdsson, húsa- smíðameistari, fædd- ist í Vestmannaeyjum 7. maí 1953. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hinn 24. desember siðastlið- inn. Faðir Bjarna er Rögnvaldur Bjarna- son, f. 3. janúar 1932, móðir hans var Ing- veldur Stefánsdóttir, f. 1. ágúst 1932, d. 24. október síðastliðinn. Systkini Bjarna eru Stefán, f. 7. maí 1953, kvæntur Herdísi Jónsdóttur og eiga þau þijú börn; Birgir, f. 24. febrúar 1959, í sambúð með Guð- rúnu Bergþórsdóttur og eiga þau eina dóttur; Rósa, f. 23. júlí 1963 og á hún eina dóttur. Árið 1973 kvænt- ist Bjarni eftirlifandi eiginkonu sinni, Helgu Guðnadóttur, f. 21. mars 1954. Þau fluttust frá Vest- mannaeyjum til Reykjavíkur 1977. Börn þeirra eru: 1) Rögnvaldur, f. 11. september 1972, börn hans eru Hildur Björk, f. 20. ágúst 1992, Ingibjörg Helga, f. 16. febrúar 1995, og Linda María, f. 19. mars 1998. 2) Anna Margrét, f. 15. sept- ember 1977, unnusti hennar er Þorvarður Tjörvi Ólafsson. titför Bjarna fer fram frá Digraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkanlS. Elsku pabbi minn. Síðustu dagar hafa verið fullir af sorg en um leið er ég full af þakklæti. Eg er þakklát fyrir þau ár sem að við höfum átt með þér. Og umfram allt fyrir að hafa átt þig sem pabba. Síðasta ár var þér mjög erfitt og nú á aðfanga- dagskvöld leiddi sjúkdómur þinn þig til dauða. Það er erfitt að skilja áhrif geðrænna sjúkdóma á hugann en okkur er nú víst ekki ætlað að skilja allt. En eitt er vfst að margir sjúkl- ingar og aðstandendur þeirra eiga um sárt að binda. Það vakna svo margar spumingar og máttleysi yfir að geta ekki hjálpað nóg. Að geta ekki læknað, en eins og með aðra erf- iða sjúkdóma getum við ekki læknað þá. Það verður maður að sætta sig við. Við vildum allt fyrir þig gera og ég veit að þú veist það. Við trúðum að þú myndir lagast en því miður ertu ekki á meðal okkar lengur. En auðvitað munum við þig, elsku pabbi, eins og þú varst nær allt mitt líf, heilbrigður og hraustur. Pers- ónutöframir geisluðu af þér, málg- leðin og hláturinn, það var svo gam- an að þér. Þú hafðir mjög gaman af því að umgangast og tala við fólk. Þú varst mikil félagsvera. Ég var að rifja það upp með Rögga og mömmu að það var ekki ósjaldan sem að við biðum eftir þér .þegar þú varst á leið heim úr sundi, þá hafirðu „aðeins“ tafist við að spjalla. Þú gast talað við alla. AJltaf fórstu í sund, já, og svo auðvitað golf. Ég sé þig svo fyrir mér brúnan og sætan eftir að spila golf í sólinni á sumrin og ég hafði mikið gaman af því að labba með þér hring- inn. Ekki út af golfhæfileikum mín- um heldur vegna þess hvað það var gaman að tala saman. Við gátum tal- að um allt. Ég man hvað mér fannst erfitt að fara út til Danmerkur, það er erfitt þegar maður er svona mikil pabba- stelpa. Málið er nefnilega að þú varst mér svo góður vinur. Ég hef alltaf getað sagt þér allt og þú hefur alltaf fylgst svo vel með öllu sem að ég hef gert. Þú hefur alltaf verið mér hvatn- ing og þú hefur alltaf hjálpað mér í gegnum erfiðleika. En ég veit að þú fylgist áfram með mér og Tjörva og allri fjölskyldunni. Elsku amma hefur nú tekið á móti þér. Ég er sannfærð um að þið komið til með að halda áfram að hjálpa fólki frá þeim stað þar sem að þið eruð núna. Þið vilduð bæði allt fyrir alla gera. Þið eruð bæði mínar fyiir- myndir í svo mörgu, þið hafið gefið mér svo margt. Það hefur myndast stórt skarð í fjölskylduna eftir fráfall þitt. Þú stóðst þig nefnilega eins og hetja í hluverkum þínum, mömmu sem eig; inmaður og okkur Rögga sem faðir. í gegnum sorg mína og söknuð skín þakklætið og stoltið. „Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá hug þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ (Spámaðurinn) Ég get aldrei þakkað þér nóg fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég veit að þú vildir gera allt fyrir mig. Núna vil ég að þér líði vel og að þú hvílir 1 friði. Það hafa margir sýnt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.