Morgunblaðið - 12.02.2000, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.02.2000, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Morgunblaðið/Golli '\'A / H / j Ósey er nú að hefja framhaldssmíði á nýjum vertíðarbát, Geir ÞH 150. Skrokkurinn kom með skipi frá Pðllandi ^ nú í vikunni og verður endanlegri smíði lokið í vor. Osey smíðar nýjan Geir ÓSEY hf. í Hafnarfirði hefur nú flutt heim til Islands skipsskrokk frá Póllandi og mun ljúka smíði hans að fullu í nýju húsnæði sínu á uppfyllingunni við Hafnarfjarðar- höfn. Um er að ræða svokallaðan vertíðarbát, sem verður 140 tonn og sérhannaður til veiða í net og snurvoð. Báturinn heitir Geir ÞH 150 og er smíður fyir Jónas Jóhannsson, útgerðarmann á Þórs- höfn. Hallgrímur Hallgrímsson, fram- kvæmdastjóri Óseyjar, segir að nú séu framundan 70.000 til 80.000 vinnustundir þar til skipið verði afhent um mánaðamótin maí-júní. Því sé nóg að gera næstu mánuð- ina og gaman sé að því að það skuli vera til menn sem hafi trú á því að svona verk sé hægt að vinna á íslandi. „Það er langt síðan svona stórt skip hefur verið full- gert á íslandi, en þetta er áttundi skipsskrokkurinn, sem við flytjum heim með þessum hætti,“ segir Hallgrímur. Skipsskrokkurinn er 7 metrar á breidd og vó hann um 90 tonn er hann var hífður upp úr flutningaskipinu Lómi. Tilbúið til veiða kostar skipið um 100 milljón- ir króna. Fiskileitar- og siglinga- tæki koma frá Rafhúsi, spilbúnað- ur frá Ósey og vélar frá Heklu. Skipið er hannað og teiknað hjá Skipa- og vélatækni í Keflavík. Hugmyndum Lífeyrissjóðs Vestfírðinga hafnað Skutull á veiðar eða seldur BÁSAFELL hf. og Hraðfrystihúsið- Gunnvör hf. hafa hafnað hugmynd- um Lífeyrissjóðs Vestfirðinga þess efnis að sjóðurinn leggi fram veru- legt hlutafé í Hraðfrystihúsið-Gunn- vöru með það fyrir augum að félagið kaupi rækjufrystiskipið Skutul IS af Básafelli. Guðmundur Kristjánsson, framkvæmdastjóri Básafells, segir að stefnt sé að því að skipið, sem liggur við höfn í Hafnarfirði, fari á veiðar innan skamms nema gott til- boð komi í það áður. Félögin sendu frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í gær: „Vegna frétta í fjölmiðlum um hugsanleg kaup á rækjufrystiskip- inu Skutli ÍS senda Hraðfrystihúsið- Gunnvör hf. og Básafell hf. frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: Síðastliðið haust tóku Hraðfrysti- húsið-Gunnvör hf. og Þormóður rammi-Sæberg hf. höndum saman með Básafelli hf. um rekstur rækju- verksmiðju Básafells hf. sem nú er rekin undir nafni Miðfells hf. Á þeim tíma var Skutull ÍS gerður út af Básafelli hf. og var gengið út frá því sem vísu að Miðfell hf. fengi keypt það hráefni sem til félli af skipinu til vinnslu í verksmiðjunni og skapaði þar með öruggari rekstrar- grundvöll og tryggari vinnu fyrir þrjátíu starfsmenn er þar starfa. Nokkru síðar kom í ljós að Bása- fell hf. þurfti að selja verulegar eign- ir, þar með taldar aflaheimildir, og má í því sambandi nefna að Hrað- frystihúsið-Gunnvör hf. keypti var- anlegar aflaheimildir af Básafelli hf. fyrir um 820 milljónir króna. Fyrir tilstilli ísafjarðarbæjar voru hafnar viðræður við framkvæmda- stjóra Básafells hf. um hugsanleg kaup heimamanna á Skutli ÍS og var hugmyndin sú að nokkrir af núver- andi hluthöfum Básafells, þar á með- al Lífeyrissjóður Vestfirðinga, Isa- fjarðarbær, Netagerð Vestfjarða hf. og fleiri hluthafar, notuðu hlutafjár- eign sína í Básafelli hf. til að leggja í nýtt hlutafélag um kaup á Skutli ÍS. Einnig voru fleiri aðilar tilbúnir til að leggja fram hlutafé, þar á meðal Miðfell hf. Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. hefur ekki komið að þessu máli nema sem 40% eigandi í Miðfelli hf. og þátttaka í nýju félagi sem kaupi Skutul er hugsuð til að styrkja þær stoðir sem Miðfell byggist á. Nú nýlega hefur stjóm Lífeyris- sjóðs Vestfirðinga lýst sig reiðubúna til að leggja fram verulegt hlutafé í Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. í því skyni að félagið kaupi Skutul IS. Sú hugmynd að sjóðurinn leggi fram aukið hlutafé í Hraðfrystihúsinu- Gunnvör hf„ sem tengist málinu að- eins sem einn af eigendum Miðfells hf„ er að mati forsvarsmanna Hrað- frystihússins-Gunnvarar hf. ekki fær. Þessi afstaða félagsins hefur legið skýrt fyrir frá því í desember síðastliðnum og hefði Lífeyrissjóði Vestfirðinga átt að vera það ljóst.“ Morgunblaðið/Ágúst Vel gengur að afskipa ioðnunni sem fryst er hjá SVN í Neskaupstað og segja má að henni sé skipað út beint úr frystitækjunum jafn óðum og hún er frosin. Hér er verið að skipa út loðnu á Rússlandsmarkað. Lítið sést til loðnu SJÓMENN er nú farið að lengja eft- ir því að loðnan gefið sig til á land- grunninu fyrir austan land. Loðnu- skipin voru í gær skammt suður af Hvalbak en lítið sást til Ioðnunnar. Nokkur skip köstuðu þó á litlar torf- ur og fékk eitt þeirra um 350 tonn í þremur köstum með djúpnót. Önnur skip fengu minna og niður í ekki neitt. Kristbjöm Ámason, skipstjóri á Sigurði VE, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að búið væri að leita á öllum hefðbundnum loðnu- slóðum en ennþá án árangurs. Það litla sem sæist væri ekki veiðanlegt. „Menn þykjast hins vegar vita af henni dýpra en togskipin hafa síð- ustu daga fikrað sig nær landgrun- nskantinum. Það hefur eitthvað af loðnu færst upp á gmnnið en það er langt frá því að vera veiðanlegt. Það er búið að fara um öll helstu svæðin og menn era búnir að leita af sér all- an grun. Hún ætlar greinilega að Iáta bíða eftir sér eitthvað lengur. Ef hún skilar sér ekki upp á grunnið í næstu viku fer maður að verða dá- lítið svártsýnn," sagði Kristbjöm. Á meðan nótaskipin hafa beðið loðnu- göngu upp á landgrannið hafa flottrollsskipin fengið góðan afla. Þeim hefur þó fækkað nokkuð síð- ustu daga enda margir skipt yfir á nótina í von um að loðnan fari nú að gefa sig til. Mikill afli hefur þannig borist til loðnuverksmiðja frá ára- mótum, þrátt fyrir tregveiði í nót- ina. Mest hefur borist af loðnu til Hraðfrystihúss Eskifjarðar, alls um 36 þúsund tonn samkvæmt tölu Samtaka fiskvinnslustöðva. Þá hafa tæp 33 þúsund tonn borist til Sfldar- vinnslunnar hf. í Neskaupstað en þar hefur loðnufrysting einnig gengið þokkalega og hafa verið fryst um 2.700 tonn. Að sögn Björg- ólfs Jóhannssonar, framkvæmda- stjóra SVN, hefur reyndar ekkert verið fryst síðustu daga enda vertíð- in rétt að byija. Hrap Alaska Airlines-þotunnar FAA fyrirskip- ar skoðun á 1.100 þotum Washington. AFP, AP. BANDARÍSKA flugmálastofnunin, FAA, fyrirskipaði í íyrradag skoðun á um 1.100 flugvélum í Bandaríkjun- um sem nota samskonar hæðarstýr- iskamb og þota Alaska Airlines sem hrapaði í Kyrrahafið undan strönd Kalifomíu 31. janúar. Flugslysið kostaði 88 manns lífið. Fyrirmælin ná til flugvéla af gerð- unum MD-80, MD-90, DC-9 og Boeing 717. Flugfélögin fengu þriggja daga frest til að skoða vél- amar og senda FAA skýrslu um nið- urstöðuna. Mælst var til þess að flugvirkjar skoðuðu sérstaklega tjakka, sem eru notaðir til að hreyfa hæðarstýris- kamba þotnanna, stillanleg vængildi í stélinu sem hjálpa flugmönnum að halda vélinni stöðugri og hækka eða lækka flugið. Slíkur tjakkur fannst í braki far- þegaþotu Alaska Airlines undan strönd Kalifomíu og reyndist vera skemmdur. Flugfélagið ákvað því að skoða all- ar þotur sínar af gerðunum MD-80 og kyrrsetti tvær þeirra þar sem í ljós kom að eitthvað var athugavert við kambstjakka þeirra. Embættis- menn Samgönguöryggisráðs Banda- ríkjanna, NTSB, sem rannsakar flugslysið, skoðuðu vélamar í gær. Tafir á flugi hugsanlegar FAA áætlar að 1.900 flugvélar af gerðunum MD-80, MD-90, DC-9 og Boeing 177 séu í notkun í heiminum, þar af 1.100 í Bandaríkjunum. Flug- félögum utan Bandaríkjanna ber ekki skylda til að fylgja fyrirmælum ■ FAA en gera það yfirleitt. Tæplega 70 flugfélög út um allan heim nota rúmlega 1.100 þotur af gerðunum MD-80 og þær era á með- al vinsælustu þotna sem smíðaðar hafa verið. McDonnell Douglas smíð- aði þoturnar en framleiðslu þeirra, MD-90 og DC-9 þotna var hætt í fyrra eftir að Boeing keypti fyrir- tækið. Alaska Airlines sagði að skoðun þotna flugfélagsins myndi taka j nokkrar klukkustundir. American Airlines, næststærsta flugfélag Bandaríkjanna, á 260 þotur sem fyr- irmælin ná til og fleiri en nokkurt annað flugfélag. Talsmaður Amer- ican Airlines sagði að það myndi taka viku að skoða allar vélarnar og hugs- anlega yrðu tafir á áætlunarflugi af þeim sökum. Dómara sagt upp störfum í Kína Haldið á hæli fyrir aðild að Falun Peking. AFP, AP, Reuters. KÍNVERSKUM dómara hefur verið sagt upp störfum og haldið á geð- veikrahæli vegna þess að hann hefur ekki viljað afneita andlegu hreyfing- unni Falun Gong, sem hefur verið bönnuð í Kína. Mannréttindahreyfing í Hong Kong skýrði frá því í gær að Huang Jinchun, 34 ára dómari undirréttar í sjálfstjómarhéraðinu Guangxi í suð- urhluta Kína, hefði verið handtekinn á heimili sínu 15. nóvember. Honum hefði verið meinað að hitta fjölskyldu sína í þrjá mánuði. Neyddur til að taka inn lyf Mannréttindahreyfingin sagði að Huang hefði verið neyddur til að taka inn geðlyf eftir að hann hélt áfram að iðka hugleiðsluæfingar Falun Gong á hælinu. í yfirlýsingu frá hreyfingunni sagði að hælið væri rekið eins og fangelsi, sjúklingarnir fengju aðeins að hreyfa sig í tvær klukkustundir á dag og fengju enga meðferð. Embættismaður réttarins í Gu- angxi staðfesti að dómarinn hefði verið leystur frá störfum í október og sagði það „hugsanlegt" að honum væri nú haldið á geðveikrahæli. Mannréttindahreyfingin sagði einnig að 50 félögum í Falun Gong hefði verið sleppt af geðsjúkrahúsi nálægt Peking 23. janúar eftir að greint var frá málum þeirra í fjölmiðlum. Hreyfmgin sagði ennfremur að allt að 500 félagar í Falun Gong hefðu verið handteknir um helgina vegna mótmæla á Torgi hins himn- eska friðar þegar Kínverjar fögnuðu nýju ári. Leiðtogarnir dæmdir í fangelsi Kínversk yfirvöld hafa viðurkennt að rúmlega 35.000 fylgismenn Falun Gong hafi verið handteknir á síðasta Gong ári. Flestum þeirra var sleppt en rúmlega 5.000 vora sendir í vinnu- búðir án réttarhalda og um 300 hafa verið dæmdir í allt að 18 ára fangelsi. Mannréttindahreyfingin í Hong Kong skýrði frá því í gær að helsti leiðtogi Falun Gong í norðaustur- hluta Kína hefði verið dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að „nota siðspillta trúarreglu til að raska félagslegum stöðugleika og fyrir að dreifa ríkis- leyndarmálum". Fylgismenn Falun Gong aðhyllast blöndu af búddatrú, taóisma og aust- rænni heimspeki og iðka íhugun og ýmsar æfingar sem þeir segja bæta heilsuna. Milljónir manna hafa geng- ið í hreyfmguna og kínverskir ráða- menn óttast að hún grafi undan stjórn kommúnistaflokksins. --------------------- Marsfarið kallað upp London. Daily Telegraph. NASA, bandaríska geimferðastofn- unin, hefur ekki gefið upp alla von um að samband náist við Marsfarið, sem ekkert hefur heyrst frá síðan það bjóst til lendingar á reikistjörn- unni 3. desember sl. Vísindamenn telja að farið hafi oltið við lendingu og loftnetið hugsanlega skemmst. Stjarnfræðingar við Stanford-há- skóla í Kaliforníu telja að þeir hafi greint veik merki frá farinu 4. janúar sl. og varð það til þess að vísinda- menn hjá NASA hófu aftur tilraunir til að ná sambandi við það. Það hefur að vísu ekki borið neinn árangur hingað til en þeir ætla að reyna áfram. Alla þessa viku og fram yfir helgi að minnsta kosti verða farinu gefnar skipanir um að hafa samband við jörðu. wamgmm hme fiMiiHiffpp wssm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.