Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.03.2000, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. MARS 2000 41 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. AÐGERÐIR YEGNA KJARASAMNINGA * IYFIRLÝSINGU ríkisstjórnarinnar í tengslum við nýgerða kjarasamninga er í upphafi minnt á að í stefnuyfirlýsingu stjórnarinnar hafi verið lögð megináherzla á að tryggja stöðug- leika í efnahagsmálum og skapa skilyrði fyrir áframhaldandi hagvöxt enda sé stöðugt verðlag og góð samkeppnisaðstaða ís- lenzks atvinnulífs forsenda nýrra starfa. Aðgerðir í peningamál- um og gengismálum svo og í fjármálum ríkisins að undanförnu hafi allar stefnt að þessu markmiði. I yfirlýsingunni segir m.a.: „Ríkisstjórnin mun áfram fylgja þessari stefnu. Miklu máli skiptir að verðbólga hjaðni á næstu misserum þannig að undirstöður kaupmáttar verði traustar. Ríkisstjórnin mun hafa þetta markmið að leiðarljósi við ák.varð- anir í efnahagsmálum enda liggi það til grundvallar við gerð kjarasamninga í landinu, einnig á vettvangi hins opinbera.“ Yfirlýsingin er síðan í fimm liðum. Hinn fyrsti er um að skatt- leysismörk fylgi launaþróun og þar skuldbindur ríkisstjórnin sig til þess að sjá til þess að persónuafsláttur og skattleysismörk breytist í takt við umsamdar almennar launahækkanir á samn- ingstímabilinu. Hækkunin á árinu 2000 verður þó nokkru meiri. í þessu skyni verður innan skamms lagt fyrir Álþingi frumvarp til breytinga á lögum um tekjuskatt þar sem kveðið er á um að persónuaflsáttur hækki um 2,5% frá 1. apríl 2000. Þessi hækkun kemur til viðbótar 2,5% hækkun persónuafsláttar 1. janúar síð- astliðinn þannig að heildarhækkun á árinu nemi 5%. Frekari hækkanir á persónuafslætti eru síðan 3% hinn 1. janúar 2001, önnur 3% 1. janúar 2002 og loks um 2,25% 1. janúar 2003. I öðrum lið yfirlýsingarinnar segir að tilhögun barnabóta verði endurskoðuð með það fyrir augum að draga úr tekjuteng- ingu og hækka tekjuskerðingarmörk þeirra. Miðað er við að þessar breytingar komi til framkvæmda í þremur áföngum á ár- unum 2001,2002 og 2003 og feli alls í sér um þriðjungs hækkun á heildarfjárhæð barnabóta frá því sem nú er. I þriðja lið er fjallað um að greiðslur almannatrygginga muni hækka í takt við umsamdar almennar launahækkanir á samn- ingstímabilinu. Þessar greiðslur hækkuðu um 3,6% hinn 1. jan- úar síðastliðinn og lofar ríkisstjórnin nú frekari hækkun 1. apríl þannig að heildarhækkun bóta á árinu verði 4,5%. Jafnframt munu þessar greiðslur hækka jafnt launahækkunum önnur ár samningstímabilsins. í fjórða og fimmta lið yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar er fjall- að um lengingu fæðingarorlofs, jöfnun og samræmingu réttinda og að ríkisstjórnin muni undirbúa breytingar á reglum um fæð- ingarorlof. Ennfremur lofar ríkisstjórnin athugun á tekju- skattskerfinu, tekjuskatti einstaklinga og staðgreiðslukerfinu. Þar verði m.a. farið yfír kosti þess og galla að fjölga skattþrep- um og verður haft samráð við samtök launafólks og atvinnu- rekenda um þetta verkefni. Kostnaður ríkissjóðs við þessar að- gerðir er verulegur á samningstímanum. Hækkun skattleysismarkanna kostar ríkissjóð 1,2 milljarða króna miðað við eitt ár og hækkun barnabóta um hálfan milljarð króna á sama tímabili. Þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru auðvitað til marks um að staða ríkissjóðs er góð um þessar mundir og þess vegna met- ur ríkisstjórnin það svo að hægt sé að grípa til þessara ívilnandi ráðstafana án þess að markmiðum um stöðugleika og lága verð- bólgu sé stefnt í hættu. MILLJARÐAR FYRIR AUKAAFURÐIR AUÐLINDIR sjávar eru takmarkaðar og því skiptir höfuðmáli íyrir efnahag lands og þjóðar að úr þeim verði unnin sem mest verðmæti fyrir þjóðarbúið. Um árabil hefur verið rætt og ritað um nauðsyn fullvinnslu sjávarafurða og vannýttar tegundir. Nú er kom- inn allnokkur skriður á nýtingu svonefndra aukaafurða sjávarfangs hér á landi. Samkvæmt því, sem kom fram á nýlegum fundi á vegum Nýsköpunarsjóðs, nam útflutningur á aukaafurðum úr bolfiski ein- um 3,7 milljörðum króna árið 1998, nær tvöfalt meira en árið 1991. Fram kom á fundinum að við vinnslu sjávarfangs falli til hráefni, sem vinna megi úr matvæli, svo og úr fisktegundum sem nú fari fyrst og fremst til bræðslu til framleiðslu á fóðri. Nú er hlutfall bræðslufisk í afla íslendinga um 60%. Miklir möguleikar eru á vinnslu til manneldis úr hefðbundnum bræðslufiski og er það að nokkru byrjað, t.d. með þurrkun á loðnu. Á fundinum var bent á nýt- ingu hennar til gerðar fisksósu, sem er talin góður próteingjafi og krydd, og til surimi-vinnslu. Þá má nefna þróun lýsis til notkunar sem íblöndunarefni í heilsuvörur, jafnt náttúrulyf sem lyfseðils- skyld. Á fundinum kom einnig fram að rannsóknir á hvatavinnslu (ens- ími) úr aukaafurðum sjávafangs, t.d. þorskslógi, eru komnar vel á veg og nýting þegar hafin hjá fyrstu fyrirtækjunum. Þetta eru gleði- leg tíðindi en jafnframt er ljóst að ennþá er mikið verk fyrir höndum svo hagnýta megi aukaafurðir sjávarfangs og vannýttar tegundir í hafinu landsmönnum öllum til hagsbóta. Aukna áherzlu þarf á leggja á það starf. UM opinbert mál er að ræða, sem ákæruvaldið höfðaði gegn Birni Kristjánssyni, skipstjóra á Vatn- eyri BA, Svavari Rúnari Guðna- syni útgerðarmanni og útgerðarfélaginu Hyrnó ehf. á Patreksfirði. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Bogi Nilsson ríkissaksóknari. Verjendur voru tveir, Magnús Thoroddsen hrl. og Lúðvík Kaaber hdl. Magnús var skipaður verjandi Svavars Rúnars Guðnasonar og Hyrnó ehf., en Lúðvík skipaður verjandi Björns Krist- jánssonar, og var þetta prófmál hans fyrir réttinum. Dómur Hæstaréttar er skipaður 7 dóm- urum, þeim Garðari Gíslasyni, Guðrúnu Er- lendsdóttur, Haraldi Henryssyni, Hirti Torfasyni, Hrafni Bragasyni, Markúsi Sig- urbjörnssyni og Pétri Hafstein. Rétt er til glöggvunar að rifja upp mála- vexti í dómsmálinu. Með ákæru útgefinni af ríkislögreglustjóra 16. ágúst 1999 var Birni, Svavari og Hyrnó ehf. gefið að sök að hafa brotið gegn lögum nr. 57/1996 um umgengni við nytjastofna sjávar, lögum nr. 38/1990 um stjóm fiskveiða og lögum nr. 79/1997 um fiskveiðar í fiskveiðilandhelgi Islands. Meint brot ákærðu fólust í því að hafa gert út Vatneyri BA til veiða í febrúar 1999, án þess að skipinu fylgdu neinar veiðiheimildir. Að lokinni veiðiferð reyndist aflinn vera tæp 34 tonn af þorski og krafðist ákæru- valdið þess að ákærðu yrðu dæmdir til refs- ingar og upptöku aflans. Héraðsdómur Vestfjarða sýknaði hins vegar ákærðu af þessum kröfum ákæruvaldsins, enda hefðu þeir ekki verið bundnir aflatakmörkunum 7. gr. laga um stjórn fiskveiða, þar sem hún stæðist ekki jafnræðisreglu stjórnarskrár- innar. Ákæruvaldið áfrýjaði málinu til Hæstaréttar, með áfrýjunarstefnu útgef- inni 7. janúar 2000. Athyglisvert að dómur var ekki fjölskipaður I ræðu áfrýjanda, ákæiuvaldsins, benti Bogi Nilsson á að fjölskipaður dómur hefði ekki dæmt málið í héraði, sbr. heimildir til þess í lögum um meðferð opinberra mála. Yrði það að teljast athyglisvert í ljósi þess að málið varðaði ákvæði stjórnarskrárinn- ar. Því næst vék hann að heimfærslu refsiá- kvæða í ákæruskjali. í því sambandi tók hann fram að refsiheimildirnar væru skýr- ar, en engar refsilýsingar væri þó að finna í þeim lögum sem ákært væri fyrir brot á. Helstu ákvæði sem ákæruvaldið vísar til eru 2. mgr. 3. gr. laga um umgengni við nytja- stofna sjávar, að óheimilt sé að hefja veiði- ferð skips sem leyfi hefur til veiða í atvinnu- skyni nema skipið hafi aflaheimildir sem telja má líklegt að dugi fyrir afla í ferðinni. Gerð er krafa um refsingu samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga um veiðar í fiskveiðiland- helgi íslands, en þar er lýst hvað teljist vera skaðlegar veiðar. Héraðsdómur Vestfjarða féllst ekki á þá heimfærslu ákvæðisins. Þá vísar ákæiuvaldið einnig til 2. og 3. mgr. 7. gr. laga um stjórn fiskveiða. Ríkissaksóknari vék máli sínu að rök- semdum hinna ákærðu, sem byggja á því að fyrrgreind ákvæði brjóti gegn jafnræðis- reglu stjórnarskrárinnar (65. gr.) og ákvæði hennar um atvinnufrelsi (75. gr.). Féllst hann ekki á að um brot gegn 75. gr. stjórn- arskrárinnar (stjskr.) væri að ræða, en því frelsi megi setja skorður með lögum, enda krefjist almannahagsmunir þess. Vísaði rík- issaksóknari til dóms Hæstaréttar frá 1996, þar sem 75. gr. var túlkuð á þann hátt í meirihlutaatkvæði, að heimilt væri að mæla fyrir um skerðingu á atvinnufrelsi með lög- um. Virtist enda sem Héraðsdómur Vest- fjarða hefði tekið mið af þeim dómi. í sam- ræmi við þá niðurstöðu væri löggjafanum heimilt að mæla fyrir um meginreglur fisk- veiðistjórnunarkerfis í lögum. Aðeins í einum dómi fyrirvari um stjórnskipulegt gildi laganna Ríkissaksóknari sagði ekki stoða fyrir ákærðu að vísa til dóms Hæstaréttar frá 1998, máls Valdimars Jóhannessonar gegn íslenska ríkinu, því til stuðnings að 7. gr. laga um fiskveiðistjómun stæðist ekki gagnvart 65. og 75. gr. stjómarskrár. Vitn- aði hann í því sambandi til úrskurðar Hér- aðsdóms Reykjavíkur frá síðasta ári, í máli sem höfðað var í tilefni af synjun á umsókn um aflaheimildir. Því máli var með úrskurð- inum vísað frá dómi. I úrskurðinum lét dóm- urinn þess getið að ekki hefði verið lagt mat á gildi 7. gr. í hæstaréttardóminum frá 1998. Lögð vom fram í réttarhaldinu í gær, af hálfu ákæruvalds, afrit af um 30 dómum Hæstaréttar sem snúa að fiskveiðistjórnun- arkerfinu. Benti ríkissaksóknari dóminum á það, að í engum þeirra, nema dóminum frá 1998, hefði fyrirvari verið gerður um stjórn- skipulegt gildi laga um stjórn fiskveiða. Fram kom í máli ákæruvaldsins að nið- Vatneyrarmálið dómtekið að loknum málflutningi í Hæstarétti í gær Morgunblaðið/Golli Dómur Hæstaréttar í Vatneyrarmálinu er fjölskipaður. Sjö dómarar dæma málið og sjást þeir hér í bakgrunni myndarinnar. I forgrunni er Bogi Nilsson ríkissaksóknari, sem flutti málið af hálfu ákæruvaldsins. Tekist á um hvort lögin standist stj órnarskrána urstaða Héraðsdóms Vestfjarða gæfi til kynna að réttur löggjafans til lagasetningar væri ótvíræður. Samræmdist það skyldum þeim sem hvildu á löggjafanum og væru tíundaðar í Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Ríkissaksóknari lagði áherslu á tilurð fiskveiðistjórnunarkerfisins sem nú er við lýði. Þegar lögin um aflamark hafi verið sett, árið 1983, hafi tilgangurinn verið að sporna við ofveiði. Sóknartakmark sem áð- ur var notast við hafi ekki verið hentugt kerfi, en aflamark hafi hentað byggðasjón- armiðum vel. Löggjafinn hefði metið það svo að kerfið, umfram önnur, hentaði best í fiskveiðum. Dómsvaldið má ekki glata ópólitísku valdi sínu Þá vísaði ákæruvaldið til skýrslu OECD frá 1997, þar sem segir að aflamarkskerfið skili hámarksárangri með tilliti til líffræði- legra þátta. Einnig var vísað til þess að Þjóðhagsstofnun hefði komist að þeirri nið- urstöðu að núverandi kerfi hentaði best. Ríkissaksóknari sagði að auðvitað væri ekki unnt að úthluta kvóta án einhverrar mis- mununar. Ekki væri því annað að sjá en að löggjafinn hefði þjóðarhagsmuni að leiðar- ljósi. Ákæruvaldið vék máli sínu að 1. gr. laga um stjórn fiskveiða, þar sem segir m.a. að nytjastofnar á íslandsmiðum séu sameign íslensku þjóðarinnar og að markmið lag- anna sé að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Ríkissaksóknari sagði að í athugasemdum við þá grein kæmi fram að stefnan með lagasetningunni hefði ekki verið að veita stjórnskipulegt eignar- hald jrfir auðlindinni. Þá vísaði hann máli sínu til stuðnings í lögfræðilega úttekt fræðimannanna Sigurðar Líndal og Þor- geirs Örlygssonar, sem komust að þeirri niðurstöðu að með 1. gr. laganna væri ekki verið að veita einkaeignarrétt. I lok ræðu sinnar vék ríkissaksóknari að hlutverki Hæstaréttar. Sagði hann það ríkj- andi skoðun í Danmörku að dómsvaldið mætti á engan hátt glata ópólitísku valdi sínu, eins og hætta væri á ef dæmt yrði að lög færu í bága við ákvæði stjórnarskrár. Einnig að dómstólar gættu hófs. Gat hann þess sérstaklega að einungis einu sinni í sögu Hæstaréttar Danmerkur hefði réttur- inn vikið frá almennum lögum á grundvelli þess að þau samrýmdust ekki stjórnarskrá. Hefði sá dómur fallið á síðasta ári. Hugsan- lega væri veigamikill þáttur í þessu að í Málflutningur í hinu svonefnda Vatneyrarmáli fór fram í Hæstarétti í gær. AIls stóð réttarhaldið yfír í fímm klukkustundir en að loknum málflutningsræðum var það dómtekið. Samkvæmt ákvæðum laga hefur dómurinn nú fjórar vikur til að kveða upp dóm í málinu. Jón Sigurðsson hlýddi á málflutninginn í gær. Verjendur ákærðu í málinu. T.v. Magnús Thoroddsen hrl., en við hlið hans situr Lúðvík Kaaber hdl. Danmörku væri meiri and- staða við það að dómstólar gripu fram fyrir hendurnar á löggjafanum. Sagði hann að málið sem dómurinn hefði til umfjöllunar væri pólitískt vandamál, sem eðlilegt væri að löggjafinn leysti sjálfur úr. Vilji hagsmunaaðila lögfestur Lúðvík Kaaber hdl., verjandi Björns Kristjáns- sonar, tók næstur til máls. Krafðist hann sýknu f.h. skjólstæðings síns, en til vara vægari refsingar. Lúðvík sagði vörn ákærða ekki byggjast á sönnunar- skorti, heldur á ákvæðum stjórnarskrárinnar og laga um stjórn fiskveiða. Tók verjandinn fyrst íyi'ir ákvæði 1. gr. fiskveiðistjórnunarlaga. Sagði hann að við meðferð frumvarps til þeirra laga hefðu nokkrar umræður skapast á Alþingi. Marg- ir þingmanna hefðu haft áhyggjur af setn- ingu laganna og kvartað undan því hversu illa hefði tekist til við samningu frumvar- psins og meðferðar málsins í þinginu. Einn þingmanna hefði látið þau orð falla að hann vildi ekki ganga gegn vilja hagsmunasam- taka með lagasetningunni, þrátt fyrir að það stríddi gegn vilja hans sjálfs. Verjandinn sagði það skoðun sína að löggjafinn hefði lögfest vilja hagsmunaaðila, en leitt hjá sér hagsmuni meirihlutans. Lúðvík sagðist mótmæla þeim gögnum sem ákæruvaldið hafði lagt fram sem segðu að ákvæði um sameign þjóðarinnar væri merkingarlaust. Þvert á móti væri um sam- eign að ræða og vísaði hann, máli sínu til stuðnings, til jafnræðissjónarmiða. Höfuðatriði málsins er að vinnuveitandi ákærða þurfti aflaheimildir til veiða, en hafði ekki kost á þeim nema að kaupa þær með fjárgreiðslu sem rynni í einkavasa ann- ars aðila, að því er fram kom í máli verja- ndans. Hann hafi af þeim sökum sent Vatn- eyrina á sjó til veiða. Lúðvík tiltók nokkra hæstaréttardóma í ræðu sinni, m.a. dóm frá 1996, þar sem Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að menn hefðu ekki eignarrétt að veiðiheimildum. Sagði Lúðvík að stjórn- völd hefðu ekki farið eftir þessu, heldur veitt aflaheimildir til ákveðinna aðila og krafið aðra um greiðslu, kysu þeir að stunda veiðar. Löggjafinn hefði sérstaklega tekið fram við setningu laganna um stjórn fisk- veiða, að kerfið yrði ekki ósanngjarnt. Nú væri hins vegar svo komið að það refsaði að- ilum eins og hinum ákærðu. Lúðvík spurði hvort hægt væri að refsa ákærðu fyrir að neyta stjórnarskrárbund- inna mannréttinda. Krafðist hann þess að refsiákvæðinu yrði vikið til hliðar vegna æðri sjónarmiða um vernd mannréttinda. Hann sagði það einkennilegt að verndar- andlag laganna væri fiskimiðin. Fiskveiði- stjórnunarkerfið hefði aftur á móti orðið til þess að nú væri mun minna veitt af þorski en fyrir daga kerfisins. Alþingi hefur aldrei tekið fyrir þá spurn- ingu hvort unnt sé að útiloka suma frá auð- lindinni, sagði verjandinn. Ekki hafi Sigurð- ur Líndal og Þorgeir Örlygsson heldur svarað spumingunni í sinni skýrslu. Hljóti það að vekja furðu. Þetta sé lög- fræðileg spurning og um- mæli þingmanna eða ann- arra aðila svari henni á engan hátt. Lúðvík Kaaber vitnaði í máli sínu til bréfs sem al- þingismaðurinn Kristinn Pétursson ritaði sjávarút- vegsnefnd Alþingis árið 1990. Sagði hann að þar kæmi fram beiðni um að lögfræðileg úttekt færi fram á nákvæmlega þeim atriðum sem deilt væri um í Vatneyrarmálinu. Þessi beiðni hefði hins vegar verið virt að vettugi. Því næst vék verjandinn að rökum þess að ákvæði 7. gr. laga um stjórnun fiskveiða færi í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Vísaði hann til athuga- semda með stjórnskipunarlögum þar sem sérstaklega væri tekið fram að með ákvæði 65. gr. stjskr. væri unnt að víkja settum lög- um til hliðar. Hér væri um klárt brot á reglunni að ræða þar sem afmörkuðum hópi væri veittur einkaafnotaréttur af auðlind þjóðarinnar. Um atvinnufrelsisákvæði stjskr. sagði Lúðvík að oft hefði hagfræðilegum skilningi verið beitt um ákvæðið, þ.e. að framleiðni, almenn hagsæld, gengi hlutabréfa o.fl. væri það sem réði túlkun ákvæðisins. Hann taldi hins vegar að ekki væri mögulegt að ryðja burt atvinnufrelsi manna með þeim hætti. Sagan segði að frelsið væri án skilyrða. Lúðvík líkti þeim aðilum, sem hefðu yfir aílaheimildum að ráða og gætu tekið við peningum fyrir þær, við aðal. Þeir þyrftu ekki að vinna handtak og öfluðu ekki verð- mætanna sjálfir. Sagði hann að kerfið færi algjörlega í bága við tilgang og forsögu 75. gr. stjórnarskrárinnar. Umhugsunarefni væri að lærðir menn skyldu ekki koma auga á þetta, eins og t.d. Sigurður Líndal og Þor- geir Örlygsson. Hvað er framkvæmdavaldinu óheimilt? Fram kom í máli verjandans að fiskveiði- stjórnunarkerfið væri ánauð. Það hafnaði því að dugandi menn sigldu og veiddu. Ekki mætti gleyma að sjómennskan væri menn- ingarlegt verðmæti í sögu þjóðarinnar. Um heimfærslu ákæruvaldsins til ákvæða 2. og 3. mgr. 7. gr. laga um stjórn fiskveiða sagði Lúðvík að refsiheimild væri ótæk. Kvaðst hann taka þar með undir orð Héraðsdóms Vestfjarða. Ríkissaksóknari hefði ekki sýnt fram á neitt annað í mál- flutningi sínum. Lúðvík sagði að efnahags- kerfið hvetti menn einungis til þess að koma með að landi það sem verðmætt væri og miklu væri hent af fiski. Lagði hann þunga áherslu á það, að um refsimál væri að ræða. Utanaðkomandi hagsmunir breyttu engu í þeim efnum. Svaraði hann einnig í ræðunni rökum ákæruvaldsins. Var honum spurn hvort ekki hefði við setningu fiskveiðistjórnunar- kerfisins verið horft til hagsmuna annarra en þeirra, sem þá stunduðu fiskveiðar. Reyndin hefði orðið sú að byggðasjónarmið- in væru úr sögunni og fólk hefði hrakist frá byggðarlögum vegna skorts á aflaheimild- um. í lok ræðu sinnai’ sagði Lúðvík að um- hugsunarvert væri hvað framkvæmdavald- inu væri óheimilt, fyrst það gæti farið svo illa með stjórnarskrárvernduð réttindi. Frumvarpið þurfti ítarlegri og vandaðri efnismeðferð Magnús Thoroddsen hrl., verjandi Svav- ars Guðnasonar og Hyrnó ehf., krafðist sýknu f.h. skjólstæðings síns, en til vara að honum yrði ekki refsað yrði hann sakfelld- ur, en til þrautarvara að vægasta refsing yrði dæmd, skilorðsbundið fangelsi. Líkt og ákæruvaldið og verjandi Björns, fjallaði Magnús nokkuð um tilurð laganna um stjórn fiskveiða. Vitnaði hann í því sam- bandi til nýlegrar ævisögu Steingríms Her- mannssonar, fyi-rv. forsætisráðherra. Steingrímur segði m.a. á einum stað í bók- inni að sjávarútvegsráðuneytið hefði ekki haft roð við öflugum hagsmunasamtökum. Á öðrum stað var vitnað í þau orð Stein- gríms, að kvótakerfinu hafi verið komið á með miklum hraða á sínum tíma, án mikillar umræðu eða umfjöllunar á Aiþingi. Sig hafi ekki grunað hversu skammt hafi verið í að Kristján Ragnarsson hefði sitt fram. I þriðju tilvitnun Magnúsar í Steingrím sagði að stjórnmálamenn hefðu ekki treyst sér til að ganga gegn hagsmunasamtökum og að tillögur hans um byggðakvóta hefðu verið virtar að vettugi. Þá vitnaði Magnús Thoroddsen einnig í álit minnihluta sjávarútvegsnefndar Al- þingis, frá árinu 1990, þar sem sagði að urrr- fjöllun um frumvarp að lögum um stjórn fiskveiða hefði þurft ítarlegri og vandaðri efnismeðferð. Stjórnarliðar hefðu hins veg- ar beitt sér fyrir slælegri meðferð. Alltof knappur tími hefði verið til umfjöllunar um málið, og minnti slíkt á einræðisríki. Verj- andinn kom einnig inn á bréf Kristins Pét- urssonar, fyrrv. alþingismanns. Sagði hann bréfið sýna hversu óvandað frumvarpið hefði verið. Atvinnufrelsið gengur kaupum og sölum fyrir offjár Svavar Guðnason hefur stundað sjó-> mennsku frá 13 ára aidri og í samfellt nær 36 ár, að því er fram kom í ræðu Magnúsar. Sagði hann að mannréttindi Svavars væru að fá að veiða, en atvinnufrelsið gengi aftur á móti kaupum og sölum fyrir offjár í dag; þrátt fyrir að vera verndað í 75. gr. stjskr. I greinargerð með stjórnskipunarlögum hefði rík áhersla verið lögð á mikilvægi þess að löggjafinn legði mat á hvort takmarka mætti atvinnuréttindi manna. Almanna- hagsmunir yi’ðu að krefjast þess að tak- mörkunum væri beitt, ekki hagsmunir minnihlutahópa. Vísaði Magnús í því sam- bandi til dóms Hæstaréttar frá 1988, svo- nefnds leigubifreiðastjóradóms, þar sem reglugerð var talin takmarka atvinnurétt- indi manns. Taldi Magnús að sjávarútvegs- ráðherra væru færð gríðarlega mikil völd, , sem færu gegn ákvæðum 75. gr. stjskr. Verjandinn sagði að stjórnarskrárbund- inn réttur yrði ekki gerður refsiverður með almennum lögum né reglugerð. Eftir þessu hefði ekki verið farið við setningu laga um stjórn fiskveiða. Um jafnræðisreglu 65. gr. stjskr. sagði verjandinn að í greinargerð með ákvæðinu segði að greininni væri ætlað að gilda á öllum sviðum og veita öllum jafna vernd. Sagði hann að eftir því bæri að fara. Ofveiði hefði átt að koma fyrr í ljös Magnús sagði að hann skildi dóm Hæsta- réttar frá 1998, í máli Valdimars .Tóhannes- sonar gegn ísleriska ríkinu, á þann hátt að íslenska þjóðin ætti öll að njóta arðs af auð- lindinni. Lög sem færu gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar hlytu því að vera mark- laus og óframkvæmanleg. Þá studdi hann niðurstöðu sína með tilvísun í ritið Stjórn- skipunarrétt, eftir dr. Gunnar G. Schram, þar sem segði að það færi gegn 65. gr. stjskr. að veita tilteknum hópi sérstök rétt- indi. Taldi Magnús að af þessu öllu leiddi að ákæruvaldið bæri sönnunarbyrði um að lög um stjórn fiskveiða hefðu fullnægjandi stoð. Kaus hann í ræðu sinni að kalla lögin um stjórn fiskveiða hin verstu ólög. Þar sem kvótaverð væri of hátt, væri Svavari Guðna- syni meinað að stunda veiðar og þar með að njóta atvinnuréttar síns. Ekki væri einungis verið að ganga gegn þeim rétti heldur einn-_ . ig gegn byggðaþróun og sagði Magnús að með lögunum væri verið að rústa atvinnu- greininni. Togaraútgerð hefði nú lagst niður á Vestfjörðum, fyrir utan ísafjörð. Magnús sagði að sér væri hugleikið hvernig fiskistofninn hefði þolað yfir 400 þúsund lesta veiði á ári í 34 ár, frá 1950- 1983, þegar meðalveiði hefði verið um 270 þúsund lestir á ári frá því að aflamarkið var tekið upp. Ef um oíveiði hefði verið að ræðá hefði hún átt að koma mun fyrr í ljós. Það væri skoðun sín að aðrir þættir en veiði réðu því hvernig fiskgengd væri, m.a. líffræðileg- ir þættir, ástand hafsins, veðurfar o.fl. Pólitískt stórmál Bogi Nilsson ríkissaksóknari benti á í seinni ræðu sinni að á þeim tíma sem núver- andi fiskveiðistjórnunarkerfi hefði verið við lýði hefðu margir stjórnmálaflokkar farið með völdin í landsmálunum. Samt hefði enginn þeirra kollsteypt kerfinu. Hann lét ennfremur þau orð falla að Vatneyrannálið væri pólitískt stórmál. Magnús Thoroddsen lagði áherslu á það í seinni ræðu sinni, að dómstólunum bæri fyrst og fremst að dæma málið út frá lögum og stjórnarskrá. Ekki ætti að skipta máli hvort um pólitískt mál væri að ræða, hvort lögum yrði vikið frá vegna þess að þau hefðu ekki stoð í ákvæðum stjórnarskrárinnar. Ekki væri hægt að finna pólitískara plagg en stjórnarskrána. Hæstarétti bæri að takítf^ afstöðu út frá því, en ekki út frá pólitískri umræðu. Að lokum lét hann þau orð falla við dóminn að réttlætiskennd þjóðarinnar liti til hans. Ófriður myndi ríkja um lögin þar til þeim yrði breytt til samræmis við jafnræð- isreglu stjórnarskrárinnar. Að lokinni ræðu Magnúsar var málið dómtekið og réttarhaldi slitið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.