Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ _________________KNATTSPYRNA_____ Það þýðir ekk- ert að kvarta og kveina Arnar Gunnlaugsson leikur þessa dagana sem lánsmaður hjá Islendinga- liðinu Stoke City í 2. deild ensku knatt- spyrnunnar og fagnaði á dögunum sigri með félaginu gegn Bristol City í úr- slitaleik bikarkeppni neðrideildarlið- anna á Wembley. Víðir Sigurðsson hitti Arnar í London fyrir leikinn og ræddi við hann um stöðu mála hjá honum um þessar mundir. ÚRSLIT KNATTSPYRNA Suðurnesjamótið Undanúrslit: Keflavík - Víðir..............3:1 Gunnar Oddsson, Kristján Brooks, Harald- ur Guðmundsson - Magnús Ólafsson. Grindavík - FH................8:0 Zoran Dyric, Ray Anthony Jónsson, Goran Lukic, Paul McShane, Sinisa Kekic, Scott Ramsey, Sverrir Þór Sverrisson, Páll V. Bjömsson. Um 5.-8. sæti: Reynir S. - GG....................3:1 Þýskaland 1. deild Frankfurt - Wolfsburg............4:0 Salou 8., Gebhardt 16., Yang Chen 76., 79. - 37.000. Hertha Berlín - Freiburg.........0:0 45.128. ■ Eyjólfur Sverrisson lék með Herthu. 2. deild St. Pauli - Hannover.............0:2 Oberhausen - Niimberg............1:0 Bochum - Offenbach...............6:1 England 1. deild: Manchester City - Birmingham.....1:0 Holland Úrvalsdeild: Roda-Twente......................3:2 KÖRFUKNATTLEIKUR NBA-deildin: Austurdeild, 1. umferð: Indiana - Milwaukee............91:104 ■ Staðan er 1:1. Vesturdeild, 1. umferð: LA Lakers - Sacramento.........113:89 ■ LA Lakers er 2:0 yfír. ÍSHOKKÍ SR-SA.............................5:2 (2:0,2:2,3:0). ■ Staðan er 2:1 fyrir Skautafélag Reykja- víkur. Fjórði leikurinn af fímm fer fram á Akureyri á sunnudaginn kl. 19. SNÓKER HM í Sheffield Undanúrslit: John Higgins - Mark Williams......(8:8) Matthew Stevens - Joe Swail.....(13:11) ■ Leikjunum lýkur í dag. Sá sem vinnur 17 ramma kemst í úrslitaleikinn. UM HELGINA KNATTSPYRNA Deildarbikarkeppni Mánudagur 1. maí. 16-Iiða úrslit karla: Akranes: ÍA-Fylkir.................14 Ásvellir: Dalvik-FH................14 Reykjanesh.: Keflavík-Stjaman......14 Víkin: Víkingur-ÍBV................14 Asvellir: Leiftur - Breiðablik.....16 Laugardalur: KR-KA.................16 Reykjanesh.: UMFG - Skallagrímur...16 Laugardalur: Valur - Tindastóil....18 Deildarbikarkeppni kvenna: Allir leikir í Reykjaneshöll. Laugardagur: ÍBV - Breiðablik...................12 Þór/KA - Stjaman...................14 KR- Valur..........................16 Akranes - FH.......................18 Sunnudagur: Þór/KA-ÍBV.........................12 PÍLUKAST íslandsmótið í pflukasti fer fram í Festi í Grindavík í dag og á morgun. Keppni hefst kl. 11 báða dagana. I dag verður keppt í einstaklingskeppni, á morgun í tvímenn- ingi. SKÍÐI Innanfélagsmót skíðadeildar KR verður haldið í Skálafelli mánudaginn 1. maí. Skráning verður á mótsstað áður en mótið sjálft hefst, en keppnin byrjar klukkan 13. Verðlaun verða veitt í öllum flokkum. Arnar Gunnlaugsson skipti um félag í áttunda skipti á jafn- mörgum árum þegar Guðjón Þórð- arson, knattspyrnustjóri Stoke City, fékk hann lánaðan frá Leicest- er í byrjun mars. Það hafa skipst á hæðir og lægðir hjá þessum 27 ára gamla knattspyrnumanni, sem óum- deilanlega er einn sá hæfileika- ríkasti sem fram hefur komið hér á landi á síðari árum þótt hann hafí ekki enn náð að nýta hæfileika sína til fulls í atvinnuknattspyrnunni. Það lítur ekki of vel út á pappírun- um þegar leikmaður úr úrvalsdeild er lánaður niður um tvær deildir. Arnar telur hinsvegar að þetta geti reynst sér lán í óláni og hjálpað sér við að byggja upp ferilinn í ensku knattspyrnunni á nýjan leik. Leicester keypti Arnar frá 1. deildarliði Bolton Wanderers í febr- úar á síðasta ári fyrir 230 milljónir króna sem þá var tvöfalt met; Arnar var dýrasti leikmaður Leicester frá upphafi og um leið dýrasti knatt- spyrnumaður Islands. Bæði met hafa reyndar verið slegin síðan. Honum hefur ekki tekist að festa sig í sessi hjá Leicester og aðeins spilað 11 leiki með liðinu í úrvals- deildinni, auk fjögurra bikarleikja í vetur. Arnar meiddist undir lok síð- asta tímabils og var ekki tilbúinn í slaginn fyrr en komið var fram á vetur, og tókst ekki að vinna sér fast sæti í liði Leicester. Möguleiki á að komast I betra form hjá Stoke Arnar sagði við Morgunblaðið að hann hefði vissulega velt vöngum yfir sinni stöðu þegar Guðjón falað- ist eftir honum að láni. „Ég velti því fyrir mér hvort það væri of mikið stökk niður á við að fara úr úrvalsdeildinni niður í 2. deild. En ég var ekki búinn að spila neitt af viti hjá Leicester í vetur og það var ekkert í gangi. Ég var að ná mér eftir meiðsli og þurfti á því að halda að fá leiki. Fyrst var talað um lán í einn mánuð og þá fannst mér góð lausn að fara til félags þar sem ég þekkti knattspyrnustjórann og eitthvað af strákunum og vissi að það myndi hjálpa mér, auk þess sem Stoke var í baráttu, átti hörku- leiki framundan sem skiptu miklu máli. Þar með ætti ég möguleika á að komast strax í betra form. Ég þurfti að taka margt með í reikn- inginn, ekki síst að það er stutt á milli Leicester og Stoke og ég er kominn með lítið barn. Við þurftum því ekki að flytja og ég keyri á æf- ingarnar í Stoke því það tekur bara 45 mínútur. Ég ræddi þetta líka við stjórann hjá Leicester, Martin O’Neill, og hann ráðlagði mér að fara aðeins í burtu, komast í form og öðlast sjálfstraust á ný, og koma síðan aftur til Leicester og berjast íýrir sæti mínu. Leicester hefur að engu að keppa, það er í sjálfu sér lítið sem ég get gert þar til vorsins. En Leicester er að sjálfsögðu mitt félag og ef ég verð kallaður til baka áður en tíma- bilið er úti verð ég að hlíta því.“ Auðvelt að aðlagast hjá ensku liðunum - Hvernig var að skipta um um- hverfi og fara yfir til Stoke ? „Mér líkar mjög vel hjá Stoke og ef liðið á möguleika á að komast í úr- slitakeppnina um sæti í 1. deild, þá vil ég endilega taka þátt í því. Strák- arnir hafa tekið mér mjög vel, ég þekkti að sjálfsögðu íslendingana, og þetta er hálfgert fjölskyldufélag, eins og ensku félögin eru reyndar flest. Leicester er þannig og Bolton líka, það er mjög auðvelt að koma inn í þessa klúbba, félagslega séð, allt öðruvísi en á meginlandinu. Englendingarnir eru svo opnh- og kammó, það eru engar klíkur í gangi eins og annars staðar. Félagslega stemmningin hér í Englandi er engu lík, leikmenn hittast meira fyr- ir utan fótboltann en gengur og ger- ist annars staðar. Þetta hjálpar mikið til og menn aðlagast nýjum félögum mikið fyrr en ella.“ Mun berjast fyrir sæti mínu hjá Leicester Þú hefur lítið verið inni í mynd- inni hjá Leicester á þessu tímabili. Hver er þín staða þar? „Ég spilaði ekki leik fyrr en í des- ember, eftir meiðslin, og hef lítið verið með. í sjálfu sér var ég ekki ósáttur við það, ég fann að ég var ekki kominn í líkamlegt ástand til að spila á fullu í úrvalsdeildinni en ég tók þó þátt í nokkrum skemmtileg- um bikarleikjum og var einu sinni í byrjunarliðinu í úrvalsdeildinni. En ég fann að ég átti ekki erindi í þetta í bili, maður verður að vera í 100 prósent formi til að spila í úrvals- deildinni. Staða mín hjá Leicester er sú að ég á tvö ár eftir af samningi mínum og stefni að því að klára hann, en ég fæ vonandi að ljúka þessu tímabili hjá Stoke. Síðan stefni ég á að eiga gott undirbún- ingstímabil í sumar og berjast fyrir sæti í liði Leicester. I úrvalsdeild- inni vil ég vera, þar eru hlutirnir að gerast, ekki síst vegna þess að Leicester tekur þátt í UEFA-bik- arnum á næsta tímabili vegna sig- ursins í deildabikarnum í vetur. Eg ætla að gefa sjálfum mér almenni- legt tækifæri áður en ég fer að leggja árar í bát á þessum vígstöðv- um. Ég er líka orðinn þreyttur á þessu stöðuga flakki á milli liða á þessum 7-8 árum sem ég hef verið í atvinnumennskunni. Mál númer eitt er að festa sig í sessi hjá Leicester. Ég hef ekki verið í aðstöðu til þess að setja mig á háan hest þar og rífa kjaft, ég hef einfaldlega ekki verið í standi til þess.“ O’Neill segist ekki búinn að gefast upp á mér - Hvernig hafa samskipti þín ver- ið við knattspymustjóra Leicester, Martin O’Neill? „Hann hefur sagt við mig berum orðum að hann sé ekki búinn að gef- ast upp á mér. Það er honum tals- vert hagsmunamál að mér gangi vel, hann keypti mig fyrir háa upp- hæð og það er því ekki síst hagur hans að ég nái mér á strik. O’Neill er einmitt þekktur fyrir að sækja leikmenn úr neðri deildun- um og gera þá betri. Hans kostur er fyrst og fremst sá hve snjall hann er að undirbúa menn fyrir leiki, og hann er að sjálfsögðu algerlega búinn að byggja upp þetta lið hjá Leieester, koma því úr 1. deildinni og festa það í sessi meðal 10 bestu liða Englands. Hann hefur gert mjög góð kaup, náð í menn eins og Neil Lennon frá Crewe og Muzzy Izzet sem var í varaliði Chelsea. Steve Guppy var í Port Vale og er nú kominn í enska landsliðið og Matt Elliott kom frá Oxford. Félag- ið hefur styrkst verulega, og hann sjálfur í leiðinni, og það er erfitt að gagnrýna knattspyrnustjóra sem nær slíkum árangri. Eðlilega hefur hann lítinn tíma fyrir þá leikmenn sem ekki standa sig og komast ekki í liðið. Stjórnandi fyrirtækis getur ekki eytt orku í þá sem gera ekkert fyrir fyrirtækið. Knattspyrnuheim- urinn er svona, ég er löngu búinn að átta mig á því og sætta mig við það. Árangur og frammistaða eru alfarið undir manni sjálfum komin og það þýðir ekkert að vera að kvarta og kveina þótt maður sé ekki valinn í lið. Ef maður á það skilið, þá fær maður tækifæri. Þetta er alltaf þannig." Ekki erfið ákvörðun að fara frá Bolton til Leicester - Þegar þú fórst frá Bolton til Leicester fyrir rúmu ári hafðir þú átt góðu gengi að fagna og skoraðir mikið af möi-kum fyrir Bolton. Voru það ekki mistök hjá þér að yfirgefa félagið á þessum tímapunkti? Hefði ekki verið betra fyrir þig að ljúka því tímabili fyrst? „Alls ekki. Það er að koma í Ijós núna að Bolton mun ekki ná lengra en félagið hefur gert. Það var að Golfklubbur Sandgerðis Vallarhúsavöllur Qpna Oldungamót Arnevjar verður f Sandgerði mánudaginn 1. maí. Ræst verður út firá kl. 9.00 til 11.00 og 13.20 til 15.20. Skráning er í síma 423 7802. Spilað verður höggl. Flokkar 50-54, 55-69 og 70 og yfir auk opins kvennafiokks Hámarks forgjöfi Karlar 24. Konur 28. Verðmæti vinninga 150.000. Styrktaraðili: Arney KE. Láttu sjá þig! Öldunganelhd GSG luni ~_______________________________________ Æ Arnar Gunnlaugsson á f erð Ljósmynd/Jason Green Ferill Amars Gunnlaugssonar Amar Gunnlaugsson er fæddur 6. mars 1973. Hann hefur leikið 30 A-landsleiki fyrir íslands hönd og 26 leiki með yngri landsliðunum. Ferill Amars er sem hér segir, ásamt deildaleikjum og deilda- mörkum með viðkomandi félögum: ÍA, 1989-1992.........................57 37 Feyenoord, Hollandi, 1992-1994........10 0 Númberg, Þýskalandi, 1994-1995........27 8 ÍA1995 .............................. 7 15 Sochaux, Frakklandi, 1995-1997 ......14 4 ÍA, 1997...............................2 1 Bolton, Englandi, 1997-1999 ........ 32 13 Leicester, Englandi, 1999-2000........11 0 Stoke City, Englandi, 2000 ..........10 1 +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.