Morgunblaðið - 01.09.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 01.09.2000, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Heita vatnið í Stykkishólmi allra meina bót Aætlanir um að gera Stykkis- hólm að heilsubæ Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason Nefndarmenn sem kanna möguleika heita vatnsins í Stykkishólmi til atvinnuuppbyggingar í Stykkishólmi ásamt Óla Jóni Gunnarssyni bæjarstjóra, Ásthildi Sturludóttur og Ólafi Sveinssyni verkefnisstjóra. Stykkishóimi - Heita vatnið sem kemur upp úr borholu hitaveitu Stykkishólms er einstakt. Fram hefur farið rannsókn á vatninu og í ljós kom að vatnið inniheldur svipuð efni og vatnið í Baden- Baden, sem er einn frægasti heilsubaðstaður í Þýskalandi. Þá telja psoriasissjúklingar sig fá bata við að baða sig upp úr vatn- inu ómenguðu. I mars sl. skipaði bæjarstjórn Stykkishólms nefnd til að kanna nýtingu heita vatnsins í Stykkis- hólmi til heilsutengdrar þjónustu. Nefndina skipa Róbert Jörgensen, formaður, Guðbjörg Egilsdóttir, Sæþór Þorbergsson og Vignir Sveinsson. Atvinnuráðgjöf Vestur- lands var fengin til að sjá um þetta verkefni. Ólafur Sveinsson forstöðumaður atvinnuráðgjafar hefur haft yfirumsjón með starf- inu og Ásthildur Sturludóttur hef- ur starfað við það í sumar. Hún hefur safnað upplýsingum um heita vatnið og möguleika á nýt- ingu þess til heilsutengdrar þjón- ustu. í lok verkefnisins mun at- vinnuráðgjöf Vesturlands skila skýrslu um niðurstöður sínar og viðskiptaáætlun. Fréttaritari hitti þau Asthildi Sturludóttur og Róbert Jörgensen til að fræðast um starf nefndar- innar. Fram kom hjá þeim að heita vatnið í Stykkishólmi hefur verið rannsakað og sá Hrefna Kristmannsdóttir, deildarstjóri hjá Orkustofnun, um þá vinnu. Hún efnagreindi vatnið og bar það saman við heitt vatn á nokkrum stöðum á íslandi og eins við vatnið í Baden-Baden i Þýskalandi. í ljós kom að heita vatnið í Stykkishólmi er einstakt og mjög líkt vatninu í Baden-Baden. Það hefur lágt Ph- gildi (sýrustig) sem veldur því að húðin er mjúk þegar komið er úr slíku baði, því að húðfita leystist illa upp þegar Ph-gildi er svo lágt. Vatnið er salt og inniheldur mikið af uppleystum efnum sem talin eru hafa góð áhrif á húðina. Stykkishólmur hefur mikla möguleika sem heilsubær Nefndin telur að Stykkishólmur uppfylli meira og minna allar þær kröfur sem settar eru fyrir hefisu- bæ. Mikilvægast er tilkoma heita vatnsins með öllum þeim efnum sem það inniheldur. Þá er innra skipulag bæjarins gott, sama má segja um náttúruna og umhverfið. Stykkishólmur hefur færst nær Reykjavík og samgöngur er góð- ar. Þá er sjúkrahúsið í Stykkis- hólmi með góða aðstöðu og starfs- fólk sem sérhæfir sig í bakmeð- ferðum. Þá er til staðar fjölbreytt afþreying fyrir gesti í Stykkis- hólmi og nágrenni. Það kom fram hjá þeim Róberti og Asthildi að þau væru mjög bjartsýn á að hugmyndin yrði að veruleika. Allar þær upplýsingar sem komið hafa fram styðja hug- myndina. Það tekur nokkur ár að koma henni í framkvæmd og vanda þarf hvert skref. Stykkis- hólmur hefur svo margt upp á að bjóða; náttúrfegurð, einstakt heitt vatn og milda afþreyingarmögu- leika. Fólk, bæði hérlendis og er- lendis, væri farið að hugsa betur um heilsu sína og líkama og væri tilbúið að verja tíma sínum og peningum til að byggja upp heil- brigðan líkama og til hvíldar. Því er þetta mjög raunhæfur kostur, sögðu þau Asthildur og Róbert að lokum. Framleiðsla afurða úr loðnuhrognum hafín í Stykkishólmi Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Unnið er af fuilum krafti við viðbyggingu kavíarvinnslu Sigurðar Ágústssonar. Það er Skipavík hf. í Stykkis- hólmi sem reisir húsið. Byg’gl við kavíarviimslu Sigurðar Agústssonar Stykkishólmi - Unnið er að stækk- un húsnæðis Kavíarverksmiðju Sig- urðar Ágústssonar ehf. í Stykkis- hólmi. Framkvæmdir hófust í sumar og er áætlað að taka hús- næðið í notkun í október. Um er að ræða viðbyggingu sem er 816 fer- metrar og mun húsnæði verksmiðj- unnar nær tvöfaldast. Arkitekt hússins er Bæring Jónsson og Skipavík hf. í Stykkishólmi tók að sér að reisa húsið. Að sögn Sigurðar Ágústssonar' framkvæmdastjóra hefur rekstur verksmiðjunnar vaxið undanfarin ár og því var núverandi húsnæði orðið of lítið. Nýjar framleiðsluaf- urðir kalla á aukið húsnæði. Aðalstarfsemi hingað til hefur verið vinnsla á grásleppuhrognum. Sala kavíars er mjög árstíðabundin ög það hefur leitt til þess að ekki hefur verið hægt að halda uppi fullri vinnu allt árið. Á því á að ráða bót og á undanförnum mánuðum hefur fyrirtækið verið að þróa vinnslu afurða úr loðnuhrognum. Útlit er bjart og þegar sú vinnsla verður komið í gagnið mun velta fyrirtækisins stóraukast. í nýja húsnæðnu mun verða vinnslubúnað- ur fyrir loðnuhrognin og svo frystir og kælir. Sigurður segir að með til- komu viðbyggingarinnar verður öll aðstaða orðin mjög góð. Hjá kav- íarvinnslunni vinna 8-10 manns. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Áslaug Einarsdóttir, Sigurður Iljálmarsson og Jón Hjálmarsson að reita og verka fýl. Fýllinn misj afn Fagradal - Um mánaðamótin ágúst og september ár hvert byrjar fýls- unginn að fljúga til sjávar en hann hefur ekki nægan kraft til að fljúga alla leið til sjávar og fellur niður á sandinn og verður þar auðveld bráð fýlaveiðimanna. Að sögn Sigurðar Hjálmarssonar sem hefur tekið fýl mörg undan- farin ár og býr í Vík er fýllinn mis- jafn þetta haustið.Hann tekur væna fýlinn og saltar hann í tunnur en lé- legri fýlinn hamflettir hann og læt- ur síðan reykja. Mikill áhugi er hjá brottfluttum Mýrdælingum að kaupa verkaðan fýl en framboð á fýl til sölu hefur minnkað mikið síðustu ár vegna mikillar vinnu við að veiða fýlinn og verka hann. Bókaðu í síma 570 3030 og 456 3000 fífl 9.930 kr. meJ fíuyvallarsköttum FLUGFÉLAG ÍSLANDS Fax 570 3001 • websales@airiceland.is •www.flugfelag.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.