Skírnir - 01.01.1833, Síða 38
38
Nauplíón, og tóku borgina, en ráku burt stjórnar-
ráðið; var þá nýtt stjórnarráðinnsett, og varð þó
ei kyrrt að lieldr, er þá korau upp önnur þrætu-
mál; fór þá og víkíngskapr að nýu í vöxt í Grikk-
landshaíi, og flest gekk þá í ríkinu raiðr enn skyldi
og mjög á tröfótum. Skoruðu þá Grikkir og sam-
bandsríkin mjög á Bajerns konúng, að hraða ferð
sonar síns, er þegar var kjörinn til konúngs yfir
Grikklandi, og þann 7da maí var samníngr gjörr af
liendi sambandsríkjanna (Rússlands, Fránkaríkis
og Englands) við Bajerns konúng, að nærsteldsti
sonur hans Ottó (fæddr 1815) skyldi gjörast kon-
úngr yfir Grikklandi, og skylrfi ríkið arfgengt í
ættlegg lians, en stjórnarráð nokkurt liafa forráð
ríkisins uns konúngr næði þroska aldri, er fyrst
skeðr með árinu 1835; skyldi og faðir haus fá
lionum heimanað 3500 æfðra hermanna, af hvör-
jum Grikkir skyldu nema striðskonst og her-
mensku; en máli þeirra skyldi goldinn af sam-
bandsríkjunum. Var þá og annar samningr gjörr við
Soldán um takmörk ríkisins, þann 21ta júlí; skal
fjörðurinn við Arta og Vóló skilja ianda ámilli;
viðrkennir og Soldán Grikkland sein sjálfrádt kon-
úngsríki; en fyrir tilhliðran sína borga Grikkir
honum 1 millión rikisdala, en sambandsrikin ábyrg-
jast að þeirri summu verði lokið skilvísliga. Ottó
konúngr var, þegar seinast fréttist, kominn far-
sælliga út í Grikklandi, og lendtr í Nauplión 6ta
febr.; fagnaði allr landslýðr mjög komu hans, og
flokksforíngjar þeir, er áðr beittu fjandskap gégn
stjórninni eru þegar gengnir til hlýðnis og holl-
ustu, og mun þannig friðr komast á í landinu, er