Skírnir - 01.01.1893, Blaðsíða 15
Kirkjum&l.
15
um var og lítið eitt breytt og þær auknar á Mýrum, Snæfellsneai, Stranda-
sýslu og Skagafirði. Bréfhirðingar 6 voru stofnaðar af nýju.
Kirkjumál. Prestastefnan var haldin í Roykjavík 4. jfilí undir for-
sæti stiptsyfirvalda. Auk þeirra voru viðstaddir ö prðfastar, 11 prestar
og 2 af kennendum prestaskðlans. Þar var sú ályktun ger að halda presta-
stefnuna framvegis í heyranda hljðði. Styrktarfé það, er þar var útbýtt
7 uppgjafaprestum og 60 prestsekkjum, var 3,681 kr. 40 au. Prestsekkna-
sjððurinn hafði um áramótin næstu verið 19,293 kr. 50 au. og árstillög og
gjafir til hans 235 kr. Nefndin, sem na sta prestastefna áður hafði sott til
þess að endurskoða handbðkina, var eigi búin að ljúka starfi sínu. Bn
nefndin, sem kosin hafði verið til þess að íhuga frumvörp Þórarins prð-
fasts Böðvarssonar, sem minnst var á í riti þessu í fyrra (bls. 6), kom
með álit sitt, og samþykkti prestastefnan að þau frumvörp skyldu bæði
lögð fyrir alþingi. í frumvarpinu wm kirkjur var farið fram á að afnema
kirkjugjöld (tíund, ljðstoll, kirkjugjald af húsum, lausamannsgjald, sætis-
fisk) en leggja aptur ákveðið gjald á hvern fermdan. Svo var ákveðið
að leggja allt fé kirkna í einn sjóð og greiða svo þaðan fé það, er þyrfti
þeim til viðhalds. Mál þetta var lengi rætt á þinginu og tðk þar nokkr-
um breytingum en að lokum var það fellt í efri deild. 1 hinu frumvarp-
inu um alcipulag og stjórn andlegra mála hinnar íslenslcu þjóðkirkju voru
og ýms merk nýmæli. Þar var svo ákveðið, að kirkjan skyldi sjálf stjðrna
andlegum málum sínum að því er snertir kenningu, kirkjusiði, efiing krist-
indóms og uppfræðingu ungmenna í honum, og enn skyldu heyra undir
stjórn hennar þau mál, er snerta samband milli presta og safnaða, fríkirkj-
ur og frísöfnuði, er játa trú þjóðkirkjunnar, umsjðn og afnot kirkna,
flutningar og upptökur þeirra og niðurlagningar. Biskup skyldi kosinn
af klerkum og leikmönnum. Á alþingi átti þetta mál engum byr að fagna.
Nefnd var kosin í það og hurfu nefndarmenn allir, nema flutningsmaður
Þórarinn Böðvarsson, að því ráði að hafna fvumvarpinu; kváðust flestir
þeirra vera þeirrar skoðunar, að frumvarpið gengi of stutt, því æskilegt
væri að ríki og kirkja væru aðskilin, en ekki þótti þeim tiltækilegt að
snúast við svo umfangsmikilli breyting að sinni. — Á prestastefnunni
kom og fram frumvarp um lcirkjugarða. Enn var þar rætt um frumvarp
það, er stjórnin hafði fyrst lagt fyrir alþingi 1891 og nú aptirr fyrir þetta
alþingi um almannafrið á helgidögum þjöðkirkjunnar; kvaðst prestastefn-
an bera það traust til alþingis, að það lögleiddi ekki neina þá ákvörðun