Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1905, Side 72

Skírnir - 01.08.1905, Side 72
264 Verndun fornmenja og gamalla kirkjugripa. farga neinum forngripum frá kirkjum á íslandi nema með' leyfi biskups, ber auðvitað að framfylgja svo sem li'igum. Því undarlegra má það virðast að svo margir gripir hafa — einkum á síðari árum — selzt frá kirkjunum og að kirkjueigendur Bakkakirkju í öxnadal vóru fyrir nokkrum árum dæmdir sýknir saka, bæði í undir- og yfirrétti,*) fyr- ir ákæru hins obinbera fyrir að hafa selt frá kirkjunni málaða mynd af Guðbrandi biskupi Þorlákssyni. — Sjálf- sagt hefði þó átt að dærna söluna ómerka. — Síðar skal minnast á mynd þessa. Þareð þessir dómar voru þvert ofan í stjórnarbréfið frá 19. IV. 1817, skertu þeir bersýni- lega gildi þess og gerðu jafnframt alla kirkjugripasafn- ara djarftækari; ýmsar afhendingar kirkjugripa ogkirkju- gripasöfn einstakra manna bæði á Islandi og erlendis bera þess ljósan vott. Hér skal getið um eitt af þessum söfnum, þareð það hefir nú verið sýnt opinberlega um nokkra mánuði og því kunnugra um það en önnur einstakra manna söfn. Það er safn Jóns konsúls Vídalíns og konu hans. Safn þetta er nú geymt í Kaupmannahöfn og sýnt á hinni svo- nefndu »Dansk Koloniudstilling samt Udstilling fra Island og Færoerne«. Eftir því sem til þessarar sýningar var stofnað og búast mátti við, er safn þetta merkustu grip- irnir frá Islandi, sem á sýningunni eru. Þótt svo hafi máske verið til ætlast, að gripir þessir yi'ðu Islandi eða einkum safnendum þeirra til sóma, þá er það þó víst, að þeir hafa orðið þjóð vorri til langmestrar skammar af öllu því, er sýnt var á þessari skammarsýningu, er enda var haldin þjóð vorri þvert um geð. Hvað bendir betur á fávizku og vesaldóm þjóðarinnar, en að hún sofandi og óhindrað lætur af hendi helgidóma kirkna sinna og aðra kjörgripi sína? — Slíkt á sér einkum stað hjá lítt ment- uðum þjóðum. — Safnendur slíkra muna hafa heldur eng- an sannan sóma af þeim, nema þá því að eins að þeir afhendi þjóðinni (forngripasafninu) þá aftur, sem vonandi ;) Sjá Landsyfirréttardóma 4, b., bls. 887—9.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.