Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1913, Side 31

Skírnir - 01.08.1913, Side 31
Fjallið. Æ f i n t ý r i eftir Björn austrœna. Afarhátt fjall gnæfði upp og mændi þunglyndislega út á hafið. Frá fjallsrótunum var að eins örskamt til sjávar, en strandræman mjóa var grasi vaxin og gróin bezta kjarna. Þess vegna bjuggu fáeinar manneskjur á þessari einmanalegu strönd, yrktu jörðina og ólu skepnur sér til matar og klæða. Þessir menn lögðu aldrei stund á neitt annað, og líf þeirra var friðsamt og áhyggjulítið. En aldrei fóru þeir neitt annað en um ströndina sína, aldrei fóru þeir upp á fjallið, og altaf var sjóndeildar- hringurinn sá sami. »Fjallið er svo bratt«, sögðu þeir, »að enginn fer það nema fuglinn tijúgandi«. Og svo kvað vera alt fult af kynjaverum uppi undir Svörtuloftum, sem flestir vildu vera lausir við að eiga nokkuð saman við að sælda. En Svörtuloft vóru efsta hamrabeltið í fjallinu, kolsvört, há og hrikaleg björg, sem slúttu fram og föðm- uðu skuggann sinn. Inni í hellunum bjuggu hamrabúar, og það var almannamál þarna á ströndinni, að væri ró þeirra raskað, mundu þeir hefna sín grimmilega. Fyrir mörg hundruð árum hefði einhver angurgapi klifið upp fjallið og farið að hnýsast í fylgsni bergbúanna. Þá höfðu þeir velt ofan fjallið feiknastóru bjargi, sem reif og tætti alt sem fyrir varð, jörðin skalf og nötraði, og einn bær- inn sópaðist alveg burtu — einmitt bærinn þar sem of- látungurinn átti heima, sá er fjallið kleif. Þetta sögðu munnmælin. Og svona gekk um langan aldur, að enginn

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.