Þjóðólfur - 15.05.1918, Síða 1
ÞJOÐOLFUR
65. árgangur.
Reykjavík, 15. raaí 1918.
8. tölublað.
ÞJÓÐÓLFUR kemur út einu sinni í
viku. Kostar til ársloka kr. 4,00. Gjald-
dagi fyrir lok júlimánaðar. Afgreiðslu
annast Björn Björnsson bókbindari,
Laugaveg 18, sími 286.
Þiiigírestun.
Það má víst kalla áreiðanlegt,
að komið hafi til orða og umræðu
meðal þingmanna að fresta alþingi
um hríð og þangað til fram á
mitt sumar eða lengur. Heflr verið
minst á mál þetta í blöðum. Er
mælt, að þingmenn sumir þykist
lítið hafa að starfa, vilji bregða
sér heim til búa sinna og barna,
og skreppa svo suður aftur, er
meira er að gera.
Þetta virðist nú sanna skoðun
Þjóðólfs, er látin var í ljós í 1.
tbl. hans þ. á., að of snemma
mundi hafa verið kvatt til þings
þessa. Og sú er enn skoðun vor.
Alt fyrir það er vafamál, hvort
rétt sé það gert af löggjöfum vor-
um, úr því sem komið er, að þjóta
nú heim til sín, er ekki er meira
afrekað en nú er raun á.
Eftir því sem Þjóðólfl hefir skil-
ist, af blaði fjármálaráðherrans,
Fróni, og viðtali við menn, er hér
mega gerzt um vita, hafa þrjár
verið ástæður þess, að þingmenn
voru kvaddir til þingfarar í apríl:
1. brezku samningarnir, er stjórn-
in vildi leita álita og samþykkis
fulltrúa þjóðarinnar um, áður en
frá þeira væri gengið að fullu og
öllu; 2. fánamálið, er stjórninni
hefir þótt liggja svo mikið á, að
ekki þyldi það bið, og 3. dýrtíð-
arráðstafanir, er vinda varð að
bráðan bug að dómi ráðuneytis.
Heflr þingið lokið þessum erind-
•! um?
I Brezku samningarnir eru víst
^bráðum fullgerðir. Af þeim sökum
^geta þingmenn víst haldið heim-
leiðis,
Um síðustu ástæðuna, dýrtíðar-
ráðstafauir, er þingið varð að gera
eða samþykkja, er þess að geta,
að Þjóðólfi skildist á mikils metn-
um og gömlum þingmanni, að lög
um almenna dýrtíðarhjálp yrðu
afgreidd, áður en þingi yrði frest-
að. Má þá telja, að lokið sé þvf
verki. Hitt er annað mál, hve vel
því erindi verður lokið. Við af-
greiðslu þingsins á dýrtíðarmálinu
una menn vísast misjafnlega.
En fánamálið er óútkljáð enn.
Engin tillaga hefir komið fram
um það. Ekkert hefir verið hafst
að opinberlega í því máli. En samt
rjuka þingmenn, ef til vill, heim
til sín. Og það hefir ekki heyrst
annað, en stjórnin láti sér það
lynda, eða að hún neiti að gegna
stjórnarstöríum framvegis sökum
þess.
Nú er það „opinbert leyndar-
mál“, að þingfrestun stafar einmitt
af fánamálinu, ef úr henni verður
— að þingmenn þykjast ekki hafa
neitt að gera, fyrr en þeir geta
tekið það til meðferðar. En það
sé ekki hægt fyrr en í júlí.
Það virðist nú raunar undar-
legt, að þingmenn hafi ekkert að
starfa, þar sem ekki allfáir þeirra
hafa sannanlega kvartað yfir úrræða-
og aðgerðarleysi stjórnarinnar.
Hver á að gera það, sem stjórnin
gerir ekki, en gera þarf, ef þingið
verður ekki til þess? Verða þing-
menn betur fallnir til að gera það
í sumar? Orðnir úrræðasnjallari í
júlí en maí sama árið?
Hvað segja stjórnarandstæðingar
um þetta tiltæki? Um áramót kröfð-
ust þeir þíngs til þess að losa landið
við stjórnina. Og Þjóðólfur hygg-
ur, að hann fari ekki rangt með
það, að þeir þingmnnn, er kallast
vilja stjórnarandstæðingarx), t. d.
langsum-þingmennirnir, hafi æskt
aukaþings sem fyrst. Geta þeir
varið það fyrir samvizku sinni og
þjóð að stökkva heim og gera
enga t.ilraun til að útvega landinu
betri stjórn? Ætli það veitti af,
að þeir sætu hér þenna mánub,
þar til þeir geta tekið til óspiltra
málanna, og hefðu eftirlit með
stjórninni, rannsökuðu ráðsmensku
hennar og sýndu alþjóð manna i
snjöllum og rökstuddum álitsskjöl-
um, hve geróhæf stjórnin er til
þeirra mikilvægu starfa, er hún á
að gegna? Segðu sig skýrt úr
bandalagi við hana og bæru upp
vantraustsyfirlýsing til hennar?
En víkjum aftur að fánamálinu.
Þjóðólfur hefir ekki átt tal við þá
þingmenn, er fresta vilja þingi nú
og veit því ekki gerla allar ástæð-
ur þeirra. Mun blaðið því tala var-
lega. í bráðina verður hér bent
á tvent:
Umtal hefir nú orðið nokkurt
um málið í dönskum blöðum.
Danir virðast ætla, að í oss sé nú
mikill sjálfstæðishugur. Ætli þeir
breyti ekki skoðun sinní, ef þeir
heyra nú, að þingmenn séu farnir
') Þjóðólfur hefir annars ekki orð-
ið var verulegs andófs gegn stjórninni.
Því að ekki er gerandi mikið úr því and-
ófi, þó að síra Sigurður i Vigur haldi
þungorða sparnaðarrseðu og ávíti fjár-
málastjórn landsins, er hann eftir sem
áður skipar flokk forsætisráðherra, er
ber mesta ábyrgð á stjórn landsins og
altaf getur tekið í taumana, ef eitt-
hvað lendir í ólagi eða vanrækslu hjá
hinum ráðherrunum, Og líkt má segja
um Isafoldarmenn á þingi, sem eru í
kosningasambandi við Heimastjórnar-
menn, enda hafa þeir virzt vægir í sókn
á hendur stjórninni, enn sem komið er.
Og annars er ekki að vænta eftir af-
stöðu þeirra við forsætisráðherra. Þing-
ið virðist alt komið í flækju, þar sem
allir þingmenn eru reyrðir saman tueð
leyniþráðum. Væri óskandi, að greitt
yrði úr bendunni, er fánamálið er til
lykta leitt.
heim, virðingin fyrir vilja vorum
og kröfum minki ekki?
Og þingmenn mega vara sig á
að skjóta málinu of mjög á frest
eða láta Dani draga málið á lang-
inn fyrir sér. Allir þingmenn hafa
krafizt fánans, og forsætisráðherr-
ann hefir bundið okkur svo með
orðum sínum í ríkisráði, að við
getum ekki hneisulaust aftur snú-
ið. Ef dugur ‘og dáð væri í þjóð-
inni, myndi hún og segja vib þing-
menn: „Þið hafið byrjað fánamál-
ið, og berið allir ábyrgð á, hversu
nú er komið. Þið verðið nú að
koma mér vanvirðulaust frá því,
en leggja ella niður þingmensku.
Þið megið að minsta kosti ekki
oftar fresta þingi þess vegna"!
„Aftans bíðr óframs sök“, sagði
Guðrún Ósvífrsdóttir, er hún eggj-
aði Þórð Ingunnarson á að fresta
ekki skilnaði við konu sína. Þjóð-
ólfi þykir ekki illa við eiga að
minna háttvirta löggjafa vora á
þessi orð, er höfð eru eftir einni
hinni frægustu fornkvenna vorra.
Og með þeim vill hann þó ekki
eggja þá á að rasa fyrir ráð fram,
enda er víst ekki hætta á slíku.
Bjargráð og ráðleysi.
Alþingi situr enn á rökstólum, og
heyrist fátt af bjargráðaviðleitni
þess, nema ef vera skyldi eftir-
launasamþykt neðri deildar til
Björns Kristjánssonar. Jú, alveg
rett. Stórfé verja allar þjóðir til
að kaupa af höndum sér tæringu
og krabbamein, og það vita ís-
lenzkir alþingismenn.
Vitanlegt er það, að eitt af því,
sem amar ab landsmönnum nú,
er skortur á haldgóðum klæðnaði.
Verð allrar vefnaðarvöru er orðið
afskaplega hátt, og mun þar um
að kenna, að engu eftirliti frá
hálfu hins opinbera er Þar til að
dreifa.
Það hlýtur að vera einhver
meinloka í þeirri verzlunaraðferð
íslendinga, að kaupa útlenda vefn-
aðarvöru fyrir alt að 50 kr. hvern
meter eða rúml. 150 kr. í hvern karl-
mannsklæðnað, en selja á sama
tíma mislita ull út úr landinu
fyrir 2 kr. pr. kg., eða sem næst
10 kr. fyrir efni til karlmanns al-
klæðnaðar. Vinnulaunin ein gætu
orðið nálægt 140 kr., og að
ógleymdu því, að úr íslenzku ull-
inni fengist ósvikinn og haldgóður
klæðnaður, handa erfiðisfólki.
Ekkert sýnist nú eðlilegra, en
að landstjórnin taki að sér rekst-
ur þeirra tóvinnuvéla, sem eru til
í landinu. Ef kolalevsi er kent um
að bær starfi ekki allar, þá rnætti
bæta úr því með því að flytja
lðunnarvélarnar að Álafossi, því að
þar mun nógur vatnskraftur. Hús-
Sveitamennl Takið eítir!
TorfiJ. Tómass., SkólaTörðast.31
Rvík, útvegar yður prirna
vvaterproof-bápur
karla og kvenna í öllum litum.
Verð frá kr. 18.00—120.00,
Pantanir utan af landi verða af-
greiddar gegn póstkröfu
fljótt og greiðlega.
rúm er þar mikið, og Landsjóði
væri innan handar að slá upp
bráðabirgðaskýli yfir eitthvað af
vélunum. Sama er að segja um
rekstur Gefjunar-verksmiðjunnar á
Akureyri. Hún ætti sömuleiðis að
vera rekin fyrir fé hins opinbera,
og síðan séð um, að dúkar frá
„Stofnununum“ yrðu seldir við
sanngjörnu verði um land alt.
Annars er næstum óskiljanleg
þolinmæði landsmanna gagnvart
okri því, sem er viðhaft með sölu
á flestum varningi hér. Það er
leyft að flytja til landsins hvera
þremilinn, sem ágjörnum „agent-
um“ og auðtrúa smásölum dettur
í hug að hafa á boðstólum, og
engin höft á pví, í staðinn fyrir
það, að hingað ætti ekki að leyfa
innflutning nema á hinu allra
nauðsynlegasta, því að hér hlýtur
að fara fyrir mörgum eins og
fjölskyldumanninum, sem fyrir
rúmu ári keypti glymskrattann,
en varð að seija hann á uppboði
eftir stuttan tíma og um leið segja
sig til sveitar. Hér eru allar búð-
ir meira og minna fullar af
allskyns óþarfa, bæði ætum og
óætum. Kaupmenn auglýsa jafnvel
frosnar kartöflur fyrir 32 aura
pr. kg., sem þeir kváðu selja við-
stöðulaust, samtímis því að brjóst-
sykur og konfekt er selt í tonna-
tali, þó sennilega handa alt ann-
ari tegund fólks en þeirri, sem
kaupir og borðar frosnar kartöflur.
Eins og erfiðleikar og vandræði
fólks og landslýðs eru óteljandi,
eru bjargráðin lika mörg, ef þing-
menn vildu koma auga á þau og
hefðu samheldni til að leiða þau
farsællega til lykta. Eitt af þeim
væri að koma ullariðnaðinum í
betra horf én hann nú er, og er
vonandi að þinginu takist það.
Gestur Einarsson.
Alla afgreiðslu Þjóðólfs
annast Björn Björnsson bókbind-
arl, Laugaveg 18, Sími 286. —
Hann tekur við öllum auglýs-
ingum og hefir á hendi öll reikn-
ingsskil blaðsins. Ef vanskil
verða á því, eru menn beðnir
að snúa sér til hans.