Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 55
55
6297. 18/5
6298. —
6299. —
6300. 20/5
6301. aa/5
sem kunnugt er sonur séra Arngríms Vídalíns á Melstað
og faðir Jóns byskups Vídalíns í Skálholti, móðurbróðir
þeirra Páls prests Björnssonar í Selárdal og Páls lögmanns
Vídalíns, lærður mjög, læknir og náttúrufræðingur; sjá
æfiágrip hans í fyrnefndu tímariti, bls. 131 o. s. frv.1).
Leifar, ein hliðin og 3—4 stykki af brúninni, af prédík-
unarstól úr furu, máluðum með bláum, rauðum o. fl.
litum, hæð 109,5 cm. Spjaldið vantar í hliðina. Efst
er partur af áletrun, sem verið heíir umhverfis uppi
við brúnina: Garda Kir-, og neðst annar partur af
sömu áletrun, sem verið hefir áframhald at þar um-
hverfis: mundssyni: 1794, — líklega endir föðurnafns
gefandans, ásamt ártali, en hver hann hefir verið verð-
ur ekki séð af kirkjubókinni.
Söngtafla úr furu, máluð svört, ferhyrnd og er bog-
mynduð burst upp af, hæð 86 cm., br. 61 cm. Aletran-
irnar: Fyrir Prédikun, Eptir Prédikun, Vid Altaris-
-gaungu, Vid Skýrn, Vid Greptran, málaðar með gul-
leitu skrifletri beggja vegna og hafa sálmanúmerin
verið skrifuð með krít á töfluna, svo sem enn tíðkast
í mörgum kirkjum.
Kertisskdl af stjaka, úr kopar, laglega rend, þverm.
10,6 cm.; botninn nú úr.
Allir þessir síðast töldu kirkjugripir og grafskriftir
(nr. 6282—99) eru úr kirkjunni í Görðum á Álftanesi.
Landsbankinn: Ofnplata steypt úr stáli, hliðarplata, 77
cm. á hvern veg, með lágmyndum af Friðriki konungi
5. og LovÍ8u drotningu hans, eins og i kringlóttri um-
gerð með kórónu á og hangandi í böndum með nafn-
sjöldum þeirra og skúfum, en fyrir neðan er lárviðar-
grein og sverð í kross og leturborði yfir, sem á er letr-
að: VIVANT FRIDERICUS 5. & LOVISA. Fundin
við húsdyr í Þingholtunum.
Samfella úr rósofnum ullardúk, svörtum, mjög snörpum;
eru 5 dúkar í samfellunni og dúkbreiddin 55 cm. (21
þuml.) milli sauma, en lengdin er 1 m. Samfellan er
mjög rykt um mittið, ummál 66 cm. Að neðan er hún
lögð 4 rósofnum flujelsborðum, rauðum og svörtum, og
eru grannar silfurvírssnúrur að ofan og neðan við hverja
borðaleggingu. Samfellu þessa átti fyrst Steinunn
‘) Dr. Jón Þorkelsson landsskj.v. benti mér á þetta ætiatriði og afskriftina þar.