Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Blaðsíða 38

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1921, Blaðsíða 38
38 eins og áðan var sagt, ekki rjett að orði komist í búðaskipuninni frá 1700, að segja að hún væri »vestanvið götuna frá Snorrabúð ofan að lögrjettunni«. Hvað því viðvíkur. sem búðaskipunin eldri segir, að búð Guð- mundar rika hafl verið hjer, þá er það, svo sem S. G. segir í Alþst., bls. 14—15, og eins og Sigurður Vigfússon hefir skýrt í Árb. 1880, bls. 49—50, alls ekki ósennilegt, sarakv. frásögninni í Njáls-s. frá bardaganum á alþingi brennumálasumarið; þar er þó ekki nefnd búð Guðmundar ríka, en bersýnilegt af 139.—140. k. að »Möðr- vellingabúð«, sem nefnd er í frásögunni og 139. k., er búð Guð- mundar ríka á Möðruvöllum. — Raunar sýnist þó geta verið átt við eitthvað annað búðarstæði sunnar með ánni; það verður ekki talið »óyggjandi«, eins og S. G. segir, nje sjeð »ljóslega«, svo sem S. V. kemst að orði: »að næsta búðin við Snorrabúð« hafl verið Möðrvellingabúð, »þegar suður frá dregur og niður að ánni«; en víst er, að orð búðaskipunarinnar frá 1700, er benda til, að »búð Guðmundar ríka« hafi verið hjer, þar sem þessar tóttir (16.—18.) eru, styrkjast nokkuð af frásögninni í Njáls-s. um Möðrvellinga- búð, enda mun mega gera ráð fyrir, að búðaskipunin fari einna helzt, og kunni í þessu að hafa farið eingöngu, eftir Njáls-s. Raunar segir S. G., að hann setji Möðrvellingabúð hjer ekki að eins eftir Njáls-s og búðaskipuninni, heldur »einnig eftir almennri sögusögn, er við helzt enn í dag«; en ekki er líklegt að sú sögusögn sje óháð búðaskipuninni frá 1700, sem hafði lengi til verið í mörgum afskrift- um. — S. V. hefir vitanlega þekt búðaskipunina frá 1700 og líklega frumuppdrátt B. G., en ritgerð S. G. og uppdrátt virðist hann ekki hafa þekt er hann ritaði um Þingvöll, því að hann getur þeirra ekki. Undarlegt er, að S. G. segir í Alþst., bls. 15, að sjer sje »grun- samt að vestasta búðin sje ung mjög«. Vestasta tóttin, þ. e. 18., er nú harðla óglögg, eins og áður var tekið fram, og óskýrust allra þessara þriggja tótta. Er ólíklegt að hún hafi síðan um 1860 orðið svo miklu óskýrari en hinar tvær; en hún er minni en hinar hafa verið í fyrstu, og er ekki ólíklegt að S. G. kunni að hafa sett þetta að mestu leyti þess vegna; hann hefir skotið þessari síðustu setn- ingu, »sú búð er vel skýr« o. s. frv., inn síðar, svo sem sjá má af handriti hans. Austurundan þessura búðum, 16.—18., rnarkar S. G. á uppdrátt sinn óglögga búð og ætlar, að þar kunni að hafa verið Fljótamanna- búð, sem hvergi mun nefnd annars; sbr Alþst., bls. 14 og uppdrátt- inn aftanvið, með skrá. Hjer sjást nú engar tóttarleifar og engin ástæða er til að ætla, að »Fljótamannabúð« hafi verið hjer.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.