Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 44

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1929, Page 44
44 IV. Kaupmh. 17. Sept. 1863. Kæri háttvirti vin, Eg þakka yður ástsamlega fyrir yðar rækilega og góða bréf í sumar, sem eg hefi ekki nema litinn einn til að svara uppá, og að gratulera að það er eins og færist nær um forngripasafnið. Guðbrandr sendir ykkur eitthvað núna, og smásainan fái þið þó nokkuð meira og meira. Eg talaði við Karl Andersen, hvort ekki mundi mega takast að fá héðan nokkuð, og hann hélt það. Það væri heillegra að hafa sýnis- horn af hinu eldra, áður en við komum til sögunnar, og það er fróð- legt bæði fyrir alþýðu og mentamenn, að skilja í þessu, sem þeir hafa nú alls ekkert vit á. Kannske Karl skrifi ykkur, því hann ráðgerði það hálfvegis, og væri þá kannske rjettast, að þið skrifuðuð Cultusministerio, Jón Árnason og þér, og sýnduð hversu nytsamt safn gæti orðið, bæði til fróðleiks og til að fyrirbyggja tjón forngripa og svo í almennu vísindalegu tilliti, þareð fornleifar sem finnast á íslandi eru í historisku tilliti einna merkastar, af því þær verða miðaðar við tíma vissan. Sækja þá um fjárstyrk og um doublet héðan af ýmsu tægi. Þetta ættuð þið að senda Stiptsyfirvöldunum og fá þeirra meðmæli og síð- an láta þau senda Culturministerio. Ekki get eg fundið annað um Lögbergisgaunguna, en að hún hafi verið Processia, sem haldin var þegar allt var undir búið alþingis setn- ínguna, og er þá fyrst hátíðlega sett þing. Menn hafa farið í skrúða sinn í þeirri gaungu, og stundum hefir slettzt upp á menn. — Lýsing sira Björns á alþingisstaðnum er til enn, einsog allar sóknalýsingarnar, því af þeim er ekkert brunnið, en þar er ekki mikið á að græða. Eg hef orðið var við einn forngrip merkilegan, og það eru stein- ar lausir með bolla í, sem má kalla Ólafssteina, eða Ólafs brauð. Þér munið að í jarteiknum Ólafs helga stendur um brauð sem varð að steini hér í Danmörku, og að þessir steinar hafi í þá minníng verið á Ólafskirkjum. Á mynd Ólafs konungs á Jónsbókum finnst að hann heldur á einhverju í annari hendi sem er eins og snigill eða kuðúng- ur. Það eru víst steinarnir og eru þrír hver ofan á öðrum, svo efri steinninn fellur ofan í bollann á hinum. Þar sem hafa verið Ólafs kirkjur má víst enn finna víða þessa steina, lausa og ekki stóra, með bolla í, og væri vert fyrir ykkur að gá að þegar það kemur fyrir. Ef það væri mögulegt, að fá meiri fjárstyrk handa Bókmentafé- laginu og Félagsritum, þá gætum við hjálpað ykkur mikið við ykkar dót, og með því ber minna á og verður allt hægra. Þið ættuð þess vegna að gjöra allt til að útvega okkur styrk, og brúka svo aptur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.